Morgunblaðið - 07.01.2018, Side 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018
–– Meira fyrir lesendur
Þorrinn
Þann 19. janúar gefur
Morgunblaðið út sérblað
tileinkað þorranum
PÖNTUN AUGLÝSINGA
ER TIL 15. JANÚAR
Nánari upplýsingar gefur:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur átt í ákveðnum erf-
iðleikum sem nú eru að baki. Gættu þess
að þú fáir þá viðurkenningu sem þú átt
skilið.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er líf eftir vinnu og þótt starfið
sé mikilvægt máttu ekki vanrækja sjálfan
þig og gleyma áhugamálum þínum. Hálf-
bakaðar eða óljósar skuldbindingar þarfn-
ast úrlausnar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sumt er einfaldlega þess virði að
maður færi fórnir. Líklega er gáfulegast að
beina orku sinni þangað sem hennar er
mest þörf.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ástar- og vinasambönd, samvinna í
vinnunni og jafnvel samskipti við óvini þína
ættu að ganga vel á næstunni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Varastu öll gylliboð sem eiga að færa
þér hamingju og auðæfi í einu vetfangi.
Reyndu að hemja skap þitt og forðast rifr-
ildi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Samræður við vin munu valda þér
vonbrigðum í dag. Hikaðu ekki við að leita
uppi sálufélaga sem kann að meta gjörðir
þínar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ættir að segja samstarfsmönnum
þínum hvaða hugmyndir þú hefur um starf
ykkar. Skoðaðu málin í rólegheitum og
leiðréttu það sem laga þarf.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki er allt gull sem glóir og
þar sem skjótfenginn gróði virðist innan
seilingar getur verið skammt í tapið. Var-
astu tæknimál.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú er rétti tíminn til þess að
tala við samstarfsfólk um allt það sem þú
telur áríðandi. Komdu því á hreint hvað
skiptir máli í þínu lífi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú gætir haft gaman af góðri
rökræðu í dag. Ræddu málin við þína nán-
ustu og sameiginlega getið þið fundið
lausnina. Með góðri skipulagningu tekst
þér það.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú getur ekki frestað því deg-
inum lengur að framkvæma þá hluti sem
þú tókst að þér. Hugur þinn mun upp ljúk-
ast á nýjan hátt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert í aðstöðu til að dæma, en
ekki gera það! Hlustaðu á fólk með opnum
huga. Ef þú gerir það ekki er hætt við að
ráðríki og ofríki nái yfirhöndinni.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Bein þau eru ekki smá.
Urð og grjót það kalla má.
Bráðin leðja bergs á ferð.
Berg á hauðri víða sérð.
Það kom mér á óvart að engin
lausn skyldi berast á gátunni, – en
þannig hafa áramótin lagst í
menn! En þannig skýrir Guð-
mundur gátuna:
Hraun má bein úr hrossi kalla.
Hraun er urð, sem fær er valla.
Hraun er leðja á fleygiferð.
Ferlegt hraun þú víða sérð.
Þá er limra:
Á Hrauni var glens og gaman,
um gólfið þau dönsuðu saman,
uns henti einn dag,
að herrann fékk slag
og hrökk úr axlarlið daman.
Og síðan er að sjálfsögðu ný
gáta eftir Guðmund:
Nývaknaður hengi haus,
hef af litlu að státa,
rétt að segja rænulaus,
rýr er þessi gáta:
Torleyst verk hann vera kann.
Vegsemdinni fylgir hann.
Skuldabyrði skekur þann.
Skyldleiki við einhvern mann
Hallmundur Krisinsson birti
„eitt lítið limrugrey“ á Boðn-
armiði fyrir áramót:
Hallgrímur meyjuna mærði.
Munaðinn henni svo færði.
Þraut ekki þor.
Þarnæsta vor
með vísnasöng vögguna hrærði.
Hratt flýgur stund, Magnús
Geir Guðmundsson yrkir:
Nýja árið nett er hlaðið,
nytjaverkum, ekkert heftir.
Verður eflaust yfirstaðið,
áður en þú tekur eftir?!
