Morgunblaðið - 02.12.2017, Síða 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017
Lagt af stað
Það er logndrífa svo ekki sér yfir í
Biltuna hinumegin Bíldudalsvogs-
ins. Húsin sem kúra á Búðareyrinni
eru snævi þakin og það logar á götu-
lýsingunni í rökkrinu. Það er kominn
16. febrúar en dögun er enn ekki í
nánd. Það marrar þungt í snjónum á
þessari stuttu leið niður á bryggju.
Þar liggur Þormóður við bryggju-
hausinn. Það tókst að fá hann inn á
Bíldudal og þeir ætla að taka fólk
með. Það eru svo margir sem þurfa
að komast suður.
Forystumenn atvinnulífsins þurfa
suður að ræða við eigendur og banka
um rekstur liðins árs og horfur hins
nýja. Sjómenn þurfa að komast til
skipa sinna. Ungt fólk þarf að kom-
ast í vinnu, enda
uppgrip fyrir
sunnan og vantar
fólk. Stríðsgróð-
inn er farinn að
segja til sín. Það
er svo aldrei að
vita hvort Esjan
kemur við á leið
að norðan; um
það fást aldrei
nein svör. Ekki kom hún við á norð-
urleiðinni, enda á hraðferð; ekki
komið síðan í nóvember.
Það drífur að fólkið. Skipinu ligg-
ur á. Það er með fryst kjöt í lestinni
frá Hvammstanga sem þarf að kom-
ast í maga hermannanna fyrir sunn-
an. Þegar lagt er af stað er allt þetta
fólk búið að finna sér einhverja holu
um borð. Konurnar fá koju. Yngra
fólkið situr í matsal og þar sem það
finnur pláss.
Það er áfram logn þegar siglt er
út Arnarfjörðinn en þegar komið er
á Patreksfjörð er farið að kula. Þar
eru presturinn í Sauðlauksdal og
skipstjórinn á Baldri teknir um borð
eftir nokkra bið og þá eru þau orðin
31 um borð. Þetta er of margt fólk til
þess að það geti farið vel um það.
Þetta skip er ekki neitt farþegaskip.
Þetta er línuveiðari og síldarskip;
leigt í strandflutninga af Skipaút-
gerðinni til að bæta upp siglingaleysi
vegna stríðsins.
Það er farið að hvessa þegar kom-
ið er fyrir Blakk og veður í upp-
gangi. Þá er um að gera að komast
suður áður en hann nær inn á landið
og á siglingaleiðina af alvöru. Þor-
móður er þokkalegt gangskip og
getur verið kominn til Reykjavíkur
áður en langt verði liðið á næsta dag.
Verst með þessar tafir á Patreks-
firði. Skipið hefði eiginlega getað
verið komið langleiðina suður núna.
En það er vont að átta sig á veðrinu
þegar engar eru veðurfréttirnar.
Það er orðið ærið hvasst og liðið
að kvöldi þegar komið er undir Snæ-
fellsnes og þá álitið skynsamlegast
að leita vars þó að kjötið gæti
skemmst eitthvað. Alls er óvíst
hversu lengi veðrið vari. Akkerum
er því varpað undir Ólafsvíkurenni
yfir nóttina. Í dagrenning er akker-
um létt og haldið aftur af stað.
Þormóður ver sig vel og vindurinn
er vonandi enn svo sunnanstæður að
það getur orðið skaplegt sjólag þeg-
ar komið verður inn á Faxaflóa. Öld-
urnar ganga yfir skipið við Öndverð-
arnesið og um borð eru flestir orðnir
sjóveikir og bera sig illa. Þetta verð-
ur mikill barningur áður en lýkur.
Erfitt að skilja hvers vegna skipið
beið ekki af sér veðrið í Ólafsvík eða
fór inn á Grundarfjörð.
Í Faxaflóa
Farið er að óttast um skipið og
reyna að hafa samband við það um
kl. 16 en tekst ekki fyrr en kl. 19. Þá
segir skipstjórinn þá slóa í Faxabugt
og geti ekki sagt til um það hvenær
skipið nái til Reykjavíkur. Þeir hafa
þá verið á hægri siglingu allan dag-
inn, haldið upp í veðrið og þokast
suður í Faxaflóann. Engin tök hafa
verið á því að snúa undan og inn til
Reykjavíkur. Úti í rúmsjó var þeim
nokkuð óhætt og í dagsbirtunni
mátti víkja sér undan ólögum. Nógu
margir hafa verið í brúnni til að
fylgjast með þeim. Gísli skipstjóri
hefur haft ráðuneyti af Þórði kollega
sínum og Bárði stýrimanni. Lárus
og Jóhann vélstjórar hafa lagt sig
fram um að vélin gengi og hafa dælt
sjó úr skipinu eftir þörfum sem
áreiðanlega hafa verið allnokkrar.
