Morgunblaðið - 07.01.2018, Side 42

Morgunblaðið - 07.01.2018, Side 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018 Mikilvægast af öllu er að heilsan er góð og ríkidæmið felst í þvíað eiga stóran hóp afkomenda; fjóra syni, tólf barnabörn ogtvö langömmubörn. Ég er virkilega stolt af mínu fólki,“ seg- ir Hólmfríður Kjartansdóttir á Selfossi sem er sjötug í dag. – Hún er frá Hvolsvelli en fluttist sautján ára gömul á Selfoss. Þau Hólmfríður og Björn Ingi Gíslason rakari, eiginmaður hennar, eru vel þekkt í bæj- arlífinu og hafa látið til sín taka í mörgu, svo sem í félagsmálunum. „Ég var lengi starfandi með JC-hreyfingunni og svo var fjölskyldan öll mjög virk í starfi knattspyrnudeildar og ungmennafélags. Þetta voru skemmtilegir tíma. Já, og svo gekk ég líka í kvenfélagið nánast um leið og ég flutti í bæinn og þó ég hafi ekki verið virk í starfinu borga ég alltaf árgjaldið,“ segir Hólmfríður sem lengi sinnti skrif- stofustörfum hjá Höfn hf, sem rakverslun og kjötiðnað. Seinna var hún um langt árabil þjónustufulltrúi hjá Selfossveitum en lét af störf- um fyrir þremur árum. Utan starfa og félagsmála segir Hólmfríður fjölskylduna alltaf hafa haft gaman af ferðalögum, lengri sem skemmri. „Á sumrin höfum við mikið verið hér í grenndinni, farið með hjólhýsið á skemmtilega staði hér í uppsveitum Árnessýslu til dæmis. Svo eru utanlandsferðirnar orðnar margar, svo sem að hitta á sonarson okkar Viðar Örn Kjart- ansson knattspyrnumann sem við höfum heimsótt bæði til Noregs og Ísraels.“ sbs@mbl.is Ljósmynd/Úr einkasafni Selfossbúar Hólmfríður Kjartansdóttir og Björn Ingi á góðri stundu. Ég er virkilega stolt af mínu fólki Hólmfríður Kjartansdóttir er 70 ára í dag E lísa fæddist í Reykjavík 6.1. 1978, átti heima á Höfn í Hornafirði í þrjú ár til sjö ára ald- urs, síðan í Álfatúni í Kópavogi, auk þess sem fjölskyldan bjó í Álaborg í Danmörku í tvö ár en Elísa var 13 ára er þau komu aftur heim. Hún var í Snælandsskóla, grunnskólum í Danmörku, lauk stúdentsprófi frá MH 1998, lauk BA- prófi í bókmenntafræði frá HÍ 2002 og var þá eitt ár við Háskólann í Amsterdam og lauk MA-prófi í bók- menntafræði frá HÍ 2006. Elísa byrjaði að vinna í bakaríi með skóla er hún var 16 ára, fyrst í Sveinsbakaríi, síðan hjá Gæða- bakstri og loks við Breiðholtsbakarí. Hún afgreiddi brauð og kökur með námi á veturna en starfaði oftast við fyrirtæki föður síns á sumrin. Elísa var texta- og hugmynda- smiður við auglýsingastofuna Vatík- anið í Reykjavík 2006-2008. Þá ákvað hún að flytja til Argentínu, vann þar áfram fyrir Vatíkanið og skrifaði pistla fyrir Víðsjá hjá RÚV, kom síð- an aftur heim 2009, starfaði á áfangastað fyrir geðfatlaða og starf- aði síðan hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu til 2011. Elísa þýddi bók fyrir Sölku 2012 og hóf síðan skriftir í kjölfarið. Hún þýddi bókina Villt, útg. 2015, og samdi unglingabókina Er ekki allt í lagi með þig, útg. 2017. Sú bók fékk Íslensku barnabókaverðlaunin 2017 og hefur verið tilnefnd til Íslensku Elísa Jóhannsdóttir, rithöfundur og þýðandi – 40 ára Stórfjölskyldan F.v: Einar, Hellen, Una Lóa, Helgi Páll, Jóhann, afmælisbarnið með bókina, Herdís og Guðný. Er rétt að byrja en fer líka mjög vel að stað Kátar systur Una Lóa og Ylfa Karlotta ĺáta fara vel um sig í sófanum heima. Sveinborg Jónsdóttir og Reynir Þormar Þórisson eiga 50 ára brúðkaupsafmæli í dag 6. janúar 2018. Þau voru gefin saman af séra Jóni Þorvarðarsyni í Háteigs- kirkju. Gullbrúðkaup Sveinborg Jónsdóttir og Reynir Þormar Þórisson Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. 10% afsláttur 10% afsláttur af trúlofunar- og giftingarhringum CARAT Haukur gullsmiður | Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is Sendum frítt um allt land Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.