Morgunblaðið - 02.03.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.03.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2018 JÓN BERGSSON EHF RAFMAGNSPOTTAR Einstaklega meðfærilegir og orkunýtnir pottar sem henta jafnt í bústaðinn sem og í þéttari byggð Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is Atli Vigfússon laxam@simnet.is Íslenski fjárhundurinn er líf-legur, fallegur og góður fé-lagi. Mjög vingjarnlegur ogpassar vel inn í íslenska nátt- úru. Hann er klár og sjálfstæður, tryggur eiganda sínum og mikil til- finningavera. Hann kemur mér allt- af í gott skap, alltaf glaður og dug- legur að fá mann í göngutúra,“ segir Connie Marie Cuesta-Scmiedl sem býr á bænum Breiðanesi í Þing- eyjarsveit. Hún er frá Þýskalandi og fékk fyrsta íslenska fjárhundinn sumarið 2006 og á núna nokkra hunda af sama kyni og er mjög ánægð. „Mestöllum frítíma mínum eyði ég með hundunum, enda finnst mér eins og þeim mjög gaman að vera í gönguferðum. Við förum oft upp á heiði eða í skógarferðir og líka á gönguskíði yfir veturinn. Þeir gera allt mögulegt sér til skemmtunar í ferðunum og ef ég er ein á gangi, eins og stundum erlendis, þá finnst mér alltaf vanta eitthvað,“ segir Connie, en hún flutti til Íslands 1985 og hóf störf við Framhaldsskólann á Laugum S-Þing haustið 2012 . Hún segir að auðvitað sé ærsla- gangur í gönguferðunum og hávaði. Hins vegar sé mjög gaman að sjá hvernig hundarnir skilgreina sig sem gengi og hvernig þeir fylgja reglum sín á milli. Þeir hafi auk þess allir mismunandi persónuleika og kosturinn er að þeir hafa mikinn fé- lagsskap af hver öðrum. Það kemur sér vel þegar hún er í kennslunni því þá eru hundarnir einir yfir daginn. Hefur fengið góða dóma á sýningum Connie fer á sýningar hjá Hundaræktarfélagi Íslands einu sinni til tvisvar á ári. Hún segir að sýningarnar séu alltaf fyrir sunnan t.d. í og við Reykjavík, en hennar skoðun er að það mætti halda þær annars staðar eins og á Akureyri til þess að gefa landsbyggðarfólki meiri tækifæri á að koma á sýningarnar. Hennar hundar hafa yfirleitt fengið góða dóma fyrir líkamsbyggingu og útlit, en tíkin hennar, hún Góa, fékk Íslenski fjárhundur- inn er frábær félagi Íslenski fjárhundurinn er í útliti líkur mörgum öðrum norrænum hundakynjum. Hann er með upprétt eyru og hringað skott með sérlega aðlaðandi skapgerð. Hann er ákaflega vakandi og eftirtektarsamur og auðveldari í umgengni og tamningu heldur en margir hundar af öðrum kynjum. Hann hefur orð fyrir að vera geltinn, en eigandinn þarf að gefa sér tíma til þess að kenna honum undirstöðuatriði í hlýðni sem nauðsynlegt er hverjum hundi. Hann hefur heillað marga hundarækt- endur og þeir sem eiga íslenska fjárhundinn verða ekki fyrir vonbrigðum. Flottur Breiðanes-Björn, sem oftast er kallaður Bubbi, er glæsilegur. Saman í göngutúr Hundarnir hafa mjög gaman af því að fara í göngutúra. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Samtökin 78 og Trans Ísland standa fyrir ráðstefnu í dag um málefni trans-barna og -ung- menna í Iðnó. Ráðstefnan ber heitið Undir regnboganum og mun Jean Malpas, fjölskyldufræð- ingur og stofnandi The Gender and Family Project í Ackerman stofnunni í New York borg, flytja tvö erindi á ráðstefnunni sem stendur yfir frá kl 9 til 16:30. Sigríður Birna Valsdóttir, leik- listar- og fjölskyldumeðferðar- fræðingur, sem kemur að skipu- lagi ráðstefnunnar, segir að verkefni Malps snúist að mestu um stuðning og ráðgjöf við trans- fólk og aðstandendur þess. „Þessi þjónusta sem hann býður upp í Bandaríkjunum er sú stærsta sinnar tegundar fyrir trans-börn og aðstandendur þeirra þar í landi,“ segir Sigríð- ur. Fyrra erindi Malpas ber titil- inn „Að geta verið trúr sinni kyn- vitund: Valdefling trans-barna og fjölskyldna þeirra“ og mun hann þar skoða fjölbreytileika kyns og hvernig er hægt að verða banda- maður og stuðningsaðili trans- barna, fjölskyldu þeirra og sam- félaga. Sigríður segir að fyrri fyrirlesturinn sé miðaður að fjöl- skyldum og fagfólki sem vinnur með transbörnum. Seinna erindi Malpas ber titilinn „Pláss fyrir öll kyn: Vald- efling trans-nemenda og hlutverk skólans“ en þar verður farið yfir mikilvægi skólans og skólastarfs- fólks í að tryggja öruggt um- hverfi fyrir trans-börn. Sigríður segir spurð nauðsyn á betri fræðslu um trans-börn og -ungmenni á Íslandi. „Já, það er í rauninni engin fræðsla. Það er allt of lítið um þennan málaflokk í menntun t.d. hjá félagsráð- gjöfum, kennurum og öðrum sem vinna með börnum og unglingum. Það er allt of lítið um málefni trans- og hinsegin barna. Auðvit- að er eitthvað fjallað um þetta en alls ekki nægilega mikið.“ Hún bendir einnig á að svo margt hef- ur breyst á fáum árum að þeir sem voru í námi fyrir mörgum árum lærðu lítið um þetta á sín- um tíma. „Þetta eru málefni sem hafa kannski ekki komið upp áð- ur hjá þessum starfstéttum en núna er þetta að koma töluvert mikið upp. Við erum með mörg börn sem eru í íslenska skóla- kerfinu og eru búin að breyta um nafn. Vegna þess að það er meiri vitundarvakning í samfélaginu þora krakkarnir að segja frá því og foreldrar eru líka meðvitaðri og hafa heyrt um þetta, þekkja málefnið eitthvað aðeins og þar af leiðandi eru þau að taka við sér og leita aðstoðar fyrr en áð- ur.“ Sigríður leiðir sjálf aðstand- endahópa og stuðningshópa fyrir yngri og eldri trans-ungmenni. Þá reka Samtökin 78 einnig ráð- gjafarþjónustu allt árið um kring þar sem trans-fólk og aðstand- endur þess eru velkomnir. Samtökin 78 og Trans Ísland Ráðstefna um trans- börn og -ungmenni Jean Malpas Sigríður Birna Valsdóttir Morgunblaðið/Árni Sæberg Trans Samtökin 78 og Trans Ísland standa fyrir ráðstefnunni sem fer fram í dag. Þar getur fólk fræðst betur um trans-börn og -ungmenni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.