Morgunblaðið - 07.01.2018, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Vesturbugt verða, segir Gísli. Þar
liggur fyrir deiliskipulag sem tengist
mikilli íbúðabyggð sem rísa mun á
svæðinu. „Við þurfum að skoða
hvernig þessu verður best fyrir
komið,“ segir Gísli.
Á þessu svæði mun einnig rísa
listaverkið Tíðir sem vann 1. verð-
laun í samkeppni sem Faxaflóahafn-
ir efndu til í fyrra. Þema samkeppn-
innar var hlutdeild kvenna í
starfsemi og sögu hafnarinnar. Bak
við tillöguna standa Hulda Rós
Guðnadóttir myndlistarmaður,
Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt,
og Gísli Pálsson fornleifafræðingur.
Tillagan að nýju deiliskipulagi er að-
gengileg á vef Reykjavíkurborgar.
Athugasemdafrestur er til og með
16. febrúar næstkomandi.
Sem fyrr segir er fyrirhuguð mikil
uppbygging á Vesturbugt. Þetta er
svæði norðan Slippsins, sem nú er
notað sem bílastæði. Byggðar verða
176 íbúðir ásamt verslunar- og þjón-
ustuhúsnæði.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri, Grímur M. Jónasson, fram-
kvæmdastjóri VSÓ, og Bjarki A.
Brynjarsson, framkvæmdastjóri
Vesturbugtar ehf., skrifuðu undir
samning um verkefnið í apríl í fyrra.
Sérstakt félag, Vesturbugt ehf.,
hefur verið stofnað og mun það ann-
ast uppbyggingu svæðisins í sam-
starfi við Reykjavíkurborg. Stefnt er
að því að jarðvinna hefjist á þessu
ári og framkvæmdum á að ljúka inn-
an fimm ára.
Í viðtali við Morgunblaðið að lok-
inni undirskrift sagði Bjarki það
vera mjög ánægjulegt að koma að
uppbyggingunni í Vesturbugt.
Teymi arkitekta hafi lagt mikinn
metnað í að þróa hugmyndafræði
svæðisins þannig að það verði að-
dráttarafl fyrir íbúa og gesti. Í bland
við fallega íbúðabyggð verði veit-
ingastaðir og verslanir á jarðhæðum
sem opnast út á skjólsæl torg.
Fjöldi þjónustuhúsa mun
rísa við Gömlu höfnina
Stefnt er að því að þau verði tilbúin vorið 2019 Hús við Ægisgarð víkja
Tölvumyndir/Yrki arkitektar
Ægisgarður Hugmynd arkitektanna að útliti smáhýsanna við Gömlu höfnina. Þau hús sem nú standa þarna verða
fjarlægð. Á tölvumyndinni er Slippurinn ekki sýndur en fyrir liggur samþykkt þess efnis að hann verði þar áfram.
Vesturbugt Möguleg staðsetning smáhýsanna. Mikil uppbygging er fyrir-
huguð. Byggðar verða 176 íbúðir ásamt verslunar- og þjónustuhúsnæði.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur auglýst til-
lögu að breytingu á deiliskipulagi
Vesturbugtar við Gömlu höfnina í
Reykjavík. Í breytingunni felst m.a.
bygging einnar hæðar verslunar- og
þjónustuhúsa fyrir Faxaflóahafnir á
Ægisgarði og við Hafnargötu ásamt
uppbyggingu stærra þjónustuhúss
við Ægisgarð. Umrætt svæði er
sunnan megin við Slippinn.
Faxaflóahafnir munu reisa húsin,
eiga þau og leigja út. „Við höfum
verið að ræða við fyrirtækin um
rýmisþarfir,“ segir Gísli Gíslason
hafnarstjóri. Nú er verið að leggja
lokahönd á fyrirkomulag húsanna og
deiliskipulagið hefur verið auglýst.
„Næsta skref er að láta vinna verk-
fræðiteikningar að verkefninu og
bjóða það út. Það hefst vonandi áður
en árið er úti – en markmiðið er að
húsin verði tilbúin fyrir sumarið
2019,“ segir Gísli.
Þjónusta við ferðamenn
Í greinargerð Yrki arkitekta með
tillögunni kemur fram að núverandi
hús meðfram norðvesturhlið Ægis-
garðs verði rifin. Þessi hús, eða kof-
ar í sumum tilfellum, eru nýtt af fyr-
irtækjum í ferðatengdri starfsemi,
m.a. til að selja farmiða í hvalaskoð-
unarferðir. Einnig er þar að finna
reiðhjólaleigur og ýmsa þjónustu við
erlenda ferðamenn.
