Morgunblaðið - 23.01.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
1975. Það duldist engum þegar
Helgi mætti í sveitina, fjósa-
maður er mættur, er herbergið
mitt laust? heyrðist kallað af
neðri hæðinni. Já, Helgi var
mættur. Árum saman kom hann
til okkar og hjálpaði til við bú-
verkin og það munaði svo sann-
arlega um þá hjálp, Helgi var
fljótur að aðlagast hinum ýmsum
bústörfum hvort sem var að
hreinsa út úr fjárhúsum eða
stjórna búvélum. Í heyskap var
hans aðalstarf að slá túnin með
mér og hamhleypa var hann með
baggatínuna og að raða á færi-
bandið með Kötu, það má með
sanni segja að Helgi vinur minn
var mjög traustur og góður sam-
starfsmaður. Að loknu dagsverki
var oft glatt á hjalla og málin
rædd við eldhúsborðið og næsti
dagur skipulagður. Síðustu árin
áttum við mörg símtöl saman.
Hinn 8 júlí sl. kom bíll í hlað, þar
voru komnir Halli, sonur hans og
Helgi í heimsókn, það var
ánægjulegur dagur (takk Halli
minn) Við Kata sendum innilegar
samúðarkveðjur til Halla, Katr-
ínar og fjölskyldu þeirra.
Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar.
Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég
gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.
Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd
gleymdu’ ekki, hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur.
(Höf ók.)
Minning um góðan dreng lifir.
Kristján Axelsson,
Bakkakoti.
…
eitthvað þvílíkt sem komið sé haust-
hljóð í vindinn
segir í ljóðinu Söknuði eftir Jó-
hann Jónsson. Orðin komu í hug-
ann þegar fregnin barst um and-
lát Helga vinar míns Oddssonar.
Vináttan hefur verið okkur nán-
ast í blóð borin. Helgi hefur æv-
inlega verið á undan mér í einu
og öllu, en þó ekki langt á milli.
Hann var í dagvistun í Hlíðabæ
og undi sér vel.
Mér hefur verið innprentað að
lífið byrji þegar stendur á átt-
ræðu, eins og dæmin sanna. Og
þegar litið er til þess að á næsta
ári hefðum við orðið áttræðir þá
var spurningin hvað skyldi Helgi
þá leggja til málanna? Nú er sá
draumur úti, en þess er að minn-
ast að við vorum fyrir 70 árum til
sex ára saman í Eyrarsveit í
Grundarfirði að Norður-Bár.
Húsfreyjan var Björg Her-
mannsdóttir. Elska hennar og
væntumþykja tengdi okkur
Helga saman eins og værum við
sammæðra og það hefur haldist
allt okkar líf. Haft var á orði að
Björgu hefði þótt jafn vænt um
okkur eins og Ljómalind í fjós-
inu, og er þá mikið sagt. Helgi,
minn góði vinur og samferðamað-
ur, hafði verið tvö ár í sveitinni á
undan mér og leit á sig sem inn-
fæddan en ég utanaðkomandi og
hann því sjálfkjörinn ráðsmaður
og við það sat.
Margt hefur á dagana drifið en
okkar samband hefur aldrei rofn-
að. Við vissum alltaf hvor af öðr-
um.
Helgi var lífsglaður, hreinn og
beinn, hispurslaus og kvartaði
aldrei, en ef ég bar mig ekki alltof
vel, hvort sem það var andlega
eða líkamlega, þá var viðkvæðið
það sama „að taka lýsi“.
Guð veri með þér elsku vinur.
Við Heiða sendum fjölskyldu
og vinum Helga okkar einlæg-
ustu samúðarkveðjur.
Og aftur til Söknuðar:
Og spunahljóð tómleikans lætur í eyr-
um vor lægra.
Kjartan Borg.
✝ Ásdís Stein-grímsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 29. janúar
1931. Hún lést á
Landspítalanum
15. janúar 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Stein-
grímur Gunnars-
son, f. 2. ágúst
1895, d. 4. sept.
1966, og Þuríður
Guðjónsdóttir, f. 12. júlí 1896,
d. 12. nóv. 1960. Systkini Ás-
dísar eru Guðjón, f. 1917, d.
