Morgunblaðið - 02.12.2017, Qupperneq 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017
Ífjölmiðlaviðtölum slettir fólk iðulega enskum orðum í ósýnilegumgæsalöppum og bætir svo við (án djóks): „Eins og sagt er á góðri ís-lensku.“ Þau kurteisustu spyrja þó: „Ef ég má sletta?“ Eftir að slett-an hefur verið fram borin með glotti um hina „góðu“ íslensku, er ís-
lenska orðinu oft bætt við. Og þá kemur í ljós að það var ástæðulaust að
hleypa hinu enska orði út í loftið in the first place eins og sagt er á þessari
„góðu“ íslensku því sletturnar voru ekki um hugtök sem okkur vantar orð
um. Við eðlilegar aðstæður ætti fólk ekki að þurfa að grípa til erlendra orða
nema slík orð hafi borist
með nýrri tækni og nýjum
hugmyndum sem engin orð
hafa verið til um áður. Og
þegar þannig háttar til er
málinu oft bjargað með ný-
yrði.
Alkunna er að við höfum
lengi reynt að taka frekar upp nýyrði en hrá tökuorð – og náum að halda í
við nútímann. Engin tala um teater-leikhús, kar-bíl, telefón-síma eða
kompjúter-tölvu. Hversdagleg málnotkun sem byggist í hugsunarleysi á
ensku er til vitnis um hvað enskan er alltumlykjandi í lífi okkar. Hún er
daglegt mál margra, hvort sem er á vinnustöðum, í tölvunni, fréttalestri eða
hreyfimyndahorfi. Að ekki sé talað um ósköpin þegar farið er í verslanir
eða á veitingastaði. Þá er betra að geta brugðið fyrir sig enska málinu ef vel
á að fara. Íslensku flugfreyjurnar og -þjónarnir hjá arftaka Loftleiða og
Flugfélags Íslands eru í eilífðarglímu um hvort óhætt sé að ávarpa farþega
á íslensku – þótt íslensk kveðja um „góðan dag“ gæti dugað öllum þar til
upp kemst hvaða máli farþeginn kýs að bregða fyrir sig. Þegar fólk lítur
upp úr sínum enska málheimi til að svara íslensku fjölmiðlafólki er ekki að
undra að ensku orðin komi fyrst upp í hugann. Ónotað mál kemur ekki
fyrst í hug.
Oft hefur verið á það bent að málfátæktin virðist meiri þegar talað er við
fólk á höfuðborgarsvæðinu heldur en þegar viðmælendur eru úti um sveitir
og bæi landsins. En nú er svo komið að þau sem eru vel máli farin eru orðin
hálf-feimin við að beita sínu eiginlega tungutaki. Ég heyrði að minnsta kosti
ekki betur þegar fréttastofa útvarpsins hringdi í óveðrinu um daginn til
manns í Mývatnssveit og spurði hvernig veðrið væri hjá honum. Hann hik-
aði aðeins en sagði svo hreint út að það væri ekki hundi út sigandi – „eins
og gamla fólkið sagði“. Það flögraði að mér að kannski væri þetta tímanna
tákn: nú væri orðið vissara að afsaka eðlilegt tungutak af ótta við málfátækt
hlustenda sem hafa væntanlega ekki alist upp við það að siga hundum eitt
eða neitt. Um leið og við tökum nútímanum fagnandi með nýyrðum er ekki
síður mikilvægt að flytja allan orðafarangurinn úr fortíðinni með okkur inn
í framtíðina. Og það heppnast ekki nema við höldum áfram að tala, lesa og
skrifa íslensku með öllum tiltækum orðum. Alla daga og á öllum sviðum.
Á „góðri“ íslensku
Tungutak
Gísli Sigurðsson
gislisi@hi.is
Með valdatöku ríkisstjórnar Katrínar Jak-obsdóttur er þeim sögulega áfanga náð aðköldu stríði í íslenzkum stjórnmálum erlokið. Í fyrsta sinn frá árunum 1944-1946
hafa þeir tveir andstæðu pólar, sem var og er að finna í
Sjálfstæðisflokki og VG og forverum síðarnefnda
flokksins, náð samkomulagi um að vinna saman í rík-
isstjórn.
Þess vegna er myndun þessarar ríkisstjórnar afrek
út af fyrir sig hjá því unga fólki sem að henni stendur
og líkleg til að stuðla að þroskaðra samfélagi.
En þar að auki er margt forvitnilegt að finna í þeim
stjórnarsáttmála sem kynntur var í fyrradag.
Kannski er mikilvægasta þáttinn, þegar horft er til
lengri framtíðar, að finna í kafla um umhverfis- og
loftslagsmál. Þar stendur:
„Hvergi í heiminum hefur hitastigshækkun orðið
jafnmikil og á norðurslóðum.“ Í þessari einu setningu
er að finna vísbendingu um einhverja mestu hættu sem
steðjað getur að tilvist þessarar litlu þjóðar hér á norð-
urslóðum.
Fyrirheit nýrrar ríkisstjórnar
í þessum efnum eru sennilega
það mikilvægasta sem í stjórn-
arsáttmálanum er að finna svo
og skýr yfirlýsing um stofnun
þjóðgarðs á miðhálendinu. Ráð-
herraval VG í umhverfisráðu-
neytið lofar góðu en nýr ráðherra málaflokksins er
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri Landverndar.
Fyrirheit um eflingu Alþingis sem stofnunar eru líka
grundvallarmál, þegar horft er til framtíðar. Í þeim
efnum ættu flokkarnir á þingi að huga að því að flytja
sjálfa lagasmíðina úr ráðuneytum til Alþingis. Þar er
hún á réttum stað.
Enn eitt mál sem varðar miklu fyrir framtíðina í
ljósi fenginnar reynslu er stofnun Þjóðarsjóðs sem taki
við afrakstri af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar.
Af aðkallandi úrlausnarefnum líðandi stundar má
nefna fyrirheit um fullvinnslu heilbrigðisstefnu, þar
sem gera má ráð fyrir að tekið verði á ágreinings-
málum sem hafa verið að skjóta upp kollinum varðandi
hlut einkarekstrar í heilbrigðisþjónustu. En knýjandi
vandamál eru mörg á þessu sviði og sum þeirra til-
greind sérstaklega í textanum.
Þá ætlar hin nýja ríkisstjórn að láta taka saman
hvítbók um fjármálakerfið, sem er alger forsenda þess
að ríkið hefjist handa við sölu á hlutum í fjármálafyr-
irtækjum. Það er traustvekjandi að gert er ráð fyrir að
ríkið verði áfram leiðandi eignaraðili að einu fjármála-
fyrirtæki.
Áform um afnám verðtryggingar vekja athygli svo
og fyrirheit um að skera á tengslin á milli vísitölu og
fasteignaverðs.
Áhugamenn um skattalækkanir munu taka eftir fyr-
irheitum um lækkun tekjuskatts á lægstu skattþrepum
og lítilsháttar hækkun fjármagnstekjuskatts en þar er
sérstaklega tekið fram að markmiðið sé að „gera skatt-
kerfið réttlátara óháð uppruna tekna“.
Þetta er skynsamlegt. Af hverju ætli tekjur af vinnu
hafi svo lengi verið í hærri skattþrepum en tekjur af
eignum?
Í umfjöllun um menntun og menningu er að finna at-
hyglisverða yfirlýsingu um viðurkenningu á störfum
kennara, sem er löngu tímabær og þá ekki sízt á fyrstu
skólastigunum, sem eru þau mikilvægustu.
Þar er líka að finna skýra yfirlýsingu um afnám virð-
isaukaskatts á bókum og að breyta skattlagningu höf-
undatekna til samræmis við skattlagningu annarra
eignatekna.
Afstaða hinnar nýju ríkisstjórnar til veiðigjalda í
sjávarútvegi er afdráttarlaus. Þar segir:
„Við endurskoðun laga um veiðigjöld þarf að hafa
það meginmarkmið að tryggja þjóðinni réttlátan hlut
af arðsemi auðlindarinnar og að
þau taki tillit til afkomu. Auð-
lindagjöld eiga annars vegar að
vera greiðsla fyrir aðgang að
takmarkaðri auðlind og hins
vegar arðgreiðslur af nýtingu
hennar.“
Það er líka ljóst að ríkisstjórnin ætlar að gera flug
valkost fyrir landsbyggðarfólk á ný en eins og allir vita
er kostnaður við innanlandsflug orðinn fáránlega hár.
Loks er að finna í stjórnarsáttmálanum stefnumörk-
un í kynferðisafbrotamálum, sem nú eru komin á dag-
skrá þjóðfélagsumræðna um allan hinn vestræna heim.
Þessi stjórnarsáttmáli er nútímalegt plagg sem lofar
góðu.
