Morgunblaðið - 02.03.2018, Side 11

Morgunblaðið - 02.03.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2018 U Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 39.200 k 17.500 kr. 26.900 kr. 34.700 kr. Mikið úrval af lömpum og flauelspúðum Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðis- ráðherra, segir að starfsmanna- skorti á sjúkrahúsum verði ekki kippt í liðinn á stuttum tíma, en kveðst vilja gera allt sem í hennar valdi standi til að leysa sem fyrst úr þeim vandræðum sem skapast hafa. Í opnu bréfi til ráðherrans í Morgunblaðinu á miðvikudaginn kvartaði Rósa Víkingsdóttir, móðir langveikrar stúlku, yfir því að for- eldrar væru settir í hlutverk starfsfólks sjúkrahúsanna og gætu ekki sinnt venjulegu foreldrahlut- verki fyrir þreytu og álagi. „Mér finnst mikilvægt að spít- alinn útskýri stöðuna og fagna því að hann hefur gert það fyrir sitt leyti,“ segir Svandís og vísar til viðtals í Morgunblaðinu í gær við Ragnar Bjarnason, yfirlækni á Barnaspítala Hringsins, þar sem rakið var hvernig skortur á hjúkr- unarfræðingum bitnar á þjónustu spítalans. Hún segir að nú sé hafin vinna við að taka á þessum mönn- unarvanda. Forsætisráðherra og ráðherrar fjármála og heilbrigð- ismála hafi undirritað sérstaka yf- irlýsingu um málið í tengslum við kjarasamninga við BHM á dög- unum. „Þar er fjallað um heilbrigðis- stéttir og meðal annars um manna- flaspár og mikilvægi þess að taka á þessari stöðu sem upp er komin í heilbrigðiskerfinu á Íslandi, þenn- an mönnunarvanda sem þar er við lýði,“ segir Svandís. Þetta mál verði tekið til skoðunar með stétt- unum sjálfum og ekki síst Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. „Ég ræddi þetta sérstaklega á opnum fundi með hjúkrunarfræð- ingum á miðvikudaginn og sagði að vilji minn stæði til þess að nálgast þennan vanda frá öllum mögu- legum hliðum með það að mark- miði að finna lausn. Við þurfum líka að greina hvað það er sem veldur því að fjöldi hjúkrunarfræð- inga kýs sér annan starfsvettvang. Að hvaða leyti það eru kjörin, starfsumhverfið, álagið og mögu- leiki til starfsþróunar og fram- gangs í starfi, sem þarna eiga hlut að máli.“ Svandís segist hafa rætt það innan heilbrigðisráðuneytisins að setja saman sérstakt fagteymi í kringum stuðning við langveik börn og ekki síst börn með sjald- gæfa sjúkdóma. „Slíkt fagteymi hefði það verkefni að tryggja sam- fellu í þjónustu við þennan hóp, bæði börnin og fjölskyldur þeirra.“ Hún kveðst vilja hefja vinnu við þetta á næstu vikum þannig að hægt verði að koma slíku teymi á fót þegar á þessu ári. Morgunblaðið/Ómar Sjúkrahús Skortur er á hjúkrunarfræðingum á Barnaspítala Hringsins. Ráðherra boð- ar fagteymi  Tryggi samfellu í stuðningi við lang- veik börn og með sjaldgæfa sjúkdóma Svandís Svavarsdóttir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur lagt fram fyrirspurn í þremur liðum til Sigurðar Inga Jó- hannssonar, samgöngu- og sveit- arstjórnarráðherra, um nöfn sveit- arfélaga. Fyrirspurnin er svohljóðandi: 1. Hvert er opinbert nafn sveitar- félagsins þar sem höfuðborg Íslands er staðsett? 2. Hvert er nafn sameinaðs sveitarfélags Grímseyjar, Hríseyjar og Ak- ureyrar? 3. Hvert er nafn sameinaðs sveitarfélags Norðfjarðar, Mjóafjarðar, Eskifjarðar, Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar? Svör við spurningunum þremur eru Reykjavík, Akureyri og Fjarða- byggð. Þingmaðurinn óskar þess að ráð- herrann svari skriflega. Fæðingarstaður rétt skráður? Spurður um hver ástæðan væri fyrir fyrirspurn hans, sagði Björn Leví: „Þetta snýst um það að fólk ut- an af landi, sem er að eignast börn, veltir því fyrir sér hvort fæðing- arstaður barnsins er rétt skráður. Ég vil einfaldlega fylgja eftir sögum sem koma utan af landi um rangar skráningar og þess vegna óska ég svara um þetta frá ráðherranum, og ætla að bera saman fæðingarstað barna og þau sveitarfélög sem þau eiga heima í,“ sagði Björn Leví . Spyr um nöfn sveitarfélaga Björn Leví Gunnarsson  Snýst um skrán- ingu fæðingarstaðar Stefán Kristjánsson, stórmeistari í skák, er látinn, 35 ára að aldri. Stefán fæddist 8. desember 1982. Hann byrjaði að tefla skák 11 ára gamall fyrir skáklið Melaskóla og varð fljót- lega einn efnilegasti skákmaður landsins. Hann sigraði á fjöl- mörgum barna- og ung- lingamótum og varð einn sigursælasti skák- maður landsins á Ís- landsmóti skákfélaga. Stefán var níu sinn- um í skáklandsliði Ís- lands á ólympíu- mótum, fyrst árið 2000 í Istanbul. Hann tefldi að auki á mörgum stór- mótum hér heima og erlendis. Hann varð al- þjóðlegur meistari 2002, skákmeistari Reykjavíkur 2002 og 2006, hlaut fyrsta stór- meistaraáfangann 2006 og varð stór- meistari í skák árið 2011. Stefán lætur eftir sig einn son. Andlát Stefán Kristjánsson ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.