Morgunblaðið - 07.01.2018, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 07.01.2018, Qupperneq 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2018 Sænski leikarinn Johannes Brost er látinn af völdum krabbameins, 71 árs að aldri. Brost var með ástsælli leikurum Svía og einna þekktastur þar í landi fyrir túlkun sína á Joker í sápuóperu sænska ríkissjónvarps- ins, Rederiet. Árið 2013 hlaut hann sænsku kvikmyndaverðlaunin, Guldbagge, fyrir leik sinn í kvik- myndinni Avalon þar sem hann fór með aðalhlutverk. Brost hóf feril sinn á leiksviði í Malmö og Stokkhólmi og lék síðar í nokkrum kvikmyndum og sjón- varpsþáttum. Árið 1991 hóf hann að koma fram sem grínisti með uppistand og var einkum þekktur sem gamanleikari á ferli sínum þó svo hann hafi leikið í nokkrum dramatískum kvikmyndum. Allir helstu fjölmiðlar Svíþjóðar fjölluðu í gær um andlát Brost og fjöldi samstarfsmanna minntist leikarans með hlýjum orðum. Ljósmynd/Wikipedia/Frankie Fouganthin Vinsæll Leikarinn Johannes Brost. Leikarinn Johann- es Brost látinn Svanurinn er fyrsta kvik-mynd leikstjórans ÁsuHelgu Hjörleifsdóttur ífullri lengd og þegar í stað er ljóst að hún er mikil hæfileika- manneskja. Myndin var sýnd á er- lendri grundu á síðasta ári og hefur verið tekið vel, hún hefur verið verð- launuð og var Ása Helga m.a. út- nefnd besti leikstjórinn á hinni virtu Kolkata-kvikmyndahátíð á Indlandi. Á frumsýningunni hér heima stigu leikstjóri og framleiðendur á svið og héldu örlitla tölu á undan myndinni líkt og tíðkast. Ég stenst ekki mátið að nefna hvað ég tendraðist upp af því að sjá hóp kvenna standa á svið- inu, sem hefur verið skammarlega sjaldgæf sjón við svona tækifæri. Mér segir þó svo hugur að hún verði algengari. Svanurinn fjallar um sumar í lífi níu ára stúlku frá Grindavík sem er send í sveit til skyldmenna sinna eftir að hafa brotið af sér. Stúlkan (rétt er að taka fram að hvergi kem- ur fram nafn hennar né annarra lykilpersóna) er í upphafi ósátt við þetta hlutskipti sitt en er fljót að að- lagast lífi og störfum í sveitinni. Fyrst um sinn er hún ein á bænum ásamt bóndahjónunum en skömmu síðar mætir dóttir hjónana á svæðið, auk vinnumanns sem dvelur þar yfir sumarið. Dóttirin er augasteinn for- eldra sinna, henni virðist ganga allt í haginn, stundar nám í HÍ og á kær- asta sem býr í útlöndum. Vinnumað- urinn verður þess þó áskynja að ekki sé allt með felldu sem reynist rétt, dóttirin hefur ekki komið hreint fram og á sér ýmis leyndar- mál. Svanurinn er aðlögun á sam- nefndri skáldsögu eftir Guðberg Bergsson frá 1991. Ég hef ekki lesið bókina og hyggst því ekki leggjast í mikinn samanburð milli bókar og myndar. Það sem ég veit er að bókin er skrifuð út frá sjónarhorni litlu stúlkunnar og það sjónarhorn mið- ast við að hún er einungis níu ára gömul og skilur því ekki fyllilega hvað er að eiga sér stað hverju sinni. Hún er að upplifa alvöru lífs- ins í fyrsta sinn og þarf að henda reiður á flóknum fyrirbærum eins og ást, svikum og dauða. Heimur fullorðna fólksins er framandi og hún þarf að púsla saman ýmsum brotum sem einkenna þennan heim, sem hún færist sífellt nær því að til- heyra. Í tilraun til þess að færa þetta barnslega sjónarhorn stúlkunnar úr bók yfir í kvikmynd eru farnar ýms- ar leiðir. Í upphafi myndarinnar, þegar stúlkan er að kynnast um- hverfi sínu, tekur myndavélin sér hlutverk forvitins barnsauga, sem grandskoðar í nærmynd fluguhræ í gluggakistum, ryk á bókahillum og blómin í túninu. Þessi miðlunar- aðferð verður nokkuð gegnumgang- andi í myndinni. Annað stílbragð sem er notað er að bregða einhverju hálfgagnsæju fyrir linsuna eins og sjali, hári eða einhverju þess háttar og