Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Síða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.2. 2018 H ann er með þeim fyrstu sem skírðir eru þessu glóandi nafni. Eldur Ólafsson er 32 ára fram- kvæmdastjóri Alopex Gold, sem fer brátt að grafa upp gull úr námum á Grænlandi. Hann segir foreldra sína sjálfsagt hafa verið hippa að velja slíkt nafn, en það passi vel við hann, jarðfræðinginn. Kannski er hann líka eldhugi, að ráðast í slíkt stórverkefni eins og gullnámuvinnslu. En allt á sér aðdraganda og yfir kaffibolla í miðbænum segir hann blaðamanni hvernig það kom til að hann varð gullleitarmaðurinn Eldur. Þau urðu systkini manns Hann er sveitadrengur úr Biskupstungum, al- inn upp á líflegu og stóru heimili. „Foreldrar mínir, Ólafur Einarsson og Drífa Kristjánsdóttir, ráku meðferðarheimili á Torfa- stöðum en þegar Breiðavík hætti varð þetta meðferðarheimili til. Afi minn, Kristján, stofn- aði unglingameðferðarheimili ríkisins,“ segir hann. „Pabbi hafði alltaf átt þann draum að verða bóndi en hann er mikill ræktunarmaður, bæði á fé, hesta og tún,“ segir hann en foreldrarnir voru með bú samhliða meðferðarheimilinu. „Ég fékk mjög gott uppeldi og átti gott heimili, en á meðan ég var að alast upp voru að jafnaði sex fósturbörn á heimilinu. Þau voru yfirleitt hjá okkur í tvö ár hvert, en þetta var langtímameð- ferðarheimili. Það þurfti oft að kenna þeim inn á daglegt líf, sýna traust, ást og umhyggju. Flest börnin kláruðu samræmd próf eða fóru til vinnu og það gengur vel hjá þeim flestum í dag,“ segir Eldur og segir hann mikið fjör hafa verið á heimilinu. „Við vorum alltaf um níu krakkarnir, og allt að fimmtán manns við matarborðið. Við þekkt- um ekkert annað og börnin urðu strax eins og systkini manns. Það mynduðust sterkar teng- ingar á milli okkar og það var erfitt að skilja við þau þegar þau fóru eftir dvölina.“ Gildin í uppeldinu skipta öllu Eldur er fjölskyldumaður; á tvær ungar dætur, þær Grímheiði og Íseyju en hann er kvæntur Guðrúnu Helgu Kristjánsdóttur fatahönnuði. „Við erum eitt teymi og kona mín á jafn mikinn þátt í því sem við gerum og ég. Hún er rosalega hæfileikarík, hjartahlý og með góða dómgreind og ég tel að hún muni ná mjög langt á sínu sviði,“ segir hann og talar um mikilvægi þess að innræta góð gildi í börnum. „Það er mikil misskipting í heiminum og mik- ið talað um misskiptingu gæða sem er áhyggju- efni. En fyrir mína parta verður einnig til mis- skipting milli fólks vegna þeirra gilda sem það fær í uppeldinu. Hvort barn fær umhyggju og hvernig lífsreglur það lærir á fyrstu stigum lífs- ins getur skipt sköpum fyrir framtíðina. Sögur krakkanna sem bjuggu hjá okkur voru oft hræðilegar og því er það í raun magnað hvað mörg þeirra hafa náð langt. Þau hafa þurft að fara miklu erfiðari leið en við hin. Það er gott dæmi um sigur mannsandans að sjá hvernig er hægt að snúa börnum inn á rétta braut með góð- um gildum og almennilegu atlæti,“ segir hann. „Ég og þú erum í forréttindahópi. Við fengum ást, umhyggju, hlýju og eðlileg gildi í okkar uppeldi, og það tekur maður með sér út í lífið. Þetta er það sem breytir öllu,“ segir hann og nefnir að foreldrar hans hafi lagt mikla áherslu á að það ríkti algjört traust á milli þeirra og barnanna. „Þau kenndu þeim að sigra. Að klára verkin. Hvort sem það var að moka flórinn eða að klára samræmdu prófin.