Morgunblaðið - 07.01.2018, Side 31

Morgunblaðið - 07.01.2018, Side 31
MESSUR 31á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018 AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti Sig- rún Magna Þórsteinsdóttir. AKURINN kristið samfélag | Samkoma í Núpalind 1, Kópavogi, kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og bæn. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Krisztina Kalló Szklenár organisti. Kirkjukór- inn leiðir safnaðarsöng. Sunnudagaskólinn Anna Sigga og Aðalheiður leiða stundina. Kirkjukaffi og spjall á eftir. ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Skírn. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Kristnýju Rós Gústafsdóttur djákna. Kór Áskirkju syngur, orgelleikari Bjartur Logi Guðnason. Heitt á könnunni að messu lokinni. Barnastarfið hefst á ný eftir jólahlé sunnudaginn 14. janúar. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stund- inni hafa Sigrún Ósk og Guðmundur Jens. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Söngur og fræðsla. Ragnar Bjarni, Hreiðar Örn, Antonia og Pálmi. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaðakirkju syngur undir stjórn Anton- iu Hevesi. Messuþjónar aðstoða. Prestur er Pálmi Matthíasson. Heitt á könnunni eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Fjölskyldustund með sunnudagaskóla kl. 11. Ávextir andans leiða söng. Veitingar í safnaðarsal að stund lok- inni. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn. Safnaðarfundur í safnaðarheim- ilinu Lækjargötu 14a eftir messu, kl. 12.15. Dagskrá: Kosning kjörnefndar. EYRARBAKKAKIRKJA | Þrettándamessa kl. 11. Sérstök áhersla á vitringana. Kór Eyr- arbakkakirkju syngur. Organisti er Haukur Arnarr Gíslason. Prestur er Kristján Björns- son. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn. GRAFARVOGSKIRKJA | Frímúraramessa kl. 11 í Grafarvogskirkju. Séra Halldór Reyn- isson þjónar fyrir altari og Jóhann Heiðar Jó- hannsson læknir flytur hugvekju. Karlakór Grafarvogs syngur undir stjórn Írisar Erlings- dóttur. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Frímúrarabræður flytja ritningarorð og bænir. Kaffi og veitingar eftir messu. Sunnudaga- skólinn hefst á ný 14. janúar. GRENSÁSKIRKJA | Sunnudagaskólinn hefst 7. janúar. Daníel Ágúst og Ásta taka á móti börnunum í messunni kl. 11 og svo fara þau í sitt starf. Í messunni þjónar sr. María Ágústsdóttir ásamt messuþjónum. Organisti er Kristján Hrannar Pálsson og Kirkjukór Grensáskirkju leiðir söng. Kaffisopi á undan og eftir messu. Bænastund kl. 10.15. Hversdagsmessa á fimmtudag kl. 18. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgistund kl. 11. Forsöngvari Særún Harðardóttir. Orgnisti Douglas Brotchie. Prestur Þórhildur Ólafs. Kaffi í Ljósbroti safnaðarheimilisins Strand- bergs eftir stundina. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirs- syni. Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organ- isti Erla Rut Káradóttir. Umsjón barnastarfs Inga Harðardóttir. Hádegisbænir mánud. kl. 12.10. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa miðvikud. kl. 8. Kyrrð- arstund fimmtud. kl. 12. HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra Eiríkur Jóhannsson prédikar og séra Helga Soffía Konráðsdóttir þjónar fyrir altari. Kór Háteigskirkju syngur. Organisti Steinar Logi Helgason. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Eva Björk Valdimarsdóttir héraðsprestur þjónar og predikar. Organisti er Magnús Ragn- arsson. Félagar úr söngsveitinni Fílharmóníu leiða safnaðarsöng. Kirkjuvörður og messu- þjónar aðstoða við helgihaldið. Sunnudaga- skóli fer fram á sama tíma. Hafdís Davíðs- dóttir og Hekla Sigurðardóttir taka á móti börnum á öllum aldri. Kaffi í safnaðarheimili eftir stundina. Starf eldri borgara hefst á nýju ári miðviku- daginn 10. janúar kl. 12-15.30. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng. María Kristín Jónsdóttir leikur á orgelið. Prestur Skúli S. Ólafsson. Í predikun dagsins verður fjallað um verk Kristjáns Steingrímssonar, Jörð, sem er til sýnis á Torginu. Eftir messu verður sýnt brot úr heimildaupptökum Hrefnu Birnu Björnsdóttur af því þegar listamaðurinn hélt til landsins helga og sótti efnivið í verk sín. Sunnudagaskóli umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffi eftir messu. SALT kristið samfélag | Sameiginlegar samkomur Salts og SÍK alla sunnudaga kl. 17 í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58- 60, 3. hæð. Lofgjörðar- og vitnisburðastund. Barnastarf. Túlkað á ensku. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur Ninna Sif Svavarsdóttir. Kór kirkjunnar syng- ur, organisti Ester Ólafsdóttir. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Kór Seljakirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar. Prestur Kristinn Ágúst Friðfinnsson. SELTJARNARNESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjón- ar. Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Fjár- laganefnd syngur. Leiðtogar sjá um sunnu- dagaskólann. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnu- dag kl. 11. Prestur er Egill Hallgrímsson. Organisti er Jón Bjarnason. STAFHOLTSKIRKJA | Messa kl. 14. Kirkju- kórinn leiðir söng undir stjórn Jónínu Ernu Arnardóttur. Sr. Elínborg Sturludóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukaffi á prestssetr- inu að messu lokinni. Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonVopnafjarðarkirkja Orð dagsins: Þegar Jesús var tólf ára. (Lúk. 2) Nú hafa tveir ör- yrkjar sem þiggja ör- orkubætur sannað að þeir eru vinnufærir með því að setjast á Al- þingi og fleiri slíkir voru í framboði síðast án þess að ná kjöri. Kannski er þing- mennskan svona létt starf að það útheimtir engin afrek, hvorki lík- amleg né andleg, hvað veit ég? Ekki hef ég setið á þingi og sakna þess reyndar ekki. Hins vegar hef ég ekki orðið var við að afrek margra þeirra sem þar hafa setið mörg undanfarin ár séu til að stæra sig af. Mér standa reyndar nokkuð nærri sjö aðilar sem ég man eftir í svipinn sem þiggja einhvers konar bætur frá samborgurum sín- um þótt aðeins einn þeirra þurfi í raun á aðstoðinni að halda. Sú mann- eskja þráir hins vegar að geta unnið ólíkt hinum sex. Einn af þessum sex lifir við hestaheilsu í vellystingum á kostnað samborgaranna, hrúgar nið- ur börnum og ferðast svo með alla fjölskylduna til fjarlægra landa tvisvar á ári og makinn, sem að sjálf- sögðu er skráður til heimilis á öðrum stað en hinn hluti fjölskyldunnar, fer auðvitað með í utanlandsferðirnar. Einn af þessum sex stundar svo meira en 100% vinnu við rekstur þar sem afraksturinn er tekinn út í gegnum laun annars aðila svo ör- orkubæturnar skerðist ekki. Sá aðili er ekkert að fela vinnufærni sína þótt á bótum sé og kemur reglulega fram í opinberum kynningum á vörum sem hann tekur þátt í að framleiða. Svo gortar makinn sig af því reglulega að fá greitt með þess- um aðila frá samborgurum sínum. Enn einn af þessum sex sem