Morgunblaðið - 23.01.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Bamix töfrasproti
Verð 29.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Olíuævintýri Íslendinga gæti verið
lokið. Tvö af þremur fyrirtækjum
sem úthlutað var sérleyfi til rann-
sókna og vinnslu á olíu á Dreka-
svæðinu hafa
skilað inn leyfum
sínum.
Orkustofnun
veitti árið 2014,
kínverska ríkisol-
íufyrirtækinu
CNOOC Iceland
ehf. 60% af leyf-
inu, norska ríkis-
olíufélaginu Pe-
toro Iceland,
útibúi á Íslandi
25% og Eykon Energy 15% af 12
ára sérleyfi til rannsókna og vinnslu
á Drekasvæðinu milli Íslands og Jan
Mayen.
Eykon Energy vill halda áfram
Á heimasíðu Orkustofnunar kem-
ur fram að stofnunin telji Eykon
Energy hvorki hafi tæknilega, jarð-
fræðilega né fjárhagslega getu til
þess að takast eitt leyfishafa á við
næsta áfanga fyrirhugaðrar rann-
sóknaráætlunar.
Eykon Energy er á öðru máli og
hyggst ekki leggja inn sérleyfi sitt.
Í fréttatilkynningu frá Eykon
Energy segir að það hafi fengið
CNOOC og Petoro með inn í olíu-
leitarleyfið. Samstarfið hafi verið til
fyrirmyndar og því hafi það komið
verulega á óvart að samstarfsaðil-
arnir vilji út úr samstarfinu nú. Í
nóvember hafi félögin öll samþykkt
að óska eftir tveggja ára framleng-
ingu á fyrsta leyfistímabili.
Rannsóknir hefðu mátt skila
skýrari niðurstöðum hraðar að mati
Eykon en þekking á jarðfræði
Drekasvæðisins hafi aukist mjög og
allar líkur séu á því að svæðið sé
hluti af sama svæði og Norðursjór-
inn og önnur svæði sem geyma olíu
og gas.
Þeir segja ríka hagsmuni sam-
félagsins af því að halda áfram leit.
Andmælaréttur Eykon Energy
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og ný-
sköpunarráðherra, segist hafa feng-
ið upplýsingar um innlagningu
rannsókna- og vinnsluleyfa fyrir olíu
frá Orkustofnun í gær. Hún segir að
það sé ekki iðnaðarráðherra að hafa
skoðun á því þegar fyrirtæki skili
inn leyfum ef ferlið í kringum það
stenst allar kröfur.
„Ef Eykon Energy er ósammála
mati Orkustofnunar hefur fyrirtæk-
ið kost á því að andmæla. Fáist ekki
ásættanleg niðurstaða getur Eykon
Energy skotið málinu til úrskurð-
arnefndar umhverfis- og auðlinda-
mála,“ segir iðnaðarráðherra og
bætir við að þó að nefndin falli ekki
beint undir iðnaðarráðherra þá telji
hún rétt sem iðnaðarráðherra að tjá
sig ekki um afstöðu Orkustofnunar
ef málið kynni að fara áfram.
Bakslag í olíuævintýr-
inu á Drekasvæðinu
Norðmenn og Kínverjar hætta Eykon vill reyna áfram
Morgunblaðið/Eggert
Olía Eykon Energy þarf að finna
nýja samstarfsaðila í olíuleitina.
Þórdís Kolbrún
R. Gylfadóttir
Enginn er maður með mönnum nema hann borði
hrogn og lifur að sögn Guðmundar Óskars Reynis-
sonar í Fiskbúðinni Hafberg. Frá byrjun janúar fram
til loka mars er árstími hrogna og lifrar og segir
Guðmundur Óskar þennan mat af nægtaborði sjávar
ómissandi á þorra.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fylgir þorranum að borða hrogn og lifur
Gjaldþrotaskipti United Silicon hafa
ekki mikil áhrif á Arion banka, sem
var stærsti eigandi og lánveitandi
fyrirtækisins, en bankinn hafði áður
fellt niður allar eignir og leiðir gjald-
þrotið því ekki til frekari niður-
færslna í bókum Arion. Bankinn taldi
rétt að upplýsa markaðinn um þetta í
gær með bréfi til Kauphallarinnar,
þrátt fyrir að vera ekki með skráð
hlutabréf.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, segist ánægð-
ur með ákvörðun Umhverfisstofn-
unnar að heimila ekki verksmiðjunni
að fara í gang nema tryggt sé að íbúar
verði ekki fyrir frekara ónæði en bæj-
arstjórn ályktaði
um svipaða niður-
stöðu í haust.
Hann segir hins
vegar að til lengri
tíma sé þetta
tekjumissir fyrir
Reykjanesbæ.
„Til skamms tíma
er ekki víst að
þetta hafi svo
mikil áhrif, því á
móti kemur að við þurfum ekki að
fara í jafn miklar framkvæmdir við
Helguvíkurhöfn og samningur við
United Silicon kvað á um. Þannig að
það sparast í fjárfestingum á móti til
2.166 milljónir í United Silicon. Bald-
ur Snorrason, sjóðstjóri Festa lífeyr-
issjóðs, segir í samtali við Morgun-
blaðið að skaðinn núna sé ekki meiri
en gert var grein fyrir í upphafi og í
sjálfu sér sé staða sjóðsins óbreytt.
Snædís Ögn Flosadóttir, fram-
kvæmdastjóri EFÍA, segir að búið
hafi verið að færa eign sjóðsins niður
að fullu fyrir þónokkru. „Þessi aðgerð
breytir engu fyrir okkur. Við erum
ekki kröfuhafar þannig að við komum
ekki að þessu ferli, við vorum bara
hluthafar,“ segir Snædís en eign
EFÍA í United Silicon var óveruleg,
einungis 0,35% af heildareignum
sjóðsins. mhj@mbl.is
Langtíma tekjumissir Reykjanesbæjar
Reykjanesbær verður af tekjum vegna skipaumferðar eftir gjaldþrot United Silicon „Þurfum að
finna önnur verkefni,“ segir bæjarstjóri United Silicon skuldar bænum enn um 200 m.kr. í gjöld
skamms tíma. Til lengri tíma er þetta
ekki gott því höfnin er mjög skuldsett
og við þurfum að fá tekjur af skipa-
umferð við höfnina. Hvort sem sú
umferð verður stóriðja eða annað veit
ég ekki, við þurfum að finna önnur
verkefni núna,“ segir Kjartan en
tekjur bæjarins af verksmiðjunni
voru að mestu í gegnum hafnargjöld.
Reykjanesbær er ennþá með úti-
standandi kröfu á United Silicon fyrir
ógreiddum gjöldum sem nemur
nærri 200 milljónum og segir Kjartan
að bærinn muni að öllum líkindum
gera kröfu í þrotabúið. Spurður um
hvernig það horfi við Reykjanesbæ ef
verksmiðjan verður seld og sett af
stað að nýju segir hann það sé best að
segja ekki of mikið fyrr en í ljós kem-
ur hvort það gerist og hverjir nýir
eigendur verða. „Ef þeir uppfylla öll
skilyrði sem Umhverfisstofnun, bæj-
arstjórn og Skipulagsstofnun setja og
íbúar verða ekki fyrir óþægindum þá
er það valkostur í stöðunni.“
Staða sjóðanna óbreytt
Fjölmargir lífeyrissjóðir höfðu
fjárfest í United Silicon í gegnum tíð-
ina. Greindi Morgunblaðið frá því í
fyrra að Festa lífeyrissjóður, Frjálsi
lífeyrissjóðurinn og Eftirlaunasjóður
félags íslenskra atvinnuflugmanna
(EFÍA) hefðu fjárfest fyrir samtals
Kjartan Már
Kjartansson
Vonskuveður gekk yfir landið í gær.
Báðar ferðir Herjólfs til Þorláks-
hafnar féllu niður og öllu flugi til
Ísafjarðar og Vestmannaeyja var af-
lýst.
Björgunarsveitir á Norðurlandi
höfðu í nógu að snúast þar sem um
20 bílar sátu fastir í Víðigerði í Víði-
dal og nokkrir í Víkurskarði þar sem
flutningabíll sat þversum á veginum
vegna umferðaróhapps. Loka þurfti
vegum yfir Fróðárheiði, Hófaskarð,
Kleifaheiði, Víkurskarð, í Víðidal og
Miðfirði vegna veðurs.
Gul viðvörun Veðurstofunnar var
um allt land í gær fyrir utan miðhá-
lendið. Mestu hviður sem mældust í
gærkvöldi voru 47 m/s við Hafnar-
fjall klukkan hálfníu, 51m/s í
Hvammi og 49 m/s á Skrauthólum.
Birta Líf Kristinsdóttir, veður-
fræðingur á Veðurstofunni, segir að
áfram sé spáð nokkuð hvassri aust-
anátt um norðanvert landið. Í kvöld
snúist vindur í norðaustan og þá
hvessi um landið norðan- og vest-
anvert og búast megi við snjókomu
norðan- og austanlands.
Birta Líf segir að í hvössum vindi
og skafrenningi sé skyggni lélegt og
hvetur vegfarendur til þess að fylgj-
ast vel með veðrinu, sérstaklega
seinnipartinn í dag þegar bæta fari í
vind.
Flugi frestað og
vegum lokað
Hvasst og lélegt skyggni í kvöld
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Elja Valsmenn láta veðrið ekki stoppa sig og æfa úti þrátt fyrir snjó og rok.