Morgunblaðið - 23.01.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
Lekinn á Pentagon-skjöl-unum í bandaríska fjöl-miðla sumarið 1971 áttistóran þátt í að breyta
viðhorfum Bandaríkjamanna til
Víetnam-stríðsins. Stríðið var þegar
orðið óvinsælt, en með birtingu
skjalanna kom skýrt fram að banda-
rísk stjórnvöld höfðu logið markvisst
til um gang þess frá upphafi.
Í myndinni The Post segir Steven
Spielberg söguna af því þegar skjöl-
unum var lekið og uppnáminu sem
fylgdi þegar stjórn Richards Nixons
reyndi að stöðva frekari fréttaflutn-
ing með því að leita til dómstóla á
þeirri forsendu að gögnin væru stol-
in og birting þeirra landráð.
Fyrstu fréttirnar upp úr Penta-
gon-skjölunum birtust í The New
York Times, en meginsögusvið
myndarinnar er ritstjórn The Wash-
ington Post, sem tók við keflinu þeg-
ar keppinauturinn var múlbundinn.
Uppljóstrarinn í málinu var Dani-
el Ellsberg, haukurinn sem breyttist
í dúfu og margir líta á sem fyrir-
rennara Chelsea Manning og Ed-
wards Snowdens. Ellsberg var með-
al þeirra sem á sjöunda áratugnum
lögðu á ráðin um það hvernig Banda-
ríkin myndu heyja kjarnorkustríð.
Hann var einnig í hópi þeirra sem
skrifuðu skýrslur um gang stríðsins
í Víetnam og var sjálfur á vettvangi.
Mynd Spielbergs hefst á því að við
sjáum Ellsberg í hermannagalla þar
sem hann er á leið út í frumskóga Ví-
etnams með sveit hermanna. Atriðið
er niðursoðin útgáfa af hernaði
Bandaríkjamanna í landinu. Sveitin
paufast áfram í næturmyrkrinu. Allt
í einu rýfur skothríð kyrrðina. Her-
mennirnir byrja að skjóta út í loftið,
en þeir sjá aldrei óvininn. Svo fara
þeir að falla einn af öðrum.
Ellsberg slapp lífs og á leiðinni
heim til Bandaríkjanna situr hann í
flugvél ásamt Robert McNamara
varnarmálaráðherra, sem er að ríf-
ast við aðstoðarmann um gang
stríðsins. Aðstoðarmaðurinn segir
að allt gangi vel, en McNamara er
ekki sammála og kallar á Ellsberg,
sem segir að stríðið sé í besta falli
þrátefli. Hvað sagði ég, segir ráð-
herrann.
Þegar flugvélin lendir bíða blaða-
menn við landganginn. McNamara
svarar spurningum þeirra og full-
yrðir að hernaðurinn í Víetnam
gangi vel. Ellsberg heyrir ráð-
herrann tala þvert á orð sín í vélinni
og gengur í burtu með óbeitarsvip á
andliti. Þarna ákveður hann að ætli
ráðamenn ekki að segja sannleikann
muni hann grípa til sinna ráða og
næst sjáum við hann þar sem hann
er að lauma skjölum framhjá örygg-
isverði til að ljósrita þau.
Á þessum punkti hefst blaða-
dramað, sem er rauði þráðurinn í
myndinni. Meginsögusviðið er rit-
stjórn Washington Post. Katherine
Graham er tekin við stjórn blaðsins
sem faðir hennar rak og átti og hafði
sett í hendur eiginmanns hennar,
Philip Graham. Þegar hann fyrirfór
sér tók hún við keflinu og varð útgef-
andi. Ritstjóri blaðsins er Ben Brad-
lee. Blaðið er í kröggum og ákveðið
hefur verið að fara með það á hluta-
bréfamarkað til að afla fjár.
