Morgunblaðið - 02.12.2017, Page 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017
✝ Eiðný HilmaÓlafsdóttir,
Didda, fæddist að
Kleif á Skaga 5.
júlí 1936. Hún and-
aðist á Heilbrigðis-
stofnun Norður-
lands á Sauðár-
króki 17. nóv-
ember 2017.
Foreldrar henn-
ar voru Ólafur
Ólafsson, f. 24. maí
1905, d. 4. ágúst 2001, og
Sveinfríður Jónsdóttir, f. 2.
apríl 1898, d. 23. júlí 1967.
Hálfsystkini sammæðra
voru: 1) Guðmundur, f. 27. des-
ember 1921, d. 24. desember
1998, 2) Guðrún, f. 26. október
1922, d. 6. mars 2011, 3) Er-
lenda, f. 15. desember 1923, d.
4. október 2003. Hálfsystkini
samfeðra eru: 1) Hallur, f. 3.
október 1931, d. 5. desember
2008, 2) Þórey, f. 3. október
1931, 3) Fríða, f. 11. janúar
1933, d. 11. júlí 2016. Alsystk-
ini Diddu eru: 1) Jónmundur
Friðrik, f. 3. maí 1934, d. 19.
apríl 2017, 2) Olga, f. 29. maí
1935, 3) Ólafur, f. 3. nóvember
Didda ólst upp á Kleif á
mannmörgu heimili, fór í
barnaskóla á ýmsum bæjum í
sveitinni þar sem kennarinn
var Gunnar Einarsson á Bergs-
kála. Vorið 1949 flutti fjöl-
skyldan að Kambakoti á vest-
anverðum Skaga, en um
haustið brann bærinn. Hluti
fjárhúsanna var þá útbúinn til
íveru og bjó fólkið þar meðan
byggt var nýtt hús. Didda fór
snemma að vinna, var í vist og
sem kaupakona á bæjum í
Húnavatnssýslu eystri. Einnig
vann hún í Reykjavík á ung-
lingsárum svo sem í vist,
frystihúsi og var vökukona á
Sólheimum sjúkrahúsi, þá 14
ára. 17 ára fór hún í Kvenna-
skólann á Blönduósi í eitt miss-
eri. Árið 1954 flyst hún í
Gauksstaði er þau Jón eig-
inmaður hennar hefja búskap
saman, í félagi við Eið bróður
Jóns og Stefaníu móður þeirra
bræðra. Þau eru mörg sum-
arbörnin sem dvalið hafa í
hennar skjóli í lengri og
skemmri tíma. Einnig var hún
ráðskona í barnaskóla sveitar-
innar á Fossi í tvo vetur.
Vegna heilsubrests hefur hún
dvalist á DII á Heilbrigðis-
stofnun Norðurlands á Sauð-
árkóki síðan í júní 2014.
Útför Diddu verður gerð frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 2.
desember 2017, klukkan 11.
1939, 4) Guðríður
Fjóla, f. 19. janúar
1941. Tvö frænd-
systkini, börn Guð-
rúnar, ólust upp
með Diddu, þau
Gísli Ófeigsson, f.
13. júní 1943 og
Sveinfríður Sigrún
Guðmundsdóttir f.
16. desember 1947.
Eiginmaður
Diddu er Jón
Skagfjörð Stefánsson, f. 7. júní
1931, og gengu þau í hjóna-
band 14. september 1958. Börn
þeirra eru: 1) Stefán Pétur, f.
30. ágúst 1958, hans kona er
Ólöf Svandís Árnadóttir, dætur
þeirra eru: Gígja Hrund, Klara
Björk , Halla Mjöll og Edda
Borg. 2) Eiður, f. 5. nóvember
1961, d. 20. júní 2016, kvæntur
Huldu Rúnarsdóttur, börn:
Hilma og Jón Ólafur, stjúp-
börn: Þórunn, Kolbrún, Rúnar,
Sigurður og Friðrík. 3) Svein-
fríður Ágústa, f. 8. júlí 1965,
eiginmaður, Jóhannes Jóhann-
esson, synir: Máni Jón og Ingi
Sveinn. Langömmubörnin eru
sjö stúlkur.
