Morgunblaðið - 23.01.2018, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
✝ Erla Vilhjálms-dóttir fæddist í
Reykjavík 23. mars
1958. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 11. janúar
2018.
Foreldrar henn-
ar eru Margrét
Sigurðardóttir
skrifstofukona, f.
20. ágúst 1932, og
Vilhjálmur Pálmason vélstjóri,
f. 6. desember 1927, d. 4. mars
1986. Foreldrar Margrétar
voru Sigurður Jónsson, f. 11.
febrúar 1902, d. 7. október
1976, og Sigríður Daníelsdóttir,
f. 24. nóvember 1903, d. 9. apr-
íl 1996. Foreldrar Vilhjálms
voru Pálmi Vilhjálmsson, f. 13.
desember 1896, d. 23. desem-
ber 1960, og Jórunn Guð-
mundsdóttir, f. 21. nóvember
1903, d. 4. nóvember 1993.
Systkini Erlu eru: Auður inn-
anhússarkitekt, f. 20. júní 1954,
egi. 2) Dagmar, flugfreyja, f. 8.
ágúst 1990, sambýlismaður
hennar er Guðmundur J. Arn-
grímsson, f. 5. ágúst 1992, en
hann starfar hjá Vodafone,
sonur þeirra er Magni Aron, f.
9. júní 2017.
Erla tók virkan þátt í ýms-
um félagsstörfum og má þar
nefna m.a. á vettvangi íþrótta-
félagsins Vals og einnig tók
hún þátt í kórastarfi og var
m.a. í Pólýfónkórnum. Þá var
hún félagi í Oddfellowreglunni.
Á námsárum sínum tók Erla
þátt í trúnaðarstörfum á vett-
vangi iðnnema.
Erla útskrifaðist með próf í
hárgreiðslu frá Iðnskólanum í
Reykjavík í maí 1978 og öðl-
aðist síðar meistararéttindi í
hársnyrtiiðn. Erla starfaði við
þá iðn, lengst af hjá hár-
greiðslustofunni Kristu, eða
allt til ársins 2000, en þá skipti
hún um starfsvettvang og hóf
vinnu fyrst hjá Kreditkortum
og síðar hjá Valitor. Hjá Vali-
tor starfaði hún eins og heilsan
leyfði, eða fram á sumarmán-
uði 2017.
Útför Erlu fer fram frá Hall-
grímskirkju í dag, 23. janúar
2018, og hefst athöfnin klukk-
an 13.
d. 28. nóvember
2002, maki Sig-
urður Einarsson;
Pálmi fram-
kvæmdastjóri, f.
11. desember 1959,
maki Áslaug Ívars-
dóttir; og Sigríður,
vinnur við skrif-
stofustörf, f. 21.
september 1966,
maki Jóhann H.
Bjarnason.
Árið 1978 hóf Erla sambúð
með Magna Blöndal Péturssyni,
f. 19. mars 1957, nú starfs-
manni hjá Lyfjum og heilsu, en
þau giftust 16. júlí 1988. For-
eldrar Magna eru Fríða K.
Gísladóttir, f. 26.7. 1934, og
Pétur Blöndal Snæbjörnsson, f.
16. febrúar 1925, d. 20. desem-
ber 1995. Börn Erlu og Magna
eru: 1) Pétur Blöndal arkitekt,
f. 19. ágúst 1985, sambýliskona
hans er Helene F. Hanøy, f. 19.
september 1987, lögfræðingur,
þau eru búsett í Bergen í Nor-
Elsku yndislega Erla systir
mín!
Nú ertu farin frá mér og ég
veit ekki hvernig ég á að kom-
ast í gegnum allt án þín.
Við vorum eitt, ég og þú.
Það er mér óendanlega sárt
að þurfa að kveðja þig þó svo
að við höfum vitað í hvað
stefndi. Ekki bara það að
kveðja þig nú heldur þurftum
við að horfa á eftir Auði systur
fyrir 15 árum úr sama sjúk-
dómi og þú hefur glímt við síð-
ustu níu ár.
