Morgunblaðið - 23.01.2018, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
Sálin meðal strengjanna“var yfirskrift tónleika Ás-dísar Valdimarsdóttur ogMarcels Worms í Salnum
á laugardagskvöld og orð að
sönnu, enda víólan að margra viti
einna ,mannlegasti‘ fulltrúi hennar
þar sem hún nær frá dýpstu ten-
órrödd upp fyrir skærasta sópran.
Því má svo við bæta að þó að mál-
hreinsunarnýyrðið „lágfiðla“ frá
um 1900 þyki nú rétthugsunarlega
óalandi – á svipuðum skyndi-
forsendum og „undirleikur“ í stað
„meðleiks“ – þá ranglætist það
fremur af því að víólan var frum-
gerð fiðlufjölskyldunnar – s.s. ekki
„lág“ útgáfa af fiðlunni. Fiðlan
kom nefnilega til síðar – sbr. viol-
ino: „lítil víóla“. Dæmigert tím-
anna tákn þegar sögulegur bak-
grunnur víkur fyrir hrárri
augnablikstilfinningu. En það er
önnur saga.
Hitt stóð eftir að innbyggð
hljómfegurð hljóðfærisins skilaði
sér að fullu þetta kvöld í magnaðri
tjáningu Ásdísar, er spannaði
nærfellt alla hugsanlega liti og
kenndir með jafnt dramatískri
spennu og snerpu sem syngjandi
angurværð, leiftrandi gáska og
nærri draugalegri dulúð, svo hljóti
fyrir vikið að mega setja hana í
fremstu röð núverandi víólista
landsmanna.
Hún var dyggilega studd píanó-
samleik félaga síns úr kammer-
hópnum Leo Smit Ensemble í
Amsterdam, hins hollenzka
Marcels Worms. Kannski burtséð
frá fyrsta verkinu, táningsárasón-
ötu Mendelssohns frá 1824 þar
sem styrksamvægið var frekar ví-
ólunni í óvil.
Það lagaðist hins vegar eftir
það. Fyrst í Sónötu Mieczyslavs
Weinbergs (1919-96), þeas. seinni
eftirgerð Klarínettsónötu hans Op.
28 frá 1945 sem frá mínum bæjar-
dyrum stóð upp úr annars ágætu
verkavali kvöldsins fyrir víðfeðmt
innblásinn frumleika, m.a. í íbygg-
inni hljómanotkun á jaðri gálga-
húmors er Sjostakovitsj, vinur
hans og stuðningsmaður í Moskvu,
kunni óefað að meta, þótt lægi oft-
ar en ekki undir niðri.
Pólska helfararfórnarlambið í
Auschwitz, Dick Kattenburg
(1919-44) átti eftir hlé snotran
Allegro moderato þátt úr ófull-
gerðri Sónötu í prýðisgóðri túlkun.
Hann náði þó ekki upp í þríþættan
svanasöng Sjostakovitsj, Sónötu
hans frá því fáum vikum fyrir
andlát meistarans sumarið 1975.
Þrátt fyrir feigðargrun Dmitris
hikaði hann ekki við að læða inn
hálfsatírískum ,poco scherzoso‘
marsi í miðju, þó að innhverf ör-
lagasátt virtist ráða ferðum í út-
þáttum er dúóið tjáði af snilld við
frábærar undirtektir. Og skyldi
engan undra.
Samstillt „…innbyggð hljómfegurð hljóðfærisins skilaði sér að fullu þetta
kvöld í magnaðri tjáningu Ásdísar,“ segir meðal annars um tónleika Ásdísar
Valdimarsdóttur víóluleikara og hollenska píanóleikarans Marcel Worms.
Sál strengja og anda
Salurinn
Kammertónleikar bbbbn
Verk eftir Mendelssohn, Weinberg, Katt-
enburg og Sjostakovitsj. Ásdís Valdi-
marsdóttir víóla og Marcel Worms pí-
anó. Laugardaginn 20.1. kl. 16.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
konan Kristen Bell sætt gagnrýni
fyrir að ræða ekki fílinn í herberginu
á verðlaunaafhendingunni. Þar er
vísað til þess að hún hafi ekki nefnt
það einu orði að Aziz Ansari og
James Franco, sem báðir voru til-
nefndir fyrir leik sinn, hafi verið sak-
aðir um óviðkunnanlega framkomu í
garð kvenna.
Áhættuleikarar kvikmyndarinnar
Wonder Woman voru verðlaunaðir
fyrir framúrskarandi frammistöðu
sem og áhættuleikarar í sjónvarps-
þáttaröðinni Game of Thrones. Besti
leikari í sjónvarpsþáttaröð eða
-mynd var Alexander Skarsgard í
Big Little Lies og besta leikkonan í
sjónvarpsþáttaröð eða -mynd var
Nicole Kidman. „Mikið er dásamlegt
að ferli okkar þarf ekki lengur að
ljúka um fertugt. […] Við höfum
sannað að við erum hæfar og kröft-
ugar og lífseigar. Ég bið þess aðeins
að bransinn haldi áfram að standa
með okkur,“ sagði Kidman.
