Morgunblaðið - 02.12.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017
Það er vinsælt að reyna að komainn samviskubiti hjá Vestur-
landabúum fyrir að hafa það gott.
Ríkisútvarpið ræddi til dæmis við
umhverfis-
verkfræðing hjá
Háskóla Íslands
sem telur að skil-
virkasta leiðin til að
„minnka mengun
Íslendinga væri að
minnka neyslu þjóð-
arinnar“. Hann tel-
ur þó ekki mjög líklegt að það ger-
ist „því við stefnum alltaf beinlínis
á meiri og meiri neyslu“.
Fyrst verið er að tala um skil-virkar en ólíklegar aðferðir
til að draga úr mengun má benda
á að Íslendingar mundu líka
menga minna ef þeir væru færri
og sennilega er það langsamlega
skilvirkasta leiðin til að minnka
mengun. Vonandi verður hún ekki
farin frekar en sú „skilvirka“ leið
sem umhverfisverkfræðingurinn
nefndi.
Íslendingar þurfa eins og aðrarþjóðir að ganga vel um náttúr-
una, en það skiptir máli að um-
ræða um slík mál sé raunsæ, sann-
gjörn og laus við öfgar.
Það hefur til dæmis lítið upp ásig að skammast út í Íslend-
inga fyrir að flytja inn mikið af
vörum sem framleiddar séu með
skítugri orku en þeirri sem hér er,
en berjast á sama tíma gegn því að
hreina orkan verði virkjuð til að
auka hreina framleiðslu hér á
landi.
Íslendingar þurfa eins og aðrirað nýta nýja tækni og önnur
tækifæri sem bjóðast til að fara
umhverfisvænar leiðir. Hugmyndir
um að landsmenn taki upp mein-
lætalíf til að falla inn í reikniform-
úlur hafa á hinn bóginn lítið upp á
sig.
Öfgarnar gagnast
umhverfinu ekki
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 1.12., kl. 18.00
Reykjavík 6 alskýjað
Bolungarvík 5 súld
Akureyri 7 alskýjað
Nuuk -1 snjókoma
Þórshöfn 8 skúrir
Ósló -3 heiðskírt
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Stokkhólmur 0 slydduél
Helsinki 0 snjókoma
Lúxemborg 0 léttskýjað
Brussel 1 þoka
Dublin 4 skýjað
Glasgow 3 skýjað
London 4 heiðskírt
París 2 skýjað
Amsterdam 3 þoka
Hamborg 3 skýjað
Berlín 1 rigning
Vín -2 þoka
Moskva 0 snjóél
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 5 léttskýjað
Barcelona 5 skúrir
Mallorca 9 rigning
Róm 12 léttskýjað
Aþena 18 skýjað
Winnipeg -4 skýjað
Montreal 3 alskýjað
New York 9 heiðskírt
Chicago 3 heiðskírt
Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:50 15:46
ÍSAFJÖRÐUR 11:26 15:20
SIGLUFJÖRÐUR 11:10 15:01
DJÚPIVOGUR 10:26 15:08
Nefnir hún lífeindafræðinga sem
dæmi um það. „Það er varla hægt að
finna lífeindafræðing undir fimm-
tugu á Landspítalanum. Mín stétt er
ekki enn kominn inn á þetta stig, en
við stefnum þangað ansi hratt.“
Fram kemur í áskorun aðildar-
félaga BHM að fara þurfi í nauðsyn-
legar leiðréttingar á launasetningu
háskólamanna. Í því sambandi má
nefna hækkun grunnlauna ásamt
endurskoðun launa ákveðinna hópa,
styttingu vinnuvikunnar, bætt
vinnuumhverfi og aðstæður á vinnu-
stað. „[F]yrirsjáanlegur skortur á
háskólamenntuðum starfsstéttum
hjá ríkinu, t.d. í heilbrigðiskerfinu,
krefst sérstakra aðgerða af hálfu
stjórnvalda,“ segir þar.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það sem kynnt hefur verið fyrir
okkur er ákveðin launaþróun, sem út
af fyrir sig má segja að sé ekki
óvenjuleg, en langstærsta vanda-
málið er aftur á móti mjög lág launa-
setning, einkum hjá heilbrigðis-
stéttum innan BHM,“ segir Unnur
Pétursdóttir, formaður Félags
sjúkraþjálfara, við Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til áskorunar
Bandalags háskólamanna (BHM) til
ríkisstjórnar Katrínar Jakobs-
dóttur, en þar er skorað á ríkis-
stjórnina að ganga tafarlaust til
kjarasamninga við aðildarfélög
BHM. Undanfarna þrjá mánuði hef-
ur hvorki gengið né rekið í kjara-
viðræðum 17 aðildarfélaga BHM við
ríkið. Unnur segir þó samtalið í raun
hafa hafist í ársbyrjun 2014.
