Morgunblaðið - 23.01.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.01.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018 SU hefur reyndar verið á veiðum á íslenskri sumargotssíld og fékk um 500 tonn í Faxaflóadýpi í síðustu viku. Framboð frá Íslandi og Noregi Nokkur óvissa er með verð fyrir loðnuafurðir og verð á frystum af- urðum hefur lækkað frá síðasta ári. Búist er við talsverðu framboði úr Barentshafi auk Íslands og margir kaupendur halda að sér höndum. Ágætt verð hefur hins vegar fengist fyrir mjöl og lýsi og mikið af loðnuaflanum á vertíðinni til þessa farið í bræðslu. Miðað við fyrirhöfn og áhættu virðist bræðsla ekki slæmur kostur. Þeir á Venusi komu inn til Vopnafjarðar með um tvö þúsund tonn í gærmorgun og var áætlað að löndun lyki í nótt, en hluti aflans átti að fara í frystingu. Aflann fengu þeir í trollið í sex holum á tveimur sólarhringum. Aflinn fæst að stærstum hluta að deginum, en dreifir sér yfir nóttina. Gengur hratt suður á bóginn Guðlaugur skipstjóri segir að fyrstu daga vertíðar hafi útlitið ekki verið neitt sérstakt, en fisk- urinn gangi hratt suður á bóginn í mjóum röndum og erfitt sé að meta hversu mikið sé á ferðinni. Fyrir helgi hafi hins vegar sést töluvert af loðnu og svo hafi virst sem væri að bætast við. Guðlaugur fór fyrst á loðnu sem háseti árið 1970, þá sem háseti á Ásgeiri RE, skipi Ísbjarnarins. Hann var spurður á hvern hátt þessi vertíð væri frábrugðin þeim síðustu. „Í fyrra og 2-3 síðustu ár gekk loðnan miklu grynnra, en nú gengur hún sína hefðbundnu slóð fyrir utan kantana og suður eftir. Síðustu ár gekk hún meira upp á grunnin, sem var mikil breyting. Kannski er sjórinn kaldari en í fyrra,“ segir Guðlaugur. Hann segir að algengt sé að 37- 41 loðna sé í kílói, fínasti fiskur, og reyndar séu dæmi um enn stærri fisk. Tíðin hafi verið hundleiðinleg fyrstu daga vertíðar, en síðustu viku hafi verið ágætt veður. Fram- undan sé síðan aftur strekkingur í kortunum. Guðlaugur segir að mikið sé af hval, einkum hnúfubak á miðunum, en hann valdi síður tjóni á veið- arfærum þegar menn eru á trolli eins og núna. „Hvalurinn gæðir sér á loðnunni og honum mætti að ósekju fækka eitthvað,“ segir Guð- laugur. Á vef Síldarvinnslunnar í Nes- kaupstað segir að fínasta loðnu- veiði hafi verið síðustu daga. Haft var eftir Hjörvari Hjálmarssyni, skipstjóra á Berki NK, að loðnan virtist vera á stóru svæði. „Það eru kannski 20 mílur á milli skipa og þau eru öll að gera það tiltölulega gott. Það er í reynd mokveiði,“ sagði Hjörvar Hann sagðist bjart- sýnn á að bætt yrði verulega við kvótann. Fyrsta norska skipið komið Í haust var gefinn út 208 þúsund tonna upphafskvóti í loðnu. Í heild- ina koma um 126.300 tonn í hlut Ís- lands, þar af fara 5,3% í jöfnunar- aðgerðir. Norðmenn hafa heimild til að veiða um 47.600 tonn og Grænlendingar 22.770 tonn. Samn- ingur er ekki lengur í gildi milli Ís- lendinga og Færeyinga um gagn- kvæm fiskveiðiréttindi, en þeir hefðu fengið 10.350 tonn af upp- hafskvótanum. Fyrsta norska loðnuskipið, Endre Dyroy, kom á miðin á föstu- dag og var í gær austur af Kol- beinsey. Stjórnstöð Landhelg- isgæslunnar hafði í gær ekki upplýsingar um komu fleiri norskra skipa, en væntanlega fjölgar þeim næstu daga. Skrýtið ef ekki verður bætt við  Loðnuvertíðin öðruvísi en á síðustu árum, segir Guðlaugur á Venusi  Ágætlega hefur veiðst  Fyrri hluta loðnuleiðangurs lokið  Mikið af hval  Talsverð verðlækkun á frystum afurðum Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Í brúnni Róbert Axelsson, fyrsti stýrimaður, og Guðlaugur Jónson, skipstjóri á Venusi NS. Myndin er tekin er skipið kom nýtt til landsins vorið 2015. Vertíðin » Upphafskvóti á vertíðinni er í heildina 208 þúsund tonn, af honum koma alls 126.300 tonn í hlut Íslendinga. » Reikna má með að vertíð standi fram í byrjun mars. » Strekkingur er í veðurkort- unum næstu daga fyrir loðnu- miðin austur af landinu. Loðnuleiðangur Árni Friðriksson Bjarni Sæmundsson Polar Amarok BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ágætlega hefur gengið á loðnuver- tíðinni til þessa, en skipin voru í gær austur af Héraðsflóa. Óljóst er hvort bætt verður við upphafskvót- ann, en loðnuleiðangur stendur yf- ir. Guðlaugur Jónsson, skipstjóri á Venusi NS, segir að fyrir helgi hafi mönnum virst sem væri að bætast í loðnugönguna og segist gera sér vonir um að kvótinn verði aukinn. Annað væri skrýtið miðað við rannsóknir síðasta haust. Rannsóknaskipin luku í gær fyrstu yfirferð í mælingum á loðnu- göngum. Reiknað var með að Bjarni Sæmundsson og Árni Frið- riksson biðu af sér brælu inni á Ísafirði þar til annað kvöld, en grænlenska vinnsluskipið Polar Amaroq, sem tekur þátt í leiðangr- inum, færi til löndunar í Neskaup- stað. Rannsóknaskipin halda næstu daga austur með Norðurlandi til að endurtaka mælingu og kanna hvort bæst hefur í göngurnar. Að þeirri yfirferð lokinni tekur sameining gagna, úrvinnsla og útreikningar við áður en ljóst verður hvort bætt verður við upphafskvótann. Óvissa í útgerðinni Verðmætustu afurðir loðnunnar eru hrognin sem fást í lok vertíðar í byrjun mars ef að líkum lætur. Því verða útgerðir að vega og meta hversu mikið á að skilja eftir þar til í lokin. Verður bætt í og þá hversu miklu? Svör við þessum spurningum liggja ekki fyrir, en fyrir útgerðir frá Þórshöfn og suð- ur með Austfjörðum hefur verið hagsætt að sækja loðnuna síðustu daga og stutt á miðin. Alla útgerðir uppsjávarskipa eru byrjaðar á loðnu að undanskildum skipum Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum og Loðnuvinnsl- unnar á Fáskrúðsfirði. Hoffellið Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrir VOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við Hafþór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.