Morgunblaðið - 02.12.2017, Side 13
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017
Aðventuhátíð
Bergmáls verður
haldin kl. 15 á
morgun, sunnu-
daginn 3. desem-
ber, í Háteigs-
kirkju. Söng-
hópurinn LUX og
Sigga Eyrún ylja
með ljúfum söng
og séra Bjarni
Karlsson flytur hugvekju.
Bergmál er líknar- og vinafélag
krabbameinssjúkra og langveikra
sem rekur hvíldarheimili, Berg-
heima, að Sólheimum.
Allir vinir og velunnarar sem vilja
næðis njóta, hjartanlega velkomnir.
Enginn aðgangseyrir. Veitingar í
Safnaðarheimili að samkomu lok-
inni.
Háteigskirkja
Vetrarskrúði Bergheimar á Sólheimum í
Grímsnesi í vetrarskrúða.
Aðventuhátíð
Bergmáls
Sigga Eyrún
Margir muna eftir búð
sem lengi var á Skóla-
vörðustíg og hét
BIRNA, en þar feng-
ust flíkur sem Birna
Karen Einarsdóttir
eigandi hannaði
sjálf. Birna býr í
Kaupmannahöfn
þar sem hún rekur
verslun sína BIRNA
en hún skrapp til Ís-
lands til að vera með
pop-up markað á Eið-
istorgi í fjóra daga, fór af stað á
fimmtudag og verður nú um helgina
laugardag kl 11-17 og sunnudag 11-
16.
Endilega …
… kíkið á fata-
markaðEinu sinni var stelpa sem átti heima í enskri sveit og hún hélt meiraupp á bækur en nokkuð annað í heiminum. Jane vildi ekkert frek-ar en að hringa sig uppi í sófa í bókasafni pabba síns og sökkva sérniður í bók. Hún lifði sig svo algjörlega inn í sögurnar að stundum
þrætti hún við söguhetjurnar eins og þær gætu svarað henni.
Jane og systkini hennar sjö settu upp leikrit og léku látbragðsleiki til að
skemmta sér og foreldrum sínum. Þegar Jane var enn kornung byrjaði hún
að skrifa sögur og las þær svo upphátt fyrir Cassöndru systur sína til að
koma henni til að hlæja. Sögurnar sem Jane skrifaði voru eins og hún sjálf:
greindarlegar, hugmyndaríkar, fyndnar og beittar. Öll smáatriði skiptu hana
máli: hvernig kærustupar þrætti sín á milli, göngulag manna, hvað þjón-
ustustúlkurnar pískruðu sín á milli – allt voru þetta vísbendingar um skap-
gerð fólks. Jane punktaði allt hjá sér í minnisbækur og greip til þess í sög-
unum sínum.
Á þessum tíma var ætlast til þess að stúlkur giftu sig. Jane langaði ekkert
til að giftast svo að hún gerði það aldrei.
„Ó, Lizzy! Gerðu allt fremur en að giftast án ástar,“ skrifaði hún í einni
skáldsögunni sinni.
Jane Austen varð einn frægasti rithöfundurinn í bókmenntasögu Eng-
lands. Það er enn hægt að heimsækja fallega húsið í litla þorpinu þar sem
hún sat iðulega og skrifaði við lítið skrifborð og horfði á blómagarðinn fyrir
utan gluggann.
Bókakaflar –Breski rithöfundurinn Jane Austen og bandaríski aðgerðarsinninn Rosa Parks fá sinn kaflann hvor í bókinni
Jane Austen
16 . desember 1775 - 18. júlí 1817
Einu sinni ríkti kynþáttaaðskilnaður í borginni Montgomery íAlabama. Svart fólk og hvítt fólk gekk ekki í sömu skóla, baðstekki fyrir í sömu kirkjum, verslaði ekki í sömu búðum, notaði ekkisömu lyftur og drakk ekki vatn úr sömu drykkjarfontum. Allir ferð-
uðust með sömu strætisvögnum en máttu ekki sitja á sama stað: hvítt fólk sat
fremst, svart fólk aftast. Rosa Parks ólst upp í þessum svarthvíta heimi.
Þetta var erfitt fyrir blökkufólkið og margir voru reiðir og hryggir yfir kyn-
þáttaaðskilnaðinum, en ef einhver mótmælti var honum fleygt í fangelsi.
Dag nokkurn sat Rosa í strætisvagni á leiðinni heim úr vinnu. Vagninn var
fullur og ekkert sæti frammi í (þar sem hvíta fólkið sat) svo að bílstjórinn sagði
Rosu að standa upp fyrir hvítum manni.
Rosa sagði nei.
Hún þurfti að dúsa í fangelsi um nóttina en þetta dirfskubragð nægði til að
sýna fólki að það væri hægt að segja nei við óréttlæti.
Vinir Rosu lýstu yfir viðskiptabanni. Þeir báðu alla blökkumenn bæjarins að
sniðganga strætisvagnana og nota þá ekki fyrr en lögunum yrði breytt. Skila-
boðin breiddust út eins og eldur í sinu. Viðskiptabannið stóð yfir í 381 dag. Því
lauk þegar hæstiréttur Bandaríkjanna kvað upp úrskurð um að kynþáttaað-
skilnaður í strætisvögnum stangaðist á við stjórnarskrána.
Tíu ár liðu áður en kynþáttaaðskilnaður var bannaður í nokkru öðru ríki en á
endanum kom að því, og allt var það því að þakka að Rosa tók fyrst allra í sig
kjark og sagði „nei“.
Rosa Parks
4. febrúar 1913 – 2 4. október 2005
Norræna húsið heldur hugguleg og
vistvæn jól með sjálfbærum lausnum
og norrænum áherslum. Boðið verður
upp á fjölda viðburða í jólamánuð-
inum sem allir í fjölskyldunni ættu að
hafa gagn og gaman af.
Vistvænn jólamarkaður verður
opnaður kl. 14 í dag, laugardag, og
stendur til kl. 17. Þar koma saman
hönnuðir og handverksfólk úr ýmsum
áttum og selja umhverfisvænar vörur
í jólapakkann og sýna fram á hvernig
hægt er að skapa vandaðar og eftir-
sóttar vörur á vistvænan hátt.
Jólamarkaðurinn er haldinn í anda
þess markmiðs Norræna hússins að
hjálpa þeim sem vinna umhverfis-
vænar vörur við að koma þeim á
framfæri.
Gefðu umhverfisvæna jólagjöf sem
eykur ímyndunarafl þess sem þiggur,
eru hvatningarorð hússins.
Ókeypis jólaverkstæði verður opið
frá kl. 11 - 17 í dag og á sama tíma
alla laugardaga og sunnudaga í des-
ember og kl. 10 - 21 alla miðvikudaga
til jóla.
Þar er boðið upp á alls kyns um-
hverfisvæn og endurunnin efni til að
föndra og pakka inn í. Ef yngstu
börnin halda ekki einbeitingunni yfir
jólaföndrinu eiga þau kost á að horfa
á jólamynd um Múmínálfana. Pip-
arkökur, jólabíó og jólabækur verða á
boðstólnum í barnabókasafninu.
Ekta norrænt ,,hygge“ mun svífa
yfir vötnum með jólaglöggi, tónlist
og skemmtiatriðum fyrir yngstu kyn-
slóðina. Skjóða, leiðindaskjóða, kem-
ur í heimsókn, en hún er tengiliður á
milli Hulduheima og mannheima, og
stúlknakór frá Barnaskólanum í
Reykjavík syngur fyrir börnin.
Fræðslufulltrúi frá Sorpu verður á
svæðinu og veitir gestum ráð um
endurvinnslu,
Sjálfbærar lausnir og norrænar áherslur í Norræna húsinu
Vistvænn jólamarkaður
og ókeypis jólaverkstæði
Norræna húsið Ekta norrænt „hygge“ mun svífa yfir vötnum í desember.
– fyrir dýrin þín
Eigum mikið
úrval af
hundabeislum
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is