Morgunblaðið - 02.12.2017, Side 45
MINNINGAR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017
fuglinn dó og álftahópur kom til
að samhryggjast. En nokkru síð-
ar kom hópurinn aftur og þá var
það gleðisöngur þegar svanurinn
var búinn finna sér nýjan föru-
naut.
Það var mikil upplifun að fara
með Hildibrandi á lundaveiðar í
Hafnareyjar á gamla hákarla-
bátnum, sem nú er á safninu.
Hann lagði mikla áherslu á að
einungis væri háfaður geldfugl,
ekki lundinn sem væri að koma
að með síli. Allri lundaveiði var
hætt strax og lundanum fækkaði.
Mér er sérstaklega eftirminnileg
sjóstangveiðin þegar við Halldór
gleymdum okkur í mokveiði og
við sáum að við vorum búnir að
veiða fleiri þorska en við réðum
við að gera að, þá var hringt í
Hildibrand. Hann kom brosandi
niður í fjöru með kerru og það
var tryggt að aflinn yrði vel
nýttur.
Bjarnarhafnarkirkjan er í
umsjá og eign Bjarnarhafnar.
Hildibrandur trúði á mátt kær-
leikans og lagði mikla alúð við
kirkjuna sína. Það var áhrifarík
stund þegar hann leiddi gesti í
þessa helgu kirkju. Einstakir
forngripir eru í kirkjunni, kaleik-
urinn, messuklæðin og altaris-
taflan, sem hollenskir sjómenn
gáfu kirkjunni – en þeir höfðu
heitið á hana þegar þeir voru í
sjávarháska. Samveran með
Hildibrandi í kirkjunni var helgi-
stundir. Það var áhrifaríkt þegar
hlerarnir voru settir fyrir
gluggana, birtan var nánast eng-
in í kirkjunni og enn horfði Jesús
til allra. Hann talaði sérstaklega
til barna um að allir ættu að sýna
hver öðrum kærleika og góðvild.
Ég þakka Hildibrandi sam-
fylgdina af heilum hug. Það er
margs að minnast og ég tek með
mér það góða sem hann lagði
áherslu á. Ég votta Hrefnu, börn-
um og vinum dýpstu samúð. Megi
kærleiksandi Hildibrands fylgja
Bjarnarhöfn um ókomin ár.
Kveðja frá Ytri-Kóngsbakka,
Þorvaldur Ingi Jónsson.
Jæja, þá er vinur minn, Hildi-
brandur í Bjarnarhöfn, stiginn af
sviðinu. Shakespeare sagði að öll
veröldin væri svið og allir karlar
og konur á sviðinu einungis leik-
arar. Hildibrandur lék sitt hlut-
verk sem staðarhaldari í Bjarn-
arhöfn vel. Hann fluttist þangað
með foreldrum sínum og systk-
inum af Ströndum er hann var
um fermingu og flutti með sér
menningu Strandamanna og
felldi inn í nýtt hlutverk sitt.
Hildibrandur talaði bara móður-
mál sitt en þrátt fyrir það var
ekki annað að sjá en ferðabónd-
anum tækist ágætlega að tjá sig
við gesti sína.
Í Bjarnarhöfn er gömul timb-
urkirkja byggð af sjáandanum
mikla Þorleifi Þorleifssyni
„lækni“ 1856-60. Í henni er merk
altaristafla, er sú þjóðsaga hefur
spunnist um að sé gjöf frá 17. ald-
ar hollenskum sjómönnum er hafi
heitið á kirkjuna í hafnauð. Því
hafa sumir viljað tengja altaris-
töfluna við sjálfan Rembrandt
van Rijn. Myndin er af frægu mó-
tífi, sem margir meistarar hafa
málað og þ.á m. Rembrandt;
Kvöldverðurinn í Emmaus,
Jesús brýtur brauðið (Lúkas
xxiv –30) og lærisveinarnir tveir
þekkja hann aftur. Hildibrandur
var snillingur í að lýsa þessu
augnabliki svo vel að fólki fannst
það jafnvel sjá augu Jesús á
myndinni lifna og horfa á sig. En
hann fullyrti aldrei að verkið
væri eftir Rembrandt, bara
kannski.