1996, Jórunn Ásta, f. 1920, d.
1998, Gunnhildur Ásta, f.
1925, d. 2006, Guðni, f. 1927,
d. 1928, Áslaug, f. 1932, og
barn með fyrri eiginkonu
sinni, þau skildu, Bríeti Ein-
arsdóttur, Ásdísi, og þrjú börn
með seinni konu sinni, þau
skildu, Maríu Björgu Hreins-
dóttur, þau Silju Eyrúnu, Dav-
íð Reyni og Sindra Frey. Alls
eru barnabarnabörnin orðin
átján.
Ásdís lauk prófi frá
Kvennaskólanum árið 1949 og
vann skrifstofustörf fyrri
hluta starfsævinnar. Árið 1976
hóf hún nám í sjúkraliðun og
lauk prófi 1977, eftir það
starfaði hún á Barnaspítala
Hringsins og Landspítala þar
til hún lét af störfum vegna
aldurs.
Heimili Ásdísar og Guðjóns
var lengst af á Framnesvegi
63, en Ásdís flutti í Þang-
bakka 8 árið 1999 og bjó þar
til æviloka.
Útför Ásdísar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 23. jan-
úar 2018, klukkan 15.
Margrét, f. 1933,
d. 2016.
Ásdís giftist 2.
maí 1953 Guðjóni
Jónssyni bifreið-
arstjóra, f. 4. nóv.
1913, d. 5. apríl
1992. Börn þeirra
eru 1) Sigurður, f.
7.2. 1952, kvæntur
Guðrúnu Björgu
Kristmundsdóttur
og eiga þau þrjú
börn, Þorgeir Árna, Sólveigu
Olgu og Hjört Inga. 2) Sigrún,
f. 17.7. 1953, gift Ásmundi
Kristinssyni, þau eiga þrjá
syni, Guðjón, Arnar og Einar,
og 3) Steingrímur, f. 10.6.
1956, d. 2013, hann átti eitt
Elsku tengdamamma.
Það var fyrir allmörgum ár-
um sem smátöffari úr Aust-
urbænum fór að venja komur
sínar á Framnesveginn til að
reyna að ganga í augun á dótt-
ur þinni. Mín fyrstu kynni af
þér og Guðjóni voru mjög góð
og héldust svo alla tíð. Var
mér strax afar vel tekið í fjöl-
skyldunni. Við Sigrún eignuð-
umst okkar fyrsta son nokkuð
ung. Flutti ég þá fljótlega til
ykkar og var það lítið mál hjá
ykkur Guðjóni að breyta borð-
stofunni í herbergi fyrir okkur,
svo við hefðum nóg pláss. Þar
bjuggum við í rúmlega tvö ár
og gátum alltaf treyst á hjálp-
semi ykkar og greiðvikni og
þannig hefur það verið alla tíð.
Nokkru eftir fráfalls Guð-
jóns tengdapabba fluttir þú
nær okkur upp í Breiðholt,
enda voruð þið Sigrún mjög
nánar. Eitt það besta sem var
hægt að gera fyrir þig var að
fara með þig í bíltúra um
Reykjavík og nágrenni og þá
sérstaklega á Eyrarbakka,
sem var þér svo kær. Þangað
var nauðsynlegt að fara að
minnsta kosti einu sinni á
sumri.
Síðasti bíltúrinn okkar sam-
an, mjög skemmtilegur, var
daginn fyrir gamlársdag. Þá
fórum við um miðbæinn og á
æskuslóðirnar á Bergstaða-
stræti, sem var ein uppáhalds-
gatan þín. Þér fannst svo gam-
an að segja okkur frá húsunum
og hverjir hefðu búið hvar þeg-
ar þú varst ung. Ekki skemmdi
svo að enda á kaffihúsi með
góða rjómatertu.
Elsku Ásdís mín, aldrei bar
skugga á vináttu okkar og all-
ar góðu stundirnar munu seint
gleymast. Mér þótti alltaf
mjög vænt um þegar þú varst
að kynna mig fyrir fólki og þú
sagðir að ég væri uppáhalds
tengdasonurinn þinn og bættir
því svo stundum við að ég væri
reyndar sá eini.