Til þess að hann verði að veruleika þurfa nýir ráð-
herrar að hafa eitt grundvallaratriði í huga, þegar þeir
setjast inn í ráðuneyti sín. Þeir eru þangað komnir til
að þjóna fólkinu í landinu en ekki embættismönnum,
sem hafa hreiðrað þar um sig og hafa tapað svo ræki-
lega tengslum við umhverfi sitt að þeir hafa í of ríkum
mæli gleymt því til hvers þeir voru ráðnir þangað.
Látið ekki Kerfið kaffæra ykkur á fyrsta degi!
Þótt stjórnarsáttmálinn sem slíkur lofi góður eins og
hér hefur verið rakið stendur ný ríkisstjórn frammi
fyrir alvarlegum vanda í kjaramálum bæði hjá hópum
opinberra starfsmanna og á almennum vinnumarkaði.
Það er rétt sem forseti ASÍ hefur sagt að þar eru
ákvarðanir Kjararáðs fleinn í holdi.
Þar eiga allir flokkar hlut að máli. Þeir hafa allir
tekið þátt í því með þögninni að taka við launahækk-
unum úr hendi Kjararáðs og máttu vita að þær yrðu
notaðar sem röksemdir fyrir launakröfum annarra
starfshópa.
Það mun þurfa mikla lagni og útsjónarsemi til þess
að leysa úr þeim vanda, sem þannig hefur orðið til og
ógnar þeim sæmilega stöðugleika sem náðst hefur í
efnahagsmálum.
Og þess vegna mun reyna strax á þetta stjórnarsam-
starf – svo um munar.
Köldu stríði loks lokið
Merkileg stjórnarmyndun
í sögulegu samhengi.
Af innlendum
vettvangi …
Styrmir Gunnarsson
styrmir@styrmir.is
Í umræðum um landsdómsákær-una á hendur Geir H. Haarde
sagðist Steingrímur J. Sigfússon
heldur hafa viljað sjá einhverja aðra
ákærða. Hann skýrði það ekki nán-
ar. Þorsteinn Pálsson greip ummæl-
in á lofti og sagði, að í málinu hefði
Steingrímur bersýnilega talið bak-
ara vera hengdan fyrir smið.
Orðtakið um að hengja bakara
fyrir smið á rót sína að rekja til
þess, að vorið 1777 sat norski rithöf-
undurinn Johan Herman Wessel,
sem uppi var 1742-1785, á bjórstofu
í Vingårdsstræde í Kaupmanna-
höfn. Við annað borð sat bakari og
hið þriðja smiður, en nálægt bjór-
stofunni stóðu hús, sem hétu Hús
smiðsins og Hús bakarans. Inn á
bjórstofuna komu sjómenn af Kínaf-
ari, og tóku þeir eftir smástund að
fljúgast á við smiðinn. Þegar lag-
anna verðir voru kallaðir til, tóku
þeir sjómennina höndum og bak-
arann líka þrátt fyrir áköf mótmæli
hans, en smiðnum hafði tekist að
laumast út.
Eftir það skrifaði Wessel smá-
sögu um smið, sem braut freklega
af sér, svo að taka átti hann af lífi.
En þar eð í þorpinu, þar sem hann
bjó, var aðeins einn smiður og tveir
bakarar, var annar bakarinn hengd-
ur fyrir smiðinn.
Erfitt er að sjá hliðstæðu í lands-
dómsmálinu. Hvar var þar bakari
hengdur fyrir smið? Hliðstæðan er
helst sú, að Geir var sakfelldur fyrir
aðeins eitt atriði, að taka ekki vanda
bankanna upp á ríkisstjórnar-
fundum, en sýknaður af öllum öðr-
um ákæruatriðum. En sá, sem hefði
átt að taka hinn brýna vanda bank-
anna upp á ríkisstjórnarfundum,
var vitaskuld bankamálaráðherr-
ann, Björgvin G. Sigurðsson. Hann
gat þetta þó varla, því að leiðtogi
flokks hans, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, hélt upplýsingum um þennan
alvarlega vanda og að lokum
ákvörðunum um hann algerlega frá
honum, eins og fram kemur í
skýrslu Rannsóknarnefndar Alþing-
is og víðar. Þeir Steingrímur og
Þorsteinn hljóta því að eiga við Geir
og Ingibjörgu Sólrúnu, ef þeir
segja, að í landsdómsmálinu hafi
bakari verið hengdur fyrir smið.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Bakari hengdur
fyrir smið
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
og
og