Morgunblaðið - 07.01.2018, Page 28

Morgunblaðið - 07.01.2018, Page 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Italia ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Golf Model 2945 L 216 cm Áklæði ct.70 Verð 199.000,- L 216 cm Leður ct.10 Verð 299.000,- Milli jóla og nýársbárust þauánægjulegu tíðindiað Alþingi hefði veitt 450 milljónum til mál- tækniáætlunar í fjárlögum fyr- ir árið 2018 – til að íslenskan verði gjaldgeng í samskiptum við tölvur. Við fögnum því öll sem bæri. Í gríni er sagt að sú tíð muni renna upp að ísskápar bjóði upp á tölvustýrt samtal um birgðastöðuna og sendi eig- endur sína út í búð þegar stefni í að mjólkin klárist. Ekki er talað um að máltæknivæddri tölvu verði kennt að senda okk- ur út í fjós að mjólka enda höfum við vanist því um skeið að mjólkin komi úr búðinni – en ekki úr kúnum. Þegar við getum skrafað við tölv- urnar um magndreifingu matvæla og hreinlætisvara er hætt við að fá okkar muni þekkja til tungutaks um mjaltir og nyt kúa, hvort þær selji vel eða illa og hvort þurfi kannski að tutla þær. Með vaxandi verkaskipt- ingu í þjóðfélaginu, frá sjálfsþurrt landnáms- og þjóðveldistímans til þeirr- ar verslunar og viðskipta sem við búum við, hefur þekking á umhverfi og handverki glatast. Hefðbundið tungutak hverfur í aldanna skaut og annað kemur í staðinn. Við getum ekki lengur beitt orðfæri goðafræðinnar um öll þau fyrirbæri á himni sem Snorri Sturlu- son gat ennþá bent á úr heita pottinum sínum í Reykholti. Og ekki er heldur útbreidd þekking á orðfæri um að verka kálfskinn í bókfell, sjóða blek og skera fjöðurstaf til skrifta. Þekking landsmanna á vinnslu járns úr mýrarrauða glataðist á 15. og 16. öld vegna innflutnings á ódýru járni. Sennilega eru fá sem sakna þess að hér skuli ekki vera rekin járnvinnsla með rauðablæstri í hverri mýri og viðarkolagerð í nærliggjandi skógum. Um líkt leyti og fjaraði undan járnvinnslunni í landinu komust Evrópumenn upp á lag með að framleiða pappír og prenta bækur í stað þess að þurfa sífellt að ala fleiri kálfa til að skrifa á þá. Þegar Jón biskup Arason „hafði ríkt á stóli sínum Hólum fimm eða sex ár þá lét hann fyrstur allra manna innkoma prentverk á Íslandi, segir Sigurður sonur hans á Grenjaðarstað í handriti sem nú er varð- veitt í Uppsölum. Síðan hefur prentlist og bókagerð þróast og dafnað hér á landi; allt þar til hin síðustu misseri að jólabækurnar eru prent- aðar nærri skógum og pappírsverksmiðjum í Finnlandi og Eistlandi. Í haust bárust þau tíðindi að prentvélarnar hefðu verið seldar úr flagg- skipinu í prentflotanum, Prentsmiðjunni Odda, og að þar með yrði ekki lengur hægt að framleiða harðspjaldabækur hér á landi. Rothögg fyrir listina að binda harðspjaldabækur, eins og sagði í fréttum, þannig að við verðum verkkunnáttu og tungutakinu fátækari þegar við þurfum ekki að fara úr bólunum í skjálífi framtíðarinnar með máltæknivæddum tölv- unum. Á þessum þrettánda og síðasta degi jóla má þó gleðja sig við vísu Stefáns Stefánssonar frá Móskógum í Fljótum: Tæmum glös og gleðjum lund þó gusti um norðurpólinn. Það er vani að vaka stund við að „rota“ jólin. Framtíðarsýn um skjálífi Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is Það er ýmislegt sem bendir til þess að á næstuárum kunni að verða mestu breytingar á hinupólitíska landslagi heimsbyggðarinnar frá þvíað Sovétríkin hrundu og kommúnisminn þar með og ríki í austurhluta Evrópu hlutu sjálfstæði á ný. Að þessu er vikið í athyglisverðri grein, sem birtist í fylgiblaði Morgunblaðsins daginn fyrir gamlársdag, sem nefnist Tímamót og er eins konar samstarfsverk- efni blaðsins og bandaríska