Morgunblaðið - 07.01.2018, Side 11

Morgunblaðið - 07.01.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018 Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is DÚNÚLPA FULLT VERÐ 29.980, VERÐNÚ 17.988 ÚTSALA 30-50% Opið í dag 11-16 Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Útsala Kjólar/túnikur 40-50% afsláttur Str. 36-56 gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Jón Torfi Gylfason, kvensjúkdómalæknir hefur opnað læknastofu í Lækningu, Lágmúla 5, 108 Rvk. Tímapantanir í síma 590-9200 og á heimasíðu Lækningar www.laekning.is Stórútsalanhafin Vetraryfirhafnir GERRYWEBER - BETTY BARCLAY Gæðafatnaður 30-50%afsláttur Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Mikil óánægja hefur verið innan Þingiðnar, félags iðnaðarmanna í Þingeyjarsýslum, vegna þess að Fé- lag málmiðnaðarmanna á Akureyri hefur stækkað félagssvæði sitt, svo það nær m.a. yfir félagssvæði Þing- iðnar. Félagssvæði Félags málmiðn- aðarmanna nær nú yfir Norðurland frá og með Húnaþingi vestra til og með Langanesbyggð. Mikil umfjöllun hefur verið um málið á vefsíðu Þingiðnar. Þar kem- ur fram að „til að verjast þessum yf- irgangi og til að tryggja stöðu fé- lagsins“ var nýlega samþykkti að breyta 1. gr. félagslaga Þingiðnar og stækka félagssvæðið með því að starfssvæði félagsins verði allt Ís- land. Þar með yrði Þingiðn lands- félag innan ASÍ. Því hefur hins veg- ar laganefnd ASÍ og miðstjórn hafnað. Samkvæmt lögum ASÍ geta aðild- arfélög ákveðið það í samþykktum sínum hvert félagssvæðið skuli vera, svo framarlega sem félagssvæðið nær yfir að minnsta kosti eitt sveit- arfélag, en það getur þó ekki náð til landsins alls og verið landsfélag nema það nái kjarasamningum við viðsemjendur um störf á landinu öllu. Landsfélag þarf að hafa samn- ing sem tekur til alls landsins Töluverð umræða hefur verið inn- an launþegahreyfingarinnar um mörk stéttarfélaga og landsfélög. Fram kom á dögunum að innan VR er hafin stefnumótunarvinna þar sem m.a. á að skoða kosti þess að VR verði landsfélag. En þó að félag- ið hafi stækkað með sameiningum á umliðnum árum og sé með deildir á Austurlandi, Suðurlandi og í Vest- mannaeyjum, nær félagssvæði þess ekki yfir landið allt. Nokkur dæmi eru um félög á vett- vangi ASÍ sem starfa á landsvísu s.s. Félag leiðsögumanna og VM. Spurður um þessi álitamál segir Magnús M. Norðdahl, deildarstjóri lögfræðideildar ASÍ, að landsfélög séu þau félög sem í raun hafa kjara- samninga sem taka til alls landsins. ,,Meginreglan er sú að kjarasamn- ingar eru bundnir við tiltekin sveit- arfélög, eitt eða fleiri, og þar af leið- andi stækkuðu félagssvæði margra stéttarfélaga þegar sveitarfélög voru að sameinast,“ segir hann. Að sögn hans stækkuðu málmiðn- aðarmenn á Akureyri ekki sitt fé- lagssvæði til þess að taka yfir landið heldur yfir ákveðin sveitarfélög á Norðurlandi. Þingiðn sé hins vegar eingöngu með kjarasamning á sínu félagssvæði og hugðist ekki ná kjarasamningi sem næði yfir allt landið þó það vildi verða landsfélag. Ef stéttarfélag hefur hug á að gera kjarasamning sem nær til alls landsins og Samtök atvinnulífsins eða aðrir viðsemjendur þess sam- þykkja það, þá stendur ekkert í vegi þess að það verði landsfélag. „Þegar t.d. Vélstjórafélag Íslands samein- aðist Alþýðusambandinu, þá var það mjög stórt félag sem stóð utan Al- þýðusambandsins en það samdi um kjör vélstjóra á öllu landinu. Svo sameinaðist það Félagi járniðnaðar- manna, sem var aðili að Samiðn. Fé- lag járniðnaðarmanna var með kjarasamninga mjög víða um Ísland og þegar við skoðuðum málið kom í ljós að þeir voru að dekka með kjarasamningum um 90% af öllum störfum á þeirra sviði á landinu og því gátu þeir tekið stöðu lands- félags.“ Segja að valtað sé yfir félagssvæði Þingiðnar  Brugðust við með stækkun yfir allt landið en ASÍ hafnaði Ljósmynd/Hreinn Hjartarson Við störf Miklar framkvæmdir hafa verið á félagssvæði Þingiðnar. Lögmenn skoða » Þingiðn ætlar ekki að una niðurstöðunni og hefur falið lögmönnum að skoða málið og skila félaginu áliti áður en næstu skref verða ákveðin. » Mikill uppgangur hefur verið á félagssvæði Þingiðnar á síð- ustu árum, einkum vegna virkj- ana og stóðriðju. Cyril Rama- phosa, varafor- seti Suður- Afríku, var á dögunum kjörinn leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, ANC. Hann hef- ur vakið eftirtekt fyrir gagnrýni sína á spillingu í stjórnkerfinu. Athygli vekur að Ramaphosa hefur tengsl við Ísland, en hann var aðal- kjörræðismaður Íslands (e. Honor- ary Consul General) á árunum 1998 til 2014. Morgunblaðið óskaði eftir upp- lýsingum um tilurð skipunar hans í það embætti frá utanríkisráðuneyt- inu. Í svari ráðuneytisins kemur fram að kjörræðismenn séu ólaun- aðir, en við val á þeim sé miðað við nokkrar forsendur, m.a. að viðeig- andi einstaklingur njóti virðingar í samfélaginu og hafi hreina saka- skrá, hafi góð tengsl í ríkinu, sé fjárhagslega sjálfstæður og hvorki undirmaður á vinnustað né opinber starfsmaður gistiríkis. Þá eru aldur og tungumálakunnátta einnig mik- ilvæg. Það er talið viðkomandi til tekna ef hann hefur tengsl við Ísland en gott tengslanet í gistiríkinu er talið mikilvægara. „Cyril Ramaphosa hafði engin tengsl við Ísland á sínum tíma en augljóslega þekktur og virtur í Suður-Afríku. Skipan hans byggð- ist á meðmælum norræns sendier- indreka í Suður-Afríku enda var þá ekki íslenskt sendiráð í landinu og samskipti stjórnvalda takmörkuð,“ sagði í svari utanríkisráðuneyt- isins. hdm@mbl.is Þjónaði Íslandi launalaust í sex ár Cyril Ramaphosa ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI? ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.