Morgunblaðið - 23.01.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
SU hefur reyndar verið á veiðum á
íslenskri sumargotssíld og fékk um
500 tonn í Faxaflóadýpi í síðustu
viku.
Framboð frá Íslandi
og Noregi
Nokkur óvissa er með verð fyrir
loðnuafurðir og verð á frystum af-
urðum hefur lækkað frá síðasta
ári. Búist er við talsverðu framboði
úr Barentshafi auk Íslands og
margir kaupendur halda að sér
höndum. Ágætt verð hefur hins
vegar fengist fyrir mjöl og lýsi og
mikið af loðnuaflanum á vertíðinni
til þessa farið í bræðslu. Miðað við
fyrirhöfn og áhættu virðist bræðsla
ekki slæmur kostur.
Þeir á Venusi komu inn til
Vopnafjarðar með um tvö þúsund
tonn í gærmorgun og var áætlað að
löndun lyki í nótt, en hluti aflans
átti að fara í frystingu. Aflann
fengu þeir í trollið í sex holum á
tveimur sólarhringum. Aflinn fæst
að stærstum hluta að deginum, en
dreifir sér yfir nóttina.
Gengur hratt suður á bóginn
Guðlaugur skipstjóri segir að
fyrstu daga vertíðar hafi útlitið
ekki verið neitt sérstakt, en fisk-
urinn gangi hratt suður á bóginn í
mjóum röndum og erfitt sé að
meta hversu mikið sé á ferðinni.
Fyrir helgi hafi hins vegar sést
töluvert af loðnu og svo hafi virst
sem væri að bætast við.
Guðlaugur fór fyrst á loðnu sem
háseti árið 1970, þá sem háseti á
Ásgeiri RE, skipi Ísbjarnarins.
Hann var spurður á hvern hátt
þessi vertíð væri frábrugðin þeim
síðustu. „Í fyrra og 2-3 síðustu ár
gekk loðnan miklu grynnra, en nú
gengur hún sína hefðbundnu slóð
fyrir utan kantana og suður eftir.
Síðustu ár gekk hún meira upp á
grunnin, sem var mikil breyting.
Kannski er sjórinn kaldari en í
fyrra,“ segir Guðlaugur.
Hann segir að algengt sé að 37-
41 loðna sé í kílói, fínasti fiskur, og
reyndar séu dæmi um enn stærri
fisk. Tíðin hafi verið hundleiðinleg
fyrstu daga vertíðar, en síðustu
viku hafi verið ágætt veður. Fram-
undan sé síðan aftur strekkingur í
kortunum.
Guðlaugur segir að mikið sé af
hval, einkum hnúfubak á miðunum,
en hann valdi síður tjóni á veið-
arfærum þegar menn eru á trolli
eins og núna. „Hvalurinn gæðir sér
á loðnunni og honum mætti að
ósekju fækka eitthvað,“ segir Guð-
laugur.
Á vef Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað segir að fínasta loðnu-
veiði hafi verið síðustu daga. Haft
var eftir Hjörvari Hjálmarssyni,
skipstjóra á Berki NK, að loðnan
virtist vera á stóru svæði. „Það eru
kannski 20 mílur á milli skipa og
þau eru öll að gera það tiltölulega
gott. Það er í reynd mokveiði,“
sagði Hjörvar Hann sagðist bjart-
sýnn á að bætt yrði verulega við
kvótann.
Fyrsta norska skipið komið
Í haust var gefinn út 208 þúsund
tonna upphafskvóti í loðnu. Í heild-
ina koma um 126.300 tonn í hlut Ís-
lands, þar af fara 5,3% í jöfnunar-
aðgerðir. Norðmenn hafa heimild
til að veiða um 47.600 tonn og
Grænlendingar 22.770 tonn. Samn-
ingur er ekki lengur í gildi milli Ís-
lendinga og Færeyinga um gagn-
kvæm fiskveiðiréttindi, en þeir
hefðu fengið 10.350 tonn af upp-
hafskvótanum.
Fyrsta norska loðnuskipið,
Endre Dyroy, kom á miðin á föstu-
dag og var í gær austur af Kol-
beinsey. Stjórnstöð Landhelg-
isgæslunnar hafði í gær ekki
upplýsingar um komu fleiri
norskra skipa, en væntanlega
fjölgar þeim næstu daga.
Skrýtið ef ekki verður bætt við
Loðnuvertíðin öðruvísi en á síðustu árum, segir Guðlaugur á Venusi Ágætlega hefur veiðst
Fyrri hluta loðnuleiðangurs lokið Mikið af hval Talsverð verðlækkun á frystum afurðum
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Í brúnni Róbert Axelsson, fyrsti stýrimaður, og Guðlaugur Jónson, skipstjóri
á Venusi NS. Myndin er tekin er skipið kom nýtt til landsins vorið 2015.
Vertíðin
» Upphafskvóti á vertíðinni er
í heildina 208 þúsund tonn, af
honum koma alls 126.300 tonn
í hlut Íslendinga.
» Reikna má með að vertíð
standi fram í byrjun mars.
» Strekkingur er í veðurkort-
unum næstu daga fyrir loðnu-
miðin austur af landinu.
Loðnuleiðangur
Árni
Friðriksson
Bjarni Sæmundsson
Polar Amarok
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ágætlega hefur gengið á loðnuver-
tíðinni til þessa, en skipin voru í
gær austur af Héraðsflóa. Óljóst er
hvort bætt verður við upphafskvót-
ann, en loðnuleiðangur stendur yf-
ir. Guðlaugur Jónsson, skipstjóri á
Venusi NS, segir að fyrir helgi hafi
mönnum virst sem væri að bætast í
loðnugönguna og segist gera sér
vonir um að kvótinn verði aukinn.
Annað væri skrýtið miðað við
rannsóknir síðasta haust.
Rannsóknaskipin luku í gær
fyrstu yfirferð í mælingum á loðnu-
göngum. Reiknað var með að
Bjarni Sæmundsson og Árni Frið-
riksson biðu af sér brælu inni á
Ísafirði þar til annað kvöld, en
grænlenska vinnsluskipið Polar
Amaroq, sem tekur þátt í leiðangr-
inum, færi til löndunar í Neskaup-
stað.
Rannsóknaskipin halda næstu
daga austur með Norðurlandi til að
endurtaka mælingu og kanna hvort
bæst hefur í göngurnar. Að þeirri
yfirferð lokinni tekur sameining
gagna, úrvinnsla og útreikningar
við áður en ljóst verður hvort bætt
verður við upphafskvótann.
Óvissa í útgerðinni
Verðmætustu afurðir loðnunnar
eru hrognin sem fást í lok vertíðar
í byrjun mars ef að líkum lætur.
Því verða útgerðir að vega og meta
hversu mikið á að skilja eftir þar
til í lokin. Verður bætt í og þá
hversu miklu? Svör við þessum
spurningum liggja ekki fyrir, en
fyrir útgerðir frá Þórshöfn og suð-
ur með Austfjörðum hefur verið
hagsætt að sækja loðnuna síðustu
daga og stutt á miðin.
Alla útgerðir uppsjávarskipa eru
byrjaðar á loðnu að undanskildum
skipum Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum og Loðnuvinnsl-
unnar á Fáskrúðsfirði. Hoffellið
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrir VOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna