Morgunblaðið - 02.12.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.12.2017, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Bandarískilögmað-urinn Alan Dershowitz skrifaði í vikunni grein í New York Times þar sem hann lýsir áhyggjum sínum af því að verið sé að glæpavæða þátttöku í bandarískum stjórnmálum. Í greininni segir hann að ekki verði þverfótað fyrir fréttum af rannsóknum á því hvort stjórn- málamenn hafi gerst sekir um glæpsamlegt athæfi og rekur nokkur dæmi bæði á hendur re- públikönum og demókrötum. Dershowitz tekur fram að hann hafi barist gegn því að Donald Trump yrði kjörinn for- seti Bandaríkjanna, en nú sé hann skotmark rannsókna, sem séu pólitískt litaðar. Í fyrra (og aftur nú) hafi það átt við um Hillary Clinton og þar áður mann hennar. Næst í röðinni séu Bernie Sanders og kona hans, sem nú sæti rannsókn að frumkvæði embættismanns repúblikana í Vermont. Dershowitz skrifar að ekki eigi að reyna að láta sveigjanleg lög ná yfir það hvernig Trump beiti valdi, sem hann hafi sam- kvæmt stjórnarskrá. Þegar Trump hafi beðið forstjóra al- ríkislögreglunnar (FBI) að láta niður falla rannsókn sína á Michael Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa, og rekið James Comey úr forstjórastóli FBI hafi hann ekki farið út fyrir stjórnarskrárbundin valdmörk. Hann bætir við að jafnvel þótt menn í herbúðum Trumps hafi haft samband við eða unnið með rússneskum útsendurum sé það ekki glæpur nema þeir hafi ver- ið beðnir um eða hjálpað að fremja glæpi á borð við að brjót- ast inn í tölvur. Ágæti slíkra ákvarðana eigi að setja í dóm kjósenda, ekki kviðdóms. Vitanlega eigi að taka á spill- ingu í stjórnsýslunni, en allar þessar rannsóknir á því hvort stjórnmálamenn hafi framið glæpi séu áhyggjuefni. „Fyrir mér bera þau vitni hræðilegri tilhneigingu, sem hrjáir bæði demókrata og repúblikana, til að glæpavæða ólíkar pólitískar skoðanir.“ Þessi tilhneiging teygði sig hingað til lands þegar réttað var yfir Geir H. Haarde, fyrrver- andi forsætisráðherra, í Lands- dómi. Aðdragandinn var sá að meirihluti þingmannanefndar um rannsóknarskýrslu Alþingis ákvað haustið 2010 að leggja fram þingsályktunartillögu um að fjórir ráðherrar, tveir úr Sjálfstæðisflokki og tveir úr Samfylkingu, yrðu sóttir til saka vegna starfa sinna í að- draganda bankahrunsins. Hinn pólitíski daunn af þessari til- raun til að glæpavæða stjórn- málastarfið var ótvíræður. Harkalegar deil- ur fóru fram um málið á þingi. Í at- kvæðagreiðslunni var síðan tekinn af allur vafi um hið pólitíska eðli máls- ins. Tillögur um að ákæra þrjá ráðherra voru felldar. Hins veg- ar var samþykkt að ákæra þann fjórða, fyrrverandi forsætisráð- herra. Á bak við þá niðurstöðu var ákvörðun fjögurra þing- manna úr Samfylkingunni. Þeir ákváðu að hlífa fyrrverandi for- manni sínum, en setja leiðtoga samstarfsflokksins á sakabekk. Ákæruliðirnir gegn Geir voru sex. Tveimur var vísað frá áður en meðferð málsins hófst, þar á meðal að Geir hefði sýnt af sér stórkostlega vanrækslu sem forsætisráðherra. Hann var síð- an sýknaður af þremur ákæru- liðum af þeim fjórum, sem eftir stóðu. Hins vegar var hann sak- felldur fyrir að hafa ekki sinnt stjórnarskrárbundinni skyldu til að halda ráðherrafundi um mikilvæg málefni. Fimm dóm- arar vildu sýkna hann af öllum ákæruliðum. Sennilega hefur engin ríkis- stjórn fylgt þessu ákvæði stjórnarskrárinnar í þaula, enda sagði Geir þegar dómur féll að hann hefði verið sakfelld- ur fyrir formsatriði, sem „hefur ekkert með orsakir banka- hrunsins að gera“. Ef þetta stjórnarskrárákvæði yrði gert að mælistiku mætti hins vegar búa til fjölda tilefna til að halda Landsdómi uppteknum um ókomin ár, þótt slíkt sjónarspil yrði engum til framdráttar. Geir fór með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu á þeirri forsendu að réttarhöldin gegn sér hefðu verið pólitísk. Fyrir rúmri viku