Morgunblaðið - 01.11.2017, Blaðsíða 77
DÆGRADVÖL 77
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reyndu að leysa samskiptavandamál
með því að prófa nýja aðferð. Gátan leysist
ekki á næstunni, reyndu að finna til spennu
frekar en gremju.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú munt sennilega hafa minniháttar
áhyggjur af einhverju í dag. Væntanlega mun
það hafa áhrif á tekjur þínar til hins betra.
Vertu bara þú sjálfur og njóttu þess sem gef-
ur lífinu lit.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er rétti tíminn til þess að gera
vel við sjálfan sig og næra líkama og sál.
Mundu að við erum öll mannleg og dæmdu
ekki aðra harðar en þú dæmir sjálfan þig.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú er rétti tíminn til að sækjast eftir
því sem þú vilt í vinnunni. Til að vera í núinu
þarftu að hætta þessari sjálfsgagnrýni sem
dregur athyglina frá því.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú færð snjallar og hagnýtar hug-
myndir í vinnunni í dag. Gakktu sjálfur úr
skugga um sannleiksgildið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þeir eru ófáir sem líta upp til þín en
láttu það ekki stíga þér til höfuðs. Um leið og
þú hellir þér út í það fellur hvert atriði á sinn
stað.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þykist vita hvers vegna viss aðili ger-
ir það sem hann gerir, en ert ekki alveg viss.
Byggðu þig frekar upp fyrir framtíðina.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú munt sennilega eiga áhuga-
verðar samræður við einhvern ókunnugan í
dag. Sýndu nú hug, djörfung og dug – vilji er
allt sem þarf.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Orðum þarf að fylgja einhver at-
höfn því annars missa þau marks. Leggðu
þinn skerf til mannúðarmála. Ef þú auglýsir
ekki, hver þá? Draumar næturinnar verða
brjálaðir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú getur ekki lokað augunum fyrir
því að margt af því sem þú segir misskilst af
því að þú talar hvorki skýrt né skorinort.
Gleymdu ekki að sýna þakklæti þitt fyrir vin-
áttuvott.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú getur ekki endalaust leikið ein-
leik þinn, þótt góður sé. Vertu sveigjanlegur
því á þann veg muntu ná mestum árangri.
Gefðu þér tíma til að gaumgæfa málin.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hjól lífsins halda áfram að snúast ef
maður fyrirgefur óvini sínum. Þú leggur þig
mikið fram við að gera vinum sínum til
hæfis.
Páll Imsland er óvenju langorðurá Leir að þessu sinni og lætur
svo um mælt: „Það er margt að
breytast í notkun ísl. máls og ekki
lengur kennd nein málfræði að heit-
ið geti.
Málið á að fá að þróast eins og það
vill, segja málfræðingar.
Það hefur þó engan vilja og hlýtur
því að þróast eftir öðrum leiðum en
viljans.
Það sem þróast þannig breytist
tilviljanakennt og kaótískt.
Ekki er öllum sama um þetta og
um þetta má margt mæla.
Kannski verður að setja lög á
þingi um málnotkun og þróun ísl.
máls í framtíðinni:“
Þorlákur Jónsson á Þingi
var þagmælskumeistarinn slyngi,
– Hann sveik ekki lit,
enda lítið hans vit.
en það lagaðist, ef að hann syngi.
Stjórnarmyndunarviðræður eru
að hefjast og óvissuþættir margir,
svo að Ólafi Stefánssyni líst ekki
meira en svo á blikuna:
Forða oss, Herra, úr háska
heimtaðu dýra fórn,
vonandi í vor um páska
verður komin stjórn.
Gústi Mar sér atburðarásina
þannig fyrir sér:
Eitthvað virðast utangátta
enginn lausnir finna kann.
Í röð þeir fara einn og átta.
eiga að hitta forsetann.
Hjálmar Freysteinsson birtir
þessa vísu á fésbókarsíðu sinni og
þykir hitta í mark, – . „Lilja er auð-
vitað blómið enda blómanafn“ er at-
hugasemd Guðrúnar Indriðadóttur:
Þeim sem haltra á skökkum skóm
og skrimta á eyðijörðum,
er álitsbót að eiga blóm
í annarra manna görðum.
Hallmundur Kristinsson er maður
sátta og fer með „Söng dýralæknis-
ins í Hálsaskógi“ á Boðnarmiði:
Bændur horfa til beggja átta,
byr mun ráða för,
langar þá að leita sátta
með loforðum á vör.