Þú varst yndisleg á allan
hátt, varst svo blíð, traust,
hjartahlý og umhyggjusöm,
máttir ekkert aumt sjá, varst
alltaf jákvæð, alltaf glöð og kát
og laðaðir að þér fólk og öllum
þótti vænt um þig. Þú varst
mikil félagsvera og mikill
mannþekkjari og gast lesið
fólk auðveldlega, mannglögg
með eindæmum og ættrækin.
Þú varst viðkvæmt blóm, hrif-
næm, mikill húmoristi og
ófeimin, vildir helst tala við
alla sem þú þekktir eða kann-
aðist við og á stundum þar sem
litlu systir fannst nóg um, oh,
þarf hún alltaf að tala við alla?
Stundum gastu verið bein-
skeytt og lást ekki á skoðunum
þínum.
Nú ertu engill á himnum
sem passar okkur hin en þú
varst samt alltaf engill, bara
engill í mannsmynd, varst mér
og mínum alltaf svo góð og
vildir allt fyrir okkur gera.
Við deildum sama áhuga-
máli, að borða góðan mat, elda
góðan mat og tala um góðan
mat, við sögðum oft að lífið
væri of stutt fyrir vondan mat.
Þú varst fantagóður kokkur og
kenndir mér svo margt.
Þú elskaðir að ferðast og
átti Ítalía stórt pláss í þínu
hjarta. Þú elskaðir Ítalíu og er
ég svo þakklát fyrir að við Jói
áttum yndislegan tíma með þér
og fjölskyldunni í september
síðastliðnum í Toskana. Við
áttum að fara í þá ferð, okkur
var ætlað það.
Einnig átti Noregur líka
stórt pláss í þínu hjarta þar
sem þú bjóst i um tíma og þar
sem elsku Pétur þinn býr nú
og í kaupbæti fékkstu yndis-
lega norska tengdadóttur,
hana Helene.
Síðustu mánuðir hafa verið
okkur öllum erfiðir en sérstak-
lega þó fyrir elsku Magna,
Dagmar og Pétur sem hafa
staðið við hlið þér í gegnum
öllum veikindin. Litli sólar-
geislinn okkar allra hann
Magni Aron hjálpar okkur í
gegnum sorgina. Ég skal vera
amma hans.
Nú sér elsku mamma á eftir
annarri dóttur sinni í Sumar-
landið eftir að hafa séð á eftir
pabba fyrir rúmum 30 árum.
Ég á eftir að sakna þess að
sjá þig brosa, hlæja, gráta, fífl-
ast, dansa, syngja. Sakna þess
að koma á hárgreiðslustofuna
þína Smart og Lekkert eins og
við kölluðum hana, sakna þess
að borða góðan mat með þér
og ferðast með þér. Það var
alltaf svo gott að koma í Græn-
umýrina.
Elsku Erla mín, ég á eftir að
sakna þín um alla eilífð, alltaf,
pabbi og Auður systir hafa nú
tekið á móti þér og hafa sjálf-
sagt verið fagnaðarfundir.
Ég skal passa alla, Magna,
Pétur, Helene, Dagmar,
Gumma, Magna Aron og
mömmu eins og þú varst búin
að biðja mig um og þú passar
okkur öll líka.
Elska þig og sakna þín um
alla eilífð.
Þín litla systir Sigga.
Sigríður Vilhjálmsdóttir.
Það eru þung spor að ganga
til þess að skrifa kveðjuorð um
systur og vin sem fellur frá í
blóma lífsins, langt fyrir aldur
fram. Þrátt fyrir hina miklu
sorg sem því fylgdi mætti Erla
örlögum sínum af miklu æðru-
leysi. Í orðum sínum þakkaði
hún fyrir líf sitt sem hún fékk,
fjölskyldu sína og þann tíma
sem hún fékk með henni. Hún
sagðist hafa átt gott líf og var
þakklát fyrir það.
