Morgunblaðið - 23.01.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
Strætó fór út af veginum við Hval-
fjarðargöngin laust fyrir klukkan
14 í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
Strætó var vagninn á leiðinni frá
Akranesi til Reykjavíkur og nýkom-
inn úr Hvalfjarðargöngunum þegar
hann fór út af skammt frá Blik-
dalsá. Um tugur farþega var í
vagninum þegar óhappið varð.
Fram kom á mbl.is að talið væri að
einn farþeganna væri lítillega slas-
aður en ekki sjáanleg meiðsl á öðr-
um.
Sjúkrabílar frá Slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins fóru á staðinn og
annar strætisvagn.
Vindur var nokkuð sterkur þar
sem vagninn fór út af, að sögn Guð-
mundar Heiðars Helgasonar, upp-
lýsingafulltrúi Strætó.
Slysið varð skammt frá vigtunar-
skúrnum sunnan munna Hvalfjarð-
arganganna.
Strætó fauk út af
við Hvalfjarðargöng
Ljósmynd/Albert Eiríksson
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
ÚTSALA ÚT JANÚAR 2018
HEIMAVINNSLUVÖRUR - MIKIÐ ÚRVAL
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ!
Reykjavík: 414-0000 - Akureyri: 464-8600
30%
AFS
LÁT
TUR
Þessir einu sönnu gæða hitablásarar.
Bjóðum úrval alvöru hitablásara bæði fyrir
gas og diesel/steinolíu.
Eigum líka hitastilla fyrir MASTER hitablásara.
Viðurkennd viðgerða- og varahlutaþjónusta.
HITABLÁSARAR
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Vitnaleiðslur í markaðsmisnotkun-
armáli Glitnis héldu áfram í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Stjórnar-
meðlimir hins fallna banka báru vitni
og sögðust þeir flestir hafa litið á lán-
veitingarnar sem hluta af starfs-
kjarastefnu bankans, en vissu þó al-
mennt ekki af þeim fyrr en eftir að
þær voru gengnar í gegn. Fjórtán
lykilstarfsmenn bankans fengu lán
að andvirði nærri 6,8 milljarða króna
til kaupa á hlutabréfum í bankanum
sjálfum í maí árið 2008.
Bankinn raunveruleikafirrtur
Sigurður G. Guðjónsson, lögmað-
ur og fyrrverandi stjórnarmaður í
Glitni, sagði fyrir dómi í gær að
stjórn Glitnis hefði rætt um að
„koma böndum á starfsmannakjör-
in“ í aðdraganda lánanna. „Hann
hafði verið svolítið raunveruleika-
firrtur þessi banki,“ sagði Sigurður
og lagði áherslu á að stjórn bankans
hefði viljað koma reglu á umbunar-
kerfi fyrir starfsmenn bankans.
Hann sagði lánveitingarnar til fjór-
tánmenninganna þó ekki sérstaklega
hafa verið ræddar í stjórn bankans
og hann sjálfur hefði lesið um þær í
fréttum. Lárus Welding er ákærður í
tveimur liðum fyrir þessi útlán bank-
ans til starfsmanna, fyrir markaðs-
misnotkun og umboðssvik, meðal
annars fyrir að hafa ekki fengið sam-
þykki stjórnar fyrir þeim. Lárus við-
urkenndi í skýrslu sinni fyrir dómi
síðastliðinn fimmtudag að frágang-
urinn á málinu hefði ekki verið til
fyrirmyndar, en sagði þó að lánin
hefðu verið afgreidd með fullu sam-
þykki stjórnar. Þorsteinn Már Bald-
vinsson, þá stjórnarformaður Glitn-
is, skrifaði undir lánaskjölin ásamt
Lárusi.
Einungis einn stjórnarmannanna
fyrrverandi sem komu fyrir dóminn í
gær, Kristinn Þór Geirsson, kann-
aðist við að um lánin hefði verið rætt
á stjórnarfundi. Hann sagðist hafa
nefnt þessa tilhögun sjálfur í
tengslum við aðhaldsverkefni innan
bankans. Uppástungu Kristins er þó
ekki að finna í fundargerðum stjórn-
ar Glitnis frá þessum tíma, en stjórn-
armenn segja almennt að fundar-
gerðirnar hafi verið nokkuð
nákvæmlega skrásettar. „Kauprétt-
ir starfsmanna voru dýrir í bók-
færslulegum skilningi án þess að
hafa efnahagsleg áhrif á bankann að
öðru leyti,“ sagði Kristinn Þór, sem
sagðist hafa kynnt fyrir stjórninni að
hægt væri að útfæra umbun til
starfsmanna á annan hátt.
Ósamræmi í vitnisburði manna
Stjórnarmaðurinn Björn Ingi
Sveinsson virðist ekki muna þetta á
sama hátt og Kristinn. Hann gaf
símaskýrslu í gær og í svörum hans
kom fram að hann hefði verið „sjokk-
eraður“ þegar hann heyrði af lán-
veitingunum. Þeirri upplifun hafði
hann áður lýst í yfirheyrslum hjá
lögreglu. Jón Sigurðsson, sem var
forstjóri FL Group og varaformaður
stjórnar Glitnis á þessum tíma, man
ekki eftir því að lánatilhögunin hafi
verið rædd sérstaklega á fundum
stjórnar, né að stjórnarformaðurinn
Þorsteinn Már hafi fengið umboð
stjórnar til að skrifa undir lánaskjöl-
in. Hins vegar kannaðist hann við að
tilhögunin hefði komið upp í samtöl-
um sínum við Lárus Welding.
Vitnaleiðslur halda áfram í dag og
verður hægt að fylgjast með umfjöll-
un um málið á mbl.is
Stjórnarmenn
Glitnis báru
vitni í héraði
Vitnaleiðslur í aðalmeðferð í mark-
aðsmisnotkunarmáli Glitnis halda áfram
Morgunblaðið/Hari
Héraðsdómur Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri, er meðal ákærðu.