Morgunblaðið - 02.12.2017, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 02.12.2017, Blaðsíða 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017 Lagt af stað Það er logndrífa svo ekki sér yfir í Biltuna hinumegin Bíldudalsvogs- ins. Húsin sem kúra á Búðareyrinni eru snævi þakin og það logar á götu- lýsingunni í rökkrinu. Það er kominn 16. febrúar en dögun er enn ekki í nánd. Það marrar þungt í snjónum á þessari stuttu leið niður á bryggju. Þar liggur Þormóður við bryggju- hausinn. Það tókst að fá hann inn á Bíldudal og þeir ætla að taka fólk með. Það eru svo margir sem þurfa að komast suður. Forystumenn atvinnulífsins þurfa suður að ræða við eigendur og banka um rekstur liðins árs og horfur hins nýja. Sjómenn þurfa að komast til skipa sinna. Ungt fólk þarf að kom- ast í vinnu, enda uppgrip fyrir sunnan og vantar fólk. Stríðsgróð- inn er farinn að segja til sín. Það er svo aldrei að vita hvort Esjan kemur við á leið að norðan; um það fást aldrei nein svör. Ekki kom hún við á norð- urleiðinni, enda á hraðferð; ekki komið síðan í nóvember. Það drífur að fólkið. Skipinu ligg- ur á. Það er með fryst kjöt í lestinni frá Hvammstanga sem þarf að kom- ast í maga hermannanna fyrir sunn- an. Þegar lagt er af stað er allt þetta fólk búið að finna sér einhverja holu um borð. Konurnar fá koju. Yngra fólkið situr í matsal og þar sem það finnur pláss. Það er áfram logn þegar siglt er út Arnarfjörðinn en þegar komið er á Patreksfjörð er farið að kula. Þar eru presturinn í Sauðlauksdal og skipstjórinn á Baldri teknir um borð eftir nokkra bið og þá eru þau orðin 31 um borð. Þetta er of margt fólk til þess að það geti farið vel um það. Þetta skip er ekki neitt farþegaskip. Þetta er línuveiðari og síldarskip; leigt í strandflutninga af Skipaút- gerðinni til að bæta upp siglingaleysi vegna stríðsins. Það er farið að hvessa þegar kom- ið er fyrir Blakk og veður í upp- gangi. Þá er um að gera að komast suður áður en hann nær inn á landið og á siglingaleiðina af alvöru. Þor- móður er þokkalegt gangskip og getur verið kominn til Reykjavíkur áður en langt verði liðið á næsta dag. Verst með þessar tafir á Patreks- firði. Skipið hefði eiginlega getað verið komið langleiðina suður núna. En það er vont að átta sig á veðrinu þegar engar eru veðurfréttirnar. Það er orðið ærið hvasst og liðið að kvöldi þegar komið er undir Snæ- fellsnes og þá álitið skynsamlegast að leita vars þó að kjötið gæti skemmst eitthvað. Alls er óvíst hversu lengi veðrið vari. Akkerum er því varpað undir Ólafsvíkurenni yfir nóttina. Í dagrenning er akker- um létt og haldið aftur af stað. Þormóður ver sig vel og vindurinn er vonandi enn svo sunnanstæður að það getur orðið skaplegt sjólag þeg- ar komið verður inn á Faxaflóa. Öld- urnar ganga yfir skipið við Öndverð- arnesið og um borð eru flestir orðnir sjóveikir og bera sig illa. Þetta verð- ur mikill barningur áður en lýkur. Erfitt að skilja hvers vegna skipið beið ekki af sér veðrið í Ólafsvík eða fór inn á Grundarfjörð. Í Faxaflóa Farið er að óttast um skipið og reyna að hafa samband við það um kl. 16 en tekst ekki fyrr en kl. 19. Þá segir skipstjórinn þá slóa í Faxabugt og geti ekki sagt til um það hvenær skipið nái til Reykjavíkur. Þeir hafa þá verið á hægri siglingu allan dag- inn, haldið upp í veðrið og þokast suður í Faxaflóann. Engin tök hafa verið á því að snúa undan og inn