Með íhaldið á aðra hönd,
og alþýðu á hina
er freistandi að binda bönd
og brúa á milli vina.
Fía á Sandi veltir fyrir sér „örlög-
um alkans“:
Þó ég biðji guð um grið
og gráti sárt með ekka
aldrei get ég fundið frið
fái ég ekki að drekka.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Lög um málnotkun
og í skökkum skóm
„EF HANN GETUR EKKI TALAÐ, HVERNIG
VEISTU ÞÁ AÐ HANN HEITIR HRÓLFUR?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að bíða eftir næsta
tölvupósti frá honum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
OG …
ÞÚ ERT MEÐ SÚKKULAÐIBÚÐING
Á KINNINNI OG SMÁ HOR Í
NEFINU
SUMIR UPPLJÓSTRARAR SEGJA MEIRA
EN AÐRIR.
ÞÚ LIGGUR ÞARNA
MEÐAN ÉG GERI ALLT
HÉRNA
VIÐ GETUM VERIÐ
SAMMÁLA UM ÞAÐ!
EN ÉG SKIL EKKI HVERNIG ÞESSI
SKJÖL EIGA AÐ HJÁLPA ÞÉR AÐ FLÝJA!
KOMSTU MEÐ ÞJÖL
EINSOG ÉG BAÐ UM?
JÁ
Víkverji á í erfiðu sambandi viðsjónvarpið sitt. Honum finnst
gaman að horfa á ýmislegt í sjón-
varpi, en dagurinn er stuttur og hann
vill koma ýmsu öðru að líka. Hann
furðar sig á því hvað sumir virðast
hafa mikinn tíma til að horfa á sjón-
varp – stunda lotugláp. Þeir hafa
horft á heilu sjónvarpsseríurnar nán-
ast áður en þær dúkka upp á efnis-
veitunum. Víkverji á það til að byrja
á svona seríum, en nær sjaldnast að
klára þær, ekki vegna áhugaleysis,
heldur tímaleysis. Þar við bætist að
vilji fjölskyldan finna tíma til að
horfa saman verður enn erfiðara að
komast í gegnum margra þátta raðir.
x x x
Víkverji er svo aldurhniginn aðhann man þá daga, sem ekkert
sjónvarp var á fimmtudögum og út-
sendingar lágu niðri á sumrin. Þá var
lítil hætta á því að ekki væri tími til
að horfa á það, sem áhuga vakti í
sjónvarpi. Það var helst að dagskrá
sjónvarps skaraðist við aðra viðburði
í dagskrá lífsins því aðeins var hægt
að horfa á viðkomandi efni í þetta
eina skipti.
x x x
Nú getur Víkverji verið sinn eigindagskrárstjóri, horft á það sem
honum sýnist þegar honum sýnist.
x x x
Hann á það þó til að sitja yfir línu-legri dagskrá, jafnvel lengur en
góðu hófi gegnir. Eftir á spyr hann
sig stundum hvort hann hefði virki-
lega horft á það, sem hann er búinn
að sitja yfir í sjónvarpinu í heilt
kvöld, ef hann hefði sjálfur ákveðið
að velja. Iðulega er svarið nei.
Fyrir helgi setti efnisveitan Net-
flix þáttaröðina Stranger Things í
umferð. Margir höfðu beðið með
eftirvæntingu eftir þessum þáttum,
enda fyrsta þáttaröðin í þessum
flokki hreint afbragð. Víkverji heyrði
einhvers staðar þá kenningu að
þarna væri fundin ástæða fyrir því að
Píratar hefðu fengið færri atkvæði
nú, en í fyrra. Þættirnir höfðuðu sér-
staklega til þeirra stuðningsmanna
og þeir hefðu setið heima á kjördag
til að horfa á þættina í einni lotu.
Þegar þeir loks gátu staðið upp eftir
að hafa horft á síðasta þáttinn hefði
verið búið að loka kjörstöðum.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Eins og hindin þráir vatnslindir þráir sál mín
þig, ó Guð. (Sálmarnir 42:2)
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.is
DEKKJAÞJÓNUSTA
TÍMABÓKANIR
Í SÍMA 540 4900
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT
DEKK UNDIR FLESTAR GERÐIR
JEPPA OG JEPPLINGA.