Fyrir nokkru fundust í Þjóð-
skjalasafni Danmerkur gögn,
sem taka af öll tvímæli um hver
málarinn var. Hann var C.W. Ec-
kersberg (1783-1853) sem kallað-
ur hefur verið faðir danskrar
málaralistar. Hann málaði altar-
istöfluna í ársbyrjun 1833 eftir
pöntun danska Rentekamersins.
Það hafði fengið beiðni frá amt-
manni vesturamtsins um nýja
altaristöflu í Bjarnarhafnar-
kirkju að ósk Odds Hjaltalín hér-
aðslæknis. sem þá var búsettur
þar og hafði nýlega misst elskaða
konu sína danska.
Dönum fannst í byrjun altaris-
taflan það dýr að hún hæfði ekki
lítilli bændakirkju á Íslandi. Mál-
ið dróst því á langinn þar til kon-
ungurinn sjálfur, Friðrik VI., síð-
asti einvaldskonungur Dana, tók
af skarið og gaf skipun um að alt-
aristaflan skyldi máluð og send
með fyrsta skipi til Íslands.
Vegna íslenska loftslagsins var
ákveðið að mála hana á eikar-
spjald en ekki léreft, sem var vel,
því annars væri hún líklega ekki
til í dag.
Eitt sinn vorum við Líney
stödd í kirkjugarðinum í Bjarn-
arhöfn að huga að leiðum fjöl-
skyldumeðlima minna er stór
rúta skyndilega ók að sálnahlið-
inu og út steig Hildibrandur með
hóp af ítölskum ferðamönnum
sem hann fór með inn í kirkjuna.
Við tókum eftir því að flestir
þeirra voru konur. Eftir langan
tíma komu þau út aftur en þá
hafði eitthvað undur eða krafta-
verk gerst inni í kirkjunni. Kon-
urnar réðu sér ekki fyrir fögnuði
og kepptust um að faðma Hildi-
brand og þakka honum. Hann
hafði greinilega sýnt þeim töfra
altaristöflunnar. En slíkt er ekki
á færi eintyngds manns nema
hann hafi afburða leikhæfileika.
Það er því ekki furða að fjölmiðla-
fólk alls staðar af veraldarsviðinu
kæmi oft til Bjarnarhafnar að
eiga viðtöl við þennan einstaka
mann.
Við Líney vottum fjölskyldu
Hildibrands okkar dýpstu samúð.
Reynir Oddsson.
Kæri vinur. Ég kveð þig með
söknuði og þakklæti í hjarta
mínu.
Þakklæti fyrir að hafa fengið
að kynnast þér og allri þinni
gæsku.
Það sem við áttum sameigin-
legt var áhugi okkar á andlegum
málefnum og tengslum við nátt-
úruna og það sem í henni býr. Við
áttum margar góðar stundir og
þær minningar gera mig svo ríka
því það var mjög lærdómsríkt að
fá að kynnast hvaða mann þú
hafðir að geyma og hvernig þín
heimspeki var.
Það sem vakti aðdáun mína
var til dæmis hvernig þú varst
alltaf með það í huga að hjálpa
öðrum að líða betur. Ég veit að
stundum komstu við uppi á
sjúkrahúsi bara til að athuga
hvort einhver væri kannski þar
sem þú gætir eitthvað gert til að
hjálpa við að líða betur, skipti þá
ekki máli hvort þú þekktir við-
komandi eða ekki.
Einu sinni gaf ég þér olíu sem
ég vildi að þú prófaðir vegna
verkja. Þegar þú varst búinn að
prófa olíuna með góðum árangri
vildir þú endilega að fleiri fengju
að njóta og þú sagðir mér að nú
gengir þú alltaf með olíuna í vas-
anum og byðir þeim sem þú vissir
að væru með verk að prófa hana.
Það var alltaf gott að koma í
Bjarnarhöfn og þú varst snilling-
ur í að taka á móti gestum, skipti
engu máli hvaðan fólkið var eða
hvaða tungumál það talaði, þú
varst alltaf forvitinn um hverja
einustu manneskju og gast gert
þig skiljanlegan á íslensku og
tilbúinn að deila ástríðu þinni á
þessum fallega stað því það
leyndi sér ekki hversu vænt þér
þótti um Bjarnarhöfn og sérstak-
lega kirkjuna þar.
Þú hittir okkur oft í Heilunar-
félagi Íslands og munum við
minnast þín sem heiðursfélaga
um ókomna tíð.