Þakka þér fyrir allt sem þú
varst mér og strákunum okk-
ar, þú varst þeim svo mikils
virði.
Ég trúi að þú hafir átt góða
heimkomu, þar sem tengda-
pabbi og Steini hafi beðið þín.
Hvíl í friði.
Þinn
Ásmundur (Ási).
Elsku amma Ásdís mín.
Nú er komið að kveðjustund
og þá fyllist maður þakklæti
fyrir allar stundirnar sem við
áttum saman í gegnum tíðina.
Amma starfaði lengst af sem
sjúkraliði á Barnaspítalanum
og ég man að þegar ég var lítil
fékk ég alltaf sögur af duglegu
börnunum sem þar lágu og
hún hugsaði um, henni þótti
svo vænt um þau öll. Ég man
líka að alltaf þegar maður kom
til ömmu og afa á Framnes-
veginum var alltaf til cocoa
puffs og kakómalt, palo-brjóst-
sykur uppi á skáp sem maður
laumaðist stundum í og suðu-
súkkulaði í körfu uppi í skáp
sem við pabbi áttum til að stel-
ast í. Þar lék maður sér með
trékubba, byggði spilaborgir
og teiknaði ófá listaverkin.
Amma var alltaf svo dugleg
að prjóna og naut ég góðs af
því þegar ég var yngri og oft
þegar börnin mín voru að
verða vettlingalaus var nóg að
hringja í ömmu, hún átti alltaf
til sokka og vettlinga handa
þeim.
Við amma ferðuðumst sam-
an til Dublin árið 2004 þegar
Dísa systir bjó þar og það var
mjög dýrmæt ferð sem ég er
svo þakklát fyrir að hafa farið í
með henni.
Hvíldu í friði, elsku amma,
takk fyrir allt og allt.
Silja Eyrún.
Sumum ætla menn ódauð-
leika. Þannig var það með
hana ömmu. Einhvern veginn
hafði maður ætlast til að hún
yrði með okkur um alla ævi.
En ekkert varir að eilífu nema
yndislegar minningar. Þrátt
fyrir háan aldur kom snöggt
andlát hennar okkur í opna
skjöldu.
Við bræðurnir eyddum mikl-
um tíma hjá ömmu og afa á
Framnesveginum. Þar var
mikið brallað, ófáir tímarnir
sem fóru í að púsla, spila ólsen
ólsen og rommý. Ómetanlegar
eru svo minningarnar um öll
ferðalögin sem við fórum í með
þeim, norður til Sigga frænda í
Skagafjörðinn, Steina frænda
á Akranes og í Lambhaga. Í
seinni tíð kaus amma frekar að
fara í stutta bíltúra um
Reykjavík og þá sérstaklega á
æskuslóðirnar í miðbæinn og
vesturbæinn.
Gaman var að ræða við
ömmu um hina ýmsu hluti
enda var hún skörp alla tíð.
Hún hafði sterkar skoðanir á
hlutunum og lá ekkert á þeim.
Hún var nefnilega mjög hrein-
skilin, sem oft á tíðum leiddi til
mikils hláturs hjá okkur
bræðrum.
Ömmu fannst alveg nóg um
nútíma tækni en þrátt fyrir
það fékk hún sér tölvu fyrir
nokkrum árum sem hún notaði
mikið til að fylgjast með af-
komendum og því sem þau
voru að gera. Fátt skemmti-
legra fannst henni en að skoða
ljósmyndir af barnabörnunum
og barnabarnabörnum.
Takk, elsku amma, fyrir alla
gleðina, hjálpina, samveruna
og umhyggjuna.
Þínir ömmustrákar
Guðjón, Arnar og Einar.
Ásdís
Steingrímsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Kveðja frá,
Marinó, Sævari, Birgi,
Rakel, Sögu, Heklu, Na-
talie, Isabel og Bríeti
langömmubörnum.
Þú gengin ert hugglöð á frels-
arans fund
og fagnar með útvaldra skara,
þar gleðin er eilíf, þar grær sér-
hver und.
Hve gott og sælt við hinn hinsta
blund
í útbreiddan faðm Guðs að fara.
