Morgunblaðið - 01.11.2017, Side 10

Morgunblaðið - 01.11.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 Nýjar vörur í hverri viku Holtasmári 1 201 Kópavogur sími 571 5464 Str. 38-52 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Til stendur að sameina leikskólana Seljaborg og Seljakot í Breiðholti og var tillaga sviðsstjóra skóla- og frístunda- sviðs Reykjavíkurborgar þess efnis tekin fyrir á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs. Ákvörðun um sameiningu var frestað til næsta fundar en lagt hefur verið til að sam- einingin komi til framkvæmdar um áramótin. Árið 2011 var fjöldi leikskóla sameinaður í Reykjavík. Þá var lagt til að sameina Seljaborg og Seljakot, sem eru litlir leikskólar nálægt hvor öðrum í Seljahverfi, en horfið var frá því vegna ólíkra áherslna í leikskólastarfinu. Selja- borg vinnur í anda Hjallastefnunar en Seljakot eftir hug- myndafræði Reggio Emilia. Sigríður Kristín Jónsdóttir, leikskólastjóri Seljakots, segir aðalóánægjuna enn snúa að ólíkum stefnum og starfsháttum leikskólanna. „Það er hægt að sameina skólana en aðferðafræðin og forsendurnar þurfa að vera réttar. Til að sameiningin sé farsæl þarf að vanda sig og starfsmenn þurfa að finna að þeir geti tekið þátt í henni og haft áhrif,“ segir Sigríður Kristín og leggur áherslu á að sameining gæti kostað bæði tíma og peninga og að það verði óhjákvæmilega miklar breytingar á námskrám skól- anna. „Ef af sameiningu verður þarf að vera svigrúm til að vinna að nýrri skólanámskrá, það tekur tíma. Við samein- ingu leikskólanna og vinnuna sem því fylgir tel ég mik- ilvægt að auka við stöðugildi aðstoðarleikskólastjóra og afleysingu.“ Sigríður Kristín hefur leitað til annarra leikskóla- stjóra til að heyra um þeirra reynslu af sameiningu leik- skóla. „Sumstaðar hefur gengið vel og á öðrum stöðum verr. Það þarf að leggja áherslu á að passað sé upp á vönd- uð vinnubrögð og ég finn fyrir því að það er verið að hlusta á okkur. Þetta er mildara en var við sameiningarnar 2011. Sem dæmi frestaði Skóla- og frístundaráð þessari ákvörð- un núna því þeir ætla að skoða umsagnirnar betur, enn er þetta því tillaga.“ Olga Guðrún Guðjónsdóttir leikskólastjóri Seljaborg- ar segir að þau vilji halda sinni stefnu enda eini leikskóli Reykjavíkurborgar sem vinnur í anda Hjallastefnunnar og hefur gert það síðan 2001. „Við höfum áhyggjur af því að hún líði undir lok við sameiningu og verði þá ekki val fyrir foreldra að senda börnin sín í leikskóla sem vinnur í þeim anda,“ segir Olga. „Auðvitað hafa allar stefnur eitt- hvað gott og við sameiningu yrði þá að finna upp nýja stefnu eða taka eitthvað úr báðum. Svo er spurning hvern- ig þetta vinnst,“ segir Olga. Samkvæmt heimildum á við sameiningu leikskólanna að verða til hagstæðari rekstrareining sem liggur m.a. í launum eins stjórnanda, kostnaði við reikninga og bókhald og hagræðingu í innkaupum. Á fundi skóla- og frístundaráðs var líka tekin fyrir til- laga um sameiningu leikskólanna Engjaborgar og Huldu- heima í Grafarvogi en afgreiðslu þeirrar tillögu var frest- að til næsta fundar. Borgin fyrirhugar samein- ingu nokkurra leikskóla  Þarf að passa upp á vönduð vinnubrögð segir leikskólastjóri Morgunblaðið/Ómar Leikskólabörn Borgin vill sameina fleiri leikskóla. Þrjú brugghús eru stærst á markaði, Öl- gerðin með Borg brugghús innanborðs, Vífilfell með Einstök innanborðs og Kaldi. Nokkrir bruggbarir eru þegar starfandi á landsbyggðinni; Ölverk í Hveragerði, Jón ríki í nágrenni við Höfn, Beljandi á Breiðdalsvík og The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum. Í höfuðborginni er Bryggjan brugghús og Öldurhúsið á að opna í vetur. Þá er bruggað í Ægisgarði vestur á Granda. Af örbrugghúsum á höfuðborgarsvæð- inu hefur Lady Brewery þegar látið til sín taka, Ide brugghús sendi frá sér fyrsta bjórinn á dögunum og RVK Brewing Co. verður opnað bráðlega. Kex Brewing hef- ur sent frá sér marga bjóra og bruggað með þekktum brugghúsum úti í heimi og innan tíðar mun Malbygg fara í gang. Brugg kompaní er á Akureyri, Segull 67 á Siglufirði, Gæðingur í Skagafirði, Steðji í Borgarfirði og Ölvisholt í Flóanum. Smiðj- an verður opnuð í Vík í Mýrdal og Austri er á Héraði. Þá eru ótalin brugghúsin Hólar, Draugr og ónefnt brugghús Gunn- ars Óla. 25 brugghús um allt land BJÓRÁHUGAFÓLK GETUR BRAGÐAÐ Á SPENNANDI NÝJUNGUM ALLS STAÐAR Á LANDINU Brugghús Lady Brewery. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Er það ekki þannig að þegar ein kýrin mígur þá verður annarri mál? Það er hellings markaður fyrir þetta,“ segir Hrafnkell Freyr Magn- ússon, eigandi Brew.is, um ótrúlega fjölgun sem orðið hefur á brugg- húsum hér á landi að undanförnu. Um 25 brugghús eru nú hér á landi og þau sem bæst hafa við, eða eru í undirbúningi, eru öll hluti af mikilli vakningu í svokölluðum handverks- bjór, vönduðum bjór sem fram- leiddur er í litlu magni í svokölluðum örbrugghúsum. Fyrsta slíka brugg- húsið á Íslandi var Kaldi á Árskógss- andi sem stofnað var 2006. Síðan hafa margir lítrar runnið ofan í land- ann. Mikill áhugi hefur verið á heima- bruggi síðustu ár og margir sem nú brugga í alvörubrugghúsum hafa byrjað heima í bílskúr. Hrafnkell hefur rekið Brew.is síðan 2010 og hefur séð ófáum heimabruggurum og smærri brugghúsum fyrir hrá- efni. Hann segir að rúmt ár sé síðan að þessi litlu brugghús fóru að spretta upp. „Það hafa rosalega margir verið að pæla í þessu lengi og svo fór þetta af stað þegar sá sem rekur Jón ríka á Höfn keypti brugggræjur frá Kína. Þá kvisaðist út að hægt væri að fá góðar græjur á verði sem væri innan seilingar fyrir marga.“ Síðan þá hafa hátt í tíu brugghús verið sett upp með samskonar græj- um. Algengt er að menn borgi um tíu milljónir króna fyrir brugggræj- urnar. Þá á eftir að finna hentugt húsnæði og koma því í stand. Al- gengt er að aðrar fimm milljónir fari í það. Það er því hægt að miða við að um 15 milljónir króna kosti að koma upp sómasamlegu brugghúsi á Ís- landi í dag. „Þetta er kannski einn Land Cruiser og það eru nú ófáir sem eiga slíkan,“ segir Hrafnkell. Eyþór Helgi Pétursson, formaður Fágunar, félags áhugafólks um gerj- un, tekur undir með Hrafnkeli. „Þetta er allt að breytast, kostn- aðurinn og svo hjálpar fjölgun ferða- manna líka til við að búa til markað fyrir bjórinn. Það heillar líka marga að búa til vöru. Fólk er ekkert endi- lega í þessu til að græða peninga, eiginlega þvert á móti.“ Mörg af þessum nýju brugghúsum eru einmitt á landsbyggðinni enda hentar það afskaplega vel að byrja smátt, tryggja sér viðskipti á veit- ingastöðum og hótelum í nær- umhverfinu og byggja svo ofan á það. Þá sleppa brugghúsin við 18% álagn- ingu í Vínbúðunum og flutnings- kostnað sem myndi ella bætast við. Eitt af þeim örbrugghúsum sem vakið hafa athygli síðustu misseri er Brothers Brewery í Vestmanna- eyjum. „Við byrjuðum að brugga í kjallara árið 2013 og fengum fram- leiðsluleyfi í janúar 2016. Það var svo í mars á þessu ári sem við opnuðum ölstofu og brugghús í nýju húsnæði,“ segir Kjartan Vídó Ólafsson, einn forsvarsmanna Brothers Brewery. Hann kveðst ánægður með hvern- ig gengið hefur að koma fyrirtækinu á legg. „Við erum fast á 5-6 stöðum í Reykjavík og á okkar stað í Eyjum. Þetta hefur gengið eins og í góðri sögu og við erum ánægðir með hvað við erum komnir langt. Það var ekki fyrr en nú í september sem einn okk- ar fór í fulla vinnu hjá Brothers Bre- wery. Þetta er áhugamál sem hefur undið upp á sig hægt og rólega.“ Hann segir að stefnan sé einmitt að fyrirtækið vaxi hægt og rólega. Á næsta ári verður ef til vill ein bjór- tegund sett í sölu í Vínbúðunum en vöxturinn eigi að koma á veit- ingamarkaði. „Það hefur orðið mikil vakning í bjórmenningu á Íslandi. Við tökum því fagnandi að litlum brugghúsum fjölgi, því fleiri, þeim mun betra. Það er líka gaman hvað þetta dreifist skemmtilega um landið, bæði fyrir túrismann og líka fyrir Íslendinga að komast í handverksbjór.“ Brugghús spretta upp um allt land  Síðasta árið hefur örbrugghúsum fjölgað hratt hér á landi  Græjurnar kosta 10 milljónir frá Kína  Sífellt fleiri sneiða hjá Vínbúðunum og selja bara á veitingastaði  Vakning í bjórmenningu Ljósmynd/Ólafur Einar Lárusson Bræðurnir Hlynur Vídó, Hannes Kristinn, Kjartan Vídó og Jóhann Ólafur reka The Brothers Brewery í Eyjum. Fólki gefst kostur á að koma með eigin gripi til greiningar hjá sér- fræðingum Þjóðminjasafns Íslands næstkomandi sunnudag. Grein- ingin er ókeypis og fer fram í fyrir- lestrarsal safnsins á fyrstu hæð frá klukkan 14 til 16, að því er fram kemur í tilkynningu frá safninu. Hámarksfjöldi gripa til greiningar eru þrír hlutir á mann. Í tilkynningunni segir að grip- irnir geti verið erfða- eða ættar- gripir, t.d. útskornir munir, skart eða hvaðeina sem virðist gamalt. Ennfremur segir að þeir þurfi ekki „að vera frá miðöldum“ til að telj- ast gamlir. Margar nýjungar síð- ustu áratuga séu raunar orðnar „gamlar“ eða „fornlegar“. Reynt verður að greina gripi út frá aldri, efni, uppruna og fleiru, en verðgildi þeirra verður ekki metið. Gripina hafa eigendur með sér heim að lokinni skoðun. Fólk getur látið greina forngripi sína

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.