Erla systir mín hafði ein-
staklega góða nærveru, ríka og
næma kímnigáfu og mikla
hæfileika til að leika atburði
líðandi stundar. Hún var vina-
mörg, réttsýn og lífsglöð kona.
Á stundu sem þessari flæða
minningarnar fram – um allt
og allt. Lífshlaupið rifjast upp
og myndgerist í huga manns.
Gleðistundirnar úr æsku og frá
unglingsárum í Sæviðarsundi,
þar sem æskuheimili okkar
var, rísa hæst og þau minn-
ingabrot mun ég varðveita vel
og koma áfram til okkar af-
komenda.
Að leika upp æskunnar ævintýr
með áranna reynslu sem var svo
dýr,
er lífið í ódáins-líki.
Ég gref allt hið liðna í gleðinnar
skaut,
ég gjöri mér veginn að rósabraut
og heiminn að himnaríki.
(Einar Benediktsson)
Sterkustu böndin sem
tengja okkur sama eru tilfinn-
ingar okkar sem gefa af sér
umhyggju fyrir hvort öðru, en
það kemur alltaf skýrast í ljós
við aðstæður sem þessar. Við
fráfall Auðar systur okkar,
sem lést árið 2002 aðeins 48
ára gömul, má segja að Erla
hafi gengið dóttur Auðar, Mar-
gréti Dögg, í móðurstað. Það
mynduðust sterk bönd á milli
þeirra, og Erlu var umhugað
um velferð Daggar og sonar
hennar, Darra Más.
Það sama kemur upp þegar
Erla fer í gegnum sín erfiðu
veikindi, að Sigga systir mín
og Margrét Dögg systurdóttir
sýna henni mikla ástúð og
stuðning allt fram á síðustu
stundu – það var Erlu mikils
virði. Jafnframt hafa þær gætt
vel að aldraðri móður okkar
Margréti á þessum erfiðu tím-
um, þegar sorgin knýr aftur að
dyrum hjá henni við það mikla
áfall að sjá á eftir öðru barni
sínu.
Í niðurlagi kvæðis Jóhanns
Sigurjónssonar – Sofðu unga
ástin mín – segir; „að menn-
irnir elska, missa, gráta og
sakna“. Þetta er svo rökrétt
lýsing á atburðarás lífsins og
stöðu okkar nú, við misstum
það sem við elskuðum og við
grátum það nú. Í söknuði okk-
ar munum við minnast lífs-
glaðrar konu sem féll frá langt
fyrir aldur fram í blóma lífsins,
en um hana munum við eiga og
varðveita minningar um fal-
lega brosið hennar, smitandi
hláturinn og allar góðu stund-
irnar sem við áttum saman.
Guð varðveiti minningu
hennar.
Kæri Magni og fjölskylda og
mamma, megi Guð gefa ykkur
styrk í ykkar miklu sorg.
Pálmi Vilhjálmsson.
Það eru allt of margar nei-
kvæðar tilfinningar sem við
finnum fyrir núna eins og sorg,
söknuður, reiði, tómleiki,
ósanngirni, vonleysi og
hræðsla. Það er ómögulegt að
hugsa sér lífið án þín og tíminn
mun því miður ekki lækna
þetta stóra sár sem hefur
myndast í hjörtum okkar en
það mun koma gróandi í það
með tímanum og mynda ör
sem við munum læra að lifa
með. Við erum með annað
stórt ör í hjartanu sem mynd-
aðist eftir að Auður systir þín,
mamma mín og amma hans
Darra fór frá okkur. Það er
erfitt að vera ungur og missa
mömmu sína en þú áttir svo
óendanlegan stóran þátt í að
sárið sem myndaðist þá náði að
gróa að hluta. Það er ómet-
anlegt hvað þú hjálpaðir okkur
mikið að takast á við þetta
áfall með skilyrðislausri ást
þinni og móðurlegri umhyggju
og erum við þér ævinlega
þakklát fyrir það. Þú varst svo
miklu meira en móðursystir og
ömmusystir í okkar huga og ég
veit að þú leist á mig sem dótt-
ur þína og Darra sem barna-
barn. Ég get ekki lýst því hvað
mér þótti vænt um það og
hvernig þú tókst okkur Darra
að þér eftir að mamma mín dó.
