Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Qupperneq 29
New Museum er eina sérhæfða sam-
tímalistasafnið í New York-borg.
18.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Alltaf er áhugavert að geta upp-
lifað og notið listaverka á heim-
ilum fólks sem hefur safnað
þeim. Það býðst gestum að
gera í hinu einstaka safni The
Frick Collection, einhverri dýr-
ustu perlu New York, á horni
Fimmtu breiðgötu og 70.
strætis. Henry Clay Frick (1849-
1919) var þekktur iðnjöfur. Hér
var hann búsettur seinni hluta
ævinnar og varði umtals-
verðum fjárhæðum í að safna
merkum evrópskum listaverk-
um fyrri alda, og keppti við fleiri
bandaríska auðkýfinga um það.
Hér gefur meðal annars að líta
þrjú málverk eftir Vermeer og
lykilverk eftir Rembrandt,
Velasquez, Bellini, Whistler,
Holbein og fleiri. Nú er einnig
athyglisverð sérsýning í safninu,
á 13 málverkum eftir Zurberán,
„Jakob og synir hans tólf“.
Safnið var opnað árið 1935, af
fjölskyldu Fricks, og rétt er að
benda á að börn yngri en 12 ára
fá ekki aðgang að Frick-safninu.
Í fyrrverandi heimili iðnjöfurs eru margar gersemar evrópskrar listasögu.
Morgunblaðið/Einar Falur
EINSTAKT ÚRVAL VERKA Á HEIMILI SAFNARA
Fjársjóðir Frickspressjónista, póst-impressjónista og
aðra evrópska meistara fyrri hluta
20. aldar á borð við Cézanne, Pi-
casso, Kandinsky, og Monet. Þá er
þar sýning á skúlptúrum eftir Bran-
cusi. Í sýningarrýmum spíralsins er
reglulega skipt um sýningar og nú
er þar umfangsmikil yfirlitssýning
verka eftir rísandi danska stjörnu,
Danh Vo. Hann vinnur í ýmsa miðla
og fjallar á persónulegan hátt um
þemu á borð við trúarbrögð, kapítal-
isma og höfundarrétt listamanna.
Metropolitan Museum
of Art
„The Met“ er eitt stærsta, fjöl-
breytilegasta og vinsælasta listasafn
jarðar – og á hverjum tíma má skoða
þar, auk gríðarlega umfangsmikillar
safneignarinnar, nokkrar afar vel
mótaðar og áhugaverðar sérsýn-
ingar þar sem tekið er á ólíkum
stefnum og straumum í listsköpun
manna, allt frá samtímanum og þús-
undir ára aftur í tímann.
Vegna stærðarinnar er óhætt að
hvetja gesti til að ákveða vel hvað
þeir vilja upplifa í heimsókninni og
einbeita sér að því; það kunna að
vera einstakar sérsýningar, evrópsk
málverk endurreisnartímans, fullbú-
in herbergi frá hinum ýmsu tímabil-
um hönnunarsögunnar á liðnum öld-
um, list bandarískra frumbyggja eða
Egypta – í safninu er heilt hof sem
var bjargað frá því að fara undir lón í
Nílardalnum. Nú og á næstunni gef-
ur að líta í Met glæsilega yfirlitssýn-
ingu á verkum Davids Hockney,
sýningar á verkum eftir Thomas
Cole og Joseph Cornell, sýningu á
kóreskri list og hina frægu myndröð
Los Alamos eftir William Eggleston,
einn helsta ljósmyndara samtímans.
Met Breuer
Þegar Whitney safnið flutti fyrir
þremur árum suður í „Kjötpökk-
unarhverfið“ við Chelsea, þá leigði
Metropolitan-safnið hina frægu og
friðuðu safnbyggingu stjörnuarki-
tektsins Marcels Breuer fyrir sýn-
ingar samtímadeildarinnar. Og
þarna hefur hún sett upp margar at-
hyglisverðar sýningar – og sumar
framúrskarandi. Nú gefur að líta
áhrifaríka yfirlitssýningu á verkum
bandaríska listmálarans Leons
Golub (1922–2004) og sýningu á
verkum eftir hinn þýska Anselm
Kiefer (f. 1945) með áherslu á upp-
gjör hans við syndir feðranna í
seinni heimsstyrjöldinni.
MoMA – Museum of
Modern Art
Stjórnendur MoMA hafa allt frá
stofnun safnsins á þriðja áratug síð-
ustu aldar einsett sér að vera mið-
stöð nýrra strauma í samtíma-
myndlist. Og í kjarna einstakrar og
glæstrar safneignarinnar má líka sjá
ýmis lykilverk myndlistar Vest-
urlanda frá seinni hluta 19. aldar og
vel fram á þá 20. Þá hefur MoMA
verið frumkvöðull í að færa bæði
ljósmyndamiðilinn og hönnun inn í
kjarna samtímalistar og má sjá frá-
bær dæmi um það.