dagblaðsins New York Times. Höfundur greinarinnar heitir Justin Yifu Lin, sem áður var aðstoðarforstjóri og aðalhagfræðingur Al- þjóðabankans en er nú yfirmaður Miðstöðvar nýrrar langtímahagfræði og heiðurskennari við Peking- háskóla. Fyrirsögn greinar hans segir kannski alla söguna en hún er svohljóðandi: „Um leið og vestrið hörfar rís Kína“. Í upphafi greinarinnar segir höfundur: „Árið 2018 munu Kínverjar minnast þess að fjörutíu ár eru liðin síðan horfið var frá áætlunarbúskap yfir í markaðshagkerfi“. Það gerðist samkvæmt ákvörðun Kommúnistaflokks Kína, sem þá stjórnaði Kína og gerir enn og löngu áður en gjaldþrot komm- únismans blasti við með hruni Sov- étríkjanna. Og höfundur bætir við: „Bandaríkin virðast vera að hverfa frá hnattvæðing- unni og það skapar augljóst tækifæri fyrir Kína til að hraða þeirri þróun að ríkið verði aðalverndari al- þjóðlega viðskiptakerfisins.“ Með öðrum orðum að Kínverska alþýðulýðveldið undir alræðisstjórn kínverska kommúnistaflokksins verði helzti málsvari frjálsra viðskipta í heiminum! Það er auðvitað ljóst að á þessum tímapunkti í sögu mannkynsins er þetta rétt. Að þessum viðhorfum er vikið í bók minni, sem út kom fyrir jól og nefnist Upp- reisnarmenn frjálshyggjunnar – Byltingin, sem aldrei varð, með eftirfarandi hætti (bls. 202-203:) „Jafnaðarmenn hafa verið einna fremstir í flokki þeirra sem hafa vegsamað alþjóðavæðingu og talið hana hafa átt þátt í að lyfta mörgum hundruðum millj- óna manna úr fátækt. Það er vafalaust rétt en breytir ekki því að hún hefur um leið átt þátt í að færa fólk á Vesturlöndum niður á fátæktarstig og skapa þar með pólitískan jarðveg fyrir mann á borð við Donald Trump. En í fyrirlestri sem Illugi Gunnarsson, fyrrverandi menntamálaráðherra, flutti í fundarsal Þjóðminjasafns hinn 25. ágúst 2017, vakti hann athygli á að sú fram- leiðsla, sem fyrir aldarfjórðungi var færð frá Vest- urlöndum til landa á borð við Kína og Mexíkó vegna miklu lægri launakostnaðar þar, væri nú að færast á heimaslóðir á ný og að þessu sinni vegna þess að vél- mennin eru að taka við framleiðslustörfunum af mann- fólkinu. Við sjáum vísi að þeirri þróun í fiskvinnslu hér, ýmist um borð í nýjum skuttogurum eða í fiskvinnslu í landi.“ Við þetta má svo bæta, að sú alþjóðavæðing, sem Justin Yifu Lin, telur líklegt að Kínverska alþýðu- lýðveldið taki forystu fyrir næstu árin á líka mestan þátt í að skapa þann ójöfnuð á heimsvísu, sem mikið hefur verið til umræðu hin síðari ár. Það gerist á þann veg að alþjóðleg stórfyrirtæki hafa nýtt sér margfalt lægri framleiðslukostnað í fyrrnefndum ríkjum, sem byggist á margfalt lægri launum sem þar eru greidd. Mismunurinn kemur ekki nema að litlu leyti fram í lægra vöruverði til neytenda heldur í meiri hagnaði, sem rennur í vasa fyrirtækjanna sjálfra og eigenda þeirra. Með öðrum orðum hefur orðið til óheilagt bandalag alþjóðlegra auðhringa, kommúnista í Kína og jafn- aðarmanna á Vesturlöndum, sem er meginskýringin á vaxandi ójöfnuði. En þótt forysta kínverskra kommúnista fyrir alþjóðavæðingu viðskipta kunni að verða tímabundin vegna þess að vélmennin eigi eftir að verða lágum launakostnaði skeinuhættur keppinautur er fleira að gerast, sem getur veikt stöðu vestrænna lýðræð- isríkja á heimsbyggðinni. Ákvörðun núverandi stjórnvalda í Bandaríkjunum um að flytja sendiráð Bandaríkjanna til Jerúsalem var vanhugsuð en viðbrögð þeirra og afstaða gagnvart al- þjóðasamfélaginu í kjölfarið var jafnvel verri. Banda- rísk stjórnvöld höfðu í hótunum við aðrar þjóðir og sögðu að fylgzt yrði með því, hvernig þær greiddu at- kvæði um tillögu um