Elsku amma Didda.
Nú kveðjum við þig í hinsta
sinn. Þegar við hugsum til þín
rifjast upp góðar minningar – þá
helst í sveitinni okkar. Á Gauks-
stöðum leið okkur alltaf vel og
upplifðum mikið frelsi. Þar mátti
leika sér með allt mögulegt hvar
og hvenær sem var. Einstaklega
skemmtilegt þótti okkur að vera
uppi á lofti og fá að gramsa í því
sem þar var að finna. Þú áttir
mikið safn af gömlum kjólum og
slæðum sem við máttum enda-
laust leika okkur með. Við nutum
þess að fá að hlaupa um túnin í
svona fínum kjólum og með slæð-
urnar blaktandi í sumargolunni.
Alveg sama hversu oft við kom-
um með vönd af apablómum úr
skurðinum handa þér varstu allt-
af jafn ánægð með blómin. Svo
var aldrei leiðinlegt úti í drullu-
búinu við stóra skúrinn eða í ról-
unum.
Í sveitinni hjá þér var besti
matur í heimi, hvort sem það var
kjötsúpa eða ristað brauð, þú
hafðir sérstakt lag á að gera svo
góðan heimilismat, svo auðvitað
djúsklakarnir sem sviku aldrei.
Þú tókst aldrei í mál að við fær-
um svangar að sofa og færðir
okkur oftast kex og mjólkurglas.
Þú þvoðir okkur alltaf vel um
andlitið og hendurnar fyrir
svefninn og stundum lastu fyrir
okkur Jesúbækurnar.
Seinna meir var farið í ýmsar
styttri ferðir. Hvort sem það var
skottúr í Varmahlíð, heimsókn í
Kambakot til Jónmundar eða
fyrir Skagann voru það alltaf
fróðlegar ferðir sem við höfðum
gaman af. Margoft baðstu um að
bíllinn yrði stöðvaður því eitt-
hvað rakstu augun í til að skoða.
Þegar við vorum á jeppanum
hans pabba var gamli goskassinn
góði notaður til að þú gætir klifr-
að upp í bílinn.
Í einni ferðinni var æðislegt að
fylgjast með ykkur systrunum
skipuleggja óvænta veislu fyrir
Jónmund þegar hann varð sjö-
tugur og þið gáfum honum far-
síma. Það vakti mikla kátínu og
þið hlóguð mikið og töluðuð um
skemmtilega hluti sem okkur
finnst einmitt hafa einkennt ykk-
ur systkinin þegar þið komuð
saman.
Ekki má gleyma Frakklands-
ferðinni góðu sem þið Klara fór-
uð í og heimsóttuð Fríðu og fjöl-
skyldu, þú naust þín þar og þér
fannst gaman að fylgjast með
mannlífinu og það var margt að
sjá og tala um.
Við getum ekki gleymt Leið-
arljósi, eða Leiðindaljósi, eins og
þú kallaðir það. Þú hafðir gaman
af því að gera grín að allri þessari
vitleysu sem þar fór fram og það
var alveg bíó að horfa með þér
þar sem þú varst dugleg að rífast
við sjónvarpið og hlóst að hama-
ganginum.
Nú þegar komin er kveðju-
stund hugsum við til þín með
bæði söknuði og gleði. Við þökk-
um fyrir allar stundirnar sem við
fengum að eiga með þér og vera
svo heppnar að eiga þig að, elsku
amma okkar. Þú ert búin að fá
hvíld og við treystum að þú sért á
góðum stað með fólkinu þínu og
líði vel, elsku kellingin okkar.
Megi guð geyma þig.
Þínar sonardætur,
Gígja, Klara, Halla og Edda.
Elsku amma mín,
Þú kenndir mér svo margt.
Þú kenndir mér að elska, þú
kenndir mér að elda, þú kenndir
mér að prjóna, þú kenndir mér
að dæma ekki og kenndir mér að
hafa samkennd með fólki. Þú
kenndir mér að fara vel með dót-
ið mitt, því þú áttir ekkert dót
þegar þú varst lítil.
