Morgunblaðið - 01.11.2017, Side 74

Morgunblaðið - 01.11.2017, Side 74
74 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 Unnur Anna Halldórsdóttir, djákni og leikskólakennari, er 75 áraí dag. Hún lauk prófi frá Fóstruskóla Sumargjafar 1962 ogprófi frá Djáknaskóla Samariterhemmet í Uppsölum í Svíþjóð 1965. Hún var því fyrsti sérmenntaði djákninn hér á landi í samtím- anum. Síðar sat hún í djáknanefnd, sem sá um að koma á djáknanámi hérlendis en það hófst árið 1993. Unnur var forstöðumaður barnaheimilis Ríkisspítala við Kleppsspít- ala 1962-63, var vígð til djáknaþjónustu við Hallgrímskirkju og Æsku- lýðsstarfs Þjóðkirkjunnar 1965, hafði umsjón með barna- og unglinga- starfi Hallgrímskirkju 1965-70, starfaði á Leikskóla Sauðárkróks og Furugrund í Kópavogi 1974-83, var forstöðumaður Skólaskjóls 6-9 ára barna við Háteigskirkju 1991-95, og vann í Hlíðaskóla 1996-2004 og síð- an á leikskólanum Sólborg þar til hún komst á eftirlaunaaldur. Unnur var formaður Kvenfélags Háteigskirkju 1981-97, sat um ára- bil í Æskulýðsnefnd kirkjunnar, var formaður Djáknanefndar kirkj- unnar og Djáknafélags Íslands og sat í stjórn umönnunar- og hjúkr- unarheimilisins Skjóls. „Eftir að ég hætti að vinna þá hef ég unnið örlítið áfram fyrir þjóð- kirkjuna og svo eins og gengur hjá eldri borgurum þá er ég núna að- allega að hafa það skemmtilegt með barnabörnunum mínum.“ Eiginmaður Unnar er Tómas Sveinsson, fyrrverandi sóknarprestur við Háteigskirkju, og börn þeirra eru Kristín Þórunn, Dagný Halla, Sveinn Bjarki, Gunnfríður Katrín og Jóhannes Þorkell. Barnabörnin eru 12. „Ég ætla að drekka morgunkaffi með vinum og borða kvöldmat með fjölskyldunni. Það verður ekkert stórbrotið gert í tilefni dagsins. Ég verð því í samfélagi vina og fjölskyldu, og er mjög þakklát fyrir góða heilsu og gleði hvunndagsins.“ Á hátíðarstundu Unnur með fjórum af fimm börnum sínum. Fyrsti sérmenntaði djákninn í samtímanum Unnur Halldórsdóttir er 75 ára í dag G unnhildur Elsa Hrólfs- dóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 1. nóv- ember 1947, ólst þar upp og bjó fram að gosi árið 1973. Hún lauk BA-prófi í sagn- fræði frá Háskóla Íslands árið 2011. Fyrstu störfin tengdust fiskvinnu. Allir lögðust á eitt að bjarga verð- mætum, gefið var frí í skólum og lág í loftinu stóð hún á kassa til að ná upp á borð í frystihúsi. Á sumrin fór Gunnhildur í sveit til móðurforeldra sinna á Reyðarfirði. Hún rak kýrn- ar, lærði að mjólka, strokka smjör og hleypa skyr. Á þessum árum var hún staðráðin í að búa í sveit því þar þyrfti aldrei að fara í búð. Seinna saltaði hún síld á Seyðis- firði, hún var hausuð og slógdregin með einu handtaki og angan af kryddi í lofti. Það var eitt af þessum sumrum æskunnar sem hún réði sig í skógræktina á Hallormsstað. Þar var plantað út trjám, reyttur arfi og hlúð að gróðri. Sundlaugarvörður var hún einnig um sumar í ónefndu plássi austur á fjörðum. Laugin var yfirbyggð og á veggjunum rimlar því yfir vetrartímann var salurinn not- aður sem íþróttasalur. Heilu áhafn- irnar komu í sundlaugina til að nota sturturnar og fá sér sundsprett. Sjó- mennirnir klifruðu upp í rimlana og köstuðu sér þaðan út í laugina. Sennilega mjög skemmtilegt fyrir þá, en dálítið erfitt fyrir vörðinn. Þar kom að hún kynntist höfuðborginni og fékk vinnu á saumastofu. Seinna það sumar glasseraði hún snúða og vínarbrauð í bakaríi í Vesturbænum. Gunnhildur missti heimili sitt og æskustöðvar í eldgosinu á Heimaey 23. janúar 1973 og nóttina örlaga- ríku sigldi hún ásamt fjölskyldu sinni til lands í fiskibáti og fannst að ef hún lifði af þessa nótt væru hennir flestir vegir færir. Um tíma glataði tilveran lit og tilgangi en smám sam- an rofaði til og ljóst að lífvænlegt var víðar en í Vestmannaeyjum. Hún var í nokkur ár forstöðukona á barnaheimili, gjaldkeri hjá Mosfells- hreppi og einnig formaður Kven- félags Lágafellssóknar. Síðari árin hafa almenn skrifstofustörf verið störf Gunnhildar með ritstörfum. Helstu áhugamál eru auk fjöl- skyldu; sagnfræði, ferðalög til fram- andi landa og ýmis félagsmál og er hún núna formaður Kvenfélagsins Heimaeyjar sem í eru konur frá Vestmannaeyjum. Gunnhildur og eiginmaður hennar ráku í mörg ár fyrirtækið Frum sem annaðist út- gáfumál, auglýsingagerð og prentun ýmiss konar. Gunnhildur hefur skrifað fjölda bóka fyrir börn og fullorðna. Hún hlaut verðlaun Ríkisútgáfu náms- bóka í tilefni barnaárs Sameinuðu Gunnhildur Hrólfsdóttir, rithöfundur og sagnfræðingur – 70 ára Afmælisveisla Stór hluti fjölskyldunnar var samankominn sl. sunnudag til að halda upp á afmæli Gunnhildar. Unnið til sjávar og sveita Á Kínamúrnum Gunnhildur. Kópavogur Axel Máni Norðfjörð fæddist á Landspítalanum í Reykjavík 1. nóvember 2016 og á því eins árs afmæli í dag. For- eldrar hans eru Andrew David Shaw og Heiða Björk Norðfjörð. Eldri systir er Eva María. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isCARAT Haukur gullsmiður | Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is Skoðið glæsilegt úrval á carat.is 30% afsláttur 1- 11 nóvember Verslaðu jólag jafirnar á www.carat.is eða í verslun okkar Hátúni 6 af öllum CARAT skartgipum Sendum frítt um allt land HÁLSMEN – ARMBÖND – HRINGIR – EYRNALOKKAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.