Á svæðinu verður skilgreind ný
lóð, Ægisgarður 5, þar sem reistar
verða nýbyggingar fyrir ferða-
tengda starfsemi. Heimilt verður að
reisa nokkur einnar hæðar smáhýsi
á lóðinni, frá 25 fermetrum upp í 120
fermetra. Í einu húsanna er gert ráð
fyrir upplýsingaþjónustu fyrir ferða-
menn og veitingasölu. Tekið er fram
í greinargerðinni að við útlitshönnun
húsanna skuli gæta samræmis í efn-
is- og litavali. Gert er ráð fyrir 40%
þakhalla og hann skal vera sam-
ræmdur. Á svæðinu er gert ráð fyrir
göngu- og hjólreiðastígum.
Norðan Slippsins, þ.e. milli hans
og Sjóminjasafnsins, á Vesturbugt,
munu einnig verða byggð nokkur
þjónustuhús. Þar hafa nokkur hvala-
skoðunarfyrirtæki verið með starf-
semi og notast við flotbryggjur sem
komið hefur verið fyrir á allra síð-
ustu árum.
Ekki er ákveðið hvernig húsin við
Þrettándagleði með söng og brenn-
um verður á þremur stöðum í
Reykjavík í dag, laugardaginn 6.
janúar.
Þrettándahátíð í Vesturbænum
hefst kl. 18.00 við Melaskóla. Þar
leiða ungmenni úr grunnskólum
Vesturbæjar fjöldasöng og síðan
verður gengið með blys að brenn-
unni á Ægisíðu. Borinn verður eld-
ur að kestinum kl. 18.30 og flug-
eldasýning verður kl. 18.45 og er
hún í samstarfi við KR-flugelda. Þá
verður Rauði krossinn með heitt
kakó til sölu gegn vægu verði.
Í Grafarvogi verður árleg þrett-
ándagleði Grafarvogsbúa haldin
við Gufunesbæ. Kakó- og vöfflusala
verður í Hlöðunni frá kl. 17.00 og
kl. 17.55 hefst blysför með álfum og
jólasveinum. Kveikt verður í
brennu og skemmtun á sviði kl.
18.00 þar sem Ingó Veðurguð held-
ur uppi fjörinu og gleðinni lýkur
með flugeldasýningu kl. 18.30.
Í Grafarholti verður safnast sam-
an við Guðríðarkirkju um kl. 18.30
og lagt af stað í blysför kl.18.45
með Skólahljómsveit Grafarvogs í
broddi fylkingar. Kyndlar verða
seldir við Guðríðarkirkju og í Leir-
dalnum. Um kl. 19.15 kveikir
brennukóngurinn Júlíus Eyjólfsson
í glæsilegri brennu og jólasveinar
taka lagið og skemmta börnunum.
Dagskránni lýkur um kl. 20:00 með
flugeldasýningu í boði Fram.
Þrettándagleði
á þremur stöð-
um í borginni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tæplega 2.400
einstaklingar
voru í starfsend-
urhæfingarþjón-
ustu á vegum
VIRK starfsend-
urhæfingarsjóðs í
lok nýliðins árs,
17% fleiri en um
síðustu áramót.
1.854 ein-
staklingar komu
nýir inn í þjónustu hjá VIRK á árinu,
liðlega 8% fleiri en árið á undan. Eru
það fleiri en áður hafa hafið starfs-
endurhæfingu á einu ári.
„Árangur og ávinningur af starf-
semi VIRK, fjárhagslegur og sam-
félagslegur, er mjög mikill þar sem
hún hefur á undanförnum árum skil-
að þúsundum einstaklinga í virka
þátttöku á vinnumarkaði,“ segir í til-
kynningu á vef sjóðsins. 7.333 ein-
staklingar hafa lokið þjónustu og
rúmlega 70% þeirra eru virkir á
vinnumarkaði við útskrift, eru með
vinnugetu og fara í launað starf,
nám eða atvinnuleit.“
2.400 í starfsend-
urhæfingu VIRK
Vigdís Jónsdóttir
framkvæmdastjóri.
Sigurður Guðmundsson, verk-
efnastjóri Íþróttabandalags
Reykjavíkur, hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar. Hann
tekur við starfinu af Pálma Blængs-
syni um næstu mánaðamót.
Sigurður býr á Hvanneyri og
kemur úr mikilli ungmennafélags-
fjölskyldu. Sjálfur er hann formað-
ur Ungmennafélagsins Íslendings.
Hann hefur áður starfað sem tóm-
stundafulltrúi Borgarbyggðar og
hjá UMFÍ.
Ráðinn fram-
kvæmdastjóri UMSB