Sverrir Einarsson sendir á
Boðnarmiði „kveðjur úr leirdeild-
inni“ og spyr, hvort þetta megi
vera svona, sem það vitaskuld
má!:
Ægifagurt er nú margt
úti um þessar mundir.
Þar sem liggur hjarnið hart
hjálpa broddar undir
Jóhannes Þórðarson Miðhúsum
orti:
Lífi manns ei lokið er
ljós þó augna dvíni.
Og ég trúi aftur mér
eilíf birta skíni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Úfið hraun eða gróið
Í klípu
„ÉG SÉ AÐ ÞIÐ HAFIÐ NEFNT HVORT
ANNAÐ SEM RÉTTHAFA – OG ÞANN SEM
HELST VERÐUR GRUNAÐUR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„Í SUMUM HEIMSHLUTUM ERU HEILU
ÞORPIN SEM GÆTU NÆRST Á ÞVÍ SEM ÞÚ
LEGGUR ÞÉR TIL MUNNS.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... eitthvað sem ekki er
hægt að reka á eftir.
ÉG SÉ ÞIG SÆRÐAN… Á JÖRÐUNNI…
FÓLK Í KRINGUM ÞIG… AÐ TÆMA
VASANA ÞÍNA!
JA-HÁ
HRÓLFUR SAGÐI ALLTAF AÐ HANN
VILDI FARA MEÐ FJÖLSKYLDUNA
SÍNA Í KRINGUM SIG!
JÆJA, REKTU ÚT
ÚR ÞÉR TUNGUNA
LEYFÐU MÉR AÐ
UMORÐA ÞETTA
LÍF-
TRYGGINGAR
Það er við hæfi á áramótum að lítafram á veg og um leið endur-
skoða ýmsa vana frá árinu sem var að
líða. Margir strengja áramótaheit.
Víkverji vill umfram allt einfalda líf
sitt og ætlar að tileinka sér mínimal-
ískan lífsstíl í meira mæli. Það tekur
tíma að stilla sig inn á þessa braut og
heldur vegferðin áfram á komandi
ári.
x x x
Eitt af því sem er nauðsynlegt aðgera er að losa sig við óþarfa
hluti. Til þess eru ýmsar leiðir. Hin
japanska Marie Kondo skrifaði bók-
ina Taktu til í lífi þínu! en undirtitill-
inn er „listin að grisja og end-
urskipuleggja með japönsku
KonMari-aðferðinni“. Fleiri en fimm
milljón eintök hafa selst af henni
þannig að það er ljóst að margir vilja
taka til í lífi sínu. Marie Kondo segir
að það sé mögulegt að losa sig við
hluti í eitt skipti fyrir öll og hætta að
safna drasli. Eins og frægt er orðið á
fólk aðeins að geyma það sem „veitir
því gleði“.
x x x
Önnur leið sem hægt er að nota ogbýr til leik úr því að henda hlut-
um heitir „minsgame“ og geta nýliðar
kynnst honum í íslenska Facebook-
hópnum „Minsgame - Ísland“. Hann
gengur út á það að á hverjum degi
losar fólk sig við jafn marga hluti og
samsvarar dagsetningu mánaðarins,
einn hlut 1. janúar, tvo hluti 2. janúar,
þrjá hluti 3. janúar o.s.frv. Í þessum
hópi birtir fólk mynd af því sem það
losaði sig við þann daginn og veitir
hvað öðru stuðning og gefur um leið
hugmyndir að því sem má henda.
x x x
Dæmi um það sem er upplagt aðfara yfir á þrettándanum er jóla-
skrautið. Þar leynist ábyggilega eitt-
hvað sem hefur ekki verið notað í
mörg ár og mætti losa sig við. Annað
sem getur gefið vel eru svokallaðar
„ruslskúffur“, þær fengu þetta nafn
af ástæðu. Fleiri hlutir sem þarfnast
yfirferðar á mörgum heimilum eru
snúrur og hleðslutæki; til hvers að
geyma hleðslutæki ef tækið sem það
átti við er ónýtt? Víkverji sér a.m.k.
fram á einfaldara líf á árinu.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ákalla mig á degi neyðarinnar og ég
mun frelsa þig og þú skalt vegsama
mig.
(Sálm: 50:15)