Morgunblaðið - 07.01.2018, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
Styrkir til náms í
hafrétti
Hafréttarstofnun Íslands er rannsókna- og
fræðslustofnun á sviði hafréttar við Háskóla Íslands
og er meginmarkmið stofnunarinnar að treysta
þekkingu á réttarreglum á sviði hafréttar.
Að stofnuninni standa Háskóli Íslands, utanríkis-
ráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.
Hafréttarstofnun auglýsir hér með til
umsóknar styrki til þátttöku í
sumarnámskeiði Ródos-akademíunnar í
hafrétti 1.- 20. júlí 2018.
Umsóknir sendist Tómasi H. Heiðar, forstöðumanni
stofnunarinnar, með tölvupósti,
tomas.heidar2016@gmail.com, fyrir 26. janúar 2018.
ÚR BÆJARLÍFINU
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbæ
Íbúum í Reykjanesbæ fjölgaði um
nær 9% á nýliðinu ári. Íbúafjölgunin
hefur aldrei verið jafn mikil á árs-
grundvelli og er langt umfram
landsmeðaltal. Íbúar voru í árslok
2017 samtals 17.803 en 16.359 í árs-
lok 2016.
Fleiri met voru slegin. Aldrei
hafa verið fleiri sjúkraflutningar á
Suðurnesjum en árið 2017, rúmlega
3000 í allt. Fyrra met var frá 2016,
alls 2650, þannig að vöxtur hefur
verið í sjúkraflutningum á und-
anförnum árum.
Ástæðan fyrir mikilli fjölgun
sjúkraflutninga getur verið marg-
þætt. Íbúum hefur fjölgað mikið eins
og fram hefur komið, ekki bara í
Reykjanesbæ heldur Suðurnesjum
öllum, ferðamönnum sem fara um
flugstöð og ferðast um Suðurnes
hefur fjölgað og þjónustan á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
hefur ekki verið eins og best verður
á kostið vegna fjársveltis stofnunar-
innar.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
sendi frá sér bókun undir árslok þar
sem skorað er á ríkisstjórn og Al-
þingi að auka fjárframlög til op-
inberra stofnana á Suðurnesjum svo
íbúar á svæðinu njóti sömu fjár-
framlaga og íbúar í öðrum lands-
hlutum. Í úttekt sem bæjarstjórn lét
vinna fyrir sig og kynnt var í sept-
ember í fyrra kom í ljós að framlög
ríkisins til opinberra stofnana hafa
verið mun lægri en á öðrum land-
svæðum.
Meðal þess sem bæjarstjóri og
bæjarstjórn hefur bent á er að við
gerð fjárlaga sé stuðst við staðfestar
íbúatölur sem eru allt að þriggja ára
gamlar og því ekki í takt við núver-
andi íbúafjölda né íbúafjölgun sem
hafi verið fordæmalaus.
Á haustmánuðum kom einnig
út úttekt Embættis landlæknis um
stöðu mála hjá HSS. Þar kemur m.a.
fram að mönnun lækna og hjúkr-
unarfræðinga sé ónóg á sama tíma
og komur hafi aukist mikið sem þýð-
ir að biðtími lengist. Þá sé húsnæði
HSS barn síns tíma.
Þær ánægjulegu fréttir bárust
rétt undir jól að ríkið hygðist leggja
fram 5% aukafjárframlag til stofn-
unarinnar á þessu ári, en aðrar heil-
brigðisstofnanir á landinu fá einnig
aukafjárframlög um mismikil pró-
sentustig.
Það fór ekki svo að Reykjanes-
bær rataði ekki í Áramótaskaupið.
Nokkur snúningur var tekinn á
United Silicon og fyrri eiganda fyr-
irtækisins. Oft er hægt að skella upp
úr við áhorf á Skaupið en fyrir íbúa
Reykjanesbæjar held ég að þessi
brandari hafi í mesta lagi verið grát-
broslegur. Um afdrif verksmiðj-
unnar er ekki vitað á þessari stundu,
en greiðslustöðvun er í gildi til 22.
janúar nk.
Strætóferðir til og frá höf-
uðborgarsvæði og til nágrannasveit-
arfélagsins Garðs/Sandgerðis kom-
ust í uppnám undir árslok þegar
rútufyrirtækið SBK sagði upp þjón-
ustusamningi við Samband sveitar-
félaga á Suðurnesjum (SSS) þar sem
sýnt þótti að alvarleg mistök hefðu
verið gerð við útreikninga.
SSS hefur nú samið við Hópbíla
og Hópbifreiðir Kynnisferða ehf. til
að sjá um akstur leiða 55 og 89 frá og
með 8. janúar nk. þegar uppsögn á
samningi SBK við SSS tekur gildi.
Vilyrði kom frá ríkinu um þátttöku í
kostnaði enda þótti sýnt að kostn-
aður myndi aukast mikið með nýjum
samningi.
Þrettándagleði verður í
Reykjanesbæ á morgun. Þá verða
jólin kvödd með blysför á hátíð-
arsvæði við Bakkalág sem hefst kl.
17:00 við Myllubakkaskóla. Það má
eiga von á því að púkar og ýmsar
forynjur sláist í för og gerist hrekkj-
ótt. Boðið verður upp á skemmti-
dagskrá, brennu og flugeldasýningu,
heitt kakó og piparkökur.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksd́óttir
Vetrarmorgunn Sólin rís yfir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Reykjanesbæ á fallegum vetrarmorgni.
Almenningssamgöngurnar
eru ekki lengur í uppnámi
Alls bárust Vinnumálastofnun 17 til-
kynningar um hópuppsagnir á ný-
liðnu ári, þar sem 632 manns var sagt
upp störfum. „Flestir hafa misst
vinnuna í fiskvinnslu, 241 eða um 38%
allra hópuppsagna, í iðnaðarfram-
leiðslu 125, eða um 20% og 86 í versl-
un eða um 14%,“ segir í greinargerð
sem stofnunin hefur tekið saman og
birt er á vefsíðu hennar.
Fram kemur að samtals hefur
10.650 manns verið sagt upp í hóp-
uppsögnum á 10 árum. Flestir misstu
vinnuna á þriggja
mánaða tímabili frá desember 2008
til febrúar 2009 og svo næstu 3 mán-
uði þar á eftir.
Þegar hópuppsagnirnar á árinu
2017 eru greindar niður á landshluta
kemur í ljós að um 56% tilkynntra
hópuppsagna voru á höfuðborgar-
svæðinu, um 20% á Vesturlandi, um
19% á Suðurlandi og um 5% á Norð-
urlandi eystra og Suðurnesjum.
437 þeirra hópuppsagna sem til-
kynnt var um á árinu 2017 komu til
framkvæmda á því ári en 195 hóp-
uppsagnanna á árinu 2017 koma til
framkvæmda á árinu 2018. Flestar
hópuppsagnir sem komu til fram-
kvæmda í fyrra hófust í september
eða 99 alls.
Fjöldi þeirra sem sagt var upp í
hópuppsögnum skipt eftir mánuðum
var mestur í nóvember en þá var 118
sagt upp og í febrúar þegar 107 upp-
sagnir tóku gildi. ,,Alls komu 768
hópuppsagnir til framkvæmda á
árinu 2017, 331 úr tilkynningum sem
bárust á árinu 2016 og 437 úr tilkynn-
ingum sem bárust á árinu 2017,“ seg-
ir í samantektinni. omfr@mbl.is
10.650 í hópupp-
sögnum á 10 árum
632 misstu vinnu í hópuppsögnum 2017
Lögreglan á höf-
uðborgarsvæð-
inu var í gær-
morgun kölluð til
vegna karlmanns
sem þá var sof-
andi inni í skóla-
byggingu í mið-
bæ Reykjavíkur.
Í ljós kom að
maðurinn var
ölvaður og hafði
hann fundið sér leið inn í skóla-
bygginguna og lagst þar til hvílu.
Var honum vísað út úr skólanum
eftir tiltal frá lögreglumönnum og
fékk í kjölfarið að halda sína leið.
Er greint frá þessu í dagbók lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þá var í gærmorgun einnig til-
kynnt um umferðaróhapp á gatna-
mótum Kringlumýrarbrautar og
Sæbrautar. Þar rákust tvær bif-
reiðar saman og voru þær báðar
fluttar burt af kranabíl. Þeir sem
voru í bílunum sluppu án teljandi
meiðsla.
Fannst dauðadrukk-
inn í skólabyggingu
Ríkisvald Lög-
reglan var kölluð til.