Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Page 16
FERÐAMENN
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.2. 2018
Ben og Bella Jewell frá London,Englandi, voru að koma úrHallgrímskirkju þennan
kalda janúardag, þann síðasta þetta
árið. Ben vinnur í byggingarbrans-
anum og Bella er hjúkrunarfræð-
ingur. Þau voru hingað komin í lang-
þráða afmælisferð en Bella gaf
manni sínum norðurljósaferð til Ís-
lands í fertugsafmælisgjöf. Hún
keypti ferðina í apríl á síðasta ári en
Ben fyllti fjórða tuginn í maí.
„Það var mjög óvænt ánægja að fá
ferðina í afmælisgjöf, nú vinn ég í því
að finna eitthvað spennandi handa
henni í fertugsafmælisgjöf, en það
eru fjögur ár til stefnu,“ segir Ben og
brosir til eiginkonunnar.
„Við ætluðum að sjá norðurljósin í
þessari afmælisferð,“ segir Ben en
þau höfðu dvalið hér á landi í þrjá
daga og voru á heimleið.
„Því miður sáum við ekki norður-
ljósin. Það var of skýjað en við reynd-
um tvisvar. Við vorum bara óheppin.
En við myndum gjarnan vilja koma
aftur, við nutum þess mjög að vera
hér. Við fórum gullna hringinn og
höfum eytt tíma í að ganga um
Reykjavík,“ segir hann. „Gullni
hringurinn stendur upp úr, við sáum
mjög margt á stuttum tíma,“ segir
hann. „Hér er náttúran óblíðari en
við áttum von á, en það er auðvitað
vetur. En landslagið er áhugavert og
það er mjög ólíkt því sem við eigum
að venjast heima,“ segir hann.
Þau segjast ekki hafa vitað mjög
mikið um Ísland áður en þau komu
en lásu sér þó til um landið.
„Ég vil koma aftur og sjá og upp-
lifa meira,“ segir hann.
Spurð um matinn sögðu þau:
„Maturinn hér er dýr, en við viss-
um það fyrirfram svo sem,“ segir
Bella.
„Við fengum okkur fish & chips,
sem var á góðu verði og mjög gott.
Það var miklu betra en í Bretlandi!
Þar er það mikið fitugra.“
ENGLAND
Bella og Ben nutu Ís-
lands þrátt fyrir kuldann
í janúar en sáu því mið-
ur ekki norðurljósin.
Norðurljós
í felum
Morgunblaðið/Ásdís
Norðurljósin heilla
Á meðan landinn þráir sól og hita er bærinn fullur af ferðamönnum sem virðast ekki láta
kulda, snjókomu, rigningu og rok stöðva sig í því að skoða okkar ástkæra land. Blaða-
maður fór á stúfana til að forvitnast um hvað fólk væri að sækja hingað á þessum árstíma
þegar allra veðra er von. Hann hitti fyrir nokkra hressa ferðamenn á Skólavörðuholtinu
einn napran vetrardag til að leita svara. Það voru helst norðurljósin, snjórinn og
náttúran sem drógu þau hingað á hjara veraldar. Og þau voru öll alsæl.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Við erum frá Ítalíu. En égfæddist hér!“ segir Rósa ÝrRancitelli sem hingað er
komin ásamt eiginmanninum Aless-
andro Amadei og yngsta barni af
þremur, Dorotheu Líf. „Mamma mín
er íslensk og ég bjó hér til fimm ára
aldurs. Ég tala líka smá íslensku!“
segir Rósa og hlær. „Við erum frá
litlum bæ á austurströnd Ítalíu. Það
er rétt hjá Rimini. Pabbi minn er
ítalskur en hann kom hingað á leið til
Bandaríkjanna en hann kynntist
mömmu minni og endaði á að vera
hér í tíu ár,“ segir hún en foreldr-
arnir búa á Ítalíu. Rósa vinnur í
bókabúð og maður hennar er kokkur
með áherslu á lífrænan mat.
„Ég á ömmu hér sem ég er að
heimsækja og aðra ættingja,“ segir
hún. „Ég á þrjú börn en er aðeins
með þessa yngstu því hin eru í skóla.
Maðurinn minn er hér á Íslandi í
annað sinn. Ég kom hingað síðast
árið 2015. En ég kom núna því ég
elska veturinn á Íslandi og við vild-
um heimsækja ömmu sem er 98 ára.
Ég elska snjóinn og storma, við höf-
um ekki þannig á Ítalíu,“ segir Rósa
sem dvaldi hér í tíu daga og sýndi
eiginmanni og barni það helsta.
„Ég fór með hann í Perluna og við
gengum út um allt, í Nauthólsvík og
Vesturbæ og niður á Tjörn. Svo ætl-
um við að heimsækja alla ætt-
ingjana.“
Alessandro segist kunna vel við
Ísland um vetur og finnst ekkert of
kalt. „Best kann ég að meta hversu
allt er rólegt hér, fólkið er afslapp-
aðra en á Ítalíu. Þetta er lítil borg og
hægt að ganga um allt og borgin um-
vefur mann. Landslagið er líka ein-
stakt,“ segir hann. „Og íslenskur
himinn er allt öðruvísi.“
Blaðamaður spyr hvort það sé
munur á íslenskum konum og ítölsk-
um. „Þær íslensku eru fallegri,“ seg-
ir hann og þau skellihlæja.
Rósa segist finna vel fyrir því að
verðlag hefur hækkað. „Við fórum í
Perluna og við þurftum að borga
fyrir að fara út á útsýnispall! Maður
þarf alltaf að borga eitthvað alls
staðar,“ segir hún.
„Svo vonumst við til að sjá norður-
ljósin í kvöld því Alessandro kom
líka hingað til að sjá þau. Ættingjar
okkar ætla að fara með okkur út fyr-
ir bæinn en við gistum hjá ömmu á
Laugavegi. Hún býr ein en frænka
mín býr á hæðinni fyrir ofan.“
Dórothea litla er feimin við blaða-
mann. Spurð hvað sé best við Ísland
svarar hún: „Að borða nesti og fara í
sund.“
ÍTALÍA
Rósa Ýr og Alessandro
með Dorotheu á milli sín.
Þau segjast elska íslenskan
vetur með snjó og kulda.
Elskar snjó og storma