Morgunblaðið - 10.01.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 10.01.2018, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2018 ✝ Ásdís Valdi-marsdóttir fæddist í Reykjavík 11. ágúst 1927. Hún lést á Vífils- stöðum í Garðabæ 9. desember 2017. Foreldrar Ásdís- ar voru Valdimar Stefánsson, f. 1. ágúst 1896, d. 25. apríl 1988, og Guð- rún Vilhjálms- dóttir, f. 13. febrúar 1901, d. 2. september 1935. Systkini Ásdís- ar eru: Þráinn, f. 9. janúar 1923, d. 18. desember 2007, Hörður, f. 9. febrúar 1925, d. 3. júlí 2006, Vilhjálmur, f. 2. mars 1926, Stefán, f. 2. mars 1926, d. 3. júlí 1927, Erla, f. 26. október 1929, Hrafnhildur, f. 12. febr- úar 1931, d. 6. febrúar 2015, Stefán, f. 20. apríl 1934, Sverr- ir, f. 3. maí 1935, d. 31. ágúst 1935, Haukur, f. 3. maí 1935, d. 3. september 1935. Ásdís var í sambúð með Guðmundi Marz Sigurgeirssyni, f. 14. mars 1930, d. 30. apríl 1960. Ásdís var einnig í sambúð með Ólafi Hólm, f. 5. janúar 1931, d. 7. maí 2001, börn þeirra eru Fjóla, f. 26. júlí 1963, og Friðbjörn, f. þar til hún hóf störf sem gæslu- kona við leikvelli Reykjavíkur- borgar. En því starfi gegndi hún allt til eftirlaunaaldurs, annars vegar við gæsluvöll við Engihlíð og síðar við Tungusel. Ásdís giftist aldrei á lífsleiðinni en átti tvo sambýlismenn. Sá fyrri var Guðmundur Marz Sigurgeirsson sjómaður, sem lést af slysförum við störf sín árið 1960 en þau voru barnlaus. Með síðari sambýlismanni sín- um, Ólafi Hólm, eignaðist hún tvö börn, Fjólu Hólm, f. 1963, og Friðbjörn Hólm, f. 1966. Eig- inmaður Fjólu er Egill Eiðsson, f. 1962, en börn þeirra eru Eið- ur Ágúst Egilsson, f. 1984, Arn- ór Ingi Egilsson, f. 1992, og Snædís Ósk Egilsdóttir, f. 1997. Eiginkona Friðbjörns er Ingi- björg Lilja Diðriksdóttir, f. 1978, og barn þeirra er Bergur Hrafn Hólm, f. 2014. Börn Frið- björns úr fyrra hjónabandi með Hrefnu Sigríði Briem, f. 1969, eru Ásdís Karen Hólm, f. 1990, og Þór Daníel Hólm, f. 1996. Barnabarnabörn Ásdísar voru tvö, Valur Kári Eiðsson, f. 2007, og Egill Rúnar Eiðsson, f. 2017. Á síðustu árum ævi sinnar glímdi Ásdís við veikindi og eft- ir að hafa dvalið á Landakoti og síðar á öldrunardeild á Vífils- stöðum lést hún 9. desember 2017. Útför Ásdísar fór fram í kyrrþey frá Fríkirkjunni í Reykjavík 18. desember 2017. 9. maí 1966. Ásdís á sex barnabörn og tvö barna- barnabörn. Ásdís ólst upp í Garðastræti 13 í Reykjavík á ár- unum 1927 til 1932. Hún flutti með fjöl- skyldu sinni, föður og móður og fjór- um systkinum í Látravík á Horn- ströndum vorið 1932. En þar starfaði faðir hennar sem vita- vörður fram til ársins 1936. Ár- ið 1935 var Ásdísi afdrifaríkt en þá missti hún móður sína úr heilablóðfalli. Við það leystist fjölskylda hennar upp og var hún send í fóstur til móðurfor- eldra sinna á Meiri-Tungu í ná- grenni Hellu. Þar ólst hún upp við sveitarstörf en fór svo í Hér- aðsskólann á Laugarvatni árið 1945 og síðar í Húsmæðraskól- ann á árunum 1948-1949. Að loknu námi fluttist Ásdís til Reykjavíkur og tók við starfi systur sinnar Erlu, sem hélt þá til náms í Svíþjóð, í barnafata- verslun í bænum. Á árunum 1949-1968 starfaði hún við ýmis verslunar- og þjónustustörf, allt Það var kyrrlát og friðsæl stund sem við áttum með henni móður okkar þegar hún dró sinn hinsta andardrátt. Starfsfólk öldrunardeildar Vífilsstaða hafði hlúð vel að henni þetta síðasta kvöld í lífi hennar, ró var yfir henni og hennar nánustu höfðu heimsótt hana fyrr um daginn, en ljóst var hvert stefndi strax að morgni þessa dags. Þessir síðustu mánuði, sem hún bjó á Vífilsstöðum, höfðu ver- ið erfiðir en veikindin drógu úr henni allt þrek dag frá degi. Hún var þó ánægð og sátt við um- hverfið og aðstöðuna og við erum innilega þakklát starfsfólkinu þar fyrir að gera þessa síðustu daga í lífi hennar bærilegri. Við tvö börnin hennar, eigum svo margar góðar og ljúfar minn- ingar um hana móður okkar. Ís- lensku konuna sem fórnaði sér og helgaði líf sitt okkur og afkom- endum sínum. Við getum vart hugsað okkur betri æsku eða öruggara heimili en það sem hún veitti okkur þrátt fyrir að vera einstæð móðir með lítið fé á milli handanna. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaðı́ og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. Hógvær var hún mamma alla tíð og lét lítið fyrir sér fara. Vildi aldrei neitt „vesen“ eða að fyrir sér væri haft. Hún leyndi á sér, var ansi fróð um ýmsa hluti, leysti flóknar krossgátur, var handlagin og prjónaði mikið. Hún var líkamlega vel á sig komin og var dugleg sundkona á sínum skólaárum. Hún fylgdist alla tíð vel með öllum íþróttum, hvort sem það voru frjálsar, handbolti eða fót- bolti, þá var hún með allt á hreinu. Það var ekki óalgengt að börn og barnabörn sæktu hana heim til að horfa á enska boltann með henni, en hér fyrr á tímum þá var hún gjörn á að taka börnin með í Laugardalshöllina til að fylgjast með íslenska landsliðinu í hand- bolta. Sá atburður í lífi mömmu sem markaði hana mest og hún rifjaði stundum upp með okkur, var þegar hún átta ára gömul missti móður og tvo nýfædda bræður á afar afskekktum stað á Horn- ströndum síðsumars 1935. Í kjöl- farið leystist fjölskyldan upp þar sem faðir hennar gat ekki alið öll börnin upp sjálfur. Fjögur af sjö börnum fóru þá í fóstur og þar á meðal hún móðir okkar. Þetta var gífurlegt áfall sem markaði djúp spor í sálarlíf hennar. Við erum lánsöm að hafa haft móður okkar með okkur öll þessi ár. Hún hefur veitt okkur svo mikið og við erum svo óendan- lega þakklát fyrir allt það sem hún hefur gefið okkur. Hún varð níræð á árinu og það var dásam- leg stund sem við áttum með henni á Landakoti þegar hún hélt upp á stórafmælið sitt, á sinn fá- brotna hátt, með sínum nánustu. Eins var það óviðjafnanlegt að sjá andlitið á henni ljóma þegar hún tók sitt annað barnabarna- barn, Egil Rúnar Eiðsson, í fang- ið nokkrum dögum áður en hún hvarf úr þessu lifanda lífi. Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla’ á fold. Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. (Ómar Ragnarsson.) Blessuð sé minning þín, elsku mamma. Fjóla Hólm og Friðbjörn Hólm. Elsku amma, nú er tími kom- inn til að kveðja. Það er erfitt að kveðja en ég vil trúa því að þú sért komin á góðan stað og líði vel. Veikindin á bak og burt. Ég brosi þegar ég hugsa um þegar við vorum að púsla og allt varð rafmagnslaust. Þá dóum við ekki ráðalausar og kveiktum á kerti. En allt í einu varð púslið auðveldara og við kláruðum það á mettíma. Það var lengi hlegið að því. Ég brosi þegar ég hugsa um þegar við fórum í erindaferðirnar með strætó í Mjódd og maturinn hjá Dóra leyndist með heim. Ég brosi þegar ég hugsa um paprikusnakkið þitt í stofunni og þegar ég fékk smá pening til að fara í sjoppuferð. Ég brosi þegar ég hugsa um allar samverustundirnar okkar. Elsku amma, eina amma mín. Takk fyrir að vera þú. Lítill geisli sólar læðist inn strýkur hjarta, gælir við. Sest að sunna, býr sér bú í mínu hjarta komin til að vera. (Höf. óþekktur) Þín nafna, Ásdís Karen. Ásdís Valdimarsdóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGVAR STEFÁNSSON pípulagningameistari, til heimilis að Lindasmára 24, lést á Landspítalanum 2. janúar. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 12. janúar klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð blóð- og krabbameinslækningadeilda Landspítalans. Áslaug Hartmannsdóttir Hartmann Ingvarsson Kristín Ósk Ingvarsdóttir Emil Hjörvar Petersen Ronja Áskatla og Þrándur Alvar Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og systir, SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Veghúsum, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 7. janúar. Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 19. janúar klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað en þeim sem vilja minnast hennar er bent á orgelsjóð Keflavíkurkirkju Ingvi Þór Sigríðarson Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir barnabörn, barnabarnabarn og systkini Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GÍSLÍNA GARÐARSDÓTTIR, Boðaþingi 24, lést þann 7. janúar á Hrafnistu í Kópavogi. Útförin verður auglýst síðar. Henry Þór Henrysson, börn, tengdabörn og barnabörn Fallegar vandaðar kistur á góðu verði Sími: 555 3888 granithollin.is Verð frá kr. 58.800,- Elsku hjartans pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi, ÞORVALDUR RAGNARSSON, fyrrverandi forsetabílstjóri, lést í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn 8. janúar á hjúkrunarheimilinu Ísafold. Útför hans fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 16. janúar klukkan 13. Ásthildur Þorvaldsdóttir Anna María Þorvaldsdóttir Jóna Þorvaldsdóttir tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg dóttir okkar, systir, mágkona og frænka, SIGURBJÖRG ÖRLYGSDÓTTIR frá Þórustöðum, Eyjafjarðarsveit, Geislatúni 1, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 29. desember. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem hafa aðstoðað hana í veikindum hennar. Örlygur Helgason Margrét Sigfúsdóttir Helgi Örlygsson Vigdís E. Helgadóttir Sigurlína Örlygsdóttir Jón Ólafur Jónsson Egill Örlygsson Efemía Fanney Valgeirsdóttir og frændsystkini Það var árið 1987 sem ég kynntist honum Gómez. Hann var þá starf- andi hjá Vélamiðstöð Reykjavík- urborgar þar sem hann starfaði sem innkaupastjóri. Þar var svo sannarlega réttur maður á rétt- um stað enda voru viðskipti hon- um í blóð borin og að prútta kunni hann betur en nokkur annar. Hann talaði með sterkum hreim sem var einkennandi fyrir hann alla tíð. Í fyrstu átti ég í dá- Axel Gómez Retana ✝ Axel GómezRetana fæddist 9. júlí 1938. Hann andaðist 20. desem- ber 2017. Útför Axels fór fram 29. desember 2017. litlu basli með að skilja hann, sem gat þá stundum verið hvort tveggja í senn neyðarlegt og fynd- ið. Stuttu eftir okk- ar fyrstu kynni lenti ég í því óhappi að bræða úr bílnum mínum. Þá var gott að geta leitað til hans sem var fljót- ur að redda málunum og koma bílnum aftur í gang. Gómez var matgæðingur og við eldavélina var hann í essinu sínu. Þar töfraði hann fram ýmsa rétti, jafnt íslenska sem spænska. Í heimboðunum var oftar en ekki elduð paella, sem var í miklu uppáhaldi hjá öllum. Sjávarréttir voru hans eftirlæti og þá var stundum framandi matur á disknum með litlum skrýtnum augum eins og Krist- rún dóttir mín orðaði það svo skemmtilega einu sinni. Ég held að fátt hafi glatt hann meira en að vera umkringdur sínum nán- ustu yfir góðum mat og drykk. Í kringum barnabörnin skein ein- lægnin og kærleikurinn úr aug- um hans og þá var oft stutt í grín og glens, hann var góður afi. Og ekki má gleyma kanarífuglunum sem hann hélt svo mikið upp á og dekraði við endalaust. Gómez var þeim góða eiginleika gædd- ur að kunna að gleðjast yfir litlu hlutunum í lífinu og það var aðdáunarvert. Úti á Spáni átti Gómez sínar mestu gleðistundir og naut hverrar mínútu. Þegar út var komið var hann fljótur að kynna sér veitingastaðina og verða málkunnugur eigendunum, fara niður á smábátahöfnina og tala við sjómennina og fyrr en varði átti hann vini úti um allt. Síðan var tíminn meðal annars notað- ur til að fara í langa göngutúra og þá var oft stutt á milli stoppa og fólk fékk sér bjór og tapas. Síðustu vikur og mánuðir hafa svo sannarlega verið þér erfiðir, elsku Gómez, og ég mun sakna þín en minningin um þig lifir áfram. Ég sé þig fyrir mér á betri stað, á litlum veitingastað við ströndina, í góðra vina hópi þar sem sólin að eilífu skín. Samúðarkveðjur Ólafur Jón. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.