Morgunblaðið - 02.12.2017, Side 1

Morgunblaðið - 02.12.2017, Side 1
Ásakanir sem nístu djúpt Hugmyndir að gjöfum Tómas Guðbjartsson skurðlæknirfer yfir ótrúlega atburðarás íplastbarkamálinu svokallaða semhefur haft mikil áhrif á hann bæðisem lækni og manneskju 10 3. DESEMBER 2017 SUNNUDAGUR Þríleik lokið Hún fékk bók en hann fékk nálog tvinna. Eðavar það öfugt?Skemmtilegargjafahugmyndir 30 Krumminn sesturKrummi í Mínus hefur sagt skilið við rugl og rótleysi og fagnarnýútkominni plötu auk þess að opna vegan-veitingastað 18 Lilja Sig- urðardóttir kveður góða kunningja 40 L A U G A R D A G U R 2. D E S E M B E R 2 0 1 7 Stofnað 1913  284. tölublað  105. árgangur  SEMUR ÓPERU UM TYRKJARÁNIÐ FIMMTÁN BÆKUR TILNEFNDAR ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNIN 58GUNNAR ÞÓRÐARSON 24 „Ekkert mál sem ég hef komið að á mínum læknisferli hefur haft jafn- mikil áhrif á mig, bæði sem lækni og persónu. Þar skiptir líka máli að þetta hefur verið langt ferli, erfitt að geta ekki tjáð sig, vera ásakaður um að halda einhverju leyndu og jafnvel beinlínis ljúga,“ segir Tóm- as Guðbjartsson hjartaskurðlæknir sem er í ítarlegu viðtali við Sunnu- dagsblaðið. Þar rekur Tómas ótrúlega at- burðarás plastbarkamálsins svo- kallaða og fer yfir niðurstöður ís- lensku rannsóknarnefndarinnar sem komu út fyrir nokkru. Hann af- henti rannsakendum hátt í 5.000 blaðsíður af gögnum en sömu gögn hafði hann áður afhent sænsku lög- reglunni. „Ég hef lært af þessu,“ segir Tómas m.a. í viðtalinu. Ekkert mál á ferl- inum tekið meira á Morgunblaðið/RAX Læknir Tómas Guðbjartsson með barna- barni sínu, Hlyni Atla, átta mánaða. 22 dagartil jóla Sendu jólakveðju á jolamjolk.is AÐVENTUTÓNLEIKAR Jonathan Cohen hljómsveitarstjóri Sally Matthews einsöngvari 19:307. DESEMBER Hátíðlegir aðventutónleikar þar sem ein eftirsóttasta sópransöngkona heims syngur einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands.  Ný ríkisstjórn Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks kom saman á sínum fyrsta fundi í Stjórnarráðinu í gær. Á fundinum voru ný fjárlög helsta mál á dag- skrá og vinnur ríkisstjórnin nú hörðum höndum að nýju fjárlaga- frumvarpi. Á síðustu dögum hefur ríkisstjórnin rætt sín á milli um efn- istök nýrra fjárlaga en mikil áhersla er lögð á að meginákvarð- anir varðandi fjárlögin liggi fyrir eftir helgina. Í nýjum sáttmála er kveðið á um aukið fjármagn til ým- issa málaflokka. »10, 11 og 30 Fjárlögin fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar Morgunblaðið/Hari Ríkisstjórn Fyrsti fundur stjórnar Katr- ínar Jakobsdóttur í Stjórnarráðinu í gær. Andri Steinn Hilmarsson Vilhjálmur A. Kjartansson Víðir Sigurðsson „Það verður þjóðhátíðarveisla hjá Íslendingum í Moskvu,“ segir Hilm- ar Jökull Stefánsson, stjórnarmaður í Tólfunni, stuðningsmannasveit Ís- lands, um fyrsta leik Íslands á HM í Rússlandi laugardaginn 16. júní nk., gegn Lionel Messi og félögum í liði Argentínu, sem er í 4. sæti á heims- lista FIFA. Tólfan safnaðist saman á Ölveri í gær til að fylgjast með drættinum í riðla á HM. Hilmar sagði allt stefna í þrefalda þjóðhátíð þessa helgi, frá 15. til 17. júní 2018. Ísland spilar í D- riðli í Rússlandi, einum erfiðasta riðli mótsins. Auk Argentínu mæt- um við einnig Nígeríu hinn 22. júní í borginni Volgograd og Króatía er þriðji og síðasti mótherji Íslands í riðlinum, en sá leikur fer fram 26. júní í borginni Rostov. Þátttökuþjóðir fá 8% miða Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sagðist ekkert hafa sett niður fyrir sér óskamótherja. „Mér datt einhvern veginn í hug að við myndum fá annaðhvort Argentínu eða Brasilíu,“ sagði fyrirliðinn, sem telur heillandi að fá að keppa við sterka fótboltaþjóð frá S-Ameríku. Icelandair og WOW air hafa þeg- ar hafið sölu á flugi til þessara borga í Rússlandi á leikdögum. Strax eftir helgi hefst sala pakkaferða hjá ferðaskrifstofum. Klara Bjartmarz, framkvæmda- stjóri KSÍ, segir þátttökuþjóðir fá 8% miða á hvern leik en miðasala hefst 5. desember nk. og stendur út janúar. Ný stuðningsmannatreyja lands- liðsins fer einnig í sölu hjá Henson eftir helgi en fyrstu treyjurnar voru sýndar eftir dráttinn í gær. Morgunblaðið/Árni Sæberg Útdráttur Stuðningsmenn Tólfunnar fögnuðu ákaft á Ölveri í gær, þegar fyrsti mótherji Íslands á HM í Rússlandi næsta sumar, Argentína, varð ljós. „Þjóðhátíð í Moskvu“  Ísland mætir Argentínu í Moskvu í fyrsta leiknum á HM  Sala á flugi til Rússlands hafin  Miðasala hefst 5. des. MHM í Rússlandi »6 og Íþróttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.