Morgunblaðið - 23.01.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
Jón Axel segir að reynt sé eftir því
sem tollkvótar leyfa að gera verð-
mæti úr próteininu með útflutningi á
skyri. Afganginn þurfi að flytja út í
formi iðnaðardufts á gildandi heims-
markaðsverði.
Sala á drykkjarmjólk dregst sam-
an eins og undanfarin ár. Sala á
rjóma minnkaði einnig og er það
breyting frá síðustu árum. Athygli
vekur að sala á skyri minnkaði í fyrra
en hafa ber í huga að mikil aukning
varð árið á undan. Sala á viðbiti og
osti jókst á milli ára. Lítil aukning í
ostasölu er skýrð með því að inn-
flutningur osta hefur verið að aukast.
á árinu stækki tollkvótar Evrópu-
sambandsríkja og í kjölfar þess megi
búast við auknum innflutningi osta til
landsins.
Gap milli efnisþátta eykst
Sala á fituríkari afurðum jókst
meira en á próteinríkum afurðum.
Er þetta sama þróun og verið hefur
undanfarin ár. Það þýðir að gapið á
milli fitu og próteins eykst enn.
Framleiðslan er stillt af miðað við
hærri efnisliðinn. Framleiðslan var 6
milljónir lítra umfram sölu á fitu á
innanlandsmarkaði en 19 milljónir
umfram próteinhlutann.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sala mjólkurafurða jókst um 2,5% á
nýliðnu ári. Er það mesta sala sem
sést hefur undanfarna áratugi en
mjög hefur þó dregið úr þeirri aukn-
ingu sem verið hefur á undanförnum
árum.
„Við vorum ekki að upplifa eins
góða söluaukningu og á árinu á und-
an sem var toppár. Sú aukning hefur
að einhverju leyti gengið til baka,“
segir Jón Axel Pétursson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs
Mjólkursamsölunnar.
Jón Axel telur að nærtækasta
skýringin sé innkoma verslunarris-
ans Costco á markaðinn hér. „Á með-
an hinir stórmarkaðirnir eru með allt
okkar vöruúrval, um 200 vörunúmer,
er Costco aðeins með 20 vörur og
leggur litla áherslu á mjólk. Það var
ákveðið æði þegar Costco kom. Nán-
ast öll þjóðin fór þangað til að kynna
sér hvað þar væri í boði. Það hafði
áhrif,“ segir Jón Axel.
Þá telur hann að rólegra hafi verið
yfir viðskiptum ferðamanna á síðasta
ári en var árið á undan. Þótt fleiri
ferðamenn hafi komið til landsins
virðist þeir hafa skilið minna eftir.
Svo hafi það áhrif að Íslendingar fari
mikið til útlanda. Allt hafi þetta áhrif
á matvörumarkaðinn og þar með sölu
á mjólkurvörum.
„Áætlanir okkar fyrir árið 2018
eru hóflegri en fyrir ári og meira í
takt við þróunina á árinu,“ segir Jón
Axel um framhaldið. Hann nefnir að
Slær á aukningu í
sölu mjólkurafurða
Minna borðað af skyri og minna drukkið af mjólk
150
140
130
120
110
100
2.000
1.500
1.000
500
0
tonn
2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
Viðbit Ostar Duft
Sala mjólkurafurða 2017 Skipting afurða 2017
Birgðir mjólkurvara
Framleiðsla og sala
Heimild: SAM
Sala eftir vöruflokkum (þúsundir lítra / tonn) 2015 2016 Breyting %
Mjólk og sýrðar vörur 42.045 42.019 -0,1
Rjómi og sýrður rjómi 2.918 2.842 -2,6
Skyrvörur 3.560 3.328 -6,5
Viðbit 2.296 2.385 3,9
Ostar 6.255 6.311 0,9
Duft 1.112 1.186 6,7
Innvegin mjólk Heildarsala umreiknuð í fitu
Heildarsala umreiknuð í prótein
Milljónir lítra
Mjólk og
sýrðar vörur,
72%
Rjómi og
sýrður
rjómi, 5%
Viðbit, 4%
Duft, 2%
Ostar, 11%
Skyr og
skyr drykkir,
6% Samtals
58.071
þúsundir lítra
og kílóa
391
1.815
585415
1,785
532
Ársbyrjun
Árslok
Thinkstockphotos
Afurðir Sala á smjöri og osti eykst hér en samdráttur er í drykkjarmjólk.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra kynnti formönnum stjórn-
málaflokkana tillögu að fyrir-
komulagi stjórnarskrárvinnu á
komandi kjörtímabili í gær. Tillaga
forsætisráðherra byggist á því að
núgildandi stjórnarskrá verði end-
urskoðuð í heild á þessu og næsta
kjörtímabili. „Markmiðið er að þeg-
ar þessari heildstæðu yfirferð verði
lokið endurspegli íslenska stjórnar-
skráin sem best sameiginleg grunn-
gildi þjóðarinnar og renni traustum
stoðum undir lýðræðislegt réttar-
ríki þar sem vernd mannréttinda er
tryggð,“ segir í tilkynningu frá for-
sætisráðuneytinu.