málið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þegar í ljós kom að flestar þjóðir heims höfðu þær hótanir að engu var þeim fylgt eftir með því að boða fjárhagslegar refsiaðgerðir gagnvart þeim sömu þjóðum. Í 80 ár hafa Bandaríkin verið í forystu frjálsra þjóða heims gegn alræði bæði nazisma og kommúnisma og alræði hvar sem það er að finna. Þar hefur siðferðileg- ur styrkur þeirra sem öflugasta lýðræðisríkis veraldar skipt máli ekki síður en fjárhagslegur styrkur og öfl- ugur her. Þegar þetta sama ríki gerir hvort tveggja í senn að skerast úr leik, sem sáttasemjari á milli Ísraels og Pal- estínu og hefur í hótunum við aðrar þjóðir heims að hætti alræðisríkja er það að missa þann siðferðilega styrkleika, sem hefur gert Bandaríkjunum kleift að gegna því forystuhlutverki, sem þau óumdeilanlega hafa haft með höndum. Á sama tíma er ljóst að sundurlyndi er vaxandi með- al Evrópuríkja og ólíklegt að þau geti tekið að sér þá forystu sem Bandaríkin eru að afsala sér á meðan Trump er í Hvíta Húsinu. Um leið eflast alræðisríki með Kína og Rússland í fararbroddi og Tyrkland ekki langt á eftir. Þetta er ískyggileg þróun. Er vestrið að hörfa? Frjáls viðskipti í heim- inum undir forystu kommúnistaflokks Kína? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Hinn 10. maí 1933 héldunasistastúdentar bókabrennu í miðborg Berlínar, og er ljós- myndir af þeim illræmda viðburði víða að finna í ritum um Þriðja ríkið. En bókum má tortíma með fleiru en því að brenna þær, og ungir þjóðernissósíalistar voru alls ekki einir um að kjósa frekar að eyða bókum en svara þeim efn- islega. George Orwell átti í erf- iðleikum með að fá útgefanda að Dýrabæ (Animal Farm), því að breskir ráðamenn vildu ekki styggja Stalín, sem nú var orðinn bandamaður þeirra gegn Hitler. Bandarískir vinstri menn reyndu að hindra, að Leiðin til ánauðar (Road to Serfdom) eftir Friedrich A. Hayek kæmi út í Bandaríkj- unum. Eins konar bókabrennur áttu sér jafnvel stað á hinum friðsælu Norðurlöndum. Að kröfu Nasista- Þýskalands lagði Hermann Jón- asson dómsmálaráðherra haustið 1939 hald á allt upplag bókarinnar Í fangabúðum eftir Wolfgang Langhoff, en þar sagði frá vist höf- undar í dýflissu nasista. Eftir ósig- ur fyrir Rússum 1944 urðu Finnar að fjarlægja úr opinberum bóka- söfnum ýmsar bækur, sem ráð- stjórninni voru ekki þóknanlegar, þar á meðal Þjónusta, þrælkun, flótti eftir Aatami Kuortti, sem kom út á íslensku 1938 og ég sá um að endurútgefa á síðasta ári, en þar sagði frá vist höfundar í þrælakistu kommúnista. Ég rakst nýlega á þriðja nor- ræna dæmið. Árið 1951 kom út í Svíþjóð bókin Vinnuþræll undir ráðstjórn (Jag jobbade i Sovjet) eftir Ragnar Rudfalk. Höfund- urinn, ungur skógarhöggsmaður, hafði ætlað að ganga til liðs við her Norðmanna ásamt norskum vini sínum, og höfðu þeir farið yfir rússnesku landamærin nálægt Múrmansk. Þeim var ekki leyft að halda áfram ferðinni, heldur var þeim varpað í þrælkunarbúðir, þar sem hinn norski förunautur lést úr vosbúð. Rudfalk þraukaði, og eftir vistina var hann dæmdur í útlegð, en fékk loks að snúa heim að til- hlutan sænskra yfirvalda. Bókin kom út í 24 þúsund eintökum og var þýdd á dönsku og norsku, auk þess sem kaflar birtust úr henni í Vísi 1952. En svo undarlega vill til, að bókin varð fljótlega ófáanleg, og ekkert var um hana rætt í Svíþjóð. Sænska jafnaðarmannastjórnin vildi fara gætilega gagnvart valds- mönnum í Moskvu og sá líklega um, að upplagið hyrfi þegjandi og hljóðalaust. Til þess að eyða bók- um þarf ekki alltaf að brenna þær. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Bókabrennur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.