Elsku vinur, ég kveð um leið
og ég bið um að góður Guð gefi
Hrefnu þinni, börnum ykkar og
barnabörnum styrk, ég veit að þú
ert kominn á góðan stað, hafðu
þakkir fyrir allt.
Stefanía Sigrún Ólafsdóttir.
Hildibrandur Bjarnason er
fallinn frá. Annað okkar kynntist
Hildibrandi fyrir einum 16 árum
þegar Jörundur hóf rannsóknir á
hákarlinum. Þá hringdi Jörundur
í Hildibrand til að greina frá
þessum fyrirhuguðu rannsóknum
og til að óska eftir aðstoð Hildi-
brands við öflun sýna. Hildi-
brandur átti bersýnilega von á
þessu símtali. Hann hafði þá um
nóttina dreymt um nýjar rann-
sóknir á hákarlinum, sem leiða
myndu til lækninga á ýmsum
sjúkdómum vegna hinna fjöl-
breytilegu lækningaeiginleika
vefja dýrsins. Það hefur því mið-
ur ekki ræst, en hver veit hvað
síðar verður. Mikil og auðfengin
aðstoð Hildibrands við öflun há-
karla til rannsókna hefur hins
vegar leitt til umtalsverðrar auk-
innar þekkingar á lifnaðarháttum
og erfðum þessa merkilega dýrs
á Íslandsmiðum. Upp úr þessu
tók við fjöldi ferða í Bjarnarhöfn,
þar sem hákarl var mældur og
krufinn og alls slags sýni sett í
formalín eða í frysti. Krufningar
með Hildibrandi voru ævintýri
líkastar. Hann var forvitinn að
eðlisfari og sífellt að spá og spek-
úlera í lifnaðarháttum hákarlsins
og líffærum hans og átti það til að
skera ýmis líffæri niður í frum-
eindir sínar til að forvitnast um
innri byggingu þeirra. Hann var
viskubrunnur og hann veitti af
örlæti.
Nýr kafli í samskiptum okkar
og Hildibrands hófst þegar við
hjónin fluttum í Helgafellssveit.
Þá kynntumst við nýjum hliðum á
Hildibrandi, svo sem áhuga hans
á mannlífinu, bæði þessa heims
og annars. Hann bar hag sam-
félagsins og einstaklinganna í
Helgafellssveit mjög fyrir brjósti
og kom iðulega í Hrísakot til að
ræða sveitarstjórnarmál, einkum
þegar Sif var sveitarstjóri. Því
miður var Sif ekki alltaf alveg
með á nótunum um einstaklinga í
sveitinni, vegna skorts á hæfi-
leikum við að muna mannanöfn.
Það kom hins vegar ekki alltaf að
sök. Hildibrandur hafði einstakt
lag á því að tala í kringum hlutina
og það kom fyrir að þau fóru á
flug um víðan geim í samræðun-
um. Það var alltaf kærkomið að fá
hann til viðræðna og í heimsókn-
ir. Hann var einstakur mann- og
dýravinur, gaf okkur amatörun-
um góð ráð við sauð- og geitburð
og hvernig best væri að höndla
ýmis vandamál sem upp koma í
búskap.
Hildibrandur hafði allt frá
æskuárum sínum mikinn áhuga á
Grænlandi. Hann kom til okkar í
Hrísakot eitt sinn til að kanna
hvort við værum til í að fara í ferð
með þeim hjónum til Grænlands
á skemmtiferðaskipinu Ocean
Diamond. Það var auðsótt mál. Í
september síðastliðnum héldum
við í 11 daga ferð um vestur-
strönd og suðurodda Grænlands
og skoðuðum hina fallegu og fjöl-
breytilegu náttúru Grænlands,
auk þess sem við nutum mannlífs
og matar Grænlendinga. Þrátt
fyrir veikindi sín var Hildibrand-
ur hrókur alls fagnaðar og naut
lífsins, sífellt kátur og brosandi.
Hann var notalegur og elskuleg-
ur ferðafélagi. Ferðin er ógleym-
anleg, enda ómetanlegt að
ferðast í svo góðum félagsskap
sem þau hjón eru.
Helgafellssveitin er tómleg í
dag. Hildibrands er sárt saknað.
Við sendum Hrefnu og fjölskyldu
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Sif Matthíasdóttir,
Jörundur Svavarsson.
Hildibrandur var engum líkur,
maður fór alltaf léttari í lund af
hans fundi. Það eru orðin hart-
nær 60 ár síðan ég hitti hann
fyrst, þá krakki nýkominn í sveit
á Innri-Kóngsbakka hjá frænd-
fólki mínu. Fjölskylda Hildi-
brands hafði þá um 10 árum áður
flutt í Bjarnarhöfn og bjó þar
rausnarbúi. Það var ævintýri að
koma þangað, stór og mikil húsa-
kynni. Messað var reglulega í
Bjarnarhafnarkirkju og þangað
sótti fólk af næstu bæjum kirkju.
Eftir messu buðu Laufey og
Bjarni, foreldrar Hildibrands,
öllum til höfðinglegs kaffisam-
sætis, þar sá Hildibrandur til
þess að krakkar kynntust og
lékju sér saman. Hann hugsaði
alla tíð vel um að ungviðið
gleymdist ekki.
Það var aðdáunarvert hve
bændur í sveitinni réttu hver öðr-
um hjálparhönd, sérstaklega í
byggingarframkvæmdum, þar
var Hildibrandur röskur til
verka. Fjölskyldan í Bjarnarhöfn
byggði upp myndarbú, bæði með
kýr og sauðfé, en sneri sér seinna
alfarið að sauðfjárrækt. Hildi-
brandur byrjaði snemma í há-
karlaverkun og byggði samhliða
upp safn sem var mikið átak á
sínum tíma, Bjarnahöfn er ekki í
alfaraleið og vegurinn þangað var
ekki góður, núna koma þangað
tugir þúsunda manna til að njóta
þessa merka safns, smakka há-
karlinn, skoða sögufræga kirkju
og fá söguna í æð. Hildibrandur
var sögumaður af guðs náð, kunni
sögu sveitarinnar og Eyrbyggju
utan að. Oft hef ég farið með út-
lendinga í safnið og þeir hrifist,
þótt ekki talaði Hildibrandur er-
lendar tungur. Og hann sá meira
en við hin, hafði hlýjar hendur og
var á sinn hátt n.k. heilari, um
það þekki ég þónokkur dæmi.
Eitt sinn kom ég með rúmenska
konu í safnið að vetrarlagi. Hún
var lurkum lamin eftir að hafa
farið á Snæfellsjökul, ég bað
Hildibrand að nudda á henni axl-
irnar sem hann gerði. Hún segir
fljótlega alla þreytu líða úr sér.
Hildibrandur segist þá ekki vera
einn að þessu, það sé maður fyrir
aftan hana að hjálpa til og lýsir
honum, konan verður forviða,
þetta er hann pabbi minn, hann
dó fyrir fjórum árum. Árlega fæ
ég jólakveðju frá þessari ágætu
konu sem biður ávallt fyrir
kveðju til hákarlamannsins, hún
muni aldrei gleyma honum.
Hildibrandur var mikill frum-
kvöðull og áorkaði meiru en
margur sem fengið hefur Fálka-
orðuna fyrir minna ævistarf.
Fyrir um 25 árum eignuðumst
við nokkrir félagar jörðina Innri-
Kóngsbakka, þar var Hildibrand-
ur mikil hjálparhella og eftirlits-
maður með eignum. Það var gott
að eiga svo traustan mann að og
alltaf skemmtilegt að fá hann í
heimsókn. Síðast bar fundum
okkar saman fyrir um fjórum vik-
um, þá var af honum dregið en
hugurinn skýr og stór áform voru
rædd. Hann sýndi mér teikning-
ar að nýjum byggingum og inn-
réttingum í veitingaaðstöðu sem
nú rís í Bjarnarhöfn. Helgafells-
sveit er fátækari og hefur misst
góðan dreng, en minningin lifir
um mann sem setti glæsilegt
mark á samtíð sína og byggði upp
til framtíðar.
Við Hildur sendum Hrefnu,
börnum hans og fjölskyldu allri
innilegar samúðarkveðjur.
„Orðstír deyr aldrei …“
Jafet S. Ólafsson.
Að minnast Hildibrands
Bjarnasonar er okkur í senn ljúft
og skylt. Það var gæfa okkar að
kynnast honum fyrir rúmum
tveimur áratugum þegar við urð-
um nágrannar hans í Helgafells-
sveit. Hann kenndi okkur fljótt á
sinn milda hátt að þekkja lífríkið
á svæðinu og sýna því virðingu.