“ Heimsins besti körfuboltamaður Þessi góðu gildi hefur Eldur tekið með sér út í lífið. Hann er einn af þremur systkinum sem öll hafa látið til sín taka á fullorðinsárum. Bróðir hans heitir Fannar Ólafsson, fyrrverandi lands- liðsmaður í körfubolta, en vinnur í dag í ferða- þjónustu og öðrum verkefnum. Systir hans er Björt Ólafsdóttir, stjórnmálamaður og fyrrver- andi umhverfisráðherra. Eftir góða æsku fór Eldur sextán ára gamall úr sveitinni beint í menntaskóla. Dreymdi hann þá um að verða heimsins besti körfuboltamaður. „Ég fæddist með klumbufót þannig að hreyfi- getan á vinstri fæti við ökkla er mjög lítil. En ég æfði og æfði með mörgum flokkum til átján ára aldurs, og hafði kannski ekki mikla körfubolta- hæfileika en það var meira einurðin að verða góður,“ segir Eldur og brosir. Álagsmeiðsli í ökklanum komu í veg fyrir heimsfrægð á körfuboltasviðinu en þá sneri Eldur sér að jarðfræðinni. „Áhugi á jarðfræði byrjaði um tólf ára aldur. Það var þannig að foreldrar mínir tóku aldrei frí; fríin okkar voru þannig að tvisvar á sumri fórum við í hestaferðir með fóstursystkinunum mínum. Fyrst fórum við í stutta ferð, tvo, þrjá daga en seinni ferðin var tíu daga ferð. Svaka- legt ævintýri og rosalega gaman. Ég hef oft sagt að besta leiðin til að skoða landið sé á hest- baki, en ekki lokaður inni í bíl,“ segir Eldur sem naut náttúrunnar í þessum ferðum. „Svo þegar ég var tólf ára fór ég í fyrsta sinn í göngur og fór þá alla leið upp á Hveravelli og það var smalað milli Hofsjökuls og Langjökuls. Þetta var vikuferð og það gerði kannski út- slagið.“ Jarðfræðiáhuginn var kviknaður. Hagnýt jarðfræði Eftir stúdentspróf lá leiðin í Háskóla Íslands í jarðfræði. „Þetta var um 2004 og það fannst mörgum þetta skrítið val. Það var verið að benda mér á að fara í fjármálaverkfræði, fólk sagði að bankarnir væru málið. Ég var kallaður Moldi,“ segir Eldur og brosir. Hann segir að þetta fag hafi ekki þótt töff, en hann lét það ekki stoppa sig. „Ég myndi samt ekki líta á mig í dag sem al- vöru jarðfræðing. Ég hef áhuga á þessu frá hag- nýtum sjónarmiðum, það verður að viðurkenn- ast,“ segir hann. „Ég kláraði jarðfræðina 2007 og skrifaði rit- gerðina um nýtni varma í rótum jarðhitasvæða. Á þessum tíma var verið að fara af stað með djúpborunarverkefni, sem sagt í stað þess að bora þrjá kílómetra, átti að bora fimm. Í rit- gerðinni vorum við að meta kosti og galla þessa verkefnis og vorum við þá að horfa á Reykja- nesið, Hellisheiði og Kröflu. Niðurstaðan varð í raun sú að tæknilega væri mögulegt að bora allavega eina af þessum holum en ólíklegt væri að holan myndi skila afli. Til að gera langa sögu stutta var ég í kjölfarið ráðinn til Geysir Green Energy,“ segir Eldur sem var sendur víða um heim til að meta og skoða jarðhitaleyfi. Vann í skurðum í Kína „Fljótlega fór ég til Kína að til að taka þátt í uppbyggingunni á hitaveitunni þar. Mitt hlut- verk var að fara þangað með þekkingu og vaxt- arplön. Verkefnið átti ekki bara að vera í einni borg heldur þremur, en fókusinn var að byggja hitaveitur,“ útskýrir Eldur. „Á meðan ég var að vinna þarna varð efna- hagshrunið á Íslandi. Og þarna vorum við í sam- starfi við kínverskt fyrirtæki, en okkur tókst að stækka veituna með þeirra hjálp,“ segir Eldur sem flutti frá Kína til Danmerkur árið 2010. „Ég fór þar í fjármálanám en við Guðrún Helga áttum þá von á okkar fyrsta barni. Made in China,“ segir hann og hlær. „Þarna stofnaði ég, ásamt Valgarði Má Val- garðssyni, Justinas Matucevisous og öðrum, fyrirtæki sem heitir Orka Energy. Hugmyndin var þá að kaupa út verkefnin sem Geysir var með í Kína, þar sem ég hafði unnið síðustu ár. Ég hafði unnið mikið með Kínverjum í við- skiptaþróun og áætlanagerð en þegar ég byrj- aði í Kína var ég sjálfur í skurðunum að kenna starfsmönnum þar að sjóða saman rör. Þetta þurfti að vera svona „hands on“ vinna því að rörin voru þriðjungur af fjárfestingu okkar,“ út- skýrir hann. „Þarna var ég 25 ára gamall, og við fórum til Íslandsbanka og gerðum kauptilboð. Þeim fannst við fullungir og trúðu okkur ekki alveg til að byrja með en við enduðum með að finna „partner“ sem heitir Kalan Capital en Haukur Harðarson er eigandi þess. Kalan sá um að finna fjármagn og við héldum áfram að reka veituna. Seinna vorum við keyptir út af Kalan Capital.