Morgunblaðið - 07.01.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.01.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018 BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Lýsingar á háttsemi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu og ummæli aðstoðarmanna hans um hann í bókinni Fire and Fury kynda undir efasemdum um að hann sé andlega hæfur til að gegna embættinu. Í bókinni er vegið að þeirri ímynd sem Trump hefur búið til af sjálfum sér og er líklega mik- ilvægasta vopn hans í stjórnmála- baráttunni vestanhafs. Höfundur bókarinnar, blaða- maðurinn Michael Wolff, virðist hafa notfært sér reynsluleysi aðstoðar- manna forsetans til að fá nær óheft- an aðgang að heimildarmönnum í Hvíta húsinu fyrstu mánuðina eftir að Trump tók við embættinu. Wolff ræddi við marga af helstu ráðgjöfum forsetans, þeirra á meðal Steve Bannon, sem var aðalstjórnmála- ráðgjafi hans, og einnig lægra setta embættismenn. Hann segist hafa fengið það á tilfinninguna þegar hann ræddi við þá að þeir teldu allir að hann væri ekki hæfur til að gegna embættinu. „Þeir sögðu allir að hann væri eins og barn. Og það sem þeir áttu við er að það þarf alltaf að full- nægja þörfum hans þegar í stað,“ sagði Wolff í viðtali við NBC- sjónvarpið. „Höfum í huga að þetta er maður sem les ekki. Hann hlustar ekki.“ „Fífl, nautheimskur, bjálfi“ Í bókinni er meðal annars haft eft- ir Steven Mnuchin fjármálaráðherra og Reince Priebus, fyrrverandi skrifstofustjóra Hvíta hússins, að Trump sé „fífl“. Gary Cohn, aðal- efnahagsráðgjafi forsetans, sagði að hann væri „nautheimskur“. Haft er eftir H.R. McMaster, þjóðaröryggis- ráðgjafa forsetans, að Trump sé „bjálfi“, að því er fram kemur í um- fjöllun fréttaveitunnar AFP um bók- ina. Sagt er að Trump sé reikull í hugsun, lítið þurfi til að draga at- hygli hans frá viðfangsefninu, hann hafi lítinn áhuga á málefnunum, hafi ekki grundvallaratriði á hreinu og geri sér ekki fulla grein fyrir þeirri miklu ábyrgð sem fylgi embættinu. Í bókinni kemur meðal annars fram að Bannon talaði opinskátt í Hvíta húsinu um líkurnar á því að Trump héldi embættinu út kjör- tímabilið. Hann sagði þriðjungs lík- ur á því að forsetinn héldi velli og þá aðeins vegna vanhæfni þingmanna og forystumanna demókrata. Hann taldi jafnmiklar líkur á því að Trump yrði vikið úr embætti vegna and- legrar vanhæfni á grundvelli 25. við- auka stjórnarskrár Bandaríkjanna frá árinu 1967. Að lokum taldi hann þriðjungs líkur á því að höfðað yrði mál á hendur forsetanum til emb- ættismissis, að sögn breska dag- blaðsins The Guardian sem hefur birt útdrætti úr bókinni. Nokkrar villur eru í bókinni, að sögn Stephens Collinsons, frétta- skýranda CNN-sjónvarpsins, en hann tiltók ekki hverjar þær eru. Bannon hefur ekki gert neinar at- hugasemdir við það sem haft er eftir honum í bókinni, meðal annars ásök- un hans um að sonur forsetans hafi gerst sekur um landráð með því að ræða við lögfræðing sem tengist stjórnvöldum í Rússlandi. Bandaríski blaðamaðurinn Joshua Green segir að margt af því sem kemur fram í bókinni staðfesti að mestu leyti það sem aðrir blaða- menn hafi skrifað um það sem gerist á bak við tjöldin í Hvíta húsinu. Green skrifaði bók, Devil’s Bargain, um samstarf Bannons og Trumps í kosningabaráttunni. Þjóðinni til skammar Stórkarlalegar yfirlýsingar Trumps á Twitter höfðu áður ýtt undir efasemdir í bandarískum fjöl- miðlum um að hann væri hæfur til að gegna embættinu, t.a.m. ummæli hans á þriðjudaginn var um að hann væri með „miklu stærri“ og „öflugri kjarnorkuhnapp“ en leiðtogi ein- ræðisstjórnarinnar í Norður-Kóreu. Bandaríski stjórnmálaskýrandinn David Gergen, segir að bók Wolffs, renni stoðum undir efasemdir um andlega hæfni Trumps. „Ég tel að Bandaríkjamenn þurfi að hefja al- varlega umræðu um þetta,“ sagði hann í viðtali við CNN og bætti við að repúblikanar þyrftu að stuðla að þeirri umræðu. Gergen var ráðgjafi Richards Nixons, Geralds Fords, Ronalds Reagans og Bills Clintons í forsetatíð þeirra. Talsmenn Trumps í Hvíta húsinu og stuðningsmenn hans hjá Fox News segja hins vegar að það sé alls ekki við hæfi að draga andlega hæfni Bandaríkjaforseta í efa. The Wall Street Journal hefur skýrt frá því að margir þingmenn repúblikana hafi látið í ljós áhyggjur af