komst dóm- stóllinn að því að Mannréttinda- sáttmáli Evrópu hefði ekki ver- ið brotinn þegar Geir var sakfelldur og sýknaði íslenska ríkið. Sá úrskurður vekur spurningar um hvað þurfi til að réttarhöld teljist pólitísk og hvort dómstóllinn hafi yfirhöfuð skoðað málatilbúnað og aðdrag- anda þess að Geir var dreginn fyrir Landsdóm. Þótt Geir hafi ekki haft erindi sem erfiði fyrir dómstólnum í Strassborg breyt- ir það engu um þá staðreynd að það var pólitísk aðför að efna til réttarhaldanna yfir honum og tilraun til að glæpavæða stjórn- málastarfið. Viðbrögð Ögmund- ar Jónassonar, fyrrverandi þingmanns og ráðherra Vinstri grænna, segja alla söguna: „Í mínum huga hefur Geir Haarde ekki tapað í þessu máli. Við sem hófum þetta mál töpuðum því hins vegar frá fyrsta degi, ein- faldlega með því að krefjast fangelsisdóms yfir manni fyrir að framfylgja pólitískri sann- færingu sinni.“ Landsdómur var til- raun til að glæpa- væða stjórnmála- starfið} Pólitísk réttarhöld Þ að hefur mikið verið talað um nauð- syn þess að stunda ný og betri vinnubrögð á Alþingi undanfarið. En hvað þýðir það í raun og veru? Að sögn forsætisráðherra þá var eitt dæmi um ný vinnubrögð hvernig stjórn- arandstöðunni var boðið upp á að velja um hvort ríkisstjórnin legði fram fjárlagafrumvarp fyrri ríkisstjórnar eða hvort stjórnin ætti að breyta því fyrst og leggja það svo fram. Það sem gleymdist að segja var að samhliða gamla fjárlagafrumvarpinu yrðu lagðar fram breyt- ingatillögur. Niðurstaðan varð þó það sem stjórnarandstaðan bað um, nýtt frumvarp. Að það hafi verið hlustað er merki um ný vinnu- brögð að mínu mati. Að það hafi gleymst að greina frá öllum upplýsingum sem málið varð- aði er hins vegar merki um hið gagnstæða. Hver eru þá þessi nýju vinnubrögð? Í stjórnarsáttmál- anum er meðal annars sagt: „opnari stjórnsýslu, gagnsæi og virðingu gagnvart verkefnum“ og „með því að styrkja Alþingi“. Hluti af því eru loforð um þverpólitískar nefndir, sem er eitthvað sem allir hafa heyrt áður. Einnig ætlar ríkisstjórnin að setja sér siðareglur, sem hefur verið gert áður og dæmin um það hvernig siðareglurnar eru bara orð á blaði sem enginn fer eftir eru til. Eftir að hafa lesið stjórnarsáttmálann hef ég enn ekki hugmynd um hvaða nýju vinnubrögð eiga að skapa einhverja sátt. Það verður örugglega ýmislegt reynt en á sama tíma mun gamla póli- tíkin sífellt vera að þvælast fyrir. Gamlir hundar læra að sitja og þess háttar. Mig langar því að leggja til nokkrar hald- bærar tillögur um nýju vinnubrögðin. Þrjár einfaldar reglur fyrir ríkisstjórnina og ein ein- föld regla fyrir stjórnarandstöðuna. Ríkisstjórn 1. Hlustar á gagnrýni og bregst við. 2. Svarar spurningum undanbragðalaust. 3. Axlar ábyrgð með afsögn eða að stíga til hliðar ef eitthvað fer úrskeiðis. Stjórnarandstaða 1. Kallar ekki „úlfur, úlfur“ eða gerir úlfalda úr mýflugu. Dæmin eru fjölmörg um stjórnarandstöð- una sem gerir of mikið úr litlu máli. Þar falla kannski alls konar gífuryrði sem vega þá þeim mun minna þegar alvarlegt mál kemur upp. Það er erfitt að sjá hvort er orsök og hvort er afleiðing, að stjórnin hlusti ekki eða andstaðan ýki. Þegar allt kemur til alls þá skiptir það ekki máli, hvoru tveggja verður að ljúka. Stjórnarandstaðan verður að vera málefnaleg og ríkisstjórnin verður að gera ráð fyr- ir því að gagnrýni og spurningar séu málefnalegar jafnvel þó þeim finnist þær ekki hljóma þannig. Að lokum vil ég líka gera það að tillögu minni að stjórn- arandstaðan heiti héðan í frá ekki stjórnarandstaða eða minnihluti heldur stjórnareftirlit. Orð í íslensku eru lýs- andi og andstaða þýðir að „vera andvígur e-u, virk nei- kvæð afstaða“. Það er ekki málefnalegt. Ný vinnubrögð eru alvöru eftirlit og ábyrgð. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Ný vinnubrögð og stjórnareftirlit Höfundur er þingmaður Pírata. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Guðmundur Ingi Guð-brandsson tók við emb-ætti umhverfisráðherra ígær. Hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Land- verndar um árabil. Óhætt er að segja að innkoma Guðmundar sé óvenjuleg. Þótt ráðherrar hafi verið sóttir út fyrir Alþingi reglulega finnast þess ekki dæmi að þeir hafi farið fyrir baráttusamtökum í við- komandi málaflokki áður. Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur segir að inn- koma Guðmundar sé þó í raun af- skaplega svipuð og þegar Ólafur Ragnar Grímsson varð fjármála- ráðherra. „Guðmundur er utanþings- maður en hann er ekki utan stjórn- málanna. Landvernd er pólitísk fé- lagasamtök, samtök sem starfa að pólitísku markmiði og hann til- heyrir auk þess VG. Þess vegna er hann pólitískur ráðherra. Hann er ekki fagráðherra sem stendur utan við stjórnmálin eins og reynt var að gera með Gylfa Magnússon og Rögnu Árnadóttur. Það er mun- urinn,“ segir Eiríkur Bergmann. Vanhæfi ekki vandamál „Það má gera greinarmun á þessum tveimur tegundum. Guð- mundur er eflaust valinn af fagleg- um ástæðum en hann er ekki bara valinn af þeim ástæðum. Hann er líka valinn vegna stjórnmálanna,“ segir Eiríkur Bergmann. Þegar hefur komið upp um- ræða um hvort umhverfisráðherr- ann nýi kunni að vera vanhæfur þegar kemur að málum sem hann hefur áður beitt sér gegn í fyrra starfi sínu. Eiríkur kveðst telja að það sé ekki stórt vandamál fyrir stjórnina. „Þá víkur hann bara sæti í þeim málum og annar ráðherra er skipaður við afgreiðslu viðkomandi mála. Ráðherrar hafa oft verið van- hæfir vegna fyrri starfa, fyrri emb- ættisfærslna eða einhvers sem þeir hafa sagt.“ Ráðherra hefur þegar velt því upp hvort skynsamlegt sé að reisa Hvalárvirkjun í Árneshreppi. Nefndi hann í viðtali á Rás 2 að skynsamlegt væri að bera saman kosti þess að reisa umrædda virkjun og að stofna þar þjóðgarð. Hann sagði jafnframt að sú skýring að virkjunin myndi auka raforkuöryggi á Vestfjörðum væri langsótt. „Það sem þarf að laga varðandi raforku- mál á Vestfjörðum er að tryggja bet- ur afhendingaröryggi orku. Þar myndi ég vilja sjá að horft yrði til hvaða möguleikar eru til staðar til að setja raflínur í jörð á þessu svæði.“ Fagna áherslum stjórnarinnar Guðmundur Ásmundsson, for- stjóri Landsnets, fagnar áherslum í stjórnarsáttmálanum enda kannski næg verkefni fram undan. „Í ljósi stöðunnar á flutningskerfinu er mik- ilvægt fyrir okkur að stjórnarsátt- málinn leggi áherslu á þennan mik- ilvæga innvið sem raforkuflutnings- kerfið er. Orkustefna til lengri tíma, áhersla á uppbyggingu kerfisins og ekki síst áhersla á bætta skilvirkni stjórnsýslunnar þegar kemur að ákvörðunum sem tengjast línulögnum eru allt þættir sem hafa mikið vægi. Ég óska nafna mínum, nýjum umhverfisráðherra, til hamingju með starfið og á ekki von á öðru en eiga gott og faglegt sam- starf við hann eins og aðra ráðherra.“ Pólitískur ráðherra, ekki fagráðherra Morgunblaðið/Árni Sæberg Ráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson hefur tekið við embætti um- hverfisráðherra. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri Landverndar. Guðmundur Ingi er 22. ráð- herrann sem situr utan þings og tíundi ráðherrann sem aldr- ei hefur verið kjörinn á þing. Nokkrir ráðherrar hafa verið utan þings nýlega. Síðustu dæmin eru Lilja Alfreðsdóttir sem var utanríkisráðherra í ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Ólöf Nordal sem var innanríkisráðherra frá því í desember 2014 og fram í byrjun þessa árs. Þar áður var Ragna Árna- dóttir dóms- og kirkju- málaráðherra og Gylfi Magnússon viðskipta- ráðherra í ríkisstjórn Jó- hönnu Sigurðardóttur árið 2009. Jón Sigurðsson var iðnaðar- og viðskipta- ráðherra fyrir Fram- sóknarflokkinn 2006-7, svo fátt eitt sé talið. Guðmundur Ingi sá tíundi RÁÐHERRAR UTAN ÞINGS Lilja Alfreðsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.