Takk fyrir allar góðu stund-
irnar, takk fyrir alla leikþættina
og hláturinn, takk fyrir allar sög-
urnar og ræturnar mínar, takk
fyrir allar erfiðu stundirnar, takk
fyrir grátinn og sorgina.
Verst fannst mér að fá ekki að
syrgja pabba minn með þér,
heyra sögurnar þínar um hann,
því Elli kerling var búin að rugla
þig í ríminu. Þú slappst þá við að
vita af sonarmissinum.
Áfallið við að missa pabba í
fyrra kenndi mér að meta
kveðjustundirnar með þér. Ynd-
isleg rólegheit sem eru lúxus í
þessu samhengi.
Það var alltaf notalegt að
koma til þín, amma mín. Að fá að
hlýja kaldar hendur og tær eftir
fjárhúsferðir. Að fá uppáhalds-
matinn minn þegar ég kom heim
frá útlöndum, ég varð að hringja
frá Blönduósi svo þú gætir sett
bjúgun upp.
Þú kenndir mér að lífið er
dans á rósum, stundum stígur
maður á þyrna. Lífið getur verið
erfitt, en samt svo gott.
Þú áttir enga ömmu þegar þú
varst barn, og sagðir mér að þú
hefðir öfundað börn sem áttu
ömmu. Þú einsettir þér líka að
verða frábær amma, og það tókst
þér svo sannarlega. Takk fyrir að
vera amma mín.
Takk fyrir allt, amma mín, ég
bið að heilsa pabba í sumarland-
inu.
Þín nafna,
Hilma Eiðsdóttir Bakken.
Flogin er á vit feðra sinna
móðursystir mín Eiðný Hilma,
eða Didda eins og hún var ávallt
kölluð.
Hún frænka mín var stórbrot-
in kona, ákveðin á skoðunum sín-
um en samt svo ljúf og góð.
Ég var lítið stelpuskott þegar
ég dvaldi fyrst sumarpart hjá
fjölskyldunni á Gaukstöðum. Þá
var margt sýslað í sveitinni og
alltaf voru þónokkur aukabörn
og mikið líf og fjör. Þrátt fyrir
annríki á heimilinu var ávallt tími
til að gera eitthvað skemmtilegt
með börnunum, fara í lautarferð,
berjamó eða eitthvað annað sem
skemmti smáfólkinu. Það var
alltaf jafn skemmtilegt að koma á
Gaukstaði.
Hún var myndarleg til allra
verka og umhyggjusöm og fór
mín fjölskylda ekki varhug af því.
Á erfiðum tíma í lífi mínu buðu
þau hjónin syni mínum Ólafi
Braga, þá sex ára gömlum í sum-
arvist hjá sér sem varð til þess að
hann var hjá þeim næstu fimm
sumur.
Það voru ýmsar skondnar sög-
ur sem mér voru sagðar frá vist-
inni, eins og þegar Didda var að
koma matvöndum syni mínum til
að borða kjöt sem hann hélt að
honum þætti ekki gott sem mig
minnir að hafi verið saltkjöt.
Matur er á borð borinn og dreng-
urinn spyr hvað þetta sé. Úldið
hundakjöt segir húsfrúin. Sá
stutti ákveður að smakka og þyk-
ir ekki slæmt, klárar af diskinum
og spyr hvort hann geti fengið
meira af svona úldnu hundakjöti.
Nafna hans og langafa var veru-
lega skemmt og hló sínum dill-
andi hlátri.
Afi minn Ólafur var einnig
áralangt hjá þeim á Gauk og var
umhyggjan og natnin við hann
afar óeigingjörn. Móðir mín hef-
ur og haft orð á því að Didda hafi
haft svo mikil hjúkrunargen í sér
og sem unglingur hafi hún verið
yfirsetukona á sjúkrahúsi og
fengið mikil meðmæli fyrir vinnu
sína þar.
Það var alltaf gaman að hitta
frænku og spjalla, því að gam-
ansemin var sjaldan langt undan
og rökræðum hafði hún líka gam-
an af. Einu sinni gistu þau Jón,
Fríða og Jón Máni hjá okkur á
leið sinni norður frá Reyðarfirði
og áður en gengið var til hvílu
spurði Didda hvort Gummi (mað-
urinn minn) færi snemma að
morgni til vinnu, því hana langaði
að hitta á hann og eiga við hann
spjall; það væri svo gaman að
skiptast á skoðunum við hann,
þau höfðu jú bæði nokkuð
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum og kannski ekki alltaf
að öllu leyti sammála.