Ég er svo þakklát fyrir alla
þá ást og umhyggju sem þú
sýndir okkur og þakklát fyrir
að vera hluti af lífi þínu. Ég er
svo þakklát fyrir að þú hafir
fengið að upplifa það að verða
amma þegar litli ljósgeislinn
þinn hann Magni Aron fædd-
ist. Ég er svo þakklát fyrir að
þú náðir að vera með okkur á
jólunum. Ég er svo þakklát
fyrir að þú fékkst að fara til
Ítalíu núna í haust, sem var
staður sem var þér mjög kær.
Ég er svo þakklát fyrir að
Magni fékk að eiga þig sem
eiginkonu, þakklát fyrir að
Pétur og Dagmar áttu þig sem
móður og þakklát fyrir að
Magni Aron átti þig sem
ömmu. Ég líka svo þakklát fyr-
ir þig, þakklát að eiga þig að,
þakklát fyrir allar góðu stund-
irnar sem við áttum saman og
þakklát fyrir allar minningarn-
ar sem ég á um þig.
Þú varst einstök manneskja,
vinamörg og öllum leið vel í
kringum þig. Þú varst mikill
húmoristi alveg fram á síðasta
dag og tókst á við veikindi þín
af æðruleysi og hugrekki. Þú
misstir aldrei trúna á lífið né
vonina um að þú fengir meiri
tíma með okkur. Ég er svo
stolt af þér og stolt að hafa
þekkt þig enda alveg einstakt
samband sem við áttum. Þú
varst falleg manneskja, ekki
bara að utan heldur að innan
líka og þú varst svo hlý og góð.
Ég á eftir að sakna þess að
geta ekki tekið upp símann og
hringt í þig því þú varst alltaf
til staðar og faðmur þinn opinn
og hlýr.
Við getum ekki hugsað okk-
ur lífið án þín og viljum það
ekki, en það er víst ekkert val,
heldur er það verkefni sem
okkur var úthlutað og við verð-
um að finna út hvernig við
leysum það. Þú varst ein
hjartahlýjasta og einlægasta
manneskja sem við höfum
kynnst og lífið verður tómlegt
án þín. Ég veit að Auður
mamma mín mun taka vel á
móti þér ásamt Villa afa og að
þú munir skila kveðjunni frá
mér. Við vitum að þér líður
betur á þeim stað sem þú ert
komin á núna þó við hefðum
gefið allt til að eiga lengri tíma
með þér í þessu lífi. Elskum
þig til geimsins og til baka.
Hvíldu í friði, elsku besta Erla
okkar.
(Margrét) Dögg og Darri.
Við kveðjum í dag elskulega
mágkonu mína, Erlu Vil-
hjálmsdóttur. Já Erla var í alla
staði yndisleg manneskja. Hún
var hjartahlý, réttsýn og alltaf
einstaklega glöð og kát. Hún
hlúði vel að sínum og var til
eftirbreytni hvernig hún bar
hag sinna nánustu ávallt fyrir
brjósti. Hvort sem það voru
eiginmaður, börnin þeirra tvö,
litli ömmu- og afagullmolinn,
móðir, tengdamóðir eða
tengdabörnin, hún gaf þeim
öllum af sínu hlýja hjarta.
