Morgunblaðið - 02.03.2018, Page 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2018
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Njóttu þess að hvílast
í hreinum rúmfötum
Við þvoum og pressum rúmfötin
- þú finnur muninn!
Gæðafiskur
Kæliþurrkaður
harðfiskur sem
hámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur
84%prótein.
Einfaldlega hollt og
gott snakk
84% prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
kom mörgum í opna skjöldu á mið-
vikudagskvöld þegar hann viðraði
hugmyndir um að ganga lengra í að
takmarka byssueign og aðgang að
skotvopnum en repúblikanar hafa
viljað til þessa.
Umræða um byssueign hefur ver-
ið mjög hávær í Bandaríkjunum eftir
að Nikolas Cruz, fyrrverandi nem-
andi í Marjory Stoneman Douglas-
skólanum í Parkland í Flórída, gerði
árás í skólanum fyrir tveimur vikum
og skaut til bana þrjá starfsmenn
skólans og 14 unglinga.
„Við verðum að gera eitthvað í
þessu,“ sagði hann og lýsti yfir
stuðningi við viðameiri athugun á
bakgrunni á kaupendum skotvopna,
aukna öryggisgæslu í skólum, höml-
ur á rétt fólks með geðraskanir til að
kaupa skotvopn og að hækka aldurs-
takmark til kaupa á tilteknum skot-
vopnum í 21 ár.
„Við getum ekki beðið og sett upp
leikþætti og ekkert kemst í verk,“
sagði Trump á fundi með þingmönn-
um demókrata og repúblikana. Tal-
aði hann um fegurð þess að leggja
fram „eitt frumvarp sem allir geta
stutt“ og bætti við: „Það er kominn
tími til að forseti stígi fram.“
Fundurinn var haldinn í Hvíta
húsinu og var í beinni útsendingu í
sjónvarpi.
Trump sagði að til greina kæmi að
lögregluyfirvöld hefðu vald til að
gera upptækar byssur fólks með
gerðraskanir og annarra, sem stafað
gæti af hætta, án þess að fara fyrst
fyrir dómstóla. „Taka byssurnar
fyrst, fara síðan réttarfarsleiðina,“
sagði hann. Forsetinn lagði einnig til
að taka ætti til umræðu bann við
árásárvopnum.
Demókratar fögnuðu málflutningi
Trumps þótt í röðum þeirra mætti
heyra efasemdir um að hann myndi
fylgja honum eftir með verkum, en
undirtektir repúblikana voru öllu
dræmari.
„Við ætlum ekki að kasta á glæ
vernd stjórnarskrárinnar einfald-
lega vegna þess að síðasti viðmæl-
andi forsetans kunni ekki að meta
hana,“ sagði Ben Sasse, þingmaður
repúblikana í Nevada, í yfirlýsingu.
Býður NRA byrginn
Samtök byssueigenda í Bandaríkj-
unum, NRA, hafa beitt sér af krafti
gegn öllum tilraunum til að tak-
marka byssueign og aðgang að
byssum. Í yfirlýsingu frá samtökun-
um eftir fundinn sagði að hugmynd-
irnar, sem Trump hefði nefnt, væru
„slæm stefna“.
Áhrif samtakanna eru mikil og
stjórnmálamenn varast að bjóða
þeim byrginn. Samtökin veittu 30
milljónir dollara (þrjá milljarða
króna) til kosningabaráttu Trumps.
„Við NRA get ég sagt með stolti að
ég mun aldrei nokkurn tímann
bregðast ykkur,“ sagði Trump á árs-
fundi samtakanna í fyrra.
Á fundinum sagði Trump að NRA
væri velmeinandi, en bætti við að
hann hefði sagt við forustu samtak-
anna á sunnudag að það yrði að
„stoppa þessa vitleysu. Það er kom-
inn tími til“.
Þegar Patrick J. Toomey, þing-
maður repúblikana frá Pennsylvan-
íu, mótmælti hugmyndum Trumps
um að hækka aldurinn til byssu-
kaupa, svaraði forsetinn: „Þú ert
hræddur við NRA.“
Kennsla hófst að nýju í Marjory
Stoneman Douglas-skólanum á mið-
vikudag. Mikil öryggisgæsla var
þegar nemendur sneru aftur. Nem-
endur skólans hafa látið að sér kveða
í umræðunni um byssueign eftir að
árásin var gerð og hefur það haft sín
áhrif.