En sem sagt; allt var í lagi og eftir
ástæðum kl. 19, ella hefði þess sjálf-
sagt verið getið.
Tveir farþeganna sendu líka
skeyti til síns fólks og sögðu að öll-
um liði vel, og þeir höfðu helst hug-
mynd um að þeirra væri ekki að
vænta fyrr en morguninn eftir.
Þetta hljóta að hafa verið orð þeim
til hughreystingar sem biðu þeirra,
því engum hefur liðið vel í slíkum
veltingi og stórviðri sem skipið barð-
ist í. Margir hafa verið sjóveikir og
fengið að liggja í kojum hásetanna
eftir því sem þær entust til en aðrir
hafa setið á bekkjunum framan við
þær og í „messanum“ sem var undir
bátadekkinu. Svefn hefur ekki verið
næðissamur í tvær nætur og fólkið
því allt orðið slæpt. Gunnlaugur
matsveinn hefur hins vegar gefið
nóg að borða eftir því sem fólkið hef-
ur haft lyst á, en ólíklegt að það hafi
verið mikið þennan síðasta dag eins
og skipið veltist.
Undir þessum kringumstæðum
hefur óttinn fyrst og fremst verið
undirliggjandi, ekki efst í huga,
heldur slæm líðanin og þreytan.
Fólkið er svo margt um borð að þar
er allstaðar þéttsetið. Loftið er
þungt vegna innilokunar og ælufýla,
þótt eflaust hafi verið reynt að þrífa
uppköstin. Allir hafa þurft að skorða
sig og halda sér í þungum velt-
ingnum, þegar skipið lyftist upp á
öldufaldana til þess svo að hlunkast
niður í öldudalinn, látlaust upp og
niður allan daginn.
Þegar komið er fram á kvöld og
myrkur skollið á breytast aðstæður
allar mikið til hins verra. Mennirnir í
brúnni sjá hvorki siglingamerki né
brotsjóina. Þeir gera sér líklega
grein fyrir því að þeir eru komnir í
grennd við Garðskagaröstina.
Lætin í sjónum hljóta að hafa veitt
vísbendingar um það. Brot lenda á
Þormóði og leki eykst. Dælurnar
hafa ekki undan lengur. Það sem
lausast er ofan þilja er farið fyrir
borð. Hvergi glittir hins vegar í
Garðskagavita í særokinu. Hann er
of lágur og ljóslítill til þess.
Skipbrot á Garðskagaflös
Út er komin hjá Vestfirska forlaginu bókin Allt þetta fólk sem segir frá því er vélskipið Þormóður frá Bíldudal fórst út af Garð-
skaga 18. febrúar 1943 og með því 31 farþegi og skipverjar, flestir frá Bíldudal, en í hópnum voru sex hjón og pör frá Bíldudal.
Jakob Ágúst Hjálmarsson ritaði bókina að hvatningu úr hópi þeirra 56 barna sem fólkið lét eftir sig.
Tekning/Jóhann Jóhannsson
Brottför Teikning Jóhanns Jóhannssonar af því er Þormóður leggur úr höfn á Bíldudal síðla nætur þriðjudaginn
16. febrúar 1943. Myndin er byggð á lýsingum sem fram koma í sjódómsbókum og blaðagreinum.
Morgunblaðið/Sverrir
1987 Bílddælingar afhjúpuðu minn-
isvarða um Þormóðsslysið og alla þá
Arnfirðinga sem farist hafa á sjó.
Við minnisvarðann standa þeir Jón
Kr. Ólafsson, en hann var frum-
kvöðull að gerð minnisvarðans, og
sr. Flosi Magnússon, sóknarprestur
og sveitarstjóri, ásamt dætrum sín-
um Láru og Völu.
Örlagaferð Mikil fjara er frá Garðskagaflös og að
Lambarifi. Talið er að Þormóður hafi lent í Garð-
skagaröstinni og síðan steytt á Garðskagaflös.