„Þetta vandamál er ekki einungis
okkar því við sjáum fram á spreng-
ingu í öldrun á næstu 5-15 árum og
ef ríkið ætlar með láglaunastefnu að
svelta alla sjúkraþjálfara út úr
sjúkrahúsum og stofnunum, þá er
heilbrigðiskerfið allt sett í gríðar-
legan vanda,“ segir Unnur og bætir
við að sumar heilbrigðisstéttir BHM
séu þegar komnar í mikinn vanda.
Aðildarfélög BHM
krefjast aðgerða
Gríðarlegur vandi blasir við á næstu árum
BHM Aðildarfélögin efndu til fjöl-
menns fundar í gærmorgun.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Í báðum tilfellum var um að ræða
bilun í hjólabúnaði, en vélarnar eru
af sitthvorri tegundinni og bil-
anirnar einnig ólíkar,“ segir Árni
Gunnarsson, framkvæmdastjóri Air
Iceland Connect, við Morgunblaðið.
Vísar hann í máli sínu til þess þeg-
ar tvær flugvélar félagsins biluðu
með fárra klukkustunda millibili síð-
astliðinn miðvikudag. Viðgerðum er
lokið og vélarnar komnar í notkun.
Árni segir flugvélarnar vera af
gerðinni Bombardier Q400 og Q200.
Hafði önnur þeirra lent á Ísafirði en
hin á Egilsstöðum þegar bilanirnar
komu í ljós.
Getur komið fyrir í öllum vélum
Aðspurður segir Árni loka hafa
bilað í hjólabúnaði Q200 og lýsir bil-
unin sér þannig að lokan hélst opin í
stað þess að dragast inn. „Þetta er
loka sem opnast út og fer svo fyrir
hjólabúnað vélarinnar þegar hann er
kominn upp. En hún virkaði ekki
sem skyldi í þessu tilfelli,“ segir
hann og bætir við að bilunin í Q400
hafi átt sér stað í nefhjóli.
Spurður hvort áðurnefndar bil-
anir séu sjaldséðar í flugvélum
Bombardier svarar Árni: „Nei, þetta
er ekkert sérstaklega óvenjulegt og
getur komið fyrir í þessum vélum
eins og öðrum. Það er hins vegar bú-
ið að gera við þetta og vélarnar eru
komnar í gang aftur.“ khj@mbl.is
Viðgerðum lokið á Bombardier-vélum
Í öðru tilfellinu lokaðist ekki fyrir hjólabúnað Af gerðinni Q400 og Q200
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Farþegaflug Q400-vél félagsins.
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Sigling frá Moskvu til Astrakhan
Hér gefst einstakt tækifæri til að skoða það helsta sem hið
stórbrotna Rússland hefur upp á að bjóða. Við kynnumst
Moskvu, þaðan siglum við fyrst á Moskvufljóti en síðar
á hinu magnaða fljóti Volgu. Á leið okkar til Astrakhan
munum við heimsækja nokkrar af gullborgum Rússlands.
Allir velkomnir á kynningarfund 4. desember
kl. 20:00 hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
sp
ör
eh
f.
11. - 24. september Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson