Morgunblaðið - 02.12.2017, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 02.12.2017, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Sigling frá Pétursborg til Moskvu Spennandi ferð til Rússlands þar sem okkur gefst tækifæri til að skoða það helsta sem þetta stórbrotna land hefur upp á að bjóða. Saga Rússlands er heill heimur ævintýra og um leið og við skoðum landið fáum við að skyggnast inn í þá veröld. Allir velkomnir á kynningarfund 4. desember kl. 18:00 hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð. sp ör eh f. 1. - 11. september Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson vegar önnur. Algjörri þögn sló á ís- lenska stuðningsmannahópinn og fylgdust þeir stjarfir með drættinum þar til Ísland kom upp úr pottinum, í D-riðli með Argentínu og Króatíu, sem íslensku stuðningsmönnunum virtist líka vel. Þeir hoppuðu og sungu hástöfum, enda ljóst að draumur margra knatt- spyrnuáhugamanna um að sjá ís- lenska landsliðið taka á knattspyrnu- goðsögninni Lionel Messi myndi rætast. Skömmu síðar hrópaði einn stuðningsmannanna yfir hópinn að leikurinn yrði spilaður í Moskvu og urðu tíðindin til að Tólfumenn fögn- uðu enn ákafar, svo ákaft að það var engu líkara en íslenska landsliðið hefði hreinlega unnið sjálft heims- meistaramótið. Það hafði lítil áhrif á stemningu Tólfunnar að Nígería skyldi dragast í riðilinn úr fjórða styrkleikaflokki, en margir sparkspekingar töldu níger- íska landsliðið erfiðast þeirra liða sem Ísland gat fengið úr fjórða styrk- leikaflokki. Þeir stuðningsmenn sem Morgun- blaðið ræddi við sögðu þessi sterku viðbrögð blöndu af ánægju með rið- ilinn, en eins hefði HM-ævintýrið orð- ið raunverulegra um leið og riðillinn var klár. Fulltrúar erlendra sjón- varpsstöðva voru á Ölveri í gær, með- al annars ESPN og CNN. Fögnuðu ákaflega riðli Íslands  Fagnaðarlæti þegar íslenska landsliðið var dregið í riðil með Argentínu á heimsmeistaramótinu  Þreföld þjóðhátíð í Rússlandi, segir stjórnarmaður Tólfunnar, en fyrsti leikur verður 16. júní Morgunblaðið/Árni Sæberg Heimsmeistaramótið Stuðningsmenn íslenska landsliðsins söfnuðust saman á Ölveri í gær þar sem þeir fylgdust með beinni útsendingu af drætti í riðla á HM í Rússlandi. Vladimír Pútín forseti hélt ávarp í upphafi athafnar. SVIÐSLJÓS Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Það var engu líkara en íslenska knatt- spyrnulandsliðið hefði unnið heims- meistaramótið, slík voru fagnaðarlæti íslensku stuðningsmannanna þegar ljóst varð að Ísland myndi mæta Arg- entíu í opnunarleik heimsmeistara- mótsins í knattspyrnu sem fram fer í Rússlandi næsta sumar. Ísland endaði í D-riðli ásamt Arg- entínu, Króatíu og Nígeríu en stuðn- ingsmenn landsliðsins komu saman á Ölveri, heimabar íslensku stuðnings- mannasveitarinnar Tólfunnar, og fylgdust með drættinum í beinni út- sendingu. Fylgdust stjörf með drættinum Stundin var spennuþrungin þegar búið var að draga 16 lið í átta riðla og komið var að því að draga átta lið til viðbótar í jafnmarga riðla úr styrk- leikaflokki þrjú, sem Ísland var í. Íslensku stuðningsmennirnir á Öl- veri sungu og trommuðu þegar fyrsta liðið var dregið upp úr pottinum og reyndist það vera Egyptaland sem endaði í A-riðli með Rússum, Úrú- gvæjum og Sádi-Aröbum. Þegar komið var að því að draga næsta lið úr pottinum var staðan hins HM í Rússlandi 2018 „Það verður bara partí á föstudeginum, laug- ardeginum og sunnudeginum. Ég veit um marga sem eru tilbúnir að halda þrefalda þjóðhátíð frá 15. til 17. júní,“ segir Hilmar Jök- ull Stefánsson, stjórnarmaður í Tólfunni, og rifj- ar upp að á EM í Frakklandi hafi Ísland einmitt átt leik á móti Ungverjalandi daginn eftir 17. júní, svo það sé komin reynsla á stórmót í kring- um þjóðhátíðardaginn. „Það verður þjóðhátíð- arveisla hjá Íslendingum í Moskvu,“ segir hann. Morgunblaðið tók þá Hilmar og Birki Ólafs- son, sem er varastjórnarmaður í Tólfunni, tali eftir að riðillinn varð ljós. Sögðust þeir báðir býsna sáttir. Argentína næði sér yfirleitt illa á strik á stórmótum og Ísland endaði fyrir ofan Króata í undanriðli heimsmeistaramótsins í ár. Þó segist Hilmar frekar hefðu viljað fá Brasilíu en Argentínu. Spurður hvort það sé ekki sérstök ósk að lenda á móti farsælu liði segir Hilmar óska- riðilinn vera í jafnvægi milli þess að mæta skemmtilegum mótherjum og mótherjum sem auka líkurnar á að Ísland komist upp úr riðl- inum. „Og Króatar eru hvorugt,“ segir Hilmar og hlær. Þeir hvetja fólk til að byrja að skipu- leggja Rússlandsferðir snemma því það verður meiri fyrirhöfn að komast þangað en til Frakk- lands á EM. Króatar hvorki skemmtilegir andstæðingar né auðveldir Morgunblaðið/Árni Sæberg Tólfumeðlimur Hilmar Jökull Stefánsson, stjórnarmaður Tólfunnar, var nokkuð sáttur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ferðalög Birkir Ólafsson hvetur fólk til að skipuleggja ferðalög til Rússlands sem fyrst. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Treyjurnar fara í sölu hjá okkur á mánudag og fólk getur látið setja nöfnin sín, leikmanna eða merkt þær að vild,“ segir Halldór Einarsson, eða Halldór í Hen- son, eins og hann er betur þekktur. Hann er að sjálf- sögðu að tala um stuðningsmannatreyju íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. „Ég er búinn að vera í þessu í 44 ár og þetta verð- ur ekki miklu skemmtilegra en þetta. Það er ótrúlegt hvað þetta landslið er búið að gefa okkur margar góð- ar stundir og við viljum heiðra þá með fallegri stuðn- ingsmannatreyju.“ Beint flug á alla leikina Ferðaskrifstofur og flugfélög horfðu á niðurröðun í riðla keppninnar með mikilli eftirvæntingu enda mikil vinna verið lögð í undirbúning ferða á keppnina sjálfa. Sala á beinu flugi til þeirra þriggja borga í Rússlandi þar sem leikir Íslands fara fram er þegar hafin hjá Icelandair og WOW air. Í tilkynningu frá Icelandair segir að verðið sé frá 175 þúsund krónum. Vita og Gamanferðir verða með skipulagðar ferðir á HM líkt og EM fyrir tveimur árum og segir Þór Bæring Ólafsson, framkvæmdastjóri Gamanferða, að sala hefjist strax eftir helgi. „Við höfum lagt mikla vinnu í þetta verkefni, pantað hótel og skipulagt flug en við verðum með beint flug á alla leiki Íslands,“ segir Þór. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að Ísland, líkt og aðrar þátttökuþjóðir, fái 8% miða á hvern leik. „Miðasalan hefst 5. desember hjá FIFA og komi til þess að kvótinn fyllist verður dregið um það hver fær miða á leikinn,“ segir hún og bendir á að miðasalan standi til loka janúar. Ekki fyrstur kemur fyrstur fær „Það skiptir ekki máli hvort þú kaupir miða 5. eða 25. desember. Þetta er ekki fyrstur kemur fyrstur fær,“ segir Klara og varar við því að fólk kaupi miða annars staðar en hjá FIFA og vísar til atvika frá EM í Frakklandi sumarið 2016. Flugferðir til Rússlands komnar eða að fara í sölu  Stuðningsmannatreyjan tilbúin  Fáum 8% miða á leik Morgunblaðið/Árni Sæberg Undirbúningurinn Marteinn Geirsson ásamt dóttur sinni Margréti Marteinsdóttur en í fangi hennar er Tindur Marinó, öll í nýju stuðningsmannatreyjunni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.