til Reykjavíkur. Úti í rúmsjó var þeim nokkuð óhætt og í dagsbirtunni mátti víkja sér undan ólögum. Nógu margir hafa verið í brúnni til að fylgjast með þeim. Gísli skipstjóri hefur haft ráðuneyti af Þórði kollega sínum og Bárði stýrimanni. Lárus og Jóhann vélstjórar hafa lagt sig fram um að vélin gengi og hafa dælt sjó úr skipinu eftir þörfum sem áreiðanlega hafa verið allnokkrar. En sem sagt; allt var í lagi og eftir ástæðum kl. 19, ella hefði þess sjálf- sagt verið getið. Tveir farþeganna sendu líka skeyti til síns fólks og sögðu að öll- um liði vel, og þeir höfðu helst hug- mynd um að þeirra væri ekki að vænta fyrr en morguninn eftir. Þetta hljóta að hafa verið orð þeim til hughreystingar sem biðu þeirra, því engum hefur liðið vel í slíkum veltingi og stórviðri sem skipið barð- ist í. Margir hafa verið sjóveikir og fengið að liggja í kojum hásetanna eftir því sem þær entust til en aðrir hafa setið á bekkjunum framan við þær og í „messanum“ sem var undir bátadekkinu. Svefn hefur ekki verið næðissamur í tvær nætur og fólkið því allt orðið slæpt. Gunnlaugur matsveinn hefur hins vegar gefið nóg að borða eftir því sem fólkið hef- ur haft lyst á, en ólíklegt að það hafi verið mikið þennan síðasta dag eins og skipið veltist. Undir þessum kringumstæðum hefur óttinn fyrst og fremst verið undirliggjandi, ekki efst í huga, heldur slæm líðanin og þreytan. Fólkið er svo margt um borð að þar er allstaðar þéttsetið. Loftið er þungt vegna innilokunar og ælufýla, þótt eflaust hafi verið reynt að þrífa uppköstin. Allir hafa þurft að skorða sig og halda sér í þungum velt- ingnum, þegar skipið lyftist upp á öldufaldana til þess svo að hlunkast niður í öldudalinn, látlaust upp og niður allan daginn. Þegar komið er fram á kvöld og myrkur skollið á breytast aðstæður allar mikið til hins verra. Mennirnir í brúnni sjá hvorki siglingamerki né brotsjóina. Þeir gera sér líklega grein fyrir því að þeir eru komnir í grennd við Garðskagaröstina. Lætin í sjónum hljóta að hafa veitt vísbendingar um það. Brot lenda á Þormóði og leki eykst. Dælurnar hafa ekki undan lengur. Það sem lausast er ofan þilja er farið fyrir borð. Hvergi glittir hins vegar í Garðskagavita í særokinu. Hann er of lágur og ljóslítill til þess. Skipbrot á Garðskagaflös Út er komin hjá Vestfirska forlaginu bókin Allt þetta fólk sem segir frá því er vélskipið Þormóður frá Bíldudal fórst út af Garð- skaga 18. febrúar 1943 og með því 31 farþegi og skipverjar, flestir frá Bíldudal, en í hópnum voru sex hjón og pör frá Bíldudal. Jakob Ágúst Hjálmarsson ritaði bókina að hvatningu úr hópi þeirra 56 barna sem fólkið lét eftir sig. Tekning/Jóhann Jóhannsson Brottför Teikning Jóhanns Jóhannssonar af því er Þormóður leggur úr höfn á Bíldudal síðla nætur þriðjudaginn 16. febrúar 1943. Myndin er byggð á lýsingum sem fram koma í sjódómsbókum og blaðagreinum. Morgunblaðið/Sverrir 1987 Bílddælingar afhjúpuðu minn- isvarða um Þormóðsslysið og alla þá Arnfirðinga sem farist hafa á sjó. Við minnisvarðann standa þeir Jón Kr. Ólafsson, en hann var frum- kvöðull að gerð minnisvarðans, og sr. Flosi Magnússon, sóknarprestur og sveitarstjóri, ásamt dætrum sín- um Láru og Völu. Örlagaferð Mikil fjara er frá Garðskagaflös og að Lambarifi. Talið er að Þormóður hafi lent í Garð- skagaröstinni og síðan steytt á Garðskagaflös.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.