Nú kveðja þig vinir með klökkva
og þrá
því komin er skilnaðarstundin.
Hve indælt það verður þig aftur
að sjá
í alsælu og fögnuði himnum á,
er sofnum vér síðasta blundinn.
(Hugrún)
Elsku Ásdís, hvíldu í
friði í faðmi Guðjóns og
Steina.
María Hreins.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
PETRÍNA KRISTÍN STEINDÓRSDÓTTIR
frá Bolungarvík,
Hrafnistu, Reykjavík,
áður til heimilis á Nönnugötu 6,
lést á Landspítalanum laugardaginn
13. janúar. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 26. janúar
klukkan 14.
Árni Andersen Sigríður M. Jónsdóttir
Rut Andersen Þorsteinn Gunnarsson
Steindór I. Andersen Hrefna Ársælsdóttir
Sigþrúður Jóhannesdóttir Ólafur Bragason
Kristín G. Jóhannesdóttir Preben Hansen
Rósa Jóhannesdóttir Helgi Zimsen
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GEIR GUÐMUNDSSON,
verkstjóri og safnvörður,
Bolungarvík,
sem lést mánudaginn 15. janúar,
verður jarðsunginn frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn
27. janúar klukkan 14.
Una Halldóra Halldórsdóttir
Sólrún Geirsdóttir Jónas Guðmundsson
Helga Theodóra, Halldóra, Þórhildur Bergljót
Einar Geir og Jónatan Leó
Elsku hjartans ástin mín, sonur, bróðir,
frændi, barnabarn og mágur,
HÖSKULDUR FREYR HERMANNSSON
frá Brimnesi, Fáskrúðsfirði,
lést laugardaginn 20. janúar á heimili sínu
á Egilsstöðum. Útför fer fram laugardaginn
3. febrúar klukkan 11 í Egilsstaðakirkju.
Jarðsett verður í framhaldi í Kolfreyjustaðarkirkjugarði,
Fáskrúðsfirði.
Blóm og kransar afþakkað. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á Björgunarsveitina Hérað, kt. 481199-2989, reikningsnr.
0166-26-48.
Steinunn Steinþórsdóttir
Halldóra Eiríksdóttir
Hermann Dalberg Kristjánsson
Eiríkur Orri Hermannsson
Þorgeir Starri Hermannsson
Kristján Helgi Hermannsson
Helga Hermannsdóttir
Kristján Guðmundur Sigurðsson
Albert Sigurðsson
Hulda Steinsdóttir
aðstandendur og vinir
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
BJÖRN B. JOHNSEN
læknir,
Laufskógum 37, Hveragerði,
lést fimmtudaginn 18. janúar.
Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju fimmtudaginn 25. janúar
klukkan 15.
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Guðmundur Skúli Johnsen Anna Lísa Björnsdóttir
Sturla Björn Johnsen Bryndís T. Gísladóttir
G. Edda Johnsen
og afabörnin öll
Ástkær mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
SÓLVEIG BERNDSEN,
lést miðvikudaginn 17. janúar á
hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ.
Jarðsungið verður frá Garðakirkju í
Garðabæ föstudaginn 26. janúar klukkan 15.
Ástvinir þakka starfsfólki Ísafoldar fyrir umönnun.
Blóm og kransar afþakkað. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Alzheimersamtökin.
Kristján H. Sigurgeirsson Sigrún Tryggvadóttir
Gunnar Sigurgeirsson Birgitta Baldursdóttir
Sigurður Sigurgeirsson Guðrún V. Hafsteinsdóttir
Sigurgeir Sigurgeirsson Súsanna Viderø
Margrét Sigurgeirsdóttir Tómas Jóhannesson
Kjartan Már Sigurgeirsson Tinna Ösp Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir,
mágur og afi,
STEINGRÍMUR EIRÍKSSON
hæstaréttarlögmaður,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 26. janúar klukkan 11.
Harpa Sigr. Steingrímsdóttir Ólafur Karel Jónsson
Helga Ína Steingrímsdóttir Bjarki Ólafsson
María Ellen Steingrímsdóttir
Lilja Eiríksdóttir Bragi Líndal Ólafsson
Eva Eiríksdóttir Ditto Michael Ditto
og barnabörn