Morgunblaðið - 02.12.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017
Ólöf Ríkarðsdóttir,
fyrrverandi formaður
Öryrkjabandalags Ís-
lands, lést á hjúkrunar-
heimilinu Eir, 26. nóv-
ember síðastliðinn.
Ólöf fæddist á Djúpa-
vogi 14. júní 1922, dóttir
hjónanna Ríkarðs Jóns-
sonar, myndhöggvara,
og Maríu Ólafsdóttur,
húsfreyju.
Ólöf lauk samvinnu-
skólaprófi frá Sam-
vinnuskólanum í
Reykjavík.
Ólöf fékk lömunarveiki þriggja
ára og barðist við afleiðingar hennar
allt sitt líf. Hún var ötul og virk bar-
áttukona og frumkvöðull í málefnum
fatlaðra. Hún var ein af stofnendum
Sjálfsbjargar og gegndi þar fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum. Ólöf
starfaði um árabil á
skrifstofu félagsins,
meðal annars sem fé-
lagsmálafulltrúi. Ólöf
sat í stjórn byggingar-
nefndar Sjálfsbjargar-
hússins.
Ólöf var ein af stofn-
endum Öryrkjabanda-
lags Íslands og gegndi
fjölmörgum trún-
aðarstörfum fyrir
samtökin. Hún gegndi
formennsku hjá Ör-
yrkjabandalagi Ís-
lands á árunum 1973 til 1975 og aft-
ur árin 1993 til 1997.
Síðustu ár vann Ólöf af krafti að
því ásamt systur sinni, Ásdísi, að
koma upp höggmyndasafni á Djúpa-
vogi með verkum föður þeirra, Rík-
arðs Jónssonar.
Ólöf var ógift og barnlaus.
Andlát
Ólöf Ríkarðsdóttir
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Kjarasamningar þriggja aðildar-
félaga Kennarasambands Íslands
eru nú lausir. Í félögunum þremur,
sem eru Félag grunnskólakennara,
Félag framhaldsskólakennara og
Félag stjórnenda í framhalds-
skólum, eru um 6.600 kennarar, um
63% félaga í KÍ. Formenn þessara
félaga segja að horfa þurfi til fleiri
þátta en launa í komandi kjarasamn-
ingum; starfsaðstæður þurfi að
bæta. Formaður Félags grunnskóla-
kennara segir að talsverð fjölgun
hafi orðið í hópi þeirra sem kenna án
kennsluréttinda í grunnskólum.
Samningar Félags framhalds-
skólakennara og Félags stjórnenda í
framhaldsskólum runnu út í lok
ágúst í fyrra, en félögin tvö hafa
samráð um gerð kjarasamninga. Þá
var skrifað undir svokallaða friðar-
skyldu, samkomulag um að ekki yrði
gripið til verkfallsaðgerða, og gilti
það samkomulag til loka október.
Samningaviðræður hafa staðið yfir
með hléum undanfarna mánuði og í
síðustu viku ákvað Félag framhalds-
skólakennara að vísa deilunni til rík-
issáttasemjara. „Fyrsti fundur þar
var á miðvikudaginn, þar fengu báð-
ir aðilar; við og saminganefnd rík-
isins, verkefni til að vinna að fyrir
næsta fund, sem verður væntanlega
fljótlega,“ segir Guðríður Arnar-
dóttir, formaður Félags framhalds-
skólakennara.
Fylgjast vel með þróun mála
Spurð um kröfur félagsins segist
Guðríður hvorki vilja nefna krónu-
tölu né prósentur í því sambandi.
„Kennarastéttin býr við mikið álag,
langtímaveikindi og kulnun í starfi
og það verður að skoða hvernig
hægt sé að bregðast við því. Við vilj-
um, eins og aðrir opinberir starfs-
menn, launajöfnun á milli opinbera
geirans og einkageirans. Við náðum
árangri í þá átt í síðasta samningi og
viljum halda áfram á þeirri braut.
T.d. hefur lögum um lífeyrissjóði
verið breytt og við ætlum að sækja
að laun muni hækka til samræmis
við það,“ segir Guðríður.
Hún segir að samningagerð opin-
berra starfsmanna hafi sjaldan eða
aldrei verið jafn flókin og nú, taka
þurfti tillit til margra þátta. Samn-
inganefnd félagsins hafi hug á að
bíða átekta og sjá hverju fram vindi
í samningum annarra stéttarfélaga.
Samningar grunnskólakennara
við Samband íslenskra sveitarfélaga
urðu lausir í fyrradag. Ólafur Lofts-
son, formaður Félags grunnskóla-
kennara, segir að viðræður hafi
staðið yfir um skeið en gengið hæg-
ar en hann hafi vonast eftir. „Auð-
vitað hefðum við viljað ná nýjum
samningi áður en hinn rann út,“ seg-
ir Ólafur.
