Morgunblaðið - 23.01.2018, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Macron, for-setiFrakka,
átti samtal við BBC
í tengslum við opin-
bera heimsókn til Bretlands.
Þekktur spyrjandi, Andrew
Marr, spurði forsetann hvert
yrði líklegt svar franskra kjós-
enda stæðu þeir frammi fyrir
sömu spurningu og Bretar
varðandi „Brexit“. Forsetinn
sagði skv. frétt mbl.is „að
franskir kjósendur myndu lík-
lega kjósa með því að yfirgefa
Evrópusambandið ef haldin
væri þjóðaratkvæðagreiðsla um
það í Frakklandi með sama
hætti og gert var í Bretlandi
sumarið 2016.“
Eftir þetta óvænta svar bætti
forsetinn við: „Líklega, í hlið-
stæðu samhengi.“ Hann sagði
einnig að aðstæður væru þó
aðrar í Frakklandi og tók fram
„að hann myndi berjast af full-
um krafti fyrir því að Frakk-
land yrði áfram innan ESB
kæmi til slíks þjóðaratkvæðis.
Gagnrýndi hann ennfremur
David Cameron, fyrrverandi
forsætisráðherra Bretlands,
fyrir að hafa spurt aðeins um
afstöðu með og á móti veru í
sambandinu í þjóðaratkvæðinu
2016.“
Þetta síðasta er athyglisvert.
Orðið „lýðræði“ hljómar vel og
„beint lýðræði“ jafnvel enn bet-
ur. En beint „lýð-
ræði“ er snúið í
framkvæmd. Jafn-
vel eftir þjóðar-
atkvæði eiga
stjórnvöld næsta leik. Frakkar
höfnuðu nýrri stjórnarskrá
ESB í þjóðaratkvæði. Þá var
nafninu á plagginu breytt í
„Lissabon-sáttmálann“ en
áfram litið á hann sem stjórnar-
skrá ESB! Eftir Icesave-
atkvæðið sögðu valdamenn
landsins að atkvæðið skipti
engu því að daginn fyrir það
hefðu þeir tilkynnt aðra leið!
Frakklandsforseti gefur til
kynna að spurningin um Brexit
hefði átt að vera loðnari. Hug-
myndin er að auðvelda stjórn-
völdum sem verða undir að
túlka málið út og suður. Enginn
ágreiningur var um orðalag á
kjörseðli fyrir kjördag né hvað
Já eða Nei þýddu.
Eftir úrslitin byrjaði tal um
óljósa niðurstöðu. Var sam-
þykkt „hart brexit eða mjúkt“?
„Hart brexit“ var nýtt heiti á
útgöngu en mjúkt um að vera
áfram inni en nú dulbúinn.
Vangavelturnar voru óþekktar
fyrir kjördag. Tony Blair stag-
aðist á að spurningin hefði verið
svo óljós að kjósa þyrfti á ný! Af
80 milljón íbúum Bretlands er
hæpið að fyndust margir sem
trúa að Blair hefði nefnt þetta
ef svar Breta hefði verið Nei!
Ótrúleg játning úr
óvæntri átt}Merkilegt mat
Þær fregnir bár-ust fyrir helgi,
að vísindamenn við
Johns Hopkins há-
skólann í Banda-
ríkjunum, sem er
einn sá virtasti í
heimi þegar kemur að lækna-
vísindum, hefðu þróað nýja að-
ferð til þess að skima eftir
krabbameinsfrumum. Aðferðin
gengur út á að bera saman arf-
gengnisþætti í erfðamengi
sjúklingsins við magn vissra
prótína í blóðinu og reyndist
hún bera árangur í um 70% til-
fella. Gat aðferðin jafnvel sagt
fyrir um það oftar en ekki hvar
í líkama sjúklingsins meinið
væri að finna.
Það fylgdi að vísu sögunni,
að frekari prófanir þyrfti áður
en þessi rannsóknaraðferð
kæmist í almenna notkun.
Engu að síður er hér um mjög
jákvætt og spennandi skref að
ræða í baráttunni gegn þeim
skelfilega sjúkdómi sem
krabbamein er. Það er ekki síst
vegna þess að vísindamenn-
irnir að baki rannsókninni
segja, að jafnvel verði mögu-
legt að greina mein löngu áður
en annarra einkenna verði
vart, sem aftur myndi auka
lífslíkur sjúklings-
ins umtalsvert.
Íslendingar hafa
ekki farið varhluta
af þessum skelfi-
lega skaðvaldi, því
að talið er að um
þriðjungur allra Íslendinga
muni fá krabbamein einhvern
tímann á lífsleiðinni. Flestir
Íslendingar kynnast því afleið-
ingum sjúkdómsins, annað
hvort sem sjúklingur eða að-
standandi.
