Morgunblaðið - 23.01.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Það er mat Vegagerðarinnar að það
taki 5-7 ár að breikka Vesturlands-
veg á Kjalarnesi. Alls er óvíst hve-
nær þetta verk getur hafist. Tals-
verð vinna er eftir við undirbúning
verksins og ekki er búið að tryggja
fé til þess á fjárlögum.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hefur myndast mikill þrýstingur
á stjórnvöld að grípa til aðgerða.
Sveitarstjórnir hafa ályktað í þá
veru. Facebook-hópurinn Til örygg-
is á Kjalarnesi hefur verið stofnaður
og loks hafa nokkur þúsund manns
skrifað undir áskorun til stjórn-
valda.
Fyrsta skrefið varðandi breikkun
Vesturlandsvegar á Kjalarnesi er að
gera deiliskipulag fyrir svæðið. Sú
vinna er langt komin og er gert ráð
fyrir að deiliskipulagstillaga verði
auglýst í febrúar að sögn Jóns Hall-
dórs Jónassonar, upplýsingafulltrúa
hjá Reykjavíkurborg.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar
og Vegagerðarinnar hafa unnið að
tillögunni ásamt ráðgjöfum frá Eflu
verkfræðistofu og Landslagi lands-
lagsarkitektum. Eftir er að fara yfir
nokkur atriði og eiga frekara sam-
ráð áður en tillagan verður auglýst.
Lýsing á deiliskipulagstillögunni
var kynnt á vef Reykjavíkurborgar í
fyrrasumar. Þar var gert ráð fyrir
að tillagan yrði kynnt og auglýst í
nóvember 2017. Það tókst ekki.
Reikna má með að u.þ.b. fimm mán-
uðir líðir frá því tillaga er auglýst
þar til hún öðlast gildi.
Samþykkt deiliskipulags, sem
nær til 14 kílómetra kafla, er for-
senda þess að hægt verði að ráðast í
tvöföldun Vesturlandsvegar. Gróf
kostnaðaráætlun fyrir breikkun
hringvegar á Kjalarnesi, þ.e. á 10
kílómetra kafla frá Kollafirði að
Hvalfjarðargöngum, er um 2.600
milljónir króna, samkvæmt upplýs-
ingum G. Péturs Matthíassonar upp-
lýsingafulltrúa Vegagerðarinnar. Í
þessari áætlun er miðað við 1.
áfanga, 2+1-veg. Síðar meir er
áformað að breikka Vesturlandsveg
í 2+2-veg.
Meginverkefnið, að breikka veg-
inn á Kjalarnesi í áföngum, fer vænt-
anlega í hönnun í sumar, að sögn G.
Péturs Matthíassonar. Fyrstu
áfangar verksins gætu farið í útboð
vorið 2019. Framkvæmdahraði
ræðst síðan af fjárveitingum.
„Líklegt er að verkið verði boðið
út í 3-4 km köflum og að það taki um
tvö ár að vinna hvern kafla. Kafl-
arnir verða þá þrír. Að ljúka 2+1
vegi frá Esjubergi/Móum að Hval-
fjarðarvegi tæki þannig 5-7 ár,“ seg-
ir G. Pétur.
Í fjárlögum ársins 2018 er hins
vegar 200 milljóna króna fjárveiting
til að gera hringtorg á Vesturlands-
vegi, nánar tiltekið á Esjumelum.
Hringtorgið er nú í verkhönnun.
Stefnt er að útboði í apríllok eða
byrjun maí, að sögn G. Péturs. Hann
segir að ákvörðun um útboð verði
endanlega tekin í samráði við
Reykjavíkurborg. Esjumelar eru
eignarland Reykjavíkurborgar. Þar
hefur verið að byggjast upp nýtt at-
hafnasvæði sem búist er við að eflist
og dafni á næstu árum. Því er talin
nauðsyn á öruggri vegtengingu Esj-
umela við Vesturlandsveginn.
Á athafnasvæðinu á Esjumelum
er almennt gert ráð fyrir atvinnu-
starfsemi þar sem lítil hætta er á
mengun svo sem léttum iðnaði,
hreinlegum verkstæðum, bílasölum,
umboðs- og heildverslunum. Einnig
atvinnustarfsemi sem þarfnast mik-
ils rýmis, meðal annars vinnusvæðis
utandyra á lóðum eða starfsemi sem
hefur í för með sér þungaflutninga,
svo sem vörugeymslur og matvæla-
iðnaður. Íbúðir, hótel og gististaðir
eru ekki heimil á athafnasvæði Esj-
umela.
Breikkun vegarins tekur 5-7 ár
Þrýstingur á breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi Deiliskipulag auglýst á þessu ári og byrj-
að á hönnun vegarins Vegakaflar boðnir út í áföngum Gróf kostnaðaráætlun 2.600 milljónir
Mynd/Vegagerðin
Hringtorg á Esjumelum Torgið er í hönnun. Það mun tengjast nýju at-
hafnasvæði við Vesturlandsveg. Vegurinn niður að sjó er Álfsnesvegur.
Morgunblaðið/Ómar
Á Kjalarnesi Umferðin um Vesturlandsveg hefur vaxið hröðum skrefum á
undanförnum árum. Þrýst hefur verið á stjórnvöld að hraða endurbótum.
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Breikkun
Vesturlandsvegar
Mosfellsbær
Grundarhverfi
Hv
alf
jar
ðar
veg
ur
K
JA
LA
R
N
ES
Kollafjörður
Hvalfjörður
Deiliskipulag fyrir
breikkun Vestur-
landsvegar nær frá
sveit ar fé lags mörk um
við Mos fells bæ að
Hval fjarðargöng um.
Um 14 km kafli.
Opinn fundur um samgöngumál á
Vesturlandi verður haldinn á
morgun, miðvikudaginn 24. jan-
úar, kl. 18.00 til 20.00 í Tónbergi,
sal Tónlistarskólans á Akranesi.
Meðal gesta á fundinum verður
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
göngu- og sveitarstjórnarráð-
herra og flytur hann ávarp. Aðrir
sem flytja ávarp eru Eyjólfur
Árni Rafnsson, formaður starfs-
hóps um möguleika á fram-
kvæmdum á stofnleiðum í ná-
grenni Reykjavíkur og fjár-
mögnun þeirra, Geirlaug
Jóhannsdóttir, sveitarstjórnar-
fulltrúi í Borgarbyggð, og Krist-
inn Jónasson, bæjarstjóri í Snæ-
fellsbæ. Fundarstjóri verður Páll
S. Brynjarsson.
Ráðherra á opnum fundi á Akranesi
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Kíktu á útsöluverðið!
Rennilás að framan
Loðfóðraður, Vatnsheldur
Grófur stamur sóli
onica kuldaskór
Útsöluverð
4.798
ð áður 11.995
ærðir 37-41t