Bæði vilja þau veg blaðsins meiri
og auka útbreiðslu þess þannig að
það hafi slagkraft á landsvísu. Brad-
lee reytir hár sitt yfir því hvernig
hann eigi að fara að og horfir til New
York Times öfundaraugum. Hann
hefur stöðugar áhyggjur af því
hvaða skúbb verði á forsíðu keppi-
nautarins. Þessa dagana vekur at-
hygli hans að ekkert hefur birst eftir
Neil Sheehan, einn fremsta blaða-
mann New York Times, sem hvað
mest hefur skrifað um stríðið í Víet-
nam, í þrjá mánuði. Ástæðan kemur
brátt í ljós. Sheehan, höfundur einn-
ar bestu bókar sem skrifuð hefur
verið um stríðið í Víetnam, A Bright
Shining Lie, hefur legið yfir Penta-
gon-skjölunum. Þegar dómstólar
banna New York Times að birta
frekari fréttir upp úr gögnunum
hleypur á snærið hjá Washington
Post. Einn blaðamaður blaðsins,
Ben Bagdikian, þefar Ellsberg uppi
og fær ljósrit af skjölunum í hendur.
Málið er hins vegar ekki svo ein-
falt fyrir Graham. Hún er að læra að
fóta sig í heimi þar sem karlmenn
ráða ríkjum og fær að finna fyrir því
að hún nýtur ekki fyllsta trausts
vegna þess að hún er kona.
Hún þarf einnig að taka erfiðar
ákvarðanir um hvort bjóða skuli
valdinu byrginn. Það snýst ekki að-
eins um hvort kalla eigi yfir blaðið
reiði Richards Nixons og stjórnar
hans, heldur einnig að skjölin varða
orðspor McNamara, gamals og
trausts vinar.
Fyrir utan Bradlee þrýsta allir á
Graham að birta ekki. Hann messar
yfir Graham um að nálægðin við
valdið megi ekki verða til að draga
úr slagkrafti fjölmiðlanna. Hún spyr
hvort vinátta hans við Jackie og
John F. Kennedy og reglulegar
heimsóknir hans í Hvíta húsið hafi
ekki orðið til að hann hafi dregið úr
þunga högga sinna.
Togstreita þeirra er þungamiðja
myndarinnar og er leikur Meryl
Streep í hlutverki Graham og Toms
Hanks í hlutverki Bradlees óaðfinn-
anlegur. Hanks fetar í fótspor Jas-
ons Robards, sem lék Bradlee í
myndinni All The President’s Men
frá 1976 og hlaut Óskarsverðlaun
fyrir. Í meðförum Hanks verður
Bradlee ívið manneskju- og mann-
legri, þótt hörkutólið sé enn til stað-
ar. The Post virkar jafnvel sem for-
saga þeirrar myndar og á stundum
er áferð myndanna svipuð.
Eitt besta atriðið í myndinni er
þegar kona Bradlees opnar augu
hans þegar hún nefnir hugrekki
Graham og hann spyr hvað um sína
áhættu. Þá svarar hún með því að
Graham sé að leggja allt undir, blað-
ið og fjölskyldufyrirtækið, á meðan
áhætta hans sé engin. Þvert á móti
muni orðstír hans verða meiri og fari
blaðið á hausinn muni hann alltaf fá
vinnu annars staðar.
Mynd Spielbergs er skemmtileg,
spennandi og hefur upp á margt að
bjóða fyrir augað. Gamlir blaða-
hundar munu hafa gaman af að sjá
atriði frá tímum blýsins í prentun
blaða. Spielberg notast að hluta við
gamalt efni. Alltaf þegar menn safn-
ast saman við sjónvarpsskjái er
gamalt efni dregið fram og má sjá
andlitum fréttamanna á borð við
Daniel Schorr og Walter Cronkite
bregða fyrir. Þegar við heyrum rödd
Nixons þar sem hann segir í lok
myndar að aldrei nokkurn tímann
skuli blaðamaður frá Washington
Post stíga fæti inn í Hvíta húsið er
það gömul upptaka forsetans sjálfs.
Spielberg á það til að predika, líkt
og hann treysti ekki áhorfendum til
að átta sig á hlutunum nema þeir séu
stafaðir ofan í þá. Þar má nefna að
þegar Graham kemur í kauphöllina
gengur hún framhjá hópi kvenna
sem horfa á hana í aðdáun á leið inn í
salinn þar sem hjörð karla bíður
hennar. Seinna, þegar hún kemur út
úr hæstarétti, fer hún í gegnum hóp
kvenna þegar hún gengur niður
tröppurnar.