þar með verður sjónarhorn áhorfandans bókstaflega „takmark- að“. Þetta ljær myndinni líka dul- arfullt yfirbragð og gefur til kynna að það sem fyrir augu ber sé líkt og minning, upprifjun eða draumur. Myndræn hlið Svansins er afar ljóðræn og skáldskapurinn er einnig hluti af umfjöllunarefni sögunnar. Vinnumaðurinn er skúffuskáld, sem ver öllum lausum stundum í að pára í stílabækur og þetta vekur áhuga ungu stúlkunnar. Hún hefur einnig gaman af því að semja sögur, þótt hún segist lítið gefin fyrir „alvöru bækur“, hún er hrifnari af stuttum brotum sem fólk segir hvert öðru eða skrifar í stílabók. Það má álíta sem svo að stúlkan sé hrifnari af ljóðum en „alvöru sögum“. Það er algengt þegar bækur eru aðlagaðar að kvikmyndaforminu að stuðst sé við yfirlestur, þ.e.a.s. að persónur flytji texta yfir myndbrot. Svanurinn reiðir sig ekki um of á þessa aðferð en yfirlestur er ein- ungis nýttur þar sem persónur lesa upp skáldskap sinn og það kemur býsna vel út. Stúlkan les ljóð eða sögur eftir sig um „draumastelp- una“ og ljóst verður að í gegnum skáldskapinn nær hún að kljást við einmanaleika og erfiðar tilfinningar. Leikararnir í myndinni standa sig með prýði og sérstaklega ber að nefna Grímu Valsdóttur sem leikur aðalhlutverkið. Það er magnað að sjá slíka frammistöðu hjá svo ungri leikkonu. Einnig er Blær Jóhanns- dóttir firnasterk í hlutverki dóttur- innar en leikur hennar á ríkan þátt í því að dóttirin er líklega áhugaverð- asta persóna myndarinnar. Brotakennd frásögnin og draum- kennd myndatakan kallar fram hug- renningatengsl við myndir Terrence Malick, án þess þó að Svanurinn fari jafngríðarlega frjálslega með frá- sögn og þær myndir. Yfirbragð myndarinnar hentar prýðilega til að miðla sjónarhorni ungu stúlkunar en það kemur e.t.v. niður á bygg- ingu hinna persónanna, þar sem manni finnst stundum eins og mað- ur fái ekki að kynnast þeim nógu vel. Landslagsmyndir og könnun- arskot í náttúrunni eru ríkulega nýtt, sem rímar við sögu mynd- arinnar sem snýst m.a. um tengsl stúlku og náttúru. Þessar senur voru vissulega fallegar en stundum skorti þær slagkraft og manni fannst eins og verið væri að feta troðnar slóðir. Þá er spurning hvernig útlit myndarinnar leggst í áhorfendur, í það minnsta var sam- ferðafólk með ólíkar skoðanir sér- staklega hvað varðar útlit mynd- arinnar og kvikmyndatöku. Í Svaninum fá áhorfendur að upp- lifa umbrotasumar í lífi ungrar stúlku, þar sem hún lærir sem aldr- ei fyrr hvað tilveran er skrítin. Hún kynnist því hvað náttúran er dásam- leg, það felast raunverulegir töfrar í því að naga strá í sveitinni á blíð- viðrisdegi eða horfa í augun á ný- fæddum kálfi. En í lífinu er líka svartigaldur, að hausti tekur að rökkva, lífið er murkað úr litla kálf- inum og hann borinn á borð með kartöflum og brúnni sósu. Vinátta Unga stúlkan, leikin af Grímu Valsdóttur, með kálfi sem hún tekur ástfóstri við í Svaninum. Draumastúlkan með kálfsaugun Borgarbíó, Háskólabíó og Smárabíó Svanurinn bbbmn Leikstjórn og handrit: Ása Helga Hjör- leifsdóttir. Kvikmyndataka: Martin Neu- meyer. Klipping: Sebastian Thümler. Aðalhlutverk: Gríma Valsdóttir, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Katla Margrét Þorgeirs- dóttir, Ingvar E. Sigurðsson. 91 mín. Ísland, 2017. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR ICQC 2018-20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% NÝ VIÐMIÐ Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR DOLBY ATMOS LUXURY · LASER Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 6, 8, 10 Sýnd kl. 1.30, 3.45, 5.30Sýnd kl. 2, 5, 8, 10.30 Sýnd kl. 2 FORSÝND UMHELGINA /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.