Breytingum áfangaskipt
Heildarendurskoðun stjórnar-
skrárinnar verður áfangaskipt og
munu allir flokkar sem sæti eiga á
Alþingi vinna sameiginlega að því
að fara heildstætt fyrir stjórnar-
skrána ásamt þeim tillögum sem
hafa komið fram á undanförnum
árum. Breytingartillögur verða síð-
an lagðar fyrir Alþingi hverju sinni
að undangengu víðtæku samráði. Í
tilkynningu frá ráðuneytinu segir
að sú vinna sem hefur farið fram á
undanförnum árum s.s við þjóð-
fund, stjórnlaganefnd og stjórn-
lagaráð auk starfa stjórnarskrár-
nefnda árin 2005-2007 og árin
2013-2016, sú mikla samfélagslega
umræða sem átt hefur sér stað, um-
ræða og nefndavinna á Alþingi,
verði höfð til hliðsjónar.
Í minnisblaði forsætisráðherra
sem sent var til formanna allra
flokka kemur fram að á fyrsta kjör-
tímabilinu, 2018 til 2021, verða tek-
in fyrir m.a. þjóðareign á náttúru-
auðlindum, umhverfis- og náttúru-
vernd, þjóðaratkvæðagreiðslur að
frumkvæði hluta kjósenda eða
minnihluta þings. Munu formenn
allra flokka sem sæti eiga á Alþingi
funda að minnsta kosti ársfjórð-
ungslega til að leggja stærstu línur
um framgang verkefnis. Forsætis-
ráðherra boðar fundina og stýrir
þeim.
Heildarendurskoð-
un stjórnarskrár
Tillögur forsætisráðherra um end-
urskoðun stjórnarskrárinnar kynntar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í forsvari Katrín Jakobsdóttir mun
stýra fundum um breytingarnar.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Kenneth Roth, framkvæmdastjóri
Human Rights Watch, hrósaði Ís-
landi sérstaklega á blaðamannafundi
í París í liðinni viku, og sagði að
vegna þrýstings frá Íslandi, í gegn-
um Mannréttindaráð Sameinuðu
þjóðanna í Genf í Sviss, hefði forseti
Filippseyja, Rodrigo Duterte, haldið
aftur af lögreglu sinni, sem þekkt er
fyrir að bera litla virðingu fyrir
mannslífum. Í frétt AFP-fréttaveit-
unnar er haft eftir Roth að andstaða
almennings á Filippseyjum við mis-
kunnarlausa drápsherferð Duterte
gegn fíkniefnasölum sé farin að hafa
áhrif á forsetann.
Guðlaugur Þór
Þórðarson utan-
ríkisráðherra
sagði í samtali við
Morgunblaðið í
gær að hann
gleddist yfir þess-
ari frétt AFP.
„Það er ánægju-
legt að tekið sé
eftir því sem við
höfum verið að
gera og að við náum að hafa áhrif
sem þessi. Ég er fyrsti íslenski utan-
ríkisráðherrann sem ávarpar Mann-
réttindaráð Sameinuðu þjóðanna og
ég ræddi sérstaklega um mannrétt-
indabrotin á Filippseyjum og gífur-
legan fjölda morða filippseysku lög-
reglunnar,“ sagði utanríkisráðherra.
Hann segir að íslenska fasta-
nefndin hafi svo fylgt eftir ávarpi
hans og fyrir frumkvæði hennar hafi
ályktun um Filippseyjar og mann-
réttindabrotin þar verið samþykkt í
Mannréttindaráði Sameinuðu þjóð-
anna. „Það er væntanlega það sem
Roth, framkvæmdastjóri Human
Rights Watch, var að vísa til á blaða-
mannafundinum,“ sagði Guðlaugur
Þór. Ráðherrann segist alls staðar
þar sem hann kemur tala um mann-
réttindamál, þar sem uppi er mál-
efnaleg gagnrýni á viðkomandi
stjórnvöld vegna mannréttinda-
brota. „Við munum beita okkur
áfram með þessum hætti,“ sagði
Guðlaugur Þór.
Ísland hafi haft áhrif á Duterte
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segist nota hvert tilefni til þess að ræða mannréttindi
Það hafi hann gert þegar hann ávarpaði Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í Genf í Sviss
AFP
Höfuðstöðvar Mannréttindaráð SÞ er með höfuðstöðvar sínar í Genf.
Guðlaugur Þór
Þórðarson