Morgunblaðið - 02.03.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2018
Smári McCarthy pírati spurðifjármálaráðherra á Alþingi í
gær hvort brotlending væri fram-
undan í íslensku efnahagslífi og
hvort ríkisstjórnin ætlaði að gera
eitthvað til að reyna
að tryggja að hag-
vöxturinn héldi
áfram. Smári hafði
engar hugmyndir
fram að færa í þessu
sambandi en var
ósáttur við svör
fjármálaráðherra,
eins og við var að
búast.
Spurning Smáraer umhugs-
unarverð fyrir þá
sök að hann virtist
telja að áframhald-
andi hagvöxtur væri í hendi rík-
isins. Og þetta er raunar algengur
misskilningur í slíkri umræðu. For-
sætisráðherra talaði til dæmis í
gærmorgun um að með minnkandi
hagvexti skapaðist gott tækifæri
fyrir ríkið að ráðast í fjárfreka inn-
viðauppbyggingu.
Ríkið býr ekki til hagvöxt. Ríkiðgetur ekki ráðist í miklar
framkvæmdir eða eytt peningum á
annan hátt til að búa til hagvöxt.
Þetta hefur verið reynt og jafnan
mistekist.
Ríkið getur á hinn bóginn skapaðalmenningi og atvinnulífi um-
gjörð og tækifæri til að skapa verð-
mæti og búa þannig til hagvöxt.
Ríkið getur til dæmis dregið úríþyngjandi afskiptum sínum af
atvinnulífinu og lækkað skatta til
að fólk og fyrirtæki fái notið sín.
Með því móti er hægt að aukalíkurnar á að hagvöxtur haldi
áfram með vaxandi verðmæta-
sköpun og velmegun landsmanna.
Smári McCarthy
Ríkið býr ekki
til verðmæti
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Veður víða um heim 1.3., kl. 18.00
Reykjavík 2 heiðskírt
Bolungarvík -1 léttskýjað
Akureyri -1 skýjað
Nuuk 6 skýjað
Þórshöfn 0 skýjað
Ósló -8 léttskýjað
Kaupmannahöfn -4 snjókoma
Stokkhólmur -6 heiðskírt
Helsinki -11 heiðskírt
Lúxemborg -1 skýjað
Brussel 0 skýjað
Dublin -1 snjóél
Glasgow 0 rigning
London -2 snjókoma
París 2 alskýjað
Amsterdam -1 heiðskírt
Hamborg -5 heiðskírt
Berlín -6 heiðskírt
Vín -6 snjókoma
Moskva -10 heiðskírt
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 10 skúrir
Barcelona 13 alskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 10 skúrir
Aþena 10 léttskýjað
Winnipeg -8 léttskýjað
Montreal 2 skýjað
New York 13 heiðskírt
Chicago 3 rigning
Orlando 26 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:32 18:49
ÍSAFJÖRÐUR 8:42 18:49
SIGLUFJÖRÐUR 8:25 18:32
DJÚPIVOGUR 8:03 18:17
Í ár eru ellefu tegundir páskabjórs í
boði í Vínbúðunum. Páskabjór hef-
ur verið fastur liður í vöruvali Vín-
búðanna undanfarin ár líkt og jóla-
bjór, þorrabjór og aðrar árstíðar-
bundnar vörur sem seldar eru í
skamman tíma. Sölutímabil páska-
bjórsins þetta árið hófst 22. febrúar
og því lýkur 31. mars.
Bjórarnir eru allt frá því að vera
lagerbjórar í léttari kantinum, upp
í að vera kraftaboltar, öl í belg-
ískum stíl, segir á heimasíðu Vín-
búðanna. Í ár er einnig klassískur
hveitibjór og „double bock“ á boð-
stólum. Af tegundum má nefna
páskabjóra frá Víking, Kalda,
Hérastubb, Steðja, Færeyjum,
Hefeweizen og Harboe. Einnig
Páskapúka, Barabbas Nr. 57, Sab-
bat-páskabjór og Þumal.
Bjórdagurinn
Frá þessu var greint á heimasíðu
Vínbúðanna í gær, 1. mars eða bjór-
daginn. Bjórfrumvarpið var sam-
þykkt á Alþingi í maí 1988, en sam-
kvæmt því var framleiðsla og sala á
áfengu öli leyfð. 1. mars 1989 hófst
síðan sala á áfengu öli eftir 74 ára
hlé.
Ellefu teg-
undir af
páskabjór
Barabbas og Þum-
all meðal tegunda
Spænska lággjaldaflugfélaginu
Vueling Airlines ber að endurgreiða
tveimur farþegum sínum flugfar-
gjald að fullu samkvæmt úrskurði
Samgöngustofu. Um er að ræða flug
frá Barcelona til Keflavíkur 15. maí
í fyrra en vélinni var snúið til Glas-
gow vegna slæmra veðuraðstæðna í
Keflavík og fluginu var í kjölfarið
aflýst. Tveir farþegar kvörtuðu til
Samgöngustofu og töldu sig ekki
hafa fengið afhentar upplýsingar
um réttindi flugfarþega. Kröfu far-
þeganna um skaðabætur var hafnað.
Í kvörtuninni kom fram að við
lendingu í Glasgow hafi farþegum
verið boðið að fara frá borði og
koma sér sjálfir á leiðarenda eða
fljúga aftur til Barcelona, en þar var
þeim boðin gisting á hóteli og flug
til Keflavíkur daginn eftir. Farþeg-
arnir tveir sem kvörtuðu voru meðal
þeirra sem fóru frá borði í Glasgow.
Vueling bar því við að fluginu hafi
verið aflýst vegna slæmra veðurað-
stæðna á Keflavíkurflugvelli. Einnig
hafi viðgerð á flugbrautum gert erf-
iðara fyrir lendingu í Keflavík auk
erfiðra aðstæðna á varaflugvöllum
hér á landi. Kvartendur héldu því
hins vegar fram að öll önnur flug
hafi lent í Keflavík þennan dag og
því megi ástæðuna rekja til van-
hæfis flugáhafnar við að ráða við
eðlilegar veðuraðstæður.
hdm@mbl.is
Barcelona-farar fá flugið endurgreitt
Spænska flugfélagið Vueling aflýsti flugi hingað til lands vegna veðurs í fyrra
Vueling Spænskt lággjaldaflugfélag.