Verslunarkeðjan Dick’s Sporting
Goods tilkynnti á miðvikudag að
þegar yrði hætt að selja árásar-
byssur í verslunum keðjunnar og
enginn undir 26 ára aldri fengi að
kaupa skotvopn. Edward Stack,
framkvæmdastjóri keðjunnar, sagði
að Cruz hefði keypt haglabyssu í
einni af verslunum sínum í nóvember
og þótt sú byssa hefði ekki verið not-
uð í árásinni myndi keðjan hætta að
selja hálfsjálfvirkar byssur.
„Okkar afstaða er sú að hafi börn-
in hugrekki til að skipuleggja sig
með þessum hætti getum við haft
hugrekki til að fjarlægja þær,“ sagði
hann.
Trump styður að byssu-
eign verði takmörk sett
Kom þingmönnum beggja flokka í opna skjöldu
AFP
Byssur Donald Trump Bandaríkjaforseti ræðir takmörkun byssueignar á
fundi með demókrötum og repúblikönum í Hvíta húsinu á miðvikudag.
„Afar mikilvægur gestur, og mjög
mikilvæg gjöf að fá hann á 70 ára af-
mælisári sjálfstæðis okkar,“ tísti
Reuven Rivlin, forseti Ísraels vegna
fyrirhugaðrar opinberrar heimsókn-
ar Vilhjálms prins, hertogans af
Cambridge, til Ísraels, Palestínu og
Jórdaníu í sumar. Heimsóknin er að
ósk ríkisstjórnar Bretlands og hefur
verið fagnað af Jórdönum, Ísraelum
og Palestínumönnum, skv. tilkynn-
ingu frá Kensingtonhöll
Heimsækir fyrstur Palestínu
Enginn úr bresku konungsfjöl-
skyldunni hefur áður komið í opin-
bera heimsókn til Palestínu. Ýmsir
úr bresku konungsfjölskyldunni
hafa áður heimsótt Jórdaníu, þar á
meðal Elísabet II. Bretadrottning
ásamt eiginmanni sínum, Filippusi
prins, hertoganum af Edinborg, árið
1984. Vilhjálmur prins er annar í röð
erfingja krúnunnar og verður æðst-
ur meðlima bresku konungsfjöl-
skyldunnar til að heimsækja Ísrael.
Áður höfðu aðeins frændur Elísabet-
ar II. Bretadrottningar, Játvarður
prins, hertogi af Kent, og Ríkharður
prins, hertogi af Gloucester, heim-
sótt Ísrael opinberlega.
„Við fögnum tilkynningu um komu
Vilhjálms prins til Ísrael, sögulegri
heimsókn,“ sagði Benjamin Net-
anyahu, forsætisráðherra Ísraels, í
yfirlýsingu og sagði að tekið yrði á
móti öðrum í röð erfingja bresku
krúnunnar „með hlýju“.
Utanríkisráðherra Ungverja-
lands, hefur lýst yfir að ferðin sé
„mikilvægt og einstakt tækifæri til
að efla diplómatísk og menningarleg
tengsl á svæðinu“. Ísraelsríki var
stofnað 1948 og verður 70 ára í maí.
Vilhjálmur prins
heimsækir Ísrael
Heimsóknin fyrirhuguð í sumar
AFP
Í sumar Vilhjálmur Bretaprins fer
til Ísraels, Palestínu og Jórdaníu.
Blindbyljir og fannfergi ollu usla
víða í Evrópu í gær. Talið er að nú
hafi 50 manns látið lífið í kuldakast-
inu í álfunni. Loka þurfti flug-
völlum og fresta flugi í Sviss, Skot-
landi og á Írlandi.
Helmingi lestarferða var aflýst á
Ítalíu og skólum lokað í Napolí.
Snjór féll á Frönsku rívíerunni.
Nice var snævi þakin og tvö þúsund
ökumenn voru strandaglópar
klukkustundum saman á hraðbraut
skammt frá Montpellier.
Veðrið í álfunni er óvenjukalt. Á
þessum árstíma eru íbúar þar vanir
að fagna vori.
Kuldakastið heldur áfram
AFP
Snjór Íbúar í Glasgow gátu skemmt sér í snjónum í gær. Flugvelli borgar-
innar var lokað og Icelandair var meðal flugfélaga, sem felldu niður flug.