Spurður um kröfugerð grunn-
skólakennara segir hann að hún sé
áþekk því sem verið hafi undanfarin
ár; hærri laun og bætt vinnuaðstaða.
„Við höfum ekki lagt fram kröfu um
tiltekna prósentuhækkun, en það er
ljóst að það þarf að hækka launin
verulega. Það þarf að leita leiða til
að halda kennurum í starfi – leið-
beinendum hefur fjölgað hratt og í
dag eru um 300 manns án kennslu-
réttinda að kenna í grunnskól-
unum.“
Tókst í þriðju tilraun
Samningurinn, sem rann út í
fyrradag, var samþykktur af grunn-
skólakennurum í fyrra eftir að þeir
höfðu fellt samninga í tvígang.
Spurður hvort líkur séu á að jafn
erfiðlega muni ganga að koma
samningi í gegn núna segist Ólafur
ekkert geta sagt til um það. „Það
sem gerðist í fyrra er engin vísbend-
ing um það sem gerist núna. Hver
kjarasamningur er sjálfstæður.“
Um 6.600 kenn-
arar eru nú
samningslausir
Framhaldsskólakennarar komnir til
ríkissáttasemjara Gæti reynst erfitt
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kennarar Samningar þriggja aðild-
arfélaga KÍ eru nú lausir.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
amlegt ka
nýmalað,
en in h
ynn u r ura a v ar rv . óðum þér í kaffi.
s
ylki.
él Við jK t J k ffi
ÚR BÆJARLÍFINU
Jónas Erlendsson
Mýrdal
Þó að komið sé nærri dimmasta
tíma ársins virðist ferðamanna-
straumurinn lítið minnka í Mýrdaln-
um, þessi straumur ferðamanna
kallar á mikið af aðfluttu vinnuafli
sem þarfnast húsnæðis, nýjar götur
spretta upp og bygging er hafin á
fjölda íbúða. Ein af nýju götunum í
víkinni er Strandvegur en þar er
hafin bygging á þremur þriggja
íbúða húsum sem koma tilbúin frá
Noregi. Þá er bygging fjögra íbúða á
vegum Mýrdalshrepps langt komin.
Einnig er Elías Guðmundsson hjá
Hótel Vík að byggja nokkrar íbúðir
og fleiri einstaklingar.
Aukinn ferðamannastraum-
ur kallar á fjölbreyttari afþreyingu
og til að koma til móts við það er ver-
ið að byggja hesthús sem á að hýsa
hestaleigu tveggja ungra kvenna úr
Mýrdalnum, sem hefur verið rekin
við ófullnægjandi aðstæður í nokkur
ár.
Þá er í bígerð bygging tveggja
hótela austast í þorpinu.
En þó að allt sé á fullu í fram-
kvæmdum þá vantar tilfinnanlega
starfsfólk. Leikskólinn er í vandræð-
um með að manna stöður og ef ekki
tekst að ráða fólk mun þurfa að
senda börn heim eftir áramót.
Ný verslun var tekin í notkun í
Vík fyrir skömmu, sem kallast KR
og er hún í alla staði mjög glæsileg.
Margir bundu vonir við að verslun
myndi færast heim í hérað með til-
komu hennar. En eitthvað hefur
gleymst að það eru fleiri en ferða-
menn sem versla þar, því að vöruúr-
valið virðist eingöngu hugsað með
þarfir ferðamanna í huga, og margar
almennar neysluvörur hreinlega
vantar.
Þessa dagana er unnið að gerð
sandfangara í fjörunni í Vík en hon-
um er ætlað að verja ströndina
sunnan við þorpið sem sjórinn var
farin að éta verulega af. Áður var
búið að byggja annan sandfangara, á
árunum 2011-2012. Þó að byggingu
þess seinni sé ekki lokið er greini-
legt að þeir eru þegar farnir að
sanna gildi sitt.
Lionsklúbburinn Suðri hefur
verið afar duglegur að gefa heilsu-
gæslunni ýmis tæki. 4. desember
bíður hann ásamt Heilsugæslunni í
Vík upp á ókeypis blóðsykursmæl-
ingu í tilefni af alþjóðadegi sykur-
sjúkra og forvarnarverkefni Lions-
hreyfingarinnar.
Þó að sauðfjárbændur hafi
ekki átt sitt besta ár hvað varðar af-
komu eru þeir farnir að hýsa fénað
sinn og búa undir komandi fengitíð, í
von um að með nýju ári vænkist hag-
ur þeirra á ný.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Nýtt hús Grunnur nýs hús í Mýrdal er byggður á plastkubbakerfi frá norska framleiðandanum Jackon.
Mikil uppbygging í Mýrdal