vísað er í að framan vinnur svart við járna- bindingar og þekki ég það af eigin raun að til að sinna slíkri vinnu þarf við- komandi að vera lík- amlega vel gerður og hraustur að öllu leyti. En kannski finnst mér það bara í ljósi þess hve mikil veimiltíta ég er sjálfur og einstaklega sérhlífinn og latur. Skondnastur finnst mér samt sá halti sem haldinn er svo miklum krankleika á öðrum ökkla að hann hefur sannfært þá sem vottorðin veita og þar með aðgangsmiðann að fjár- hirslum þess hluta almennings sem leggur í púkkið um að hann sé alls- endis ófær um að sinna nokkrum störfum. Það sem er svo skemmti- legt við þennan aðila er að þegar hann fær sér í glas á hann til að gleyma því hvor ökklinn er ónýtur og haltrar þá til skiptis á vinstri og hægri. Þegar ég var til sjós á yngri árum kynntist ég mönnum sem höfðu lent í alvarlegum slysum og misst útlimi. Þetta voru starfsfélagar mínir til margra ára. Aldrei máttu þeir heyra á það minnst að hlífa ætti þeim við einhverjum verkum sem almennt þurfti að ganga í, þeir príluðu allir upp og niður stiga í lestum og vél- arrúmi, skiluðu sömu vinnu og við heppnari sem höfðum sloppið við þau áföll sem þeir höfðu lent í og þeir kveinkuðu sér aldrei. Þeir sem þiggja bætur af sam- félaginu þótt þeir séu færir um að afla sér tekna eru að svíkja út úr samborgurum sínum fjármuni og eru því ekkert annað en hreinir og klárir þjófar. Á sama tíma vanvirða þeir þá sem eru hjálpar þurfi og koma í veg fyrir að hægt sé að veita þeim ríkulegri stuðning en þeir njóta í dag. Þessu til viðbótar grobba margir þessir kerfisfræðingar sig af því hve útsjónarsamir þeir eru að stela með þessum hætti af samborg- urum sínum. Leti og stelsýki getur tæplega veitt þessum svindlurum rétt til örorkubóta þar sem þeir eru fullkomlega færir til að sinna ein- hverri vinnu þótt ekki séu allir færir til líkamlegrar vinnu. Raunverulegir öryrkjar og þeir sem leggja í púkkið ættu kannski að taka sig saman um að koma upp um svindlarana með því t.d. að birta myndir af þeim í daglegu lífi sem sýna raunverulega hæfni þeirra og þá sé ég fyrir mér stuttmynd með fé- laga mínum sem haltrar um til skipt- is á hægri eða vinstri eftir því hve langt er komið niður í flöskuna. Síðsumars hvert ár þykir fullkom- lega eðlilegt að fá að hnýsast í hvað nágranninn hefur í tekjur en þá liggja álagningarskrár frammi hjá skattyfirvöldum fyrir hvern þann sem hefur ekkert annað að gera en að hnýsast í persónuleg mál náung- ans. Það væri mun betur við hæfi að hafa aðgengilegan lista allt árið yfir alla þá einstaklinga sem þiggja ölm- usu frá samfélaginu með skýringum á því hvers eðlis sú ölmusa er. Þá er hægt að fylgjast með því hvort ná- granninn sé að þiggja umrædda ölmusu vegna leiklistarhæfileika sinna eða hvort hann sé í þeirri neyð að þarfnast hennar. Þeir sem stunda þá iðju að stela frá samborgurum sínum ættu að velta því fyrir sér hvort þeim þyki upphefð í því að hafa framfæri sitt af því að stela. Veitir leti og stelsýki rétt til örorkubóta? Eftir Örn Gunnlaugsson »… að hafa aðgengi- legan lista allt árið yfir alla þá einstaklinga sem þiggja ölmusu frá samfélaginu með skýr- ingum á því hvers eðlis sú ölmusa er. Örn Gunnlaugsson Höfundur er atvinnurekandi, iðju- leysingi og ekki á bótum. orng05@simnet.is Markmið eru sett, áföngum er náð, tíma- mót verða. Fjallið er klifið, toppnum er náð. Þá koma í ljós nýir toppar, ný markmið, nýir áfangar. Þrátt fyrir öll tíma- mót og fjarlæg mark- mið sem oft virðast