Morgunblaðið - 23.01.2018, Qupperneq 13
Ljósmynd/Getty Images
Bíó og popp Hvað sem öllum tækniframförum líður í kvikmyndagerð munu áhorfendur seint hætta að fá sér popp í bíó.
svart-hvítar myndir aðeins gerðar í
sérstökum listrænum tilgangi.
3. TEIKNIMYNDIN
Það voru dagblaðateiknarar
sem uppgötvuðu að þeir gátu látið
myndir sínar hreyfast með því að
ljósmynda eina teikningu í einu og
sýna þær síðan á hraðanum 24
rammar á mínútu. Árið 1906 filmaði
þannig Bandaríkjamaðurinn J. Stu-
art Blackton krítarteikningar á
töflu. Sama ár gerði danski skop-
myndateiknarinn Storm P. svipaða
tilraun en stuttmynd hans er glötuð.
Fyrstu langmyndina með þessari
tækni gerði þýska kvikmyndagerð-
arkonan Lotte Reiniger tveimur
áratugum síðar en þar filmaði hún
skuggamyndir úr pappa ramma fyr-
ir ramma. Straumhvörf urðu þegar
Walt Disney frumsýndi Mjallhvít og
dvergana sjö árið 1937 en þar naut
teiknimyndin sín í öllum regnbogans
litum.
4. HLJÓÐMYNDIN
Í þrjá ára-
tugi þurftu
kvikmynda-
gerðarmenn að
miðla samtölum
leikara með
millitextum og
ýktu látbragði.
Samstillt mynd
og hljóðrás var
tækni sem
Bandaríkja-
menn fullkomn-
uðu og eftir að
hún var notuð
með góðum árangri í Jazzsöngvar-
anum árið 1927 og stuttri teikni-
mynd með Mikka mús ári síðar varð
ekki aftur snúið. Talmyndin tók yfir
hvítu tjöldin. En þróun tækninnar
var tímafrek og kostaði sitt. Leik-
arar með skrækar, óþjálar raddir
eða sterkan erlendan hreim misstu
stöðu sína í Hollywood. Fyrst í stað
þurfti að fela hljóðnema í blómapott-
um og lampaskermum og það olli
skrýtnum hreyfingum og stöðum
leikaranna. Með þráðlausum sendi-
hljóðnemum og eftirvinnslutækni
eru slík vandamál fyrir bí.
5. BREIÐTJALDIÐ
Allt fram til ársins 1953 voru
flestar langmyndir teknar og sýndar
í hlutföllunum 1:375. Þegar sjón-
varpið hélt innreið sína og bauð upp
á svipað kassaform neyddust kvik-
myndaframleiðendur til að laða
áhorfendur út af heimilunum með
nýrri breiðtjaldstækni á borð við
CinemaScope sem víkkaði sjóndeild-
arhring áhorfenda til muna. Fyrst í
stað var þessi tækni mest notuð við
gerð epískra stórmynda á borð við
Ben Hur og Kleopötru en síðan yfir-
tók hún töku- og sýningarformat
kvikmyndaframleiðslu almennt.
Framþróun hennar hefur haldið
áfram með ýmsum hætti, eins og
IMAX og OMNIMAX-tækninni, þar
sem kvikmyndin umlykur áhorfand-
ann.
6. ÞRÍVÍDDIN
Annað tilbrigði við töku- og sýn-
ingaraðferð sem ætlað var að um-
vefja áhorfandann og soga hann inn í
myndina er þrívíddartæknin en með
henni gátu bíómyndirnar einnig boð-
ið upp á upplifun sem sjónvarpið gat
ekki. Hún felur í sér sjónhverfingu
sem gerir tvær myndir að einni og
veitir myndfletinum aukna dýpt
gegnum svokölluð þrívíddargler-
augu Þessi tækni átti dálitlu gengi
að fagna á 7. áratugnum, ekki síst í
hrollvekjum af ýmsu tagi, en náði
ekki fótfestu. Hún var svo endur-
vakin þegar stafræn tölvuvinnsla
kvikmynda fór að blómstra í stór-
myndum á borð við Avatar (2009).
Martin Scorsese lék sér með hana í
Hugo (2011) þar sem hann m.a. end-
urgerði Eimreið kemur á brautar-
pall í þrívídd.