Claire Foy var verðlaunuð fyrir
leik sinn í The Crown, sem og Willi-
am H. Macy fyrir Shameless. Julia
Louis-Dreyfus hlaut sín níundu
SAG-verðlaun fyrir gamanþáttaröð-
ina Veep, en enginn annar leikari
hefur unnið verðlaunin jafnoft. Hún
var ekki viðstödd afhendinguna,
enda í miðri meðferð vegna brjósta-
krabbameins. Morgan Freeman var
heiðraður fyrir ævistarf sitt.
Verðlaun Sambands kvikmynda-
framleiðenda í Bandaríkjunum,
Producers Guild Awards, voru af-
hent á laugardag. Þar var The
Shape of Water í leikstjórn Guill-
ermo del Toro valin besta myndin.
Coco var valin besta teiknimyndin
og The Handmaid’s Tale besta sjón-
varpsþáttaröðin.
AFP
Besti leikhópurinn Frances McDormand ásamt leikhóp Three Billboards Outside Ebbing, Missouri.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Mið 7/2 kl. 20:00 aukas. Fös 2/3 kl. 20:00 aukas.
Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Lau 3/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Sun 4/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 27/1 kl. 20:00 61. s Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Fös 9/3 kl. 20:00 aukas.
Þri 30/1 kl. 20:00 aukas. Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Lau 10/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Fös 23/2 kl. 20:00 aukas. Lau 17/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Lau 24/2 kl. 20:00 aukas.
Þri 6/2 kl. 20:00 aukas. Sun 25/2 kl. 20:00 aukas.
Allra síðustu sýningar leikársins!
Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið)
Mið 24/1 kl. 20:00 8. s Fim 1/2 kl. 20:00 11. s Sun 11/2 kl. 20:00 14. s
Sun 28/1 kl. 20:00 9. s Fös 2/2 kl. 20:00 12. s Fim 15/2 kl. 20:00 15. s
Mið 31/1 kl. 20:00 10. s Fim 8/2 kl. 20:00 13. s
Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Sun 28/1 kl. 20:00 48. s Lau 3/2 kl. 20:00 50. s
Fös 2/2 kl. 20:00 49. s Fös 9/2 kl. 20:00 51. s
Draumur um eilífa ást
Medea (Nýja sviðið)
Mið 24/1 kl. 20:00 6. s Mið 31/1 kl. 20:00 8. s
Sun 28/1 kl. 20:00 7. s Fim 1/2 kl. 20:00 9. s
Stuttur sýningatími. Allra síðustu sýningar!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 28/1 kl. 13:00 aukas. Sun 4/2 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas.
Allra síðustu sýningar.
Skúmaskot (Litla sviðið)
Lau 27/1 kl. 13:00 7. s Sun 4/2 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas.
Sun 28/1 kl. 13:00 8. s Lau 10/2 kl. 13:00 aukas.
Búðu þig undir dularfullt ferðalag!
Hafið (Stóra sviðið)
Fös 26/1 kl. 19:30 10.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 11.sýn
Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 19.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 28/1 kl. 13:00 Sun 11/2 kl. 13:00
Sun 4/2 kl. 13:00 Sun 18/2 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Faðirinn (Kassinn)
Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn
Þri 30/1 kl. 19:30 Auka Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn
Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka
Fös 2/2 kl. 19:30 Auka Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Efi (Kassinn)
Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Mið 7/2 kl. 19:30 9.sýn Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn
Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn
Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Lau 3/3 kl. 19:30 13.sýn
Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn
Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Lau 27/1 kl. 13:00 5.sýn Fim 8/2 kl. 13:00 7.sýn
Lau 27/1 kl. 15:00 6.sýn Fim 8/2 kl. 15:00 8.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 3/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00
Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00
Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00
Brúðusýning
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 25/1 kl. 20:00 Fös 2/2 kl. 22:30 Lau 10/2 kl. 22:30
Fös 26/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 20:00 Fim 15/2 kl. 20:00
Fös 26/1 kl. 22:30 Lau 3/2 kl. 22:30 Fös 16/2 kl. 20:00
Lau 27/1 kl. 20:00 Fim 8/2 kl. 20:00 Fös 16/2 kl. 22:30
Lau 27/1 kl. 22:30 Fös 9/2 kl. 20:00 Lau 17/2 kl. 20:00
Fim 1/2 kl. 20:00 Fös 9/2 kl. 22:30 Lau 17/2 kl. 22:30
Fös 2/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 20:00 Sun 18/2 kl. 21:00 Konudagur
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00
Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Atvinna