Morgunblaðið - 02.12.2017, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 02.12.2017, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017 VIÐTAL Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Eftir 30 ára hlé sendir Gunnar Þórðarson tónskáld nú frá sér hljómplötu með eigin lögum. Sú kom út fyrir nokkrum dögum og heitir 16. Alls eru sextán lög á plötunni sungin af 12 söngvurum; mörgum af þeim bestu í dag. „Þetta er fólk sem mig einfaldlega langaði að starfa með og það var tilbúið í slíkt. Lögin á plötunni eru annars það sem hreinlega hefur komið til mín á undanförnum ár- um. Oft situr maður við gítarinn eða píanóið og spilar eitthvað út í loftið þannig að melódíur fæðist. Margar gleymast en nokkrar sitja þó alltaf eftir í heilaberkinum og hér eru þær komnar,“ sagði Gunn- ar í samtali við Morgunblaðið í vik- unni. Valdi besta fólkið til samstarfs Söngvarar á plötunni nýju eru Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Sig- ríður Thorlacius, Stefanía Svav- arsdóttir, Stefán Jakobsson, Sara Blandon, Zakarías Hermann Gunnarsson, Elmar Gilbertsson, Stefán Hilmarsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Björgvin Hall- dórsson, Þórdís Sævarsdóttir, Gísli Magna og Katrín Halldóra Sigurð- ardóttir, sem slegið hefur í gegn í söngleiknum Ellý sem sýndur hef- ur verið síðustu mánuði í Borg- arleikhúsinu við góða dóma. Um textana á plötunni er sömu sögu að segja; þar valdi Gunnar besta fólkið til samstarfs. „Þegar lögin voru komin fór ég með þau til höfunda sem ég taldi líklegt að kæmu með texta sem hæfðu, eins og raunin varð,“ segir Gunnar og nefnir þarna rithöfundana Vigdísi Grímsdóttur, Hallgrím Helgason og Guðmund Andra Thorsson en textahöfundarnir eru alls tólf. „Fyrir þessa plötu samdi ég 20- 30 lög og nota síðan helminginn. Eitthvað af því sem varð eftir bíð- ur á harða disknum í tölvunni og nýtist vonandi síðar. Mér finnst að minnsta kosti alltaf skipta miklu máli að næla mér í góða melódíu. Annars finnst mér áberandi að í dag leggja tónlistarmenn ekki jafn mikið upp úr laglínunni og var en þeim mun meira upp úr hljómi og takti laganna þótt kannski sé eng- in ein tónlistarstefna ráðandi,“ segir Gunnar. Hann reiknar með að strax á nýju ári verði tónleikar með lögum af hljómplötunni 16 þar sem nokkrir af hinum ágætu tón- listarmönnum sem þar eiga hlut að máli komi fram. Nánar er platan kynnt á vefsetrinu gunnarthordar- son.com þar sem líka er hægt að kaupa gripinn og fá sendan heim. Semur um Tyrkjaránið Á hálfri öld hefur Gunnar sent frá sér eða tekið þátt í gerð fjölda hljómplatna. Lögin hans skipta hundruðum, þau kunna flestir og skipa sterkan sess í vitund og menningu þjóðarinnar. Um árabil starfaði Gunnar á Broadway og Hótel Íslandi sem tónlistarstjóri við uppsetningu ým- issa sýninga þar en þegar þeim tíma lauk sneri hann sér í ríkari mæli að klassískri tónlist – og út- koman úr því starfi var óperan Ragnheiður sem var sýnd árið 2013. Óperan fjallar um Ragnheiði Brynjólfsdóttur, biskupsdóttur í Skálholti á 17. öld, ástarsamband hennar við lærimeistara sinn, Daða Halldórsson, og fordæmingu föður hennar, Brynjólfs biskups Sveins- sonar, á því sambandi. „Óperuformið er áhugavert og ég er kominn nokkuð áleiðis með þá næstu, en þar byggi ég á Tyrkjaráninu árið 1627. Ég hef lesið mikið um þessa atburði, sem margir hafa skrifað um – rétt eins og Ragnheiði Brynjólfsdóttur. Við Böðvar Guðmundsson rithöfundur erum að vinna saman handrit að óperunni en til þess að ljúka verk- inu þurfum við nokkur misseri enn,“ segir tónskáldið Gunnar Þórðarson að síðustu. Melódían skiptir alltaf miklu máli  Ný sólóplata Gunnars Þórðarsonar heitir 16  Spilar út í loftið  Valdi besta fólkið til samstarfs  Söngvarar eru tólf og þekktir rithöfundar meðal textahöfunda  Óperuformið er áhugavert Morgunblaðið/Sigurður Bogi Tónskáld „Lögin eru annars það sem hreinlega hefur komið til mín á und- anförnum árum,“ segir Gunnar Þórðarson um nýju pötuna, þá fyrstu í 30 ár. Stefán Hilmarsson Stefanía Svavarsdóttir Katrín Halldóra Sigurðardóttir Sigríður Thorlacius setja lygar þeirra fram í því sem hann nefnir „hið opna markaðstorg hugmyndanna“, en á þeim vettvangi almannaumræðu geti allt rökhugs- andi fólk hafnað þeim. Nefnir Dershowitz í því samhengi að hann hafi varið rétt nýnasista til þess að fara í skrúðgöngu um smábæinn Skokie, en þar bjuggu margir sem lifað höfðu helförina af. Dershowitz gerir þó greinarmun á málfrelsi og akademísku frelsi fræðimanna. Enginn háskóli ætti að þola að „akademískt frelsi“ sé mis- notað innan veggja hans, að þar sé ósönnum fullyrðingum haldið að nemendum. Hann er þó þeirrar skoðunar að