Morgunblaðið - 23.01.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
Félaga atvinnurekenda ermyndarlegt nafn, á merkum
félagsskap, en nafnið er ekki endi-
lega nákvæmt.
Og þar sem skrif-stofumenn
þessa góða félags
senda frá sér fleiri
umvöndunarbréf til
hinna og þessara
aðila, ekki síst til
þeirra sem halda að
þeir séu yfirvöldin í
landinu, og send-
ingarnar eru flestar með ögn
meira af yfirlæti en tíðkast al-
mennt, þá er því iðulega ruglað
saman við Samtök atvinnulífsins.
Þau samtök komast þó ekki meðtærnar þar sem litla félagið
með stóra nafnið hefur hælana.
Nú síðast fékk sjávarútvegs-ráðherrann skammarbréf
fyrir að hafa svikið loforð, sem
tekið var fram að hann hefði ekki
gefið, um að eiga „samtal við þjóð-
ina.“
Til skýringar er rétt að takafram að þegar þjóðin er nefnd
í þessu sambandi er gengið út frá
því að ráðherrann viti að þá er átt
við samtal við yfirmann skrifstofu
Félags atvinnurekenda sjálfan.
Þjóðin, í gömlu úreltu merking-
unni, hefur ekki gert neinar at-
hugasemdir við þessi svik ráð-
herrans á loforði sem hann gaf
ekki, heldur hinn hluti þjóðar-
innar, sjálfur formaður Viðreisnar,
sem hljóp út úr ríkisstjórn nýlega,
án samráðs við gömlu úreltu þjóð-
ina.
Hvernig stendur á því að sam-tök Evrópuríkja, skipuð San
Marínó og Andorra, senda ekki frá
sér fleiri höstug umburðarbréf,
eins og ástandið er á meginland-
inu? Standa þau ekki í stykkinu?
Ólafur
Stephensen
Sveik loforð hins
STAKSTEINAR
Biskup Íslands
hefur auglýst
laus til umsókn-
ar tvö embætti
sóknarpresta.
Um er að
ræða Staða-
staðarpresta-
kall í Vestur-
landsprófasts-
dæmi og
Patreksfjarðarprestakall í Vest-
fjarðaprófastsdæmi.
Kjörnefnd prestakalls kýs prest
úr hópi umsækjenda, að loknu val-
ferli kjörnefndar, samanber starfs-
reglur um val og veitingu prests-
embætta. Skipað verður í embættin
frá 1. mars nk. til fimm ára. Um-
sóknarfrestur um embættin tvö er
til 19. febrúar nk.
Sóknarpresturinn á Patreksfirði,
sr. Leifur Ragnar Jónsson, sagði
embættinu lausu í fyrra. Hann er nú
settur sóknarprestur við Guðríðar-
kirkju í Grafarholti.
Fráfarandi sóknarprestur á
Staðastað á Snæfellsnesi, sr. Páll
Ágúst Ólafsson, var í fyrra færður í
embætti héraðsprests í Vestur-
landsprófastsdæmi. sisi@mbl.is
Tvö prests-
embætti
auglýst
Patreksfjörður og
Staðastaður laus
Patreksfjarðarkirkja.
Veður víða um heim 22.1., kl. 18.00
Reykjavík 2 snjókoma
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri 0 skýjað
Nuuk -3 skýjað
Þórshöfn 3 léttskýjað
Ósló -2 skýjað
Kaupmannahöfn 0 skúrir
Stokkhólmur -5 alskýjað
Helsinki -8 snjókoma
Lúxemborg 5 skýjað
Brussel 8 léttskýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 7 skúrir
London 9 alskýjað
París 10 skýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 1 þoka
Berlín 1 snjókoma
Vín 0 snjókoma
Moskva -11 snjókoma
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 18 heiðskírt
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 12 heiðskírt
Aþena 9 léttskýjað
Winnipeg -6 alskýjað
Montreal -6 snjókoma
New York 7 þoka
Chicago 10 rigning
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:35 16:46
ÍSAFJÖRÐUR 11:01 16:29
SIGLUFJÖRÐUR 10:45 16:11
DJÚPIVOGUR 10:09 16:10
Miðflokkurinn sendir frá sér frétta-
tilkynningu í gær til að ítreka þá af-
stöðu flokksins að nýr Landspítali
skuli rísa annars staðar en við Hring-
braut. „Ítrekað hefur komið fram
ranglega í máli ráðherra, þingmanna
ríkisstjórnarinnar og fjölmiðlamanna
að allir stjórnmálaflokkar á Alþingi
séu fylgjandi því að Nýr Landspítali
skuli byggður upp við Hringbraut.
Þessari rangfærslu til stuðnings er
gjarnan vísað til þingsályktunar sem
samþykkt var rétt fyrir þinglok 2014.
Upphaflega tillagan sem lögð var
fram sagði að ríkisstjórn skyldi falið
að ljúka svo fljótt sem verða mætti
undirbúningi byggingar Nýs Land-
spítala við Hringbraut í Reykjavík og
hefja byggingu hans.
Um þessa tillögu var engin sam-
staða á Alþingi og var hún raunar
notuð til að taka þingstörf í gíslingu
við þinglok. Meðal þeirra sem stóðu
algerlega gegn þessari tillögu um
byggingu Nýs Landspítala við
Hringbraut var þáverandi forsætis-
ráðherra og núverandi formaður
Miðflokksins Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson. Til málamiðlunar og
til að liðka fyrir þinglokum var tillög-
unni breytt á þann veg að ríkisstjórn
var falið að ljúka undirbúningi á end-
urnýjun og uppbyggingu Landspít-
ala við Hringbraut, en hvergi var þar
talað um að Nýr Landspítali skyldi
byggður við Hringbraut.
Það er því alrangt að þessi tillaga
geti talist einhvers konar samhljóða
álit stjórnmálaflokka um framtíðar-
staðsetningu Nýs Landspítala. Þvert
á móti var engin samstaða um það,“
segir í tilkynningunni og lögð áhersla
á að Miðflokkurinn hafi ekki verið að-
ili að samþykkt umræddar tillögu.
Afstaða flokksins er ítrekuð; að það
séu alvarleg og afdrifarík mistök til
framtíðar að byggja Nýjan Landspít-
ala við Hringbraut.
Ekki sammála um staðsetninguna
Miðflokkurinn telur afdrifarík mistök að byggja nýjan spítala við Hringbraut