yfirlýsingum Trumps á Twitter og utanríkisstefnu hans í einka- samtölum þótt þeir hafi ekki gagn- rýnt hann opinberlega. Tveir þing- menn repúblikana í öldunga- deildinni, Jeff Flake og Bob Corker, hafa deilt hart á forsetann, en þeir hafa báðir ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs. Flake sagði for- setann hættulegan lýðræðinu og Corker sagði hann vera þjóðinni til skammar. Pólitísk martröð Sjálfsdýrkun Trumps og þrá hans eftir virðingu jaðrar við þráhyggju og skýrir harkaleg viðbrögð hans við útgáfu bókarinnar. Stephen Collinson segir að ekkert í heiminum skipti forsetann meira máli en ímynd hans sjálfs og átrún- aður stuðningsmanna hans á honum sem sigurvegara og mikilhæfum leiðtoga sem þori að segja það sem honum býr í brjósti. Í bókinni sé vegið að þessari ímynd og Donald Trump fái hvert höggið á fætur öðru þar sem hann finni mest til. Bókin sé því pólitísk martröð fyrir forsetann sjálfhverfa í Hvíta húsinu. Telja Trump andlega óhæfan  Lýsingar í nýrri bók kynda undir efasemdum um að Trump sé hæfur til að gegna embætti forseta  Lýst sem barni og fífli  Grafið undan því sem hann metur mest – ímynd hans sem sigurvegara Donald Trump auglýsir bókina Ráðgert hafði verið að bókin Fire and Fury kæmi út á þriðjudaginn kemur en ákveðið var að flýta útgáfunni vegna tilraunar lögmanna Donalds Trumps Bandaríkjaforseta til að stöðva hana. Bókin kom út í gærmorgun og biðraðir mynduðust við bókaverslanir í Washington-borg í fyrrinótt, nokkrum klukkustundum áður en þær voru opnaðar. Trump hefur farið hamförum á Twitter gegn bókinni og viðbrögð hans eru álitin ótmetanleg auglýsing fyrir hana. Telja Trump hættulegan » Dr. Bandy Lee, prófessor í geðlækningum við Yale- háskóla, hefur átt fundi með 12 þingmönnum í Washington um geðheilsu Trumps. Aðeins einn repúblikani var á meðal þeirra. » „Þingmenn sögðu að þeir hefðu haft miklar áhyggjur af því hversu hættulegur forset- inn væri, hættunni sem þjóð- inni stafaði af geðrænum óstöðugleika hans,“ sagði Lee. Hann ritstýrði bók þar sem bandarískir geðlæknar vara við hættunni sem stafar af Trump í Hvíta húsinu. » Skv. siðareglum samtaka bandarískra geðlækna mega þeir ekki segja frá geðrænni vanheilsu einstaklinga án þess að hafa rannsakað þá sjálfir og fengið leyfi þeirra til að skýra frá vandamálunum. Ósætti Donalds Trump og Steve Bannon gæti orðið til þess að Bannon yrði vikið frá sem stjórn- anda fréttavefjarins Breitbart News og kollvarpað áformum hans um að hefja „stríð“ gegn þeim sitj- andi þingmönnum repúblikana sem hann telur að séu ekki nógu hollir stefnu forsetans. The Wall Street Journal segir að Bannon hafi misst stuðning mikilvægustu fjárhagslegra bakhjarla sinna, auðkýfingsins Robert Mercer og dóttur hans, Rebekuh Mercer. Feðginin og fleiri hluthafar í stjórn Breitbart News hafi rætt hvort víkja eigi Bannon frá störfum og margir þeirra séu hlynntir því. Hann hafði ætlað að safna fé til að styrkja þjóð- ernissinnaða hægrimenn í bar- áttunni við sitj- andi þingmenn í forkosningum repúblikana, en talið er að margir bakhjarlanna snúi baki við honum. Þetta gæti komið sér vel fyrir Repúblikanaflokkinn því að Bann- on hefur stutt menn sem margir telja mjög ólíklegt að geti náð kjöri í þingkosningunum í nóvember. Missir mikilvæga bakhjarla EIGENDUR BREITBART ÍHUGA AÐ VÍKJA BANNON FRÁ Steve Bannon Alþjóðaheil- brigðismála- stofnunin, WHO, hefur heimilað notkun nýs, ódýrs og öflugs bóluefnis gegn taugaveiki og þess eina sem er öruggt fyrir börn, að sögn The New York Times. Ákvörðun WHO verður til þess að hjálparstofnanir Samein- uðu þjóðanna geta keypt bóluefnið til að bólusetja börn í fátækum löndum. Á ári hverju smitast allt að 20 milljónir manna af taugaveiki og allt að 160.000 þeirra deyja, aðal- lega ung börn. Mikil þörf er á ódýru og öflugu bóluefni gegn taugaveiki vegna aukinnar útbreiðslu sjúk- dómsins og lyfjaónæmis. TAUGAVEIKI Ódýrt og öflugt bóluefni heimilað Bóluefnið nefnist Typbar TCV. Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir passann, ökuskírteinið, ferilskrána o.fl. Skjót og hröð þjónusta Engar tímapantanir Góð passamynd skiptir máli RAFVÖRUR Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Sorpkvarnir í vaska

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.