“ Auðlindir í norðurskautinu „Í kjölfarið settum við allt okkar undir við stofn- un fyrirtækisins Arctic Resources. Fókusinn var á jarðhita, olíu og málma. Við bjuggum til mismunandi verkefni með mismunandi aðilum á þessu sviði. Eitt af fyrstu verkefnum okkar var stofnun Iceland Petroleum. Ólíkt jarðhita var hér lítil þekking í olíuleit og því fórum við í sam- starf við Faroe Petroleum og byggðum upp teymi innan Iceland Petroleum sem var staðsett í Skotlandi. Við sóttum svo um leyfi til olíuleitar á Drekasvæðinu sem við fengum. Þar sem þetta voru upphafsrannsóknir þá voru þessi leyfi eðli máls samkvæmt áhættusöm en áhugaverð engu að síður. Við stunduðum rannsóknir á Dreka- svæðinu í tvö ár og út frá þeim mælingum kom- umst við að því að það væri of mikil áhætta að halda áfram af tæknilegum ástæðum. Við vor- um fyrsti hópurinn sem hætti leitinni en það var árið 2014. Annar leggur í Arctic Resources voru málmar og horfðum við þá bara til Grænlands enda af nógu að taka þar,“ segir hann. „Þetta kann að hljóma eins og við höfum verið úti um allt, en það er alls ekki tilfellið, við vorum bara í jarðhita, olíu og námuvinnslu,“ útskýrir Eldur, en þessi verkefni voru á mismunandi stigum og því misáhættusöm. „Við fórum að skoða Grænland og fengum SRK, sjálfstætt starfandi námurannsókn- arfélag, til ráðgjafar, þar sem ekki er eiginleg námuþekking á Íslandi. Hins vegar höfum við Íslendingar góð tök á því að vinna í umhverfi eins og er á Grænlandi. Við þekkjum samfélags- gerðina en bæði Ísland og Grænland eru auð- lindadrifin samfélög og svo hafa íslenskir aðilar unnið þar að innviðaverkefnum síðustu ár. Það hafa verið byggðar vatnsaflvirkjanir og hafnir en einnig erum við farin að þjónusta grænlensk fyrirtæki í meira mæli. Síðan námulöggjöfin breyttist í byrjun aldarinnar hafa íslensk fyr- irtæki ekki tekið þátt að neinu marki í þeim geira þar, fyrr en nú,“ segir Eldur. Halda áætlun og minnka kostnað Þeir félagar lögðust í mikla rannsóknarvinnu og skoðuðu Grænland út frá mörgum þáttum; sögu námuvinnslu, helstu námum sem starfræktar höfðu verið á síðustu hundrað árum, könnuðu lagakerfið, og verkefni sem nú þegar eru á full- um dampi. „Á sama tíma vorum við að reyna að átta okkur á því hvaða málma við vildum einblína á og staðsetninguna,“ segir hann en upp úr þeirri vinnu varð til viðskiptaáætlun. „Við vildum leita að og vinna málma sem væru með hátt hlutfall fyrir hvert tonn sem unnið væri. Við vildum að innviðir væru til stað- ar eða í nálægð við verkefnin. Við vildum að jarðfræðin gæfi möguleika á því að við gætum fundið stórar námur og við ákváðum fljótlega að einblína á gull og sink,“ segir hann. „Svo ætlum við að leggja áherslu á að verða bestir í því sem við gerum, hvort sem það er rannsóknarvinna eða að byggja upp hafnir og vegi. Við viljum vera bestir í því og með minnst- um kostnaði. Grænland er suðupunktur af öll- um málmum sem þú getur hugsað þér. Það sem Nafnið passar vel við þennan unga mann; hann er jarðfræðingur með brennandi áhuga á auðlindum og viðskiptum. Eldur Ólafsson er alinn upp við góð gildi á sveitabæ í Biskups- tungum þar sem heimilið var einnig meðferðarheimili fyrir ungmenni í vanda. Hann lærði snemma að klára það sem byrjað væri á, og leggja metnað í hvert verk. Eftir jarðhitavinnu í Kína beinir Eldur nú sjónum að Grænlandi. Þar er fókusinn á gullgreftri. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is „Svo ætlum við að leggja áherslu á að verða bestir í því sem við gerum, hvort sem það er rannsóknarvinna eða að byggja upp hafnir og vegi. Við viljum vera bestir í því og með minnstum kostnaði. Grænland er suðupunktur af öllum málm- um sem þú getur hugsað þér,“ segir Eldur Ólafsson, gullleitarmaður á Grænlandi. „Ég var kallaður Moldi“

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.