Morgunblaðið - 02.12.2017, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017
2. desember 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 103.25 103.75 103.5
Sterlingspund 138.9 139.58 139.24
Kanadadalur 79.99 80.45 80.22
Dönsk króna 16.4 16.496 16.448
Norsk króna 12.421 12.495 12.458
Sænsk króna 12.319 12.391 12.355
Svissn. franki 104.74 105.32 105.03
Japanskt jen 0.9179 0.9233 0.9206
SDR 146.02 146.9 146.46
Evra 122.06 122.74 122.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.7488
Hrávöruverð
Gull 1282.15 ($/únsa)
Ál 2032.5 ($/tonn) LME
Hráolía 63.28 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Steinunn Kristín
Þórðardóttir var
kjörin ný í stjórn
Arion banka á sér-
stökum hluthafa-
fundi sem fram fór
á fimmtudaginn. Á
sama tíma vék
Guðrún Johnsen úr
stjórninni. Hún hef-
ur setið í stjórn
bankans frá 2010,
var varaformaður auk þess að vera for-
maður lánanefndar stjórnar og í
áhættunefnd.
Steinunn starfaði þar til nýlega sem
framkvæmdastjóri hjá Beringer Finance
en hún var áður m.a. framkvæmdastjóri
Íslandsbanka í Bretlandi.
Stjórn Arion banka skipa, auk Stein-
unnar, Eva Cederbalk formaður, Brynj-
ólfur Bjarnason, Jakob Már Ásmunds-
son, John P. Madden, Kirstín Þ.
Flygenring, Måns Höglund og Þóra Hall-
grímsdóttir.
Steinunn inn í stjórn
Arion og Guðrún út
Steinunn
Þórðardóttir
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Alur álvinnsla, eina álendurvinnslan
á Íslandi, hefur meira en tvöfaldað
verksmiðju sína á þessu ári. Fyrir-
tækið hefur verið með starfsemi á
Grundartanga síðan árið 2012, en
þar áður, eða frá árinu 1998, starf-
aði félagið í Helguvík. „Farið var af
stað í 1.000 fer-
metrum árið
2012 hér á
Grundartanga,
og núna í ár höf-
um við meira en
tvöfaldað hús-
næðið, sem gerir
okkur kleift að
bæta við okkur
verkefnum. Við
höfum einnig
bætt við tækjum og búnaði til þess
að geta nýtt efnið betur,“ segir
Brynja Silness, framkvæmdastjóri
Als, í samtali við Morgunblaðið.
Fyrirtækið hefur starfsleyfi til að
taka á móti 15.000 tonnum af ál-
gjalli á ári til ársins 2025, og tekur í
dag við efni sem fellur til við frum-
framleiðslu áls úr álverum Rio
Tinto í Straumsvík og Norðuráli á
Grundartanga. Álið sem endurunnið
er fer svo til baka aftur inn í fram-
leiðsluferli Norðuráls og Rio Tinto.
„Það er nauðsynlegt að endurvinna
álgjallið til að hægt sé að endurnýta
það.“
Notar bara 5% af orkunni
Brynja segir að aðeins 5% af
þeirri orku sem fer í að frumfram-
leiða ál fari í að endurvinna það.
„Úr um 7.000 tonnum af gjalli náum
við að vinna um 2.500 tonn af áli á
ári.“
Hún segir að einnig falli til efni
við þeirra eigin framleiðslu, en þar
er um að ræða salt sem notað er við
endurvinnsluna, um 600 tonn á ári.
Það salt sem fellur til er sent utan
til endurvinnslu, og svo til baka, þar
sem það er aftur notað hjá Al í end-
urvinnsluferlinu. „Þannig lokast
hringurinn,“ segir Brynja.
Hún segir framtíðarsýnina vera
að minnka flutning á efni milli
landa, og endurvinna það í verk-
smiðjunni á Grundartanga. „Það er
mikilvægt að lágmarka land- og sjó-
flutningana sem þessu fylgja, og
endurvinna sjálf. Loka þannig
hringnum hér á svæðinu. Við höfum
fjárfest í hluta af þeim búnaði sem
til þarf, og það verður sett upp í
byrjun næsta árs, svo höldum við
bara áfram að vinna í að koma upp
meiri búnaði í því ferli. Nú eru góð-
ir flokkunaraðilar sem safna ál-
brotajárni, dósum og öðru, sem sent
er til útlanda og endurunnið þar.
