Morgunblaðið - 23.01.2018, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 23. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Vilja fá greiddan uppsagnarfrest
2. „Þú ættir að tala við pabba þinn“
3. Gylfi getur ekki spilað með …
4. Nafn Rúriks misnotað
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fyrsta kvikmynd kvikmyndaleik-
stjórans Ísoldar Uggadóttur, Andið
eðlilega, var heimsfrumsýnd á kvik-
myndahátíðinni Sundance í Utah í
Bandaríkjunum í gær en hún er meðal
12 kvikmynda í aðalkeppni hátíðar-
innar. Kvikmyndin hefur hlotið gagn-
rýni á vefnum Screendaily og er farið
um hana lofsamlegum orðum og
henni m.a. líkt við verk hins virta
breska leikstjóra Ken Loach.
Andið eðlilega hlýtur
lof hjá Screendaily
Hjörleifur Stef-
ánsson flytur í
dag kl. 12.05 fyrir-
lesturinn „Torf-
húsabærinn
Reykjavík. Híbýli
tómthúsmanna á
19. öldinni“, í
fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Ís-
lands. Hann mun gera grein fyrir
heimildum um torfhúsabyggð í
Reykjavík frá upphafi fram til miðrar
18. aldar, skýra muninn á húsakosti
leiguliða og bænda og fjalla ítarlega
um híbýlahætti tómthúsmanna.
Fjallar um híbýla-
hætti tómthúsmanna
Desember í fyrra var viðburðarík-
asti mánuðurinn frá opnun Hörpu. Yf-
ir 2.000 flytjendur komu þá fram í
Hörpu, haldnir voru yfir 60 tónleikar
ásamt fleiri viðburðum og gestir voru
yfir 200 þúsund talsins sem er tvö-
földun milli ára. Um helmingur gest-
anna voru börn og ungmenni, að því
er fram kemur í tilkynningu
frá Hörpu. Meðal viðburða
var listahátíð Sigur Rós-
ar, Norður og niður en á
henni var m.a. boðið
upp á dapurlega jóla-
tónleika.
2.000 flytjendur og
200.000 gestir
Á miðvikudag Norðaustan 15-23 m/s. Þurrt að kalla sunnan- og
suðvestanlands, annars snjókoma eða slydda.
Á fimmtudag Minnkandi norðanátt og víða léttskýjað sunnan- og
vestanlands, en él á Norður- og Austurlandi. Kólnandi veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hvöss austanátt og slydda eða snjókoma, en
mun hægari vindur og úrkomulítið sunnan- og suðvestanlands.
VEÐUR
Frakkar og Svíar færðust
skrefi nær undanúrslitum á
Evrópumeistaramótinu í
handknattleik karla í gær
með öruggum sigrum á
andstæðingum sínum,
Serbum og Hvít-Rússum.
Svíar verða að vinna eða ná
jafntefli við Norðmenn í
lokaumferðinni á morgun
til þess að fara í undan-
úrslit og treysta á að Króat-
ar vinni ekki Frakka sem eru
taplausir til þessa á EM. »1
Frakkar og Svíar á
réttri leið á EM
Lið Skallagríms úr Borgarnesi er á
sínu öðru ári í úrvalsdeild kvenna í
körfuknattleik í vetur og er þar í
harðri baráttu. Talsvert hefur gengið
á og eftir vonbrigði í undanúrslitum
bikarkeppninnar á dögunum var skipt
um þjálfara. Ítarlega er
fjallað um lið Skallagríms í
opnu íþróttablaðsins í
dag og m.a. sagt frá
því þegar félagið
varð Íslandsmeist-
ari fyrir 54
árum.
»2-3
Talsvert hefur gengið á
hjá Skallagrími
Það verða New England Patriots og
Philadelphia Eagles sem mætast í úr-
slitaleik bandaríska ruðningsins í
NFL-deildinni, hinum svokallaða Of-
urskálarleik, um aðra helgi. Patriots
vann nauman sigur á Jacksonville
Jaguars á meðan Eagles fór frekar
létt með Minnesota Vikings. Gunnar
Valgeirsson, sérfræðingur Morgun-
blaðsins, fjallar um leikina. »4
Patriots og Eagles mæt-
ast í úrslitaleiknum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Skíðasvæðið á Ísafirði komst óvænt í
heimsfréttirnar um helgina þegar
Pita Taufatofua, sem var fánaberi
Tonga og keppandi í taekwondo á
Ólympíuleikunum í Río de Janeiro í
Brasilíu 2016, keppti þar í 10 km
göngu á fismóti á Ísafirði og tryggði
sér þátttökurétt á Vetrarólympíu-
leikunum, sem verða í Suður-Kóreu
9.-25. febrúar nk. Hann er fyrsti út-
lendingurinn sem nær þessum ár-
angri á Íslandi.
Skíðasvæðið á Ísafirði er eitt það
besta á landinu og sérstaklega er
gönguskíðasvæðið rómað enda mikil
rækt lögð við það. Hlynur Kristins-
son, forstöðumaður svæðisins, segir
að göngusvæðið sé vel samkeppnis-
fært við mörg slík svæði erlendis og
Fossavatnsgangan sé orðin hluti af
Worldloppet, stærstu alþjóðlegu
mótaröðinni.
Hlynur segir að mikill metnaður
sé í heimamönnum til þess að gera
hlutina vel. Skíðahefðin sé til staðar
og göngumenningin hafi náð svig-
skíðahefðinni. Mikil ásókn sé í nám-
skeið í skíðagöngu og um 300 manns,
flestir að sunnan, sæki námskeið í
janúar.
Æfði á hjólaskíðum
Daníel Jakobsson var mótsstjóri á
alþjóðlega mótinu um helgina. Hann
segir að þegar eins stutt er í vetrar-
ólympíuleika og nú reyni menn
gjarnan að ná lágmörkum á mótum
sem eru í veikari kantinum. Fimm
útlendingar hafi verið skráðir til
keppni á Ísafirði en einn hafi ekki
byrjað. Keppandi frá Síle hafi þegar
verið búinn að tryggja sig inn á leik-
ana í Suður-Kóreu, fulltrúi Trinidad
og Tobago hafi ekki náð í farseðilinn,
Mexíkói hafi verið á góðri leið en
verið dæmdur úr leik og Pita Tau-
fatofua hafi stolið senunni.
Í erlendum fréttaskeytum kemur
fram að Pita Taufatofua, sem er 34
ára, hafi verið úrkula vonar um að
komast á leikana eftir að hafa mis-
tekist ætlunarverkið á sjö mótum. Í
liðinni viku missti hann af flugi frá
Istanbul í Tyrklandi til Króatíu, þar
sem hann ætlaði að keppa, og þá var
Ísafjörður síðasta vonin. „Ég hugs-
aði með sjálfum mér að ég yrði að
gefa allt í þetta, annaðhvort gröfin
eða gleðin,“ var haft eftir honum.
Eftir að hafa tryggt sér sætið til
Suður-Kóreu, fyrstur skíðamanna
frá eyjunni Tonga í Kyrrahafinu, þar
sem sólin skín allt árið og snjór er
bara til á prenti, réði hann sér ekki
fyrir gleði. Hann æfði á hjólaskíðum
og sagðist hafa fórnað öllu, stæði illa
fjárhagslega þrátt fyrir góðan
stuðning (www.gofundme.com/help-
tonga-to-the-winter-olympics) en
gæti ekki verið ánægðari.
Þetta er annað árið sem alþjóðlegt
mót í skíðagöngu fer fram hérlendis
en í fyrra var keppt á Akureyri og í
Bláfjöllum.
Tryggði réttinn á Ísafirði
Pita Taufatofua
frá Tonga á vetrar-
leikana í S-Kóreu
Ljósmynd/Instagram. Birt með leyfi
Draumur að veruleika Pita Taufatofua horfir yfir Skutulsfjörð. Næst eru það Vetrarólympíuleikarnir.
Fánaberi Pita Taufatofua á Ólympíuleikunum í Ríó 2016.
AFP