utan kennslustofunnar sé réttur fræðimanna til þess að tjá sig um umdeild efni eða á umdeil- anlegan hátt óskertur. Að sama skapi verður hlutverk fjölmiðla að skoðast í svipuðu ljósi. Þeir ættu að fjalla um þá staðreynd að til sé fólk sem afneiti helförinni en ekki birta sjálfir fullyrðingar þess efnis að hún hafi ekki átt sér stað. Hver á að dæma? Og þar kemur Dershowitz að helsta vandanum þegar kemur að „fölskum fréttum“. Hvernig eiga fjölmiðlar, fræðimenn og almenn- ingur að fjalla um slíkt? Eiga fjöl- miðlar að birta yfirlýsingar stjórn- málamanna sem þeir hafa látið athuga og komist að raun um að eru uppspuni? Hver getur í frjálsu sam- félagi sest í dómarasæti og ákveðið hvað sé satt og hvað logið? Dershowitz segir að við þessum spurningum séu engin einföld svör að öðru leyti en að ríkisvaldinu ætti ekki að vera falið það hlutverk að finna endimörk málfrelsisins, þar sem gagnrýni á yfirvöld verði alltaf að vera leyfð. Þá sé í netheimum engin leið til þess að tryggja það að sannleikurinn verði alltaf ofan á. „Á endanum mun almenningur alltaf ákveða hverju eigi að trúa, hvað eigi að efast um og hverju eigi að hafna. Og hann mun ekki alltaf taka vitur- legar ákvarðanir á tímum þar sem lygar geta dreift sér á meiri hraða en nokkru sinni fyrr,“ ritar Dershowitz. „Málfrelsi og hið opna markaðs- torg hugmyndanna veita enga full- vissu um að sannleikur, réttlæti eða siðgæði verði ofan á. Í besta falli er málfrelsið ekki eins slæmt og helstu valkostirnir við það, svo sem rit- skoðun ríkisvaldsins, opinberar sannleikssveitir eða tilraunir til að loka á markaðstorg hugmyndanna,“ segir Dershowitz í niðurlagi greinar sinnar. Málfrelsið og markaðs- torg hugmyndanna  Alan Dershowitz skrifar grein í Afmælisrit Jóns Steinars AFP Auschwitz Dershowitz nefnir af- neitun helfararinnar í grein sinni. Jón Steinar Gunnlaugsson Alan Dershowitz SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Hvernig á að taka á „fölskum frétt- um“? Hvaða mörk er rétt að setja á málfrelsi og rétt fólks til þess að halda fram röngum staðreyndum? Þetta er á meðal þeirra spurninga sem Alan M. Dershowitz, einn þekktasti lögfræðingur Bandaríkj- anna, veltir fyrir sér í grein sinni í afmælisriti Jóns Steinars Gunn- laugssonar, fyrrverandi hæstarétt- ardómara, sem kom út í haust í til- efni af sjötugsafmæli hans. Dershowitz er meðal annars þekktur fyrir að hafa verið í lögfræðingateymi ruðningskappans O.J. Simpsons, sem sýknaður var af ákæru um að hafa myrt fyrrverandi eiginkonu sína og ástmann hennar á tíunda áratug 20. aldarinnar. Á með- al annarra þekktra skjólstæðinga Dershowitz á löngum lögmannsferli má nefna Patty Hearst og hnefa- leikakappann Mike Tyson. Þegar helförinni er afneitað Í grein sinni, sem rituð er á ensku, nefnir Dershowitz afneitun helfarar- innar gegn gyðingum sem öfga- kenndasta dæmið um það þegar röngum staðreyndum er haldið fram. Segist Dershowitz fá á hverj- um einasta degi fjölmarga tölvu- pósta frá ýmsum „stofnunum“ þar sem reynt sé að þræta fyrir þá stað- reynd að nasistar hafi reynt að út- rýma gyðingum með skipulegum hætti í síðari heimsstyrjöld. Líkir Dershowitz helfararafneitunum við iðnað að þessu leyti, sem furðumarg- ir hafi atvinnu sína af. Dershowitz lýsir því yfir að hann styðji rétt þeirra sem vilji ljúga til um mannkynssöguna til þess að Yfir 500 starfsmenn Síldarvinnsl- unnar í Neskaupstað, Seyðisfirði, Vestmannaeyjum, Helguvík og Akranesi fagna um helgina 60 ára afmæli fyrirtækisins í Póllandi. Hópurinn býr í borginni Sopot, sem er á milli Gdansk og Gdynia og í kvöld er mikil afmælishátíð á dag- skránni, m.a. með góðum gestum að heiman. Flogið var með þotum Flugleiða til Póllands og á fimmtudag var flog- ið frá Egilsstöðum, en í gær bæði frá Egilsstöðum og Keflavík. Flugstjóri í Egilsstaðavélinni á fimmtudag var Norðfirðingurinn Kári Kárason og notaði hann tækifærið í einstakri veðurblíðu og flaug út Fannardal og Norðfjörð á leiðinni til Póllands. Rólegra yfir bæjarbragnum Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð, sagði um miðjan dag í gær að talsverður munur væri á bæjarbragnum og ró- legra yfir. Hann átti erindi í grunn- skólann og mörg barnanna tjáðu honum að þau gistu hjá ömmu eða öðrum ættingjum þessa helgina. Sjálfur afmælisdagur Síldar- vinnslunnar er 11. desember og verður þá kynnt útgáfa bókar um sögu fyrirtækisins eftir Smára Geirsson. aij@mbl.is  Síldarvinnslan fagnar 60 ára afmæli Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Síldarvinnslan Skip frá Síldarvinnslunni við bryggju í Neskaupstað. Yfir 500 starfs- menn í Póllandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.