7. HAND-TÖKUVÉLARNAR
Kvik-
myndatöku-
vélar voru
lengst af níð-
þungir hlunk-
ar á þrífótum
sem leggja
þurfti teina-
brautir fyrir
svo að unnt
væri að hreyfa
þær frá einum
stað til ann-
ars. Snemma
á 7. áratugnum komu fram léttar 16
mm vélar sem gátu tekið upp mynd
og hljóð á vettvangi með litlum
mannskap og bæði lækkaði það
framleiðslukostnað og skapaði nýja
möguleika í greininni. Frönsku ný-
bylgjuleikstjórarnir, heimildar-
myndaleikstjórar og sjálfstæðir
frumkvöðlar eins og John Cassave-
tes tóku þessum vélum fegins hendi.
Meðfærilegar og ódýrar stafrænar
tökuvélar sem fara vel í lófa hafa síð-
an bylt kvikmyndagerðinni og gert
mun fleirum tækifæri til að stunda
hana en áður var. Dogma-myndirnar
dönsku notuðu tæknina með áhrifa-
ríkum hætti, ekki síst í Veislunni
(1998).
8. TÖLVUTEIKNITÆKNIN
Bandaríska framtíðar-
myndin Futureworld varð árið
1976 einna fyrst til að blanda
saman venjulegu myndefni
og tölvuhönnuðu. Síðan
komu myndir eins og
Tron, The Abyss og
Tortímandinn 2. Vendi-
punktar þessarar kvik-
myndagerðar voru Júra-
garðurinn (1993) sem vakti
risaeðlur til lífsins og hin
frábæra tölvuteiknimynd
Toy Story (1996) sem
skapaði allan myndheim
sinn í tölvu. Tölvuteikning hefur nú
að mestu tekið við af handteikningu í
gerð slíkra mynda sem reynst hefur
afar arðvænleg og vinsæl.
9. STAFRÆNA RÆMAN
Í Star Wars Episode II (2002)
ruddi George Lucas brautina fyrir
kvikmyndir sem alfarið voru teknar
á stafrænt háskerpumyndband. Þar
komust framleiðendur og leikstjórar
í sæluríki tæknibrellnanna sem síð-
an hafa tröllriðið kvikmyndunum,
svo mjög að mörgum þykir sem saga
og persónusköpun hafi orðið þeim að
bráð. Öll eftirvinnsla er mun auð-
veldari, þótt hún sé ekki beinlínis
ódýr eða hraðvirk, og í raun geta
höfundarnir búið til og sýnt allt sem
þeim dettur í hug í tölvunum. Jafn-
framt hefur stafræna tæknin enn
aukið meðfærileika við tökur og hafa
jafnvel heilu bíómyndirnar verið
teknar á snjallsíma. Stafræn sýning-
artækni hefur einnig tekið yfir í bíó-
um víða um heim, sem hefur einfald-
að dreifingu og gert sendingar
þungra filmukassa milli landa óþarf-
ar. Árið 2011 varð Noregur fyrstur
landa í heiminum til að innleiða staf-
ræna sýningartækni í öllum kvik-
myndahúsum sínum.
10. HREYFILEIKURINN
Tækni sem skráir hreyfingar og
tjáningu lifandi leikara með stafræn-
um hætti og yfirfærir þær svo á
teiknaðan sýndarveruleika var fyrst
notuð við gerð tölvuleikja.
Hún nemur þannig burt
mörkin á milli leikarans
og teiknipersónunnar.
Þessi tækni, sem kallast
á ensku „Motion Capture“
eða „MoCap“, komst með
eftirminnilegum hætti inn
í gerð leikinna bíómynda
með Hringadróttinssögu
(2002) þar sem leikarinn
Andy Serkis og tölvu-
teiknarar sköpuðu sam-
an persónuna Gollum.
1927 Vel tókst að
samstilla mynd og
hljóðrás í Jazzsöng-
varanum frá 1927.
2009 Margir nutu þrívíddarmynd-
arinnar Avatar frá 2009 betur en
ella með þrívíddargleraugum.
1937 Rúmlega áttatíu ár eru síðan
Walt Disney frumsýndi teiknimynd-
ina Mjallhvít og dvergana sjö.
1998 Danska myndin
Festen var tekin með
hand-tökuvél.
2002 Stjörnustríðsmyndin Árás
klónanna var tekin á stafrænt há-
skerpumyndband.
2002 Leikari og
tölvuteiknarar sköp-
uðu saman persónuna
Gollum í Hringadrótt-
inssögu.
1996 Í Toy Story var blandað
saman venjulegu myndefni og
tölvuhönnuðu.
1959 Ben Hur frá 1959 var sýnd í
Cinema Scope, sem Bandaríkja-
menn hófu að þróa upp úr 1953.
Ljósmynd/Getty Images
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og velíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR