Morgunblaðið - 02.03.2018, Síða 13

Morgunblaðið - 02.03.2018, Síða 13
Ljósmyndir/Atli Vigfússon Bestu vinir Connie segir íslenska fjárhundinn vera tryggan eiganda sínum og mikla tilfinningaveru. Hér er Connie umvafin þessum góðu líflegu vinum sínum, þeim Leiru-Trygg, Breiðanes-Björt og Kríu. einu sinni silfurverðlaun á hvolpa- sýningu. „Næst fer ég á sýningu í Reykjavík núna í byrjun mars og þá ætla ég að sýna tík sem er 9 mánaða gömul og hefur ræktunarnafnið Breiðanes-Björt, í daglegu tali bara Björt. Hún fæddist hjá mér í fyrra- sumar og er mjög falleg,“ segir Connie og ljómar eins og sólin. Hún á báða foreldrana en þau heita Kría og Leiru-Tryggur. Hefur fylgt þjóðinni frá land- námi og fegrað umhverfið Connie segir að í heiminum séu um það bil fimm þúsund íslenskir fjárhundar skráðir og hún hefur selt hvolpa til Sviss og Bandaríkjanna. Hún seldi m.a. tíkina Breiðanes- Blíðu til Kaliforníu sl. haust og hún er þar í hundaleikskóla og fær mjög góða umsögn. Hún segir þessa hunda vera mjög víða og nefnir m.a. Ástralíu, Grænland, Kanada, Nýja- Sjáland og nokkur lönd í Austur- Evrópu. Hún segir að áhugi á ís- lenska fjárhundinum sé að aukast og það eigi við bæði á Íslandi og erlend- is. Hún segir að það séu mjög mörg litafbrigði í íslenska hundinum og þrílitir hundar séu mjög fallegir. Leiru-Tryggur er þannig, en hann er hvítur, svartur og rauður og er því, eins og hún segir, með fallegri hundum í landinu. Þá segir hún að djúprauði liturinn sé að koma mjög vel út og margir séu hrifnir af hon- um. Hún telur framtíð íslenska fjár- hundsins bjarta og það eru alltaf mjög mörg got á ári hér á landi. Hún segir að hann sé gersemi sem hefur fylgt þjóðinni allt frá landnámi. Hann hafi aðlagast mjög vel að ís- lenskri náttúru og fegrað landi með tilveru sinni og þeirri gleði sem allt- af hefur fylgt honum.Hundaleikur Hundarnir á Breiðanesi eru sérlega kátir og bregða oft á leik. „Þeir gera allt mögulegt sér til skemmtunar í ferðunum og ef ég er ein á gangi, eins og stundum erlendis, þá finnst mér alltaf vanta eitthvað.“ DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2018 Ármúla 24 • S. 585 2800Opið virka daga 9-18, laugardaga 11-16 • www.rafkaup.is Saga íslenska fjárhundsins er fremur óljós framan af eða fyrst eftir land- nám. Þó er getið um nokkra hunda í Íslendingasögum. Getið er um hunda í tengslum við hungursneyð í landinu um 990 og þá var lagt til að þeim yrði lógað og matur fremur nýttur handa fólki. Í Gísla sögu Súrssonar er minnst á hund og einnig í Sturlungu. Því mið- ur vantar lýsingar á þessum hundum nema að þeir lágu uppi á húsum og geltu er gest bar að garði. Í ýmsum ritum frá miðöldum er talað um ís- lenska fjárhundinn og ekki að efa að þar er um sama kynið að ræða sem enn lifir í landinu. T.d. er mjög góð lýsing á hundum í Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar. Geltu þegar gest bar að garði LAGT TIL AÐ ÞEIM YRÐI LÓGAÐ Í HUNGURSNEYÐ ÁRIÐ 990 Morgunblaðið/RAX Gelt Þessi íslenski fjárhundur tók eindregna afstöðu gegn ríkisstjórninni. Í Lífspekifélaginu er fjallað um heim- speki, lífsgildi, vísindi, listir og andleg málefni. Á vefsíðu félagsins kemur fram að Lífspekifélagið – The Theo- sophical Society, sé alþjóðlegt félag, stofnað árið 1875 í New York. Höfuð- stöðvar þess eru á Indlandi og það starfar í deildum um heim allan. Fyrsta grein Lífspekifélagsins á Íslandi var stofnuð í Reykjavík 17. nóvember 1912. Íslandsdeild Lífspekifélagsins var stofnuð 1921. Stefna félagsins er að móta kjarna úr allsherjar bræðra- lagi alls mannkyns, án tillits til kyn- þátta, trúarskoðana, kynferðis, stétta eða hörundslitar. Að hvetja fólk til að kynna sér og bera saman vísindi, trúarbrögð og heimspeki. Að rannsaka óskilin náttúrulögmál og öfl þau, er leynast með mönnum. Kristinn Ágúst Friðfinnsson mun flytja fyrirlestur í Lífspekifélaginu á morgun, laugardag 3. mars kl. 15.00- 16.30, um tilraunir manna til að sjá til- veruna í heildrænu ljósi. Saga alls, er yfirskrift fyrirlestursins. Félagið er til húsa í Ingólfsstræti 22 í Reykjavík. Tilraunir manna til að sjá tilveruna í heildrænu ljósi Kristinn heldur erindi hjá Líf- spekifélaginu Saga alls Kristinn Á. Friðfinnsson. Rannsóknir hafa bent til þess að íslenski fjárhundur- inn sé upprunninn af svæð- um í Norðvestur-Rússlandi. Skömmu fyrir aldamótin 1900 gáfu Danir út fyrsta ræktunarmið íslenska hundsins og komu fyrstu tveir hundarnir fram á hundasýningu í Kaupmanna- höfn 1897. Þeir unnu báðir til verðlauna og annar þeirra fékk bikar. Árið 1905 var gefið út sams konar rækt- unarmið í Englandi og þar komu íslenskir hundar fram á hundasýningum. Á árunum 1930-1960 fór íslenska fjárhundinum mjög fækkandi hér á landi svo mikið að ekki leit vel út um tíma. Fyrir áeggjan Páls A. Pálssonar dýralæknis var Sigríður Pétursdóttir á Ólafsvöllum á Skeiðum fengin til að reyna að rækta aftur upp kynið og það tókst þannig að ekki var lengur hætta á að fjárhundurinn glataðist eða væri í útrýmingarhættu. Uppruninn er í Rússlandi SIGRÍÐUR Á ÓLAFSVÖLLUM BJARGAÐI FRÁ ÚTRÝMINGU Falleg Breiðanes-Björt er fædd í júní á sl. ári.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.