Morgunblaðið - 10.01.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 10.01.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2018 30% afsláttur af rafdrifnum skrifborðum Bæjarlind 8-10 201 Kópavogur sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Verð frá 68.947 kr. Hæðarstillanleg rafdrifin borð stuðla að betri líkamsstöðu og bættri líðan í vinnunni. STOFNAÐ 1956 FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þrátt fyrir að kosningaþátttaka ungs fólks á Íslandi hafi verið mun minni en eldri kjósenda á umliðnum árum og farið minnkandi með tíð og tíma, sýna tölur úr kosningum á allra seinustu árum að kjörsókn yngstu aldurshópanna hefur farið vaxandi. Þannig var t.d. kjörsókn í yngstu hópunum nokkru meiri í þingkosningunum 2016 en hún var í sveitarstjórnarkosningunum 2014 og greining Hagstofu Íslands á al- þingiskosningunum 28. október síð- astliðinn leiðir í ljós að kosninga- þátttaka ungra kjósenda jókst frá árinu á undan. Kosningaþátttaka jókst í öllum aldurshópum en mest hjá yngstu kjósendunum, 18-19 ára, úr 68,7% árið 2016 í 75,2% í kosn- ingunum sl. haust, eða um 9,5%. Í greinargerð með frumvarpi 14 þingmanna úr öllum flokkum á Al- þingi um lækkun kosningaaldurs til sveitarstjórna úr 18 í 16 ár kemur fram að margir hafi verulegar áhyggjur af dvínandi kosningaþátt- töku ungs fólks. Sýnt hafi verið fram á að þeir sem nýta sér kosn- ingaréttinn þegar þeir eru ungir séu líklegri til þess að gera það alla ævi. Mest þátttaka 18 og 19 ára í Kraganum af öllum undir 40 Almennt eykst kosningaþátttaka með aldri en þó hefur komið á dag- inn eins og fyrr segir að allra yngstu kjósendurnir, þ.e.a.s. þeir sem eru 18 og 19 ára, hafa í sein- ustu kosningum verið duglegri að mæta á kjörstað en þeir aldurs- hópar sem næstir þeim koma allt til þrítugsaldurs, jafnvel fram á fer- tugsaldurinn. Ef litið er á tölur Hagstofunnar um kosningaþátttöku eftir aldurshópum í þingkosning- unum sl. haust má sjá að kosn- ingaþátttaka 18 og 19 ára var mest í Suðvesturkjördæmi þar sem hún var 78,2% og var hún sú mesta þar í öllum aldurshópum undir 40 ára aldri. Svipaða sögu er að segja af kosningaþátttöku eftir aldri í báðum Reykjavíkurkjördæmunum. Styrkir rödd unga fólksins Þetta er svipuð þróun og sést hef- ur í öðrum löndum þar sem allra yngstu kjósendurnir hafa verið dug- legri að mæta á kjörstað en ungt fólk í næstu aldurshópum þar á eft- ir. Þegar þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram um sjálfstæði Skotlands árið 2014 var kosningaaldurinn lækk- aður í 16 ár og skv. umfjöllun í tíma- ritinu Economist tóku þrír fjórðu allra sem þá voru 16 og 17 ára og áttu rétt á að kjósa þátt í þeirri kosningu, sem var miklu hærra hlutfall en meðal þeirra sem komnir voru á þrítugsaldurinn. Reynslan þótti svo góð að ákveðið var að stíga skrefið til fulls og lækka kosninga- aldur bæði til þings og sveitar- stjórna úr 18 árum í 16 ár. Í grein- argerð frumvarpsins sem nú er til meðferðar á Alþingi kemur fram að Austurríki var fyrsta landið til að stíga það skref að lækka kosninga- aldur í 16 ár í öllum kosningum árið 2007. Í umfjöllun Economist er bent á að í Austurríki hafi einnig komið á daginn að kosningaþátttaka yngstu kjósendanna, 16 og 17 ára, var til muna meiri en meðal 19 til 25 ára. Lækkun kosningaaldurs styrkir rödd unga fólksins og gefur því merki um að skoðanir þess skipti máli, að mati Economist. Meirihlutinn jákvæður Engin leið er hins vegar að segja til um hvort þessar tölur eru vís- bending um meiri kjörsókn yngstu kynslóðanna þegar fram líða stundir eða hvort áhuginn dvínar þegar komið er fram á þrítugs- og fertugs- aldurinn. Nokkuð skiptar skoðanir eru á lækkun kosningaaldurs til sveitar- stjórna. Það kom glöggt í ljós í um- sögnum við frumvarpið um lækkun kosningaaldursins sem Katrín Jak- obsdóttir og fleiri þingmenn lögðu fram á vorþinginu í fyrra en það er samhljóða frumvarpinu sem nú ligg- ur fyrir Alþingi. Fór ekki vaxandi eftir 1984 Þó mikill meirihluti þeirra sem sendu inn umsagnir hafi lýst ein- dregnum stuðningi við það, komu einnig fram efasemdir og andstaða. Yfirkjörstjórn Fjarðabyggðar vildi að Alþingi hafnaði frumvarpinu og minnti á að kosningaþátttaka ungs fólks hafi farið dvínandi á umliðnum áratugum þrátt fyrir að kosninga- aldurinn hafi árið 1984 verið lækk- aður úr 20 árum í 18 ár. Ennfremur var bent á að ef frumvarpið yrði samþykkt óbreytt myndi það sjálf- krafa valda því að kjörgengisaldur lækki einnig í 16 ár. Í sveitarstjórn- arlögunum segi að kjörgengur í sveitarstjórn sé hver sá sem á kosn- ingarétt í sveitarfélaginu, hefur ekki verið sviptur lögræði og hefur óflekkað mannorð. Lögræðisald- urinn sé hins vegar 18 ár og því muni frumvarpið leiða til þess að ólögráða ungmenni verði kjörgeng. Þetta gangi ekki upp. Sveitar- stjórnarmaður verði lögum skv. að hafa fjárforræði, sem ólögráða mað- ur hafi að sjálfsögðu ekki. Ef lækka eigi kosningaaldurinn verði að sjá til þess að 18 ára kjörgengisaldurinn standi óbreyttur. Alþingi byrji á sjálfu sér Sveitarfélögin hafa ekki sett fram sameiginlega afstöðu til málsins. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir skoðanir mismunandi en margir sveitarstjórnarmenn hafi sagt í umræðunni að fyrst Alþingi sé að taka þessar ákvarðanir, af hverju byrji það þá ekki á sjálfu sér og lækki kosningaaldurinn í þing- kosningum. Einnig hafi komið fram efasemdir um að kjörgengisaldurinn lækki í 16 ára aldur, að sögn hans. Yngstu kjósendurnir taka við sér  Kosningaþátttaka yngstu hópanna vex  Skiptar skoðanir á lækkun kosningaaldurs  Efasemdir þar sem kjörgengisaldurinn myndi lækka sjálfkrafa úr 18 í 16 ár  Ólögráða ungmenni kjörgeng? Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kosningar Framhaldsskólanemar í FÁ hlýða á þingframbjóðendur. Kjörsókn eftir aldri 2014 til 2017 Heimild: Hagstofan 100% 80% 60% 40% 20% 0% 18-19 20-24 25-29 30-34 35-39 40-44 45-59 50-54 55-59 60-64 65-69 70-74 75-79 80+ Sveitarsjórnarkosningar 2014 Forsetakjör 2016 Alþingiskosningar 2016 Alþingiskosningar 2017 Jón Steinar Guð- mundsson, prófessor emeritus við Tæknihá- skólann í Þrándheimi (NTNU), er látinn eftir erfið veikindi. Hann varð sjötugur á gamlársdag. Jón Steinar fæddist í Reykjavík á gamlárs- dag 1947. Hann var sonur hjónanna Guð- mundar Hanssonar og Sigríðar Axelsdóttur. Jón Steinar útskrif- aðist með BSc-gráðu í efnaverkfræði frá Heriot-Watt-háskólanum í Edin- borg 1973 og með doktorsgráðu í sömu grein frá Háskólanum í Birm- ingham árið 1977. Hann starfaði við rannsóknir hjá Orkustofnun 1977-1981 og var yfir- maður jarðhitadeildar Stanford- háskóla 1981-1985. Árin 1982-1985 var hann dósent við skólann. Árin 1986-1989 var Jón Steinar skólastjóri Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna. Árið 1989 flutti Jón Steinar ásamt konu sinni Sigrúnu Guðmundsdóttur til Þrándheims í Noregi. Þar tók hann við stöðu dósents í olíuverk- fræði við NTNU og var þar prófess- or 1991 til 2014 er hann fór á eftirlaun. Jón Steinar gegndi mörgum trúnaðar- störfum. Hann var meðal annars heiðurs- félagi í Samtökum olíu- verkfræðinga (SPE) og félagi í Norsku tækni- og vísinda- akademíunni (NTVA). Þá sat hann í bæjar- stjórn Þrándheims fyr- ir Hægri flokkinn 2003 til 2010. Hann stofnaði nokk- ur fyrirtæki og seldi uppfinningar, m.a. til stórfyrirtækj- anna Halliburton og Matsui. Eftir hann liggur mikill fjöldi fræðigreina. Þegar Jón Steinar fór á eftirlaun skrifaði hann 400 síðna kennslubók í olíuverkfræði á ensku. Jón Steinar og Sigrún, sem var prófessor í uppeldisfræði við NTNU, giftust 23. júní 1971. Þau eignuðust tvo syni, Guðmund Stein- ar og Magnús Ara. Báðir eru olíu- verkfræðingar. Sigrún lést eftir erf- ið veikindi í júní 2003. Seinni kona Jóns Steinars heitir Rigmor Kvarme. Þau giftust 2009. Rigmor á dóttur og tvö barnabörn. Útför Jóns Steinars fer fram í Þrándheimi. Andlát Jón Steinar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.