eins og lokatakmark þá heldur lífið áfram. Þrátt fyrir allt mótlæti, torfærur og brekkur, baráttu og ósigra, og jafnvel þótt ævinni ljúki fyrr en við vildum, já jafnvel þrátt fyrir sjálfan dauðann, sem eru sannkölluð tíma- mót, þá heldur lífið áfram og ekkert fær það stöðvað. Ekkert ár er án áfalla Ekkert ár er án áfalla og ekkert ár er gleðisnautt. Þótt áföllin séu erfið og sár á meðan þau ganga yfir og skilji eftir sig illgræðanleg sár eða í besta falli ör bæði ljúfra og sárra minninga, þá geta þau engu að síður oft orðið að dýrmætri reynslu þegar frá líður. Minningum sem þú átt og getur byggt framtíðina á og enginn og ekkert megnar frá þér að taka. Gætum þess bara að festast ekki í fortíðinni. Verum ekki feimin við framtíðina Þú sem veist hvað þú hefur en veist ekki hvað verður, forðastu ekki fram- tíðina. Sláðu henni ekki á frest. Hafðu djörfung og áræði til að stíga inn í hana. Því kyrrstöðu og stöðnun fylgir dauði en hreyfingu fylgir líf. Þú sem veist hvað þú hefur en veist ekki hvað verður. Áttaðu þig á því hver þú ert og hvað þú vilt og hvert þú vilt stefna. Sláðu ekki ham- ingjunni á frest. Njóttu þess að vera sá sem þú ert. Gefðu draumana þína ekki upp á bátinn. Njóttu þess að lifa, hrærast og vera, núna. Og ræktum með okk- ur að sjá samferðafólk okkar með augnaráði hjartans. Hjartans sem á uppsprettu í faðmi frelsarans. Hans sem er lífið sjálft. Til að hafa eitthvað að gefa og ein- hverju að miðla þurfum við nefnilega að læra að þiggja. Við þurfum að rækta okkur sjálf, velja að takast á við lífið eins og það er og temja okkur hugarfar virðingar og umhyggju, sátta, fyrirgefningar og þakklætis. Allt er að breytast Dagurinn í dag eða dagurinn í gær? Okkar er valið. Við getum ekki lifað báðum. Annaðhvort festumst við í fortíðinni eða lifum deginum í dag og horfum fram á veginn með reynslu fortíðar sem bakgrunn en ekki sem stjórnanda. Allt er að breytast, jörðin nötrar og himinninn logar. En kærleikur Guðs stendur stöðugur og er ávallt hinn sami. Því Jesús Kristur er í dag og í gær hinn sami og um aldir og eilífð. Siðir, hefðir og viðteknar venjur kunna að koma og fara. Lög og regl- ur, menning og viðmið breytast. En dæmisögur Jesú, kærleikur og fyrir- heit, friður, orð, ást og verk munu áfram halda ferskleika sínum. Vekja til umhugsunar um lífið, mann- kærleika og það sem máli skiptir. Svo lengi sem veröldin stendur. Þrátt fyr- ir allt og alla, strauma og skoðanir, ákvarðanir og stefnur. Missum ekki trúna á lífið Látum því engan líta smáum aug- um á trú okkar. Því að hún er ekki spurning um mikið eða lítið. Heldur allt eða ekkert. Að trúa á lífið er að trúa á Guð, höfund þess og fullkomn- ara. Og að trúa á Guð er að trúa á líf- ið. Það er trúin sem ber okkur alla leið. Þeir sem eiga himininn í hjart- anu og nafn sitt letrað í lífsins bók þurfa því ekki að óttast bálhvöss tannaför tilverunnar og þá taumlausu ógn sem frá henni stafar því þeir eiga lífið framundan. Himneskt er að vera með vorið vistað í sálinni, sólina og eilíft sumar í hjarta. Því hamingjan felst í því að vera með himininn í hjartanu. Guð gefi okkur öllum gleðilegt og hamingjuríkt ár. Með kærleiks- og friðarkveðju. Lifi lífið! Festumst ekki í fortíðinni Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Sláðu ekki hamingj- unni á frest. Njóttu þess að vera sá sem þú ert. Gefðu draumana þína ekki upp á bátinn. Njóttu þess að lifa, hrærast og vera, núna. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.