The Post lýsir slag á milli yfir-
valda og fjölmiðla. Í myndinni er lát-
ið að því liggja að fjölmiðlar séu síð-
asta vígið, bregðist þeir geti
valdhafarnir vaðið yfir allt á skít-
ugum skónum. Myndin var gerð á
mettíma. Tökum lauk í febrúar og
hún var frumsýnd í desember. Spiel-
berg hugsar hana sem innlegg í um-
ræðuna um Donald Trump Banda-
ríkjaforseta, sem er með fjölmiðla á
heilanum, sakar þá stöðugt um lygar
og falsfréttir og hefur velt fyrir sér í
tísti hvers vegna leyniþjónustunefnd
þingsins rannsaki ekki fréttaflutn-
ing um sig (án þess að ljóst sé
hversu mikil alvara búi að baki
þeirri áeggjan).
Í þessari mynd leitar Spielberg á
kunnuglegar slóðir þar sem ein-
staklingar þurfa að ákveða hvort
þeir standa uppi í hárinu á valdinu,
eða spila með. Má einnig nefna The
Bridge of Spies frá 2015 og Lista
Schindlers frá 1993. Hann veltir upp
mörgum lykilspurningum, sem hér
er aðeins tæpt á. Spielberg hefur
einstaka frásagnargáfu hvað sem
líður predikunartilhneigingunni og
þegar hann kemst á flug er erfitt
annað en að sogast inn í frásögnina.
Á að birta? Tom Hanks og Meryl Streep í kvikmyndinni The Post.
Á skjön við valdið
Sambíóin
The Post bbbbn
Leikstjórn: Steven Spielberg. Leikarar:
Meryl Streep, Tom Hanks, Sarah Paul-
son, Bob Odenkirk, Tracy Letts, Bradley
Whitford, Bruce Greenwood og Matt-
hew Rhys. Bandaríkin, enska. 116 mín.
KARL BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Rokkarinn Tom Petty lést úr of
stórum lyfjaskammti, nánar til-
tekið blöndu lyfja og þá m.a.
ópíóíða, að því er fjölskylda Pett-
ys greindi frá fyrir helgi. Petty
lést í október í fyrra, 66 ára að
aldri, og við krufningu greindust
nokkrar ólíkar tegundir ópíóíða,
þar á meðal fentanyl. Petty fékk
hjartaáfall og fannst látinn á
heimili sínu í Malibu í Kaliforníu.
Hafði hann þá viku fyrr lokið tón-
leikaferð um Bandaríkin með
hljómsveit sinni, Heartbreakers.
Í samtali við tímaritið Rolling
Stones sagði Petty að ferðin gæti
orðið hans síðasta þar sem hann
vildi ekki eyða allri ævinni í tón-
leikaferðir, að því er fram kemur
í frétt á vef Washington Post.
Eiginkona hans, Dana, og dóttir
þeirra Adria skrifuðu yfirlýsingu
á vef hljómsveitarinnar og Face-
book-síðu hennar að Petty hefði
glímt við lungnaþembu og
mjaðmarbrot og auk þess verið
slæmur í hnján-
um. Hann hefði
ekki viljað
svíkja aðdáend-
ur sína og því
haldið 53 tón-
leika í þessu
ástandi. Vegna
óbærilegs sárs-
auka hefði hann
tekið inn uppá-
skrifuð verkjalyf
af ýmsum gerðum og það hefði
fjölskyldan vitað áður en hún
fékk í hendur krufningarskýrsl-
una. Dauðsfall Petty hefði því
verið slys og vildi fjölskylda hans
greina frá dánarorsökinni í von
um að geta bjargað mannslífum
og hvatt til frekari umræðu um
notkun þessa tiltekna flokks
sterkra verkjalyfja, ópíóíða en
dauðsföllum vegna of stórra
skammta af ópíóíðum hefur fjölg-
að með hverju árinu í Bandaríkj-
unum frá aldamótum.
Petty lést af völdum ópíóíða
Tom Petty á tón-
leikum í fyrra.
Meira til skiptanna
BÍÓ
áþriðjudögum í Laugarásbíó
750
á allarmyndir nema íslenskar
kr.
FRÍ
ÁFYLL
ING
Á GOS
I
Í HLÉI
SÝND KL. 5.30
SÝND KL. 5.30SÝND KL. 5.30SÝND KL. 7.50, 10.30SÝND KL. 8, 10.15
SÝND KL. 7.50, 10.30