Hildibrandur var höfðingi
heim að sækja. Í fersku minni er
áttatíu ára afmælisveisla hans
fyrir ári síðan þegar um þrjú
hundruð manns komu og nutu
samvista við hann og heimilis-
fólkið í Bjarnarhöfn. Aðdáunar-
vert er hversu vel hefur tekist til
við uppbyggingu ferðaþjónustu á
staðnum. Stig af stigi hefur að-
staða verið bætt, safn byggt upp
og enn er unnið að framförum
þar.
Hildibrandur var merkur mað-
ur sem bjó yfir innsæi og mann-
gæsku sem hann veitti ríkulega
af og var traustur vinur vina
sinna. Heimsóknir okkar í safnið
til hans með börn okkar og síðar
barnabörn voru margar, þar brá
Hildibrandur oft á leik auk þess
að færa okkur og börnunum fróð-
leik með einstaklega eftirminni-
legum hætti.
Minnisstæð er sú virðing sem
Hildibrandur bar fyrir bænda-
kirkjunni sinni í Bjarnarhöfn sem
kom svo sterkt fram á hans hæg-
láta hátt.
Hún birtist í endurbótum og
viðhaldi kirkjunnar og kirkju-
garðsins sem og í allri umgengni
hans og frásögn þegar gesti bar
að garði. Hildibrandur var ekki
málamaður en allir sem heim-
sóttu Bjarnarhöfn og hlýddu á
kynningu hans á kirkjunni á
kjarngóðri íslensku skynjuðu
umhyggju hans fyrir staðnum og
sögu hans.
Gott var að hafa Hildibrand
sem nágranna. Við þökkum fyrir
afar ánægjulegar samverustund-
ir og alla aðgætni hans og aðstoð í
dagsins önn. Hildibrandur var
einstaklega næmur og nærgæt-
inn.
Við eigum eftir að sakna hins
hlýja viðmóts hans og brosandi
andlits sem lyfti geði allra þeirra
sem voru svo lánsamir að kynn-
ast honum.
Um leið og við kveðjum kæran
vin, sendum við heimilisfólkinu í
Bjarnarhöfn og allri fjölskyldu
hans samúðarkveðjur.
Fyrir hönd vina Hildibrands á
Innri Kóngsbakka,
Tryggvi Pálsson.
✝ Elín Tómas-dóttir fæddist
7. apríl 1931 í
Álftagróf í Mýrdal.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu
Dyngju á Egils-
stöðum 24. nóvem-
ber 2017.
Elín bjó lengst
af í Vík í Mýrdal
en fluttist búferl-
um á Egilsstaði
2002. Foreldrar hennar voru
Tómas Lárusson, f. í Álftagróf í
Mýrdal 20. júní 1904, d. 19.
september 1983, og Sigurbjörg
Bjarnadóttir, f. á Hvoli í Mýrdal
18. mars 1903, d. 9. júlí 1985.
Elín var elst fjögurra systra,
næst henni kom Erna Lára, f.
28. ágúst 1932, Helga, f. 14. maí
1938, yngst var Sigríður, f. 2.
janúar 1943, d. 31. mars 2013.
Eiginmaður Elínar var Ólaf-
ur Björnsson símvirkjameistari
og loftskeytamaður, f. 31. des-
ember 1924 á Reykjum í Mjóa-
firði, d. 8. janúar 1999. Þau
gengu í hjónaband 20. maí 1950.
1982, hann á eina dóttur. Einar
Hjörleifur Ólafsson rafvirkja-
meistari, f. 4.12. 1955, sambýlis-
kona hans er Anna Matthildur
Hjálmarsdóttir, f. 1959, þau
eiga tvö börn, Hugborgu, f.
1984, hún á tvö börn, og Guð-
laug, f. 1991. Sigurbjörg Bjarn-
ey Ólafsdóttir mannauðsstjóri,
f. 12.1. 1961. eiginmaður Gunn-
ar Óskarsson, f. 1959, þau eiga
þrjú börn, Guðrúnu Dögg, f.
1978, hún á fjögur börn, Óla
Rafn, f. 1981, og Margréti
Helgu, f. 1998. Guðrún Sig-
urlaug Ólafsdóttir, svæðisstjóri,
f. 18.2. 1963, sambýlismaður
hennar er Sverrir Guðmunds-
son, f. 1968, fv. eiginmaður Vil-
hjálmur J. Guðmundsson, f.
1956, börn þeirra eru Lárus
Mikael, f. 1983, og Rósa, f. 1990,
hún á eina dóttur. Sigurborg
Árný Ólafsdóttir, f. 11.6.1965,
eiginmaður hennar er Valgeir
F. Backman, f. 1962, þau eiga
þrjá syni, Ágúst Friðmar, f.
1984, hann á tvær dætur, Aron
Elmar, f. 1991, og Valgeir Snæ,
f. 1998.
Útförin mun fara fram frá
Víkurkirkju, Vík í Mýrdal, í
dag, 2. desember 2017, klukkan
14.
Þeim varð sex
barna auðið og eru
fimm þeirra enn á
lífi.
Börn þeirra:
Tómas Borghólm
Ólafsson, sjómaður
og síðar skrif-
stofustjóri Sjó-
mannafélags
Reykjavíkur, f.
24.11. 1949, d. 19.
janúar 1986. Eigin-
kona hans var Bára Gísladóttir,
f. 1951, þau slitu samvistum.
Sonur þeirra er Gísli Gunnars-
son, f. 1967, hann á þrjú börn.
Seinni kona Tómasar var Auður
Jóna Maríusdóttir, f. 1948, þau
skildu. Þau áttu saman tvo syni,
Guðna, f. 1975, hann á fjórar
dætur, og Ólaf, f. 1978. Áður
eignaðist Tómas Jónu Bryndísi,
f. 1967, hún á þrjú börn. Björn
Ármann Ólafsson skógarbóndi,
f. 21.5. 1953, eiginkona er Susan
N. Ellendersen, f. 1954, þau
eiga þrjú börn, Maríu Bjartey, f.
1976, Elínu Rán, f. 1979, hún á
þrjú börn, og Ólaf Sigfús, f.
Ástkær móðir mín, amma og
langamma, hefur kvatt þennan
heim eftir erfið veikindi.
Hennar verður sárt saknað.
Takk fyrir alla þína visku og ást.
Hvað er mýkra en móðurhöndin kær
og mildara en hún að lækna sárin.
Og nú er þungur harmur hugann slær
já hver á þá að strjúka burtu tárin.
Þó hlýja móðurhöndin væri smá,
hún hafði styrk að miðla öllu góðu.
Það munu fáir greina götu þá
né ganga í spor sem nettir fætur
tróðu.
Fjölskyldan þín eftir stendur ein
þá eins og nakin björk í köldum
heimi.
Það skjól og ást sem alltaf frá þér
skein
þó enn er kjölfestan í tómum geymi.
Það er sem hafi slokknað leiðarljós
sem leiðarstjarna hverfi í myrku kafi.
Sem hafi fölnað, kulnað kærleiksrós
sem kveikur ankersfestar slitnað hafi.
Sumir vildu sjálfsagt fylgja þér
til sumarlands að baki lífs og gröfum.
En við sem lifum erum ennþá hér
og eigum því að hlíta þessum töfum.
Og jafnvel þó að enn sé allt svo
hljótt,
við eigum ljós í minninganna sjóðum.
Við getum alltaf ylinn þangað sótt
frá æsku og bernsku hlýjum dögum
góðum.
Og guð á himnum hann mun gæta
þín
og hann mun líka þerra sorgartárin.
Hann mun þér líka leyfa móðir mín
að leggja hönd á dýpstu tregasárin.
Og þú munt líka horfa himni frá
og hafa gát á framtíð þinna barna.
Og sendir kveðju er svefninn lokar
brá
að sætta okkur við þinn bústað
þarna.
Og guð á himnum hann mun gæta
þín,
hann kann að meta störf þín hér á
jörðu.
Hann kallar til sín bestu börnin sín
og ber þau út úr jarðarlífi hörðu.
Hann leiðir þau í ljósið upp til sín
og ljúfur engill brautina þér vísar.
Vertu sæl, nú guð mun gæta þín
og greiða þína för til Paradísar.
(Guðný Jónsdóttir)
Guðrún Sigurlaug
Ólafsdóttir,
Lárus Mikael Vilhjálmsson,
Rósa Vilhjálmsdóttir,
Máney Rós Aronsdóttir.
Elín Tómasdóttir