Það hallaði verulega undan
fæti hjá frænku síðustu árin og
þótt alltaf sé erfitt að kveðja sína
nákomnu getum við glaðst yfir að
nú líður henni vel og víst er að
það hafa verið fagnaðarfundir á
hinum staðnum, ekki síst hjá
þeim mæðginum, en sonur henn-
ar Eiður féll frá langt fyrir aldur
fram.
Ykkur fjölskyldu Diddu sendi
ég mínar dýpstu samúðarkveðj-
ur.
Hvíl í friði, elskulega frænka.
Kristín Ólafsdóttir
og fjölskylda.
Samfélagið á Skaganum fylgir
í dag einum grannanum enn til
grafar þegar Didda á Gauksstöð-
um verður kvödd hinstu kveðju.
Didda hefur nokkra sérstöðu
þegar kemur að upprifjun mið-
aldra manns á atburðum æsk-
unnar og nokkrir þeirra þar sem
hún kemur við sögu standa mér
enn ljóslifandi fyrir augum þó
mislangt sé um liðið. Formleg
skólaganga mín hófst með viku-
dvöl á Fossi vorið sem ég var níu
ára. Þá átti ég að taka próf úr
námsgögnum sem ég hafði staut-
að í gegnum heima á Hrauni um
veturinn. Minnist ég þess að í
prófi í náttúrufræði var ég settur
einn nemenda í borðkrókinn í
kjallaranum hvar Didda á Gauks-
stöðum var ráðskona, sýslandi í
eldhúsinu nokkrum skrefum frá
mér. Vandræðalítið svaraði ég
spurningunum einni af annarri
og hjartslátturinn minnkaði í
takt við kunnáttuna.
Svo var það næstsíðasta
spurningin. Um mig fór hrollur.
Hver er stærsti spörfugl á Ís-
landi? Búinn að svara öllum hin-
um spurningunum hafði ég nóg-
an tíma. Las þær aftur yfir og
fullvissaði mig um að svörin
væru rétt. Sneri mér því næst að
þrautinni og hóf að tauta fyrir
munni mér: Hver er stærsti
spörfugl á Íslandi? Svona alveg
óvart, um leið og hún Didda
blessunin sneri sér frá því að
setja diskana á matarborðið sem
ég sat við, heyrði ég hana segja í
hálfum hljóðum, við sjálfa sig
auðvitað: „Ætli það sé ekki
krummi gamli.“
Didda var einn aðalskemmti-
krafturinn á fyrsta þorrablótinu
sem haldið var á Fossi. Auðvitað
fórum við krakkarnir þangað
eins og nánast allir Skeflungar.
Opinmynntur horfði ég á Diddu
leika Skugga-Svein, syngja gam-
anvísur og leggja grunn að hefð
sem enn er við lýði. Og þau eru
orðin mörg þorrablótin síðan þar
sem Didda flutti sína stórbrotnu
annála. Hallaði sér ögn fram á
púltið og mælti af munni fram
svo óborganlega fyndnar lýsing-
ar á mönnum og málefnum sveit-
arinnar, rólega og svipbrigða-
laust nánast eins og hún væri að
lesa hrakningakafla úr Öldinni
okkar á meðan þingheimur velt-
ist um. Tungutak hennar og und-
irliggjandi kímnigáfa þessarar
annars hægu, nánast dulu konu
voru svo einstök að fáa hef ég
fyrir hitt sem hafa þau tök sem
hún hafði þar á og oftlega hugsa
ég til hennar sem hið fullkomna
viðmið þar sem gamanmál eru
viðhöfð.
Þessi fátæklegu orð lýsa ekki
persónunni Didda nema frá einni
hlið og sú hlið er í björtu ljósi
þess sem þetta ritar og þáði frá
henni og fleiri sveitungum við-
mót og veganesti sem vel hefur
dugað.
Blessuð sé minning Diddu á
Gauksstöðum.
Gunnar Rögnvaldsson.
Didda mín er farin, haldin á
brott á hryssunni sinni fögru,
hryssunni sem hún lánaði mér
árum saman í göngur. Best allra
hrossa fannst mér, enda vorum
við vinir. Við Didda vorum einnig
vinir, vinir frekar en tengdafólk.
Frá fyrstu stundu er ég kom með
Fríðu til Gauksstaða urðum við
vinir, „velkominn Jói minn“ sagði
hún og breiddi út faðminn. Hún
var gestrisin kona, enginn fór
svangur úr eldhúsi hennar enda
var hún þar drottning. Hún
sinnti fólkinu sínu á bænum, vissi
best allra að það var enginn
ákveðinn matartími í sveitinni,
fólk kom þegar var lag, hún sat
eða stóð við pottana, fór inn og
lagði sig litla stund eða hlustaði á
fallegan söng, kom fram aftur og
sýslaði meira, það var svo einfalt
að bíða, þau kæmu.
Didda var góð manneskja en
hörð, enginn skyldi reyna að
ganga yfir hana, en hún sætti sig
við margt. Eins og svo margir
átti Didda mín við sín innri mál
að stríða og olli það beiskju í lífi
hennar, held ég. Hún tók til sín
börn á sumrin og veitti þeim
góða aðhlynningu, trúi ég. Einn-
ig tók hún til sín aldraðan föður
sinn og annaðist hann af alúð og
virðingu. Ég held að það hafi ver-
ið með hennar bestu dögum. Ég
minnist með gleði og þakklæti
allra góðu stundanna sem við átt-
um saman í eldhúsinu hennar yf-
ir rjúkandi kúmenkaffi þar sem
pönnukökustaflinn hækkaði og
hækkaði og samræður urðu á
stundum ekki fyrir viðkvæma,
Didda hafði jú skoðanir og lá
ekki á þeim, enda óþarfi, þær
voru ævinlega réttmætar og allt-
af talaði hún máli þeirra sem
minna mega sín. Didda treysti á
börnin sín, þau voru henni afar
mikils virði og stóðu þau undir
því. Barna- og langömmubörnin
voru ljós hennar, maður sá hve
hún gladdist er þau komu til
hennar. Já, hún Didda er farin,
en við töpuðum henni mörg hver
fyrir nokkru, er hún hætti að
þekkja okkur, það var okkur
feðgum sárt. En svona er lífið,
maður á það sem maður á þar til
það hverfur.
Ég sakna hennar Diddu.
Jóhannes (Jói).
Eiðný Hilma
Ólafsdóttir
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Okkar ástkæri,
VALDIMAR GUNNARSSON,
Fremri-Kotum, Skagafirði,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 24.
nóvember.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 15. desember klukkan 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð
Heimahlynningar á Akureyri eða Sjúkrahúsið á Akureyri.
Brynja Björk Pálsdóttir
Arnar Logi Valdimarsson
Gunnar Ingi Valdimarsson Helga Lucia Bergsdóttir
sonardóttir og bræður hins látna
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
ÞÓR ÞORSTEINS
framkvæmdastjóra.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
sjúkrastofnana sem hann dvaldi á.
Dóra Egilson
Egill Þorsteins Marta Þórðardóttir
Karl Þorsteins Erla Traustadóttir
Snæfríð J. Þorsteins
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELÍN TÓMASDÓTTIR
frá Álftagróf í Mýrdal,
lést 24. nóvember á hjúkrunarheimilinu
Dyngju á Egilsstöðum.
Útförin mun fara fram frá Víkurkirkju, Vík í Mýrdal, laugardaginn
2. desember klukkan 14.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkað, þeim sem vilja minnast
hennar er bent á MS félagið.
Björn Ármann Ólafsson Susan N. Ellendersen
Einar Hjörleifur Ólafsson Anna M. Hjálmarsdóttir
Sigurbjörg B. Ólafsdóttir Gunnar Óskarsson
Guðrún S. Ólafsdóttir Sverrir Guðmundsson
Sigurborg Á. Ólafsdóttir Valgeir F. Backman
ömmubörn og langömmubörn