MoMA er staðsett á miðri Man-
hattan og heldur áfram að þenjast út
því enn er byggt við safnið, sem er
þó umfangsmikið fyrir. Þar gefur
bæði að líta viðamiklar sýningar úr
safneigninni, sem er skipt upp eftir
tímabilum, stefnum og straumum,
og stórar sérsýningar. Ef fólk lang-
ar að sjá mörg frægustu verkin eftir
Picasso, Dali, Pollock, Van Gogh –
þá eru þau hér. Og nú stendur yfir
afar áhrifarík sýning um feril banda-
ríska ljósmyndarans Stephens
Shore og sem sýning um upphaf
samtímalistar í Brasilíu. Fyrir þá
sem vilja líta í önnur hverfi New
York þá eru ætíð forvitnilegar sýn-
ingar í systurstofnunni PS1 í
Queens, nokkur lestarstopp í burtu.
Scandinavia House
Hér er rétt að minna á stofnun
sem er ekki stór en mætti kalla eðli-
legan viðkomustað Íslendinga í New
York, Scandinavia House við Park
Avenue. Í sýningarsölunum á þriðju
hæð eru settar upp áhugaverðar
sýningar á myndlist frá Norður-
löndum. Nú er þar til að mynda lítil
en forvitnileg sýning á ljósmyndum
sem norski listmálarinn Edvard
Munch tók af sjálfum sér.
The Morgan Library
& Museum
Pierpont Morgan (1837-1913)
hefur verið sagður áhrifamesti fjár-
festir í sögu Bandaríkjanna en hann
var líka einhver mikilvirkasti safn-
arinn. Hann safnaði listgripum í
nær öllum miðlum en ekki síst forn-
um handritum, fágætum bókum,
bréfum, nótum, teikningum og
grafíkverkum. Og í safni sem var
stofnað árið 1924 í fyrrverandi
bókasafni hans, heimili og í við-
byggingum, sem hafa orðið sífellt
umfangsmeiri, má sjá margar af
þessum einstöku gersemum. Þá eru
settar upp litlar en afar vel mótaðar
sérsýningar í The Morgan; nú er
þar yfirlitssýning á ljósmyndum
Peters Hujar ((1934-1987), sýning
um leikskáldið Tennessee Williams
(1911-1983) og um listsköpun á mið-
öldum.
Whitney Museum of
American Art
Whitney-safnið flutti fyrir
skemmstu í afar vel lukkaða safn-
byggingu teiknaða af Renzo Piano
við enda hins vinsæla High Line-
garðs í Chelsea-hverfinu og hefur
aðsókn að safninu margfaldast. Það
er helgað bandarískri myndlist og
býr yfir góðri safneign auk þess
sem settar eru upp spennandi sér-
sýningar – og annað hvert ár er þar
umtalaður Whitney-tvíæringurinn
helgaður því nýjasta. Nú er meðal
annars uppi, auk vel mótaðra safn-
eignarsýninga, sýning um mót-
mælalist á 20. öld – og talar á
áhugaverðan hátt inn í stjórnmál
samtímans í landinu.
New Museum
Við Bowery á jaðri Litlu-Ítalíu er
New Museum, eitt ferskasta og
skemmtilegasta safn borgarinnar –
safnið sem unglingarnir í fjölskyld-
unni vilja ekki missa af. Þetta er
eina sérhæfða nýlistasafn borgar-
innar, stofnað 1977, og staðsett í ný-
legri og ævintýralegri byggingu.
Hér er engin safneign heldur
óvæntar og vel mótaðar sýningar á
samtímalist. Fram til vors gefur að
líta fjórða þríæring New Museum,
Songs for Sabotage, en þar er leitað
svara við því hvernig einstaklingar
jafnt sem hópar geti tekist á við þau
tengsl mynda og menningar sem
móta samfélög samtímans.
ICP – International Center
of Photography
Þessi góða stofnun um hin ýmsu
form ljósmyndunar hefur nýverið opn-
að sýningarsali á nýjum stað, við
Bowery rétt ofan við New Museum.
Ástæða er til að hvetja ljósmyndaunn-
endur til að líta inn en alltaf eru þar at-
hyglisverðar sýningar; nú ný verk
breska ljósmyndarans Edmund Clark
og sýning um fangabúðir sem japansk-
ir Bandaríkjamenn voru fluttir í á tím-
um seinni heimsstyrjaldarinnar.
Fánar Norðurlandaríkjanna eru á Scandinavia House við Park
Avenue. Þar eru sýningar á verkum norrænna listamanna.
Fjölmörg heimskunn meistaraverk eru í MoMA og dragast gestir
að þeim. Hér er dáðst að Stjörnunóttu Vincents van Gogh.
Aðsókn að Whitney-safninu hefur aukist mjög eftir að það var
nýverið flutt í nýja safnbyggingu við enda High Line-garðsins.
Í The Morgan Library & Museum eru
sýndar fjölbreytilegar gersemar.
Í ICP eru settar upp allrahanda og
forvitnilegar ljósmyndasýningar.
Upplýsandi og falleg sýning á verkum bandaríska landaslagsmálarans Thomasar
Cole (1801-1848) er nú í Metropolitan-safninu, ásamt fleiri sérsýningum.