Morgunblaðið - 23.01.2018, Blaðsíða 27
1987-89, sat í stjórn verðbréfasjóða í
eigu Forsäkringsaktiebolaget
Skandia AB og síðar Vátrygginga-
félags Íslands hf. 1992-2000 og stjórn-
arformaður 1992-96, sat í stjórn Ísaga
ehf. 1994-2007, í stjórn Lögmanna-
félags Íslands 1982-84, formaður siða-
nefndar landsnefndar Alþjóðaversl-
unarráðsins um markaðsstarfsemi
1989-95, formaður stjórnar Evrópu-
réttarstofnunar HR frá stofnun 2002-
2005, sat í stjórn Rannsóknarstofn-
unar HR í fjármálarétti 2004-2011,
var setudómari við Héraðsdóm
Reykjavíkur og sat í opinberum
nefndum vegna reglugerða og frum-
varpa til laga sem og í dómnefndum.
Þórður skrifaði fasta greinarþætti í
Vísi um ýmis lögfræðileg álitamál
1981-82, hefur skrifað fjölda greina í
blöð og tímarit sem og fagrit og haldið
fjölda erinda, hér á landi og erlendis.
Þórður er heiðursfélagi Association
of Fellows and Legal Scholars, Cent-
er for International Legal Studies, og
fyrsti heiðursfélagi Lögréttu, félags
laganema við HR.
Fjölskylda
Eiginkona Þórðar er Helga Sig-
þórsdóttir, f. 22.1. 1943, viðskipta-
fræðingur. Foreldrar hennar voru
Sigþór Karl Þórarinsson, f. 28.1. 1918,
d. 23.1. 1981, hreppstjóri í Einarsnesi,
og k.h., Sigríður Guðmundsdóttir, f.
11.12. 1916, d. 8.9. 2008.
Dóttir Þórðar og Helgu er Þórunn
Helga, f. 30.11. 1984, lögmaður, en
unnusti hennar er Björgvin Grétars-
son, trésmiður og nemi í byggingar-
tæknifræði við HR.
Albróðir Þórðar var Gunnar Örn
Gunnarsson, f. 2.12. 1946, d. 28.3.
2008, myndlistarmaður.
Hálfsystkini Þórðar, samfeðra, eru
Finnbogi Gunnarsson, f. 6.6. 1958, fé-
lagsfræðingur í Reykjavík; Sigríður
Jóhanna Gunnarsdóttir, f. 10.10. 1959,
hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, og
Sigurður Már Gunnarsson, f. 4.10.
1970, lögfræðingur á Akranesi.
Hálfbræður Þórðar, sammæðra,
eru Davíð Eyrbekk, f. 13.5. 1943,
fyrrv. slökkviliðsmaður í Keflavík, og
Pétur Meekosha, f. 9.10. 1957, tré-
smiður í Keflavík.
Kjörforeldrar Þórðar voru Ágúst
Ólafsson, f. 5.8. 1898, d. 24.10. 1982,
rafverktaki í Reykjavík, og k.h.,
Bjarnfríður Sigurjónsdóttir, f. 30.7.
1904, d. 26.3. 1997, húsfreyja.
Foreldrar Þórðar voru Gunnar
Óskarsson, f. 17.9. 1927, d. 1.11. 1981,
móttökustjóri og f.k.h., Guðríður Pét-
ursdóttir, f. 25.5. 1923, d. 19.8. 1994,
húsfreyja
Þórður S. Gunnarsson
Ásmundur Björnsson
vinnum., málari og
sjóm. í Þingeyjarsýslu
Katrín Markúsdóttir
húsfr. á Húsavík
Vigfús Pétur Ásmundsson
símstöðvarstjóri í Garði
Guðríður Pétursdóttir
húsfreyja í Keflavík
Guðmunda Eggertsdóttir
húsfr. í Garði
Eggert Gíslason
óðalsb. og form. í Garði
Guðríður Árnadóttir
húsfr. í Kothúsum í Garði
Óskar Þórðarson
barnalæknir í Rvík
Auður Óskarsdóttir
auglýsingastjóri RÚV
María Björk
Gunnarsdóttir arkitekt
Snæbjörg Guðmunda
Gunnarsdóttir
óperusöngkona
Gunnar Örn
Gunnarsson
listmálari
Ólafur Ragnar Grímsson
fv. forseti Íslands
Grímur Kristgeirsson hárskeri
og bæjarfulltrúi á Ísafirði
Guðný Ólafsdóttir
húsfr. í Gilstreymi í
Lundarreykjadal
Vilborg Þórðardóttir
húsfr. í Rvík
Þórður G. Valdimarsson (Kiko Korriro) listmálari
Sverrir Valdimarsson
prentari og eigandi
prentsmiðjunnar
Litmyndir í
Hafnarfirði
Valdimar Sverrisson prentari
Guðmundur Sverrisson
heimilislæknir
Þórður Sverrisson
fv. forstjóri Nýherja
Sigurður Þórðarson tónskáld og
stofnandi Karlakórs Reykjavíkur
Árni Gíslason skipstj., útgerðarm. og starfsm. Sþ.