Uppfærsla hjá okkur og aukinn
búnaður gerir okkur kleift að sinna
þessum verkefnum hér heima. Við
stefnum á að gera þessa verksmiðju
eins skilvirka og hægt er.“
Hún segir að erlent samstarf hafi
verið stór þáttur í uppbyggingu
félagsins og aukinni þekkingu
starfsmanna. „Okkar helstu sam-
starfsaðilar eru í Bretlandi og
Þýskalandi en einnig höfum við
heimsótt verksmiðjur í Pólandi og
Noregi. Þetta eru fyrirtæki sem
starfa á sama vettvangi og búa yfir
dýrmætri reynslu og þekkingu.“
Sjö manns vinna hjá Al sem er að
86,49% hlut í eigu Ramses ehf.,
fjárfestingarfélags Eyþórs Laxdal
Arnalds, og að 13,51% hlut í eigu
Megni ehf., sem er í eigu hjónanna
Þorsteins I. Sigfússonar, forstjóra
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, og
Bergþóru Karenar Ketilsdóttir, for-
stöðumanns viðskiptavers Borgun-
ar.
Álendurvinnsla hefur verið
tvöfölduð að stærð á árinu
Hringrás Brynja segir að gott verði að losna við við land- og sjóflutningana sem fylgja saltendurvinnslunni.
Endurvinnsla
» Áldósir eru allar sendar til
útlanda í dag.
» Allt ál frá Al er sent aftur til
álverksmiðjanna inn í fram-
leiðsluferlið á ný.
» 600 tonn af salti á ári eru
notuð í endurvinnsluferlinu.
» Félagið hét áður Kratus, en
tók nýlega upp nafnið Alur ál-
vinnsla.
» Sjö manns vinna hjá félag-
inu.
Alur álvinnsla vill einnig geta endurunnið áldósir Undirbúa saltendurvinnslu
Brynja
Silness
Kaup Vodafone á 365 miðlum án
Fréttablaðsins og tímaritsins
Glamour gengu í gegn í gær. Á með-
al keyptra eigna eru Stöð 2 og Bylgj-
an. Heildarvirði kaupanna er 8,3
milljarðar króna. Eigendur 365 fá í
sinn hlut 1,6 milljarða í reiðufé og
11% hlut í Vodafone sem metinn er á
2,1 milljarð króna. Auk þess yfirtek-
ur Vodafone vaxtaberandi skuldir að
fjárhæð 4,6 milljarðar króna.
Í kaupsamningnum var ákvæði
um samstarf milli Fréttablaðsins og
visir.is um að vefmiðillinn fengi efni
frá blaðinu á morgnana næstu tvö
árin. Nýr vefréttamiðill á vegum
Fréttablaðsins mun einnig birta
fréttir frá blaðinu. Eftir tvö ár verði
svo skilið alveg á milli fréttadeild-
anna.
Í samtali við mbl.is staðfestir Guð-
finnur Sigurvinsson, samskiptastjóri
Vodafone, að starf fréttastjóra hjá
nýrri fréttadeild Stöðvar 2, Bylgj-
unnar og visir.is hjá Vodafone verði
auglýst á næstunni. Áður gegndi
Kristín Þorsteinsdóttir þeirri stöðu
yfir öllum miðlum 365 sem útgefandi
og aðalritstjóri. Kristín staðfestir við
mbl.is að hún muni áfram gegna
þeirri stöðu hjá Fréttablaðinu eftir
að kaupin eru gengin í gegn, og mun
hún einnig vera aðalritstjóri Bylgj-
unnar, Stöðvar 2 og visir.is fram að
þeim tíma sem nýr fréttaritstjóri
verður ráðinn hjá Vodafone.
Björn Víglundsson, framkvæmda-
stjóri sölusviðs Vodafone, verður
framkvæmdastjóri nýs sviðs Miðla
hjá félaginu og mun leiða samþætt-
ingu þess við aðrar einingar, sem og
vöruþróun.
thorsteinn@mbl.is, helgivifill@mbl.is
Morgunblaðið/Ófeigur
Yfirtaka Heildarvirði kaupa Voda-
fone á 365 var 8,3 milljarðar króna.
Kaup Vodafone á
365 gengin í gegn
Tveir vefmiðlar
munu birta fréttir
Fréttablaðsins