Krabbamein fer heldur ekki í
manngreinarálit, en Kraftur,
félags ungs fólks sem greinst
hefur með krabbamein, hefur
nú hafið herferð til þess að
vekja athygli á því, að á hverju
ári greinast um 70 manns á
aldrinum 18-40 ára með
krabbamein. Félagið hefur nú
blásið til herferðar undir heit-
inu: „Krabbamein kemur öllum
við“, sem gengur meðal annars
út á að ungir einstaklingar
deila reynslu sinni af krabba-
meini til þess að gera sjúkdóm-
inn að minna feimnismáli með-
al ungs fólks.
Eflaust er langt í að mann-
kynið sigrist á krabbameini.
Þangað til ber að fagna hverju
skrefi í rétta átt.
Ný blóðrannsókn
gefur góða raun í
baráttunni við
krabbamein}
Skref í rétta átt
N
ýlega kom fram sú skoðun frá
þingflokksformanni VG, Bjark-
eyju Olsen Gunnarsdóttur, að
það væri ekki þingmanna VG
að ákveða ráðherraval annarra
flokka. Vissulega fá þingmenn VG ekki að
velja ráðherra annarra flokka en þingmenn
VG geta auðvitað valið með hverjum þeir
starfa og hverjum þeir veita umboð sitt. VG
getur alveg sagt „nei“ við vali annarra flokka
á ráðherrum. Það velur VG hins vegar ekki að
gera heldur, eins og Katrín Jakobsdóttir seg-
ir, að hún ætli ekki að fara fram á afsögn þrátt
fyrir niðurstöðu dómstóla á landsréttarmál-
inu.
Ef flokkar myndu segja „nei“ við ráðherra-
vali annarra flokka, þá yrði að öllum líkindum
ekkert að ríkisstjórnarsamstarfi þeirra flokka
– nema auðvitað aðrar tillögur um ráðherraskipan væru
gerðar. Við búum nefnilega ekki í samfélagi þar sem
meirihlutasamstarf er nauðsynlegt. Við búum ekki við
lýðræði þar sem ríkisstjórnarsamstarf virkar bara þann-
ig að einn fær þessa kökusneið, næsti aðra kökusneið og
sá síðasti afganginn. Kakan er og þarf að vera heildstæð.
Ríkisstjórnarflokkarnir geta ekki bara bent á hina og
sagt, „þetta eru þeirra ráðherrar, þeir koma okkur ekk-
ert við“.
Í sérstökum leiðtogaumræðum á Alþingi í
gær spurði ég svo Sigurð Inga Jóhannsson,
formann Framsóknarflokksins, um afstöðu
hans í þessu máli. Hvort sömu lögmál giltu
um þingmenn Framsóknar. Það er skemmst
að segja frá því að þar var sama skoðun. Enn
fremur spurði ég hvort þingmenn Framsókn-
arflokksins gætu stutt vantrauststillögu á
ráðherra samstarfsflokks, og þar með haft
áhrif á ráðherraval annars flokks. Formaður
Framsóknarflokksins valdi að svara ekki því
fræðilega dæmi um hvort einhvern tíma, í
einhverjum kringumstæðum, þingmenn
Framsóknar myndu styðja vantrauststillögu.
Réttara sagt svaraði því að hann ætlaði ekki
að svara þeirri spurningu.
Ég mótmæli því afstöðu Bjarkeyjar og Sig-
urðar. Ég mótmæli þessari afstöðu sem fyrir-
slætti, meðvirkni og ábyrgðarleysi. Fyrst þessum flokk-
um er svona mikið í mun að taka ábyrgð þá verða þeir að
vita að ábyrgð fylgja afleiðingar þegar eitthvað fer úr-
skeiðis. Þingmenn VG og Framsóknarflokksins hafa
bara víst ýmislegt um það að segja hverja aðrir flokkar
velja sem ráðherra.
Björn Leví
Gunnarsson
Pistill
Fyrirsláttur og meðvirkni
ríkisstjórnarflokkanna
Höfundur er þingmaður Pírata.
bjornlevi@althingi.com
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Samgöngu- og sveitarstjórn-arráðuneytið greindi frá þvíí síðustu viku að í undirbún-ingi væri heildarendur-
skoðun umferðarlaga. Til viðmið-
unar er lagt lagafrumvarp sem kom
fram á Alþingi veturinn 2012 til
2013, en varð ekki útrætt. Ráðu-
neytið telur að ekki dugi að lagfæra
aðeins einstakar greinar núverandi
laga. „Vegna margvíslegra breyt-
inga og nútímavæðingar í umferðar-
málum er talið að með heildarendur-
skoðun laganna sé helst unnt að ná
markmiðum um að skýr lagasetning
tryggi umferðaröryggi enn frekar,“
segir í tilkynningu þess.
Hjólreiðar, áfengi, snjalltæki
Fram kemur að helstu fyrirhug-
uðu breytingar á gildandi lögum og
reglum eru eftirfarandi: 1. Nýr kafli
um hjólreiðar, 2. lækkun leyfilegs
magns áfengis í blóði ökumanna, 3.
ákvæði um snjalltæki skýrt og end-
urbætt, 4. skýrari ákvæði um sam-
spil ólíkra samgöngumáta, 5. ákvæði
um ljósaskyldu skýrð, 6. lagt er til að
ákvæði um ökutækjatryggingar
verði í sérstökum lögum, 7. hlutlæg
ábyrgð eigenda ökutækja á sektum
vegna brota sem greind eru af
hraðamyndavélum og varða ekki
punktum, 8. hámarks sektarfjárhæð
hækkuð í kr. 500.000 úr kr. 300.000.
Samhliða verður reglugerð um sekt-
ir og önnur viðurlög vegna brota á
umferðarlögum og reglum settum
samkvæmt þeim uppfærð, 9. samspil
og uppbygging ákvæða laganna um
framúrakstur er einfölduð, 10.
ákvæði um neyðarakstur gerð ítar-
legri, 11. ákvæði um akstur í hring-
torgum, 12. uppstokkun á skilgrein-
ingakafla laganna og nýjum skil-
greiningum bætt við.
Þessi upptalning er þó ekki tæm-
andi hvað varðar breytingar á
ákvæðum eða niðurfellingar.
Ekki er gert ráð fyrir að frum-
varpið feli í sér aukin útgjöld fyrir
ríkið. Ekki er gert ráð fyrir nýjum
verkefnum eða að verkefni færist á
milli stofnana frá því sem nú er. „Þó
má vera að með lögunum verði lög-
reglu endanlega falið vegaeftirlit
sem áður hefur verið á könnu Sam-
göngustofu og Vegagerðarinnar,“
segir í minnisblaði ráðuneytisins.
Lögreglan sinnir í dag umræddu eft-
irliti á grundvelli samnings. Verði
niðurstaðan sú að setja ákvæði um
hlutlæga ábyrgð á sektum vegna
hraðaksturs og akstur gegn rauðu
ljósi sem hraðamyndavélar nema má
gera ráð fyrir að stærri hluti sekta
innheimtist. Má í þessu sambandi
sérstaklega nefna sektir á bílaleigu-
bifreiðar.
Hugmyndin er að kynna þær
breytingar sem verða á umferðar-
lögum ítarlega fyrir almenningi, t.d.
hertar reglur vegna notkunar snjall-
tækja, hlutlæga ábyrgð vegna hrað-
akstursbrota sem greind eru af
myndavélum, endurbættar reglur
um hjólreiðar og hugsanlega aðrar
breytingar sem verða og snerta al-
menning allan.
Það verður síðan að mati sam-
gönguráðuneytisins mælikvarði á
árangur breytinganna að slysum og
umferðarlagabrotum fækki. Verður
stuðst við slysaskráningar og skrán-
ingar lögreglu á umferðarlagabrot-
um við þá úttekt.
Frumvarpið sem lagt var fram á
Alþingi veturinn 2012 til 2013 var
sent helstu hagsmunaaðilum til um-
fjöllunar síðasta sumar og fyrir-
hugað er áfram víðtækt samráð auk
þess sem leitað verður umsagna með
kynningu frumvarpsins á vef ráðu-
neytisins og hjá fagráði um umferð-
armál.
Heildarendurskoðun
umferðarlaga í gangi
Morgunblaðið/Ómar
Umferð Þegar endurskoðun umferðarlaga er lokið er stefnt að því að breyt-
ingarnar sem einkum varða almenning verði ítarlega kynntar og skýrðar.
Fyrstu lögboðnu umferðar-
reglur hér á landi voru í lögum
um vegi 1907. Þegar bifreiða-
umferð hófst voru síðan sett
bifreiðalög 1914. Árið 1940 voru
í fyrsta sinni hér á landi sett
sérstök umferðarlög og ný bif-
reiðalög. Samkvæmt þeim var
áformað að taka upp hægri
handar umferð hér á landi í árs-
byrjun 1941. Til þess kom þó
ekki fyrr en 1968. Ástæðan var
sú að breskur her kom hingað
til lands og jókst umferð mjög á
vegum landsins og skapaði
óvissu í umferðarmálum.
Frestuðu
hægri umferð
UMFERÐARLÖG
Morgunblaðið/Golli
Akstur Umferð hefur breyst mjög
frá fyrstu reglum 1907.