Gísli Árni Eggertsson
stofnandi Samfés – samtaka
félagsmiðstöðva og ungmennahúsa
á Íslandi
Eggert Gíslason
skipstj. og
útgerðarm. hjá
Sjóla hf.
Þorsteinn Gíslason skipstjóri og fiskimálastjóri
Gísli Árni Eggertsson
skipstj. og b. á
Króksvelli í Garði
Þorsteinn Eggertsson
lögmaður
Eggert G. Þorsteinsson
alþm. og ráðherra
Þorsteinn Eggertsson
skipstj. og bátsform. í
Keflavík
María Ísaksdóttir
húsfr. dóttir Ísaks
Ingimundarsonar
landpósts
Þórður Ólafsson
prófastur í Ísafjarðarprófastdæmi
Sesselja Þórðardóttir
húsfr. í Rvík
Óskar Árnason
stýrim. í Rvík
Jóhanna R. Jóhannesdóttir
húsfr. í Rvík
Árni Árnason
skipasmiður í Rvík
Úr frændgarði Þórðar S. Gunnarssonar
Sigríður
Gunnars-
dóttir
hjúkrunar-
fræðingur
Jóhann Örn
Logason
lögfræð-
ingur
Sigurður Már Gunnarsson
lögfræðingur
Steinn
Finnboga-
son
lögmaður
Finnbogi
Gunnars-
son félags-
fræðingur
Gunnar Óskarsson
óperusöngvari og
móttökustjóri á
Hótel Sögu
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
85 ára
Dagbjört Kristjánsdóttir
80 ára
Alfreð Árnason
Bergljót Gyða Helgadóttir
Bergljót Rósinkranz
Kristín Zoëga
Lisebet Gestsdóttir
75 ára
Hjördís Torfadóttir
Sigurbjörg S. Jónsdóttir
70 ára
Bragi Guðmundsson
Sigurður Eiríksson
Steinunn Káradóttir
Þórður S. Gunnarsson
Þórleif Kristín
Sigurðardóttir
60 ára
Erling Kjærnested
Inga Dóra Sigurðardóttir
Irina Barinova
Katrín Inga Karlsdóttir
Marey Linda Svavarsdóttir
Ólafur Óskar Óskarsson
Sigríður H. Ingimarsdóttir
Sigríður Soffía
Böðvarsdóttir
Sigrún Sigurðardóttir
Snæbjörn Sigurgeirsson
Sverrir Mar Albertsson
Þorbjörn Svanur Jónsson
Ögmundur Skarphéðinsson
50 ára
Anna Sigríður Traustadóttir
Baldrún Hrönn
Sævarsdóttir
Barbara Beata Rupinska
Gísli Ingi Gunnarsson
Guðjón Heiðar
Guðmundsson
Inga Þórðardóttir
Kristjana Vilhelmsdóttir
Maria Riska
Nuchnapa Elísabet
Tumkitja
Olga Björk Nikulásdóttir
Pavel Matejicek
Sigrún Eva Ármannsdóttir
Torfi Hjartarson
40 ára
Anna Peters
Caroline Akinyi-Mbithe
Nyabua
Eyrún Huld Árnadóttir
Geir Gestsson
Helga Helgadóttir
María Sigurðardóttir
Norðdahl
Ólafur Tómasson
Sergiy Okhremchuk
Tomasz Meka
Valgerður Jónsdóttir
Yordanka Valentinova
Nikolova
Zhanna Suprun
Þórdís Ósk Helgadóttir
30 ára
Axel Ottósson
Dmitrijs Samuscenkovs
Egill Aron Ómarsson
Elena Niederfuhr
Hafrún Eiríksdóttir
Katrín Erla Erlingsdóttir
Marcin Sawicki
Mariusz Albin Wolanski
Martynas Kazlauskas
Ómar Tryggvason
Páll Arnar Pálsson
Perla Dögg Jensdóttir
Rán Bjarnadóttir
Renata Pratusyte
Til hamingju með daginn
30 ára Páll ólst upp í
Hafnarfirði er þar búsett-
ur, lauk BSc-prófi í tölv-
unarfræði frá HR og MSc-
prófi í upplýsingastjórnun
frá HR og er upplýsinga-
tæknisérfræðingur hjá
Fjármálaeftirlitinu.
Maki: Linda Karen Stein-
arsdóttir, f. 1990, nemi í
viðskiptafræði við HR.
Sonur: Daníel, f. 2016.
Foreldrar: Páll Pálsson, f.
1953, og Sigrún Reynis-
dóttir, f. 1954.