Missir allrar stórfjölskyldunn-
ar er mikill. Erla tók einnig að
sér systurdóttur sína og var
henni sem besta móðir er Auð-
ur heitin, eldri systir Erlu, lést
langt fyrir aldur fram. Missir
hennar er því einnig mikill nú.
Þó að Erla hafi verið einstak-
lega vinamörg, kaus hún að
hafa aðeins sína nánustu hjá
sér á stórviðburðum lífs síns.
Samverustundir með Erlu voru
jákvæðar, gefandi og skemmti-
legar. Ég ylja mér við góðar
minningar og kveð frábæra
konu með þakklæti í huga.
Áslaug.
Ég var úti að leika mér, nýtt
umhverfi og spennandi „viltu
vera memm“. Ljóshærða stelp-
an í götunni á móti mér geisl-
andi með fallegu bláu augun.
Ég sagði já, en þannig byrjar
vinátta okkar elsku Erlu, við
vorum sjö ára stelpukorn að
flytja inn í nýtt íbúðahverfi og
allt svo óskaplega spennandi.
Við vinkonurnar erum búnar
að hlæja mikið um þessi fyrstu
kynni. Svo byrjaði skólinn, en
hún Erla mín átti það til að
mæta of seint í tíma og þá átti
kennarinn okkar það ráð að
syngja lagið „Erla góða Erla“
þegar hún kom inn og þá varð
hún Erla eldrauð í framan af
samviskubiti, en okkur vinkon-
unum fannst þetta mjög fynd-
ið.
Svo liðu árin eins og gengur
og ég flutti til Hollands um
tíma og Helga Hrönn vinkona
okkar úr Sæviðarsundinu flutti
til Svíþjóðar. Þegar ég kom
aftur heim kynntist ég Sigga
Erla
Vilhjálmsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓNA MARÍA VAGNSDÓTTIR
frá Fremstuhúsum í Dýrafirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á
Ísafirði fimmtudaginn 28. desember.
Hún var jarðsungin frá Mýrarkirkju í Dýrafirði 13. janúar.
Aðstandendur senda þakkir til starfsfólks bráðadeildar fyrir
góða umönnun. Þökkum auðsýnda samúð.
Hermann Drengsson
Björn Drengsson Valdís Bára Kristjánsd.
Guðbjörg Drengsdóttir Þröstur Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
VALBORG ÁRNADÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
Snorrabraut 56b, Reykjavík,
lést föstudaginn 12. janúar á líknardeild
Landspítalans.
Kveðjuathöfn hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Anna Guðný Ingadóttir Hans Dingler
Brynja Ingadóttir Guðmundur Óli Hreggviðsson
Brjánn Ingason Bryndís Björgvinsdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
TRAUSTI SÍMONARSON
bóndi,
Hverhólum og síðar Litlu-Hlíð,
lést á heilbrigðisstofnun Norðurlands
vestra, Sauðárkróki, 5. janúar, 97 ára að
aldri.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum starfsfólki sjúkrahússins innilega fyrir frábæra
umönnun.
Aðstandendur hins látna
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
VILHJÁLMUR GRÍMUR SKÚLASON,
prófessor emeritus,
Arnarhrauni 30, Hafnarfirði,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 11. janúar, verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 26. janúar klukkan 15.
Karólína M. Vilhjálmsdóttir Steinar Gíslason
Vilhjálmur Skúli Steinarsson Eva Rún Helgadóttir
Sonja Hrund Steinarsdóttir Eyþór Ingi Gunnarsson
Davíð Atli Steinarsson
og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÞÓR ELÍSSON
skipstjóri,
Laugarnesvegi 89,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 17. janúar.
Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn 29. janúar klukkan 13.
Elín Þórsdóttir Magnús Guðmundsson
Guðrún Þórsdóttir Eðvald Eðvaldsson
Rósa Björg Þórsdóttir Arnar Gestsson
barnabörn og barnabarnabörn