Páll Arnar
Pálsson
30 ára Hafrún ólst upp í
Neskaupstað, býr á Höfn,
lauk sveinsprófi í rafvirkj-
un og er rafvirki á Höfn.
Maki: Hólmar Hallur Unn-
steinsson, f. 1990, sjó-
maður.
Stjúpbörn: Bryndís
Björk, f. 2011, og Sigur-
björn Ívar, f. 2014.
Foreldrar: Auður Hauks-
dóttir, f. 1956, aðalbókari
hjá Síldarvinnslunni, og
Eiríkur Þór Magnússon, f.
1954, rafvirki.
Hafrún
Eiríksdóttir
40 ára Þórdís ólst upp á
Vopnafirði og á Akureyri,
býr í Kópavogi, lauk BEd-
prófi frá HA, prófum frá
Ljósmyndaskólanum og
er leikskólakennari.
Systur: Aðalbjörg Stef-
anía, f. 1972, og Sonja
Dröfn, f. 1975.
Foreldrar: Arnbjörg Páls-
dóttir, f. 1951, fyrrv.
bankamaður, og Helgi
Jósefsson, f. 1947, d.
2005, kennari og lista-
maður.
Þórdís Ósk
Helgadóttir
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/WeledaIceland
Since 1921
NÝJUNG ! ROLL -ON SVITALYKTAREYÐIR
3 nýjar tegundir með frískandi herrailm og granatepla og sítrusilm. 24 tíma virkni,
inniheldur ekki aluminium salt. Útsölustaðir Weleda: Heilsuverslanir og apótek um allt land.
Netverslun: heimkaup.is lyfja.is heilsuhusid.is
Sunna Jóhannsdóttir hefur varið
doktorsritgerð sína í lyfjafræði við
Lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Rit-
gerðin ber heitið: Sýklódextrínöragnir
sem augnlyfjaferjur fyrir litlar lyfja-
sameindir, peptíð og prótein. (Cyclo-
dextrin nanoparticles in ocular drug
delivery for small molecular weight
drugs as well as for peptide and pro-
tein drugs.) Umsjónarkennari og leið-
beinandi var dr. Þorsteinn Loftsson,
prófessor við Lyfjafræðideild. Að auki
sátu í doktorsnefnd Einar Stefánsson,
prófessor við Læknadeild, Auður
Magnúsdóttir, deildarforseti við Land-
búnaðarháskóla Íslands, dr. Hákon
Hrafn Sigurðsson, prófessor og deild-
arforseti við Lyfjafræðideild, og dr.
Kim Lambertsen Larsen, dósent við
Álaborgarháskóla.
Verkefnið fjallar um hönnun augn-
dropa sem innihalda hjálparefnið
sýklódextrín. Lyfjameðhöndlun augn-
sjúkdóma getur reynst erfið vegna
flókinna lífeðlisfræðilegra eiginleika
augans. Ef hefðbundin lyfjagjöf, þ.e. í
formi augndropa, á að reynast árang-
ursrík þarf lyfið að búa bæði yfir
vatnsleysanlegum eiginleikum, svo
lyfið komist yfir táravökvann að yfir-
borði augans, og fituleysanlegum eig-
inleikum, til að frásogast yfir vefi aug-
ans. Varnareiginleikar augans, aukin
táraframleiðsla og
tíðni blikka, gera
það að verkum að
lyfið nær einungis
að haldast á aug-
anu í stuttan tíma
áður en því er
skolað í burtu en
það leiðir til minna
frásogs lyfsins.
Sýklódextrín eru hjálparefni sem
notuð eru við lyfjagerð til að auka
leysanleika og stöðugleika lyfja í
vatni. Sýklódextrín geta myndað flétt-
ur við fitusækin torleysanleg lyf og
aukið leysni þeirra, en flétturnar geta
hópað sig saman og myndað nanó-
agnir.
Í verkefninu var leitast við að sýna
hvernig dexametasón (augnlyf) í
sýklódextrín/dexametasón nanóögn-
um berst frá yfirborði augans til bak-
hluta þess í kanínum, en slík lyfjaferja
gæti t.d. komið í stað inngripsmeiri
lyfjagjafa með sprautu.
Þá fjallar verkefnið einnig um þróun
sýklósporín augnlyfs (peptíð lyf) með
notkun sömu tækni og áður hefur ver-
ið lýst auk prófunar þess á kanínum.
Að lokum fjallar verkefnið um þróun
lýsósým (prótein) augndropa, en ekki
reyndist unnt að nota áðurnefnda
tækni við þróun slíkra augndropa.
Sunna Jóhannsdóttir
Sunna Jóhannsdóttir er fædd 1985. Hún lauk BS-gráðu í lyfjafræði frá Háskóla
Íslands árið 2009 og MS-gráðu í lyfjafræði frá sama skóla þremur árum síðar.
Sunna starfar hjá Oculis ehf